Morgunblaðið - 25.11.2001, Side 56

Morgunblaðið - 25.11.2001, Side 56
KVENNABÓSINN Charlie Sheen, sem hefur ekki verið við kvenmann kenndur í háa herrans tíð, hefur uppá síðkastið sést í fylgd hinnar íturvöxnu Denise Richards. Richards fór með gestahlutverk í þáttum Sheen, Spin City, þar sem hún fór með hlutverk unnustu hans. Hvort sem hún fann sig svo vel í því hlutverki er ekki vitað en í kjölfarið hafa turtildúfurnar sést saman við ýmiss tækifæri í Holly- wood. Sheen hefur verið þekktur fyrir margt annað en langtíma ástar- sambönd og verður því forvitnilegt að vita hvort fyrrum Bond-skvísan reynist sú eina sanna fyrir hann. Charlie Sheen krækti sér í Bond-stúlku Reuters Denise RichardsCharlie She en FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Dramatískt listaverk! ÓTH Rás 2 Metnaðarfull, einlæg, vönduð! HJ-Morgunblaðið ..fær menn til að hlæja upphátt og sendir hroll niður bakið á manni. SG DV ..heldur manni í góðu skapi frá fyrsta ramma til þess síðasta! EKH Fréttablaðið Þvílíkt náttúrutalent! SG - DV Ugla Egilsdóttir er hreint út sagt frábær! HJ Morgunblaðið Edduverðlaun6 Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson  HJ. MBL ÓHT. RÚV ATH! Sýning kl. 3 á sunnudegi og kl. 2 á mánudegi. Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15. á sunnudegi. Sýnd kl. 2, 5.45 og 8 á mánudegi. NÚ ÞEGAR árið er farið að stytt- ast heldur betur í annan endann fara plötufyr- irtækin að taka saman sölutölur og reikna út hver var mest selda plata ársins. Sú breiðskífa, sem líklegast mun tróna á toppi metsölulistans þetta árið, hefur þó aðeins verið í fjóra daga í sölu þegar þetta er skrifað en hefur þrátt fyrir það selst í 150 þúsund eintökum í Bret- landi einu saman. Hér er um að ræða nýjustu plötu fyrrum Ís- landsvinarins Robbies Williams, Swing When You’re Winning, þar sem hann syngur lög sem Frank Sinatra gerði fræg á sínum tíma. Robbie þarf því ekki að hafa áhyggjur af því að eiga ekki fyrir jólagjöfunum því að auki þykir líklegt að smáskífan Somethin’ Stupid, þar sem hann syngur með leikkonunni Nicole Kidman, verði söluhæsta smáskífa ársins. Mikil umræða um ófagran munnsöfnuð Williams í sjónvarps- þætti á dögunum virðist ekki hafa áhrif á sölu plötunnar en BBC-sjónvarpsstöðin neyddist til að senda frá sér opinbera afsök- unarbeiðni vegna þess fjölda kvartana sem henni barst frá áhorfendum. Það sem af er árinu hefur breiðskífa Hear’Say selst í flest- um eintökum eða alls 750 þúsund. Í öðru sæti er Shaggy með plötu sína Hotshot og í því þriðja Skot- arnir í Travis með The Invisible Band. Metsölulistar ársins í vinnslu Robbie Williams söluhæstur? Robbie Williams er hæstánægð- ur með aðdáendur sína. Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.