Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 15
Nám sem gefur tvær alþjóðlegar prófgráður sem
eru viðurkenndar á vinnumarkaðinum bæði
hérlendis og erlendis.
Við kennum nútímaforritun og leggjum áherslu á
hlutbundna hönnun og forritun ásamt
gagnagrunnsfræði.
Við sköpum traustan þekkingargrunn sem við
byggjum ofaná með skriflegum og verklegum
æfingum.
Val er um tvær námsbrautir
- Dagskóli - Fullt nám
- Kvöldskóli - Nám með vinnu
- Sun Certified Java Programmer
- Certified Delphi Programmer
Skráning í fullum gangi
Allar nánari
upplýsingar
og skráning á
www.ntv.is
eða í síma
555 4980 og
544 4500
Spennandi nám í Forritun- og kerfisfræði
Horfðu til framtíðar…
...við hjálpum þér af stað !
k
la
p
p
a
ð
&
k
lá
rt
-
ij
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
n
t
v
.
is
nt
v.
is
n
t
v
.i
s
HELGA Sigrún Harðardóttir atvinnuráðgjafi
er ein þeirra kvenna sem fara sínar eigin leið-
ir í lífinu. Hún hefur afkastað miklu í gegnum
tíðina. Hún er einstæð móðir og starfar hjá
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykja-
nesbæjar. Helga Sigrún átti dóttur sína að-
eins sextán ára gömul, en lét það ekki aftra
sér í námi, hún hefur menntað sig sem kenn-
ara og náms- og starfsráðgjafa og leggur nú
stund á mastersnám í mannlegum sam-
skiptum við Oklahoma-háskóla. Auk námsins
hefur hún starfað um langt skeið við útvarp
og síðar við kennslu og námsráðgjöf. Hún
rekur einnig ökuskóla og ekur um á mót-
orhjóli þegar vel viðrar.
– Hvenær hófstu störf við útvarp?
„Upphafið má rekja til skólaútvarps sem
nokkrir félagar mínir í Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja settu á fót og rekið var um jól og
páska, en þá hef ég sennilega verið átján ára.
Þær útsendingar gengu svo vel að ákveðið
var að senda út allan ársins hring undir nafn-
inu Útvarp Bros.
Um það bil tveimur árum eftir stofnun út-
varpsins vann ég þar að sumarlagi þegar Jón
Axel og Gulli Helga komu til Keflavíkur með
þáttinn Tveir með öllu. Þeir fengu afnot af
Brosinu og var ég með þeim í þættinum sem
þeir sendu út héðan. Það var mikil upplifun
fyrir óharðnaða stelpu að fá að vinna með
þeim enda voru þeir í gríðarlegri uppsveiflu
á þessum tíma og nánast álitnir stjörnur í
greininni. Í framhaldi af því bauðst mér að
reyna fyrir mér sem helgarmanneskja á
Bylgjunni. Ég staldraði þó stutt við þar, því
mér bauðst starf á Fm 95,7, þar sem ég vann í
um þrjú ár með náminu í Kennaraháskól-
anum,“ segir Helga Sigrún.
Aftur í útvarpið
Vorið 1994 lauk hún námi í námsráðgjöf og
hóf störf um haustið sem námsráðgjafi í Ár-
bæjarskóla, stærsta grunnskóla landsins.
„Um áramótin1997–1998 sá ég hins vegar að
ég hefði ekki efni á að vera námsráðgjafi
lengur, þar sem ég hafði hugsað mér að koma
þaki yfir höfuðið á okkur mæðgunum. Þá fór
ég að vinna fyrir þá bræður Þormóð og Bald-
vin Jónssyni á Aðalstöðinni, sem síðar skipti
um eigendur og varð Gull 90,9. Þar var mjög
skemmtilegur og góður hópur að vinna á
þessum tíma og margt brallað,“ segir Helga
Sigrún og getur ekki varist brosi.
„Ég vann á Gullinu til sumarsins 1999, en
flutti þá um haustið heim til Njarðvíkur, þar
sem ég stefndi að því að vera í eitt ár og fara
svo til Bandaríkjanna í mastersnám í al-
mannatengslum. Ég fór aftur á móti að vinna
hjá Reykjanesbæ við mjög spennandi og
skemmtileg verkefni á Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofunni sem mig langaði að halda
áfram við og hafði svo verið hér í hálft ár
þegar ég komst að því að hægt var að stunda
svipað nám við Oklahoma-háskóla hjá varn-
arliðinu á Keflavíkurflugvelli og er ég að
ljúka því námi nú í vor.“
Ævintýraljómi
yfir hjólamennskunni
– Hvernig vildi það til að þú tókst að þér
rekstur ökuskóla?
„Ég datt inn í umferðarmálin þegar ég var
beðin um að taka að mér kennslu í umferð-
arsálfræði á meiraprófsnámskeiðum. Ég var
á þeim tíma einnig að vinna við Útvarp Um-
ferðarráðs, þar sem ég starfaði í um þrjú ár.
