Morgunblaðið - 09.01.2002, Síða 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 39
á dúka og keramik í stóra sal. Upplestur
sr. Tómasar Guðmundssonar (kl. 13.30–
15.15) á Bör Börsson í Guðbrandsstofu í
anddyri kirkjunnar.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarafundur
kl. 14.10–15.30 ætlaður börnum í 1.–4.
bekk.
Neskirkja. Opið hús kl. 16. Spjallað yfir
kaffi og meðlæti. Lestur úr ævisögu sr.
Jóns Steingrímssonar. Umsjón sr. Örn
Bárður Jónsson. Bænamessa kl. 18.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir
7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á
vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12 með altarisgöngu og fyrirbænum.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni. Allir vel-
komnir. KFUM fyrir drengi 9–12 ára kl.
17.30–18.30. Kirkjukrakkar í Rimaskóla
fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Ung-
lingadeild kl. 19.30–21. Æskulýðsfélag
Engjaskóla fyrir börn 8.–9. bekk kl. 20–
22.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir.
Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni
og í síma 567 0110.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13. Handavinna, spil, föndur og
gamanmál.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 562 2755.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12. Samverustund aldraðra kl. 14. Bibl-
íulestur, bænastund, kaffiveitingar og
samræður.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10
ára börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára
börn kl. 17.30.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11. Súpa
og brauð kl. 12 á hádegi í Setrinu á neðri
hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir
eldri borgara. Yngri deild barnakórsins
æfir kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björns-
dóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3.
bekk. Eldri deild barnakórsins æfir kl.
17.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur.
Kórinn er ætlaður börnum úr 4.–6. bekk.
Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Heilsuhópurinn hittist
kl. 11–12 í Litla sal. Kyrrðar- og fyr-
irbænastund í kirkjunni kl. 12–12.30.
Bænaefnum má koma til sóknarprests
og djákna í síma 520 1300. Kærleiks-
máltíð kl. 12.30. Matarmikil súpa, brauð
og álegg kr. 500. Samvera eldri borgara
kl. 13–16. Kaffi og smákökur, söngstund
með Jóni Stefánssyni, tekið í spil, málað
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara
á Álftanesi. Notalegar samverustundir
með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður
og Erlendur sjá um akstur á undan og eft-
ir.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir
eldri borgara í dag kl. 13. Helgistund, spil
og kaffiveitingar
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í
Lágafellsskóla á miðvikudögum frá kl.
13.15–14.30.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu
verði. Allir aldurshópar. Umsjón Ásta Sig-
urðardóttir, cand. theol.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar
í dag kl. 10–12.
Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund
kl. 20. Allir velkomnir.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10.
Opið hús, kaffi og spjall.
Safnaðarstarf
19.00 með léttum málsverði og lýk-
ur ekki síðar en kl. 22.00. Að lokn-
um kvöldverði er fluttur fyrirlestur
og efni hans rætt af þátttakendum.
Efni námskeiðsins er því fræðsla
um kristna trú, umræður um hana
og samfélag þátttakenda.
Alfa er kjörið tækifæri til þess að
ALFA er skipulagt námskeið sem
hefur notið mikilla vinsælda víða
um lönd en er upp runnið frá einni
kirkju í London. Það hefur nú verið
haldið í 126 löndum af flestum
kirkjudeildum.
Alfa er 10 vikna námskeið um
kristna trú og tilgang lífsins og
skiptist í 15 fyrirlestra. Námskeiðið
verður að þessu sinni 10 mánudags-
kvöld í röð frá og með 21. janúar og
eina helgi sem verður 2. og 3. mars í
Skálholti. Hvert kvöld hefst kl.
rifja upp meginatriði kristinnar
trúar og huga að grundvallarspurn-
ingum um lífið og tilveruna og
skoða sýn kristinnar trúar á tilgang
lífsins og hlutverk mannsins. Nám-
skeiðinu stýrir sr. Úlfar Guðmunds-
son prófastur. Námskeiðsgjald er
kr. 5.000. Þeir sem áhuga hafa á að
vera með í þessu námskeiði tilkynni
þátttöku sína sem fyrst til Sigurðar
Steindórssonar í síma 483 1413.
