Morgunblaðið - 09.01.2002, Qupperneq 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 19
KÍNVERSK yfirvöld hafa tilkynnt,
að þessi fallegi og gróðursæli dalur
í Zhongdian í Yunnan-héraði verði
brátt skírður upp og fái þá nafnið
Shangri-la. Segja þau, að hann
minni ekki á neitt meira en sam-
nefndan sælureit í „Horfnum sjón-
armiðum“, hinni kunnu bók James
Hiltons frá 1933. Vonast er til, að
nafnbreytingin muni verða til að
auka straum erlendra ferðamanna
til héraðsins.
Reuters
Shangri-la í Kína
DÖNSKU mjólkurbúin hafa
ákveðið að hafa þann hátt á sem
víðar að verðleggja mjólkina til
bænda eftir próteininnihaldi en
ekki fitu. Það mun hafa þær af-
leiðingar að setja verður tug-
þúsundir mjólkurkúa í megrun,
það er að segja að gefa þeim
fituminna fóður en áður.
Neytendur almennt forðast
fituna eins og heitan eldinn og
sala í fituskertum mjólkuraf-
urðum eykst ár frá ári. Við
þessu hafa mjólkurbúin verið
að bregðast og nú er þeim
bændum, sem auka prótein-
magnið á kostnað fitunnar,
heitið ríkulegri umbun fyrir eða
hundruðum þúsunda kr. árlega.
Að sama skapi mun verðið
lækka til þeirra, sem ekki ná
fitunni niður.
„Fitan er harla verðlítil nú á
dögum. Hér áður fyrr var feita
mjólkin eftirsóttust og undan-
rennan hálfgert úrkast en það
hefur alveg snúist við,“ segir
Karsten Jeppesen, framleiðslu-
stjóri hjá Arla Foods-mjólk-
urbúunum.
Bóndi með meðalstórt bú,
sem nú framleiðir mjólk, sem
er 7% feit og 4% að próteininni-
haldi, mun tapa rúmlega
300.000 ísl. kr. á ári ef fituinni-
haldið lækkar ekki verulega.
Kýrnar í
megrun
MART Laar, forsætisráðherra Eist-
lands, sagði af sér embætti í gær og
stóð þar með við heit sem hann gaf
þar að lútandi
fyrir jól. Hafði
Laar þá sagt að
þriggja flokka
samsteypustjórn-
in, sem hann
veitti forystu,
væri óstarfhæf
vegna innbyrðis
deilna og að deil-
urnar stefndu í
voða áætlunum Eista um að fá inn-
göngu í Evrópusambandið og Atl-
antshafsbandalagið.
Ríkisstjórn Laar, sem komst til
valda árið 1999, hefur ávallt sett að-
ild að ESB og NATO á oddinn. Mörg
af stefnumálum hennar hafa hins
vegar ekki notið vinsælda meðal
þjóðarinnar. Sjálfur hefur Laar þótt
heldur hrjúfur stjórnmálamaður
heima fyrir og sagður hirða lítt um
fátæka íbúa Eistlands þó að erlendis
sé hann hafður í miklum metum.
Umbótaflokkurinn, sem á aðild að
ríkisstjórninni, brást við óvinsæld-
unum á síðasta ári með því að efna til
samstarfs við ýmsa stjórnarand-
stöðuflokka í bæjar- og sveitar-
stjórnum landsins, m.a. í höfuðborg-
inni Tallinn. Þetta útspil Umbóta-
flokksins olli því hins vegar um leið
að brestir komu í stjórnarsamstarfið
við Föðurlandsflokk Laars og hóf-
sama miðjumenn.
„Á nýju ári, sem verður afar mik-
ilvægt fyrir þjóð okkar, er ómögu-
legt að í Eistlandi ráði ríkjum stjórn
sem er óstarfhæf vegna vantrausts
er ríkir milli ráðherra,“ sagði Laar í
síðasta mánuði um þau mál. Virtist
þá sem stjórnin væri við það að lam-
ast einmitt þegar huga þurfti að mik-
ilvægum ákvörðunum sem reka
myndu smiðshöggið á aðildarviðræð-
ur við ESB og tryggja boð um inn-
göngu í NATO.
Arnold Ruutel, forseti Eistlands,
hefur nú tvær vikur til að tilnefna
nýjan forsætisráðherra en Laar og
aðrir ráðherrar munu gegna störfum
sínum áfram til bráðabirgða, allt þar
til þjóðþing landsins hefur lagt bless-
un sína yfir skipan nýrrar stjórnar.
Gæti það tekið margar vikur.
Forsætisráð-
herra Eistlands
segir af sér
Tallinn. AFP, AP.
Mart Laar
BANDARÍSKA varnarmálaráðu-
neytið hefur falið hópi vísindamanna
að þróa og framleiða ólyktar-
sprengju, sem unnt væri að beita til
að dreifa mannsöfnuði.
„Við erum að gera tilraunir með
lyktartegundir sem þekkjast í öllum
menningarsamfélögum og þykja
vondar,“ sagði Pamela Dalton, vís-
indamaður við Monell-efnarann-
sóknastöðina í Philadelphiu, í viðtali
við tímaritið Chemical & Engineer-
ing News, sem út kom í gær.
Um fimmtíu vísindamenn undir
stjórn Dalton vinna að þróun ólykt-
arsprengjunnar. Hafa þeir einbeitt
sér að tilraunum með lífrænan úr-
gang á borð við mannasaur, rotnandi
dýrahræ og sorp, enda er talið að
óþefurinn af þeim veki viðbjóð með
fólki af öllum menningarheimum.
Dalton sagði þó að nokkuð væri í
að framleiðsla gæti hafist á ólyktar-
sprengjunum. Enn væru ýmis
vandamál óleyst, til dæmis hvernig
hafa mætti hemil á óþefnum þar til
honum yrði beitt.
Tilraunir
með ólykt-
arsprengju
Philadelphia. AP.
Við þökkum þeim fjölmörgu sem
heimsóttu okkur á afmælis-
daginn og vonum að við sjáum
ykkur sem fyrst aftur!
Vinningshafar
getraunar NTV
Páll Arnar Erlingsson - Suðurvangi 10 - Hfj.
Trausti Kristinson - Efstasundi 45 - Rvk.
Ottó A. Bjarnason - Blikás 23 - Hfj.
Ágúst Guðjónsson Baugstjörn 1a - Self.
Ragnheiður Alfreðsdóttir Austvaðsholti II
Guðrún M. Hreiðarsd. - Merkjateig 7 - Mos.
Sólveig Snæland - Laufengi 80 - Rvk.
Grétar Eggertsson - Vallarhúsum 13 - Rvk.
Bryndís Scheving - Bæjargil 109 - Gbæ.
Hafsteinn Þ. Harðarson - Dalhús 29 - Rvk
Eftirtaldir aðilar hafa
unnið 50.000 kr.
gjafabréf í verð-
launagetraun NTV.
Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Kópavogi - Sími: 544 4500
Selfossi - Sími: 482 3937
skoli@ntv.is - www.ntv.is