Fyrir um fimm árum tók ég að mér kennslu í
Ökuskólanum, Suðurlandsbraut 6, en bætti
síðar við mig daglegum rekstri hans. Kennsl-
an þar hefur svo verið mér eins og áhugamál
þar sem samskiptin við unglingana eru mér
ómetanleg.
Þegar ég fór að kenna meiraprófið fannst
mér mér ekki stætt á öðru en að taka prófið
sjálf. Þegar ég var komin með það átti ég að-
eins eftir að fá einn stimpil í ökuskírteinið
mitt, sem var mótorhjólaprófið, og því þótti
mér sjálfsagt að ljúka því líka. Fyrst um sinn
fékk ég lánað hjól hjá vini mínum Eggerti
Þorkelssyni, ökukennara og eiganda Öku-
skólans. Síðasta sumar var svo skipulögð
hjólaferð til Akureyrar og eftir það varð ekki
aftur snúið.
Ég lét síðan verða af því að kaupa hjól nú í
haust og tók þá góða hjólarispu. Fyrstu fimm
vikurnar eftir að ég fékk hjólið ók ég um
fjögur þúsund kílómetra í stórskemmtilegum
félagsskap en þá tók ég númerin af fyrir vet-
urinn,“ segir Helga Sigrún brosandi og bætir
við: „Það er einhver ævintýraljómi yfir þessu
hausti í hjólamennskunni og nú get ég farið
að hlakka til aftur þar sem sól er farin að
hækka á lofti.“
Helga Sigrún var aðeins 16 ára gömul þeg-
ar hún eignaðist dóttur sína, Írisi Ösp, sem er
nú fimmtán ára gömul og lýkur námi í grunn-
skóla í vor.
Ómetanlegur
stuðningur
„Foreldrar mínir og systur eiga nú sinn
þátt í þessu öllu saman en þrátt fyrir að ég
ætti Írisi jafnung og raun bar vitni, með allri
þeirri ábyrgð sem því fylgir, gerði ómet-
anlegur stuðningur þeirra það að verkum að
ég gat nánast gert það sem mér datt í hug,
haldið áfram að læra og stundað það félagslíf
sem unglingum á þessum aldri er nauðsyn-
legt. Ég hef einhverra hluta vegna alltaf haft
þörf fyrir að hafa mörg járn í eldinum og með
aðstoð þeirra hef ég getað það,“ segir Helga
Sigrún Harðardóttir.
Alltaf þurft að hafa
mörg járn í eldinum
Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir
Helga Sigrún Harðardóttir með dóttur sinni, Írisi Ösp Sigurbjörnsdóttur.
Njarðvík
UMRÆÐUR hafa verið innan bæj-
arráðs og bæjarstjórnar Grindavík-
ur hvort eðlilegt sé að taka þátt í
rekstri Markaðs- og atvinnumála-
skrifstofu Reykjanesbæjar (MOA).
Markaðs- og atvinnumálaskrif-
stofa Reykjanesbæjar vinnur að at-
vinnuþróun á öllum Suðurnesjum
samkvæmt samningi við Byggða-
stofnun og Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum og fær til þess fjár-
framlög frá þessum aðilum. Í síðasta
mánuði sendi framkvæmdastjóri
MOA sveitarfélögunum verkefna-
lista fyrir maí til ágúst 2001. Eftir
umræður í bæjarráði Grindavíkur
var svohljóðandi bókun gerð: Yfir-
ferð á verkefnalistanum styrkir
skoðun bæjarráðs á að þjónusta
MOA snúi orðið alfarið að Reykja-
nesbæ og því sé óraunhæft að önnur
sveitarfélög taki þátt í kostnaði við
reksturinn.
Ólafur Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri MOA, fór á fund bæj-
arráðs þegar hann fékk upplýsingar
um bókunina til að skýra verkefna-
listann. Hann segir að listinn hafi
verið útbúinn fyrir bæjarstjóra
Reykjanesbæjar og á honum séu svo
til eingöngu verk sem unnin séu fyrir
Reykjanesbæ. Ekki hafi fylgt nægar
skýringar þegar verkefnalistinn var
sendur út. Ólafur segir að ekki hafi
dregið úr vinnu MOA fyrir önnur
sveitarfélög á svæðinu, fyrir þau sé
unnið til jafns við Reykjanesbæ,
meðal annars að mörgum spennandi
verkefnum.
Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum hefur gengið frá fjárhags-
áætlun fyrir árið 2002 og þar er gert
ráð fyrir óbreyttri starfsemi MOA.
Einar Njálsson bæjarstjóri segir að
engin ákvörðun hafi verið tekin um
framhald málsins.
Telja óraun-
hæft að
kosta rekst-
ur MOA
Grindavík