Morgunblaðið - 25.11.2001, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 31
Heillandi saga um Ófelíu og leikarana í Skuggaleik-
húsinu hennar – fyrir börn á aldrinum 3-9 ára.
Grímur, brúður, söngur, dans, líf og litir!
Samstarfsverkefni Íslensku óperunnar
og Strengjaleikhússins
Hljómsveitarstjóri: Lárus H. Grímsson
Leikstjórar: Auður Bjarnadóttir og Messíana Tómasdóttir
Leikmynd, búningar, grímur og brúður: Messíana Tómasdóttir
Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason
Dansar: Auður Bjarnadóttir
Söngvarar og sögumenn:
Marta G. Halldórsdóttir sópran: Rauðfríða og rödd Ófelíu
Sverrir Guðjónsson kontratenór: Fjólufeykir og Dauðinn
Hljóðfæraleikarar:
Lárus H. Grímsson (Ólívus): klarinett og flauta
Kjartan Valdemarsson (Kálblámi): harmónikka og píanó
Matthías Hemstock (Grængormur): slagverk
Brúðustjórn: Marta G. Halldórsdóttir og Sverrir Guðjónsson
Frumsýning 27. nóvember 2001
Leikskólasýningar á morgnana virka daga
Almennar sýningar sunnudagana 2. og 9. des. kl. 15
Sala aðgöngumiða á almennu sýningarnar hefst
mánudaginn 26. nóvember.
Tryggðu þér og börnunum þínum miða!
eftir: Lárus H. Grímsson og Messíönu Tómasdóttur
Barnaópera
Sími miðasölu: 511 4200
EITURLYFJALÖGREGLAN Í
Los Angeles er framtíðartakmark
Jake Hoyt (Ethan Hawke), góðlegs
ungmennis, sem til þessa hefur mælt
götur í friðsælu úthverfi borgarinnar.
Starfinu fylgir frami, hærri laun,
betri aðbúnaður, meiri virðing. Train-
ing Day hefst að morgni reynsludags
götulöggunnar, sem er settur í umsjá
lögregluforingjans Alonzo Harris
(Denzel Washington), frægrar og
margverðlaunaðrar hetju í eiturlög-
regluliðinu. Hoyt lítur upp til hans og
hugsar sér gott til glóðarinnar að
læra sem mest af þessum mæta
manni. Sem reynist sannkallað skít-
menni. Viðsjárverður lögreglumaður
í viðsjárverðum heimi eiturs, glæpa
og ofbeldis í sorahverfum Englaborg-
arinnar. Vílar ekkert fyrir sér, dansar
sinn vafasama línudans á mörkum
glæpa og réttvísi, oftar en ekki röng-
um megin.
Harris fer með græningjann í
sannkallaða vítisreisu um spillt hverfi
og viðsjárverða stigu stórborgarinn-
ar. Gefur Hoyt englaryk í morgunmat
og ruglar á alla vegu, þannig að sá
óreyndi botnar lengi vel ekki neitt í
neinu, álítur helst að verið sé að
leggja fyrir sig gildru. Verður vitni að
mútuþægni, morðum og eftir því sem
á daginn líður, síendurteknum,
gruggugum starfsaðferðum Harris
og harðsoðinna starfsfélaga hans,
sem minna meira á ótínda glæpa-
menn en laganna verði. Gengur hann
út frá því sem vísu að atburðarásin sé
til þess eins að reyna í sér þolrifin.
Svo er ekki, að kvöldi dags á hann fót-
um fjör að launa.
Að sjálfsögðu setur Hollywood
saman söguþráð svo yfirfullan af
vafasömum hápunktum að slík ósköp
gerast vart á einum degi. Veigamikil
atriði svo ólíkleg að þau eru fullkom-
lega ótrúverðug, sbr. þátt veskisins
sem bjargar græningjanum. Á hinn
bóginn varpar hún fram spurningu
um hvort sú ógn og spilling sem hér
er fagmannlega lýst geti hugsanlega
verið hluti af raunveruleikanum. Eru
löggurnar í Los Angeles, sem annars-
staðar, jafnsiðblindar og spilltar og
hér er sýnt? Við henni á almennur
borgari engin svör. Hitt liggur í aug-
um uppi að til eru jafnt vondar löggur
sem góðar, þótt þær séu vonandi ekki
margar á jafnhraksmánarlegu plani
og Harris. Með aukinni ólöglegri
neyslu fokdýrra eiturlyfja vex hættan
á spillingu og auknum glæpum. Því
má taka þessa harðsoðnu og vel gerðu
mynd sem válegan fyrirboða. Harris
er ekki aðeins siðblindaður af pen-
ingaflóðinu, heldur reynir hann að
réttlæta gjörðir sínar í augum Hoyt
og fyrir sjálfum sér með því að full-
yrða að með illu skuli illt út reka.
Washington hefur greinilega gam-
an af að sýna á sér nýja og óvænta
hlið, fer hamförum sem hinn syndum
spillti Harris. Hawke er heldur mélk-
isulegur, Glenn seigur að vanda og
rappararnir með hundsnöfn o.fl. hinir
óárennilegustu. Grimm, ljót en
spennandi og athyglisverð mynd.
Húmar hægt
að kvöldi
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjóri: Antoine Fuqua. Handritshöf-
undur: David Ayer. Tónskáld: Mark Manc-
ina. Kvikmyndatökustjóri: Mauro Fiore.
Aðalleikendur: Denzel Washington,
Ethan Hawke, Scott Glenn, Cliff Curtis,
Tom Berenger, Macy Gray, Dr. Dre, Snoop
Dogg. Sýningartími 90 mín. Bandarísk.
Para. 2001.
TRAINING DAY Sæbjörn Valdimarsson
Bankastræti 3, 551 3635
mat; eau de parfum
japanski dömuilmurinn hannaður af MASAKÏ MATSUSHÏMA