Morgunblaðið - 09.01.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isTilþrifalítið hjá landsliðinu
gegn Kúveit / B3
ÍBV upp að hlið Hauka
í efsta sæti / B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
ÍSLENDINGUR, sem varð vitni
að því þegar íslensk kona féll fram
af svölum íbúðarhótels á Kanar-
íeyjum og lést um miðnætti á laug-
ardag, sagði fyrir dómi í Las Pal-
mas í gær að hann teldi að
sambýlismaður konunnar, sem hef-
ur verið í haldi vegna gruns um
manndráp, hafi ekki ætlað sér að
hrinda henni fram af svölunum.
Þetta staðfesti Francisco Luis
Carreras Irima, ræðismaður Ís-
lands í Las Palmas, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði að
misskilningur við yfirheyrslur
hefði valdið því að lögreglan fékk
ranga mynd af atburðarásinni. Ís-
lenskur maður, sem er aðalvitni
lögreglunnar, tali litla ensku.
Framburður hans var í upphafi
þýddur yfir á ensku og síðan á
spænsku og segir Carreras Irima
að við þetta hafi orðið misskiln-
ingur. Lögreglan hafi ranglega tal-
ið að vitnið hafi sagt að maðurinn
hafi ýtt konunni af ásetningi fram
af svölunum.
Lágt handrið á
svalaganginum
Í gær fékkst loks dómtúlkur til
að þýða framburð vitnisins og sam-
býlismanns konunnar af íslensku
yfir á spænsku. Þá kom fram að
vitnið sá manninn ýta við konunni
þar sem þau gengu eftir svalagangi
hótelsins. Konan hafi fallið við, lent
á mittisháu svalahandriðinu og síð-
an fallið fram af svölunum. Carrer-
as segir því að í raun hafi verið um
slys að ræða.
Konan sem lést hét Svanhildur
Bjarnadóttir, 64 ára. Hún lætur
eftir sig fimm uppkomna syni.
Ekki liggja fyrir niðurstöður
krufningar.
Sambýlismaður hennar er enn í
gæsluvarðhaldi og er haldið í Gran
Canaria-fangelsinu. Lögmaður
hans hefur fimm daga til að leggja
fram kröfu um að honum verði
sleppt úr haldi. Verði dómarinn við
því verður manninum þó væntan-
lega gert að halda sig á eyjunum
þar til niðurstaða fæst í mál hans.
Carreras Irima telur ólíklegt að
maðurinn verði ákærður fyrir
morð en verði hann ákærður taki
málsmeðferð a.m.k. fimm mánuði.
Eins og fyrr segir kom maðurinn
fyrir dóm í gær. Hann gat ekki
svarað mörgum spurningum sem
lagðar voru fyrir hann og bar við
minnisleysi. Hann muni einungis
eftir því að hann og sambýliskona
hans hafi verið drukkin. Carreras
Irima segir manninn hafa verið
sorgmæddan og málið fengi greini-
lega mjög á hann. Sökum tungu-
málaerfiðleika hafi hann illa áttað
sig á atburðum. Maðurinn hefur
óskað eftir að fá að ræða við prest.
Íslenskt vitni yfirheyrt í gær fyrir dómi í Las Palmas á Kanaríeyjum
Telur að konunni hafi ekki
verið hrint af ásetningi
STARFSMENN Reykjavíkur-
borgar hafa verið önnum kafnir
við að safna saman jólatrjám borg-
arbúa í þessari viku. Reykvíkingar
þurfa að koma trjánum út á gang-
stétt fyrir næstkomandi föstudag
ef þeir vilja losna við trén. Starfs-
menn hreinsunardeildar borg-
arinnar segja að í fyrra hafi tölu-
verður fjöldi trjáa endað á
áramótabrennum vegna of-
framboðs á jólatrjám en nú hafi
nær engin tré farið á brennur.
Hreinsunardeildin kemur jóla-
trjánum í gáma á vegum Gáma-
þjónustunnar sem flytur trén suð-
ur undir Straumsvík þar sem þau
eru kurluð niður og endurnotuð.
Þeir leggja áherslu á að fólk
bregðist fljótt við og komi trjánum
frá sér: „Það versta er að sumir
virðast halda að við séum að þessu
fram á vor en hreinsunin stendur
aðeins þessa einu viku. Eftir það
verða menn sjálfir að koma trján-
um í endurvinnslustöðvar Sorpu
þannig að það er um að gera að
nýta tækifærið nú.“
Morgunblaðið/RAX
Söfnun jóla-
trjáa lýkur
á föstudag
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar
í Reykjavík lagði í fyrradag hald á
hátt í 300 kannabisplöntur sem ver-
ið var að rækta í leiguhúsnæði í
vesturbæ Reykjavíkur. Jafnframt
var lagt hald á nokkurt magn kann-
abisefna auk flúorljósa og fleiri
tækja og tóla sem þarf til rækt-
unarinnar.
Hinn 3. desember sl. var gerð
húsleit í leiguhúsnæði í vesturbæ
Reykjavíkur og lagði lögregla þar
hald á um 270 kannabisplöntur og
hefur lögreglan í Reykjavík því lagt
hald á hátt í 600 plöntur á skömm-
um tíma.
Um er að ræða tvö aðskilin mál.
Nokkrir hafa verið yfirheyrðir
vegna þeirra en rannsókn er ekki
lokið.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildarinnar, segir að yfir 200
plöntur hafi verið komnar vel á
legg. Ræktun á kannabisplöntum sé
að sjálfsögðu ólögleg, rétt eins og
fíkniefnasmygl og -sala.
Miðað við hið mikla magn er talið
afar ólíklegt að kannabisefnin hafi
verið ræktuð til einkanota.
Aðspurður segir Ásgeir að lengi
hafi verið vitað til þess að kannabis
væri ræktað hér á landi og boðið til
sölu.
Í nóvember lagði lögreglan í
Hafnarfirði hald á um 600 kannabis-
plöntur í iðnaðarhúsnæði í bænum.
Þar var um að ræða einhverja um-
fangsmestu fíkniefnaframleiðslu
sem lögregla hefur upplýst.
Umfangsmikil ræktun
kannabisefna stöðvuð
Hluti af kannabisplöntunum sem lögreglan lagði hald á í gær. Myndin er
tekin á lögreglustöðinni við Hverfisgötu en ekki á vettvangi afbrotsins.
TANNLÆKNADEILD Háskóla
Íslands mun gera það að tillögu
sinni til háskólaráðs, að teknir
verði inn átta fyrstaársnemar í
tannlæknisfræði á vormisseri,
þ.e. tveimur fleiri en teknir eru
inn að loknum samkeppnispróf-
um, vegna mistaka sem urðu við
útreikning einkunna.
Að sögn Einars Ragnarsson-
ar, deildarforseta tannlækna-
deildar, reyndust einkunnir
nema úr einu fagi vera rangar
við nánari skoðun. Ekki sé ljóst
hvað hafi valdið mistökunum. Þá
þegar var búið að hleypa sex
nemum áfram en þegar reikn-
ingsskekkjan var leiðrétt hækk-
uðu einkunnir tveggja nema til
viðbótar og hefði þá strangt til
tekið átt að ógilda inngöngu
tveggja nema af sex sem höfðu
verið samþykktir.
Hugsanlega ekki löglegt
Einar sagði slíkan gjörning
ómannúðlegan og dró í efa að
það væri löglegt. Því myndi
tannlæknadeild gera það að til-
lögu sinni að átta efstu nemarnir
yrðu teknir inn. Alls var 21 nemi
skráður í próf deildarinnar. Þar
af mættu 18 og 11 stóðust kröfur
um lágmarkseinkunn.
Átta nemar verði
teknir inn í tann-
læknadeid í stað sex
Mistök við yfirferð prófúrlausna
Misskilningur við yfirheyrslur
varð til þess að lögreglan fékk
ranga mynd af atburðinum