Fréttatilkynning frá Eyr-
arbakkaprestakalli.
Morgunblaðið/ÓmarEyrarbakkakirkja.
Alfa-námskeið
á Eyrarbakka
MINNINGAR
Það er varla enn sem
við erum farin að átta
okkur á því að þú skulir
vera farin elsku amma.
Þú sem varst svo styrk
og stöðug alla tíð. Þú
ert nú lögð af stað í enn
eitt ferðalagið og það langlengsta til
þessa.
Þegar að því kom hjá þér elsku
amma kom það samt á óvart. Það er
svo erfitt að hugsa til þess að sá klett-
ur, sem þú alltaf varst, skuli ekki
standa enn, styrkur og stöðugur. En
nú er komið að því að þú hittir afa
sem búinn er að bíða eftir þér í mörg
ár og verða þá vafalaust fagnaðar-
fundir.
Minningarnar ná langt aftur, eða
alveg til þess tíma sem ég var lítill
strákur og við fjölskyldan áttum
heima á Nesinu. Þið afi bjugguð í
austurhlutanum á Haugstöðum og
mamma og pabbi í þeim vestari. Það
var gott og gaman að koma til ykkar
og alltaf tekið vel á móti þó svo að
ýmislegt gengi á hjá okkur krökkun-
um. Enda var það svo að margir
krakkanna sem ólust upp á Nesinu, á
þessum tímum, kölluðu þig ömmu
þótt þau væru þér ekkert skyld.
Þannig var það líka á barnaheimilinu
sem þú vannst á í mörg ár, það voru
svo ótrúlega margir sem áttu ömmu
þar. Það var afar gott að vita af þér
og heimsækja ykkur Ástu á Lauga-
veginn þegar ég var í framhaldsnámi
í Reykjavík. „Ertu svangur Palli
minn?“ sagðirðu við mig þegar ég
kom í heimsókn og höfðuð þið gaman
af svarinu og rifjuðuð það oft upp við
mig og hlógum við oft að því saman.
Fljótlega eftir að við Berglind flutt-
um heim til Norðfjarðar aftur eftir
námið keyptum við svo neðri hæðina
hjá þér á Urðarteignum. Það var
mikil gæfa að fá að búa í svo mikilli
nálægð við þig í þau sjö ár sem við
vorum þar. Ég man eins og gerst
hefði í gær þegar ég vakti þig eina
nóttina og sagði þér að Berglind hefði
misst vatnið, en hún var þá komin að
fæðingu. Þú tókst því með stakri ró
og ráðlagðir okkur með framhaldið.
Um morguninn fæddist svo Eva
Dögg, okkar fyrsta barn. Hún naut
þess að búa í kjallaranum og talar oft
um hversu notalegt það var. Þessi
tími sem við bjuggum þarna í kjall-
aranum er okkur afar dýrmætur í
minningunni elsku amma. Þú hafðir
alltaf mikinn áhuga á því að fjölskyld-
an héldi vel saman og hittist og gerði
sér glaðan dag. Hefðin á aðfanga-
GÍSLÍNA INGIBJÖRG
SIGURJÓNSDÓTTIR
✝ Gíslína IngibjörgSigurjónsdóttir
fæddist á Norðfirði
5. júlí 1913. Hún lést
þar 23. desember síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Norðfjarðarkirkju 5.
janúar.
dagskvöld, að heim-
sækja þig, var sterk og
ekki mörg skipti sem
duttu út og þá ekki
nema að þú værir ekki
heima. Þarna hittust öll
börnin þín, barnabörn
og barnabarnabörn
sem bjuggu í Neskaup-
stað og oft komu önnur
að líka. Það var alveg
sama hversu mikið
fjölgaði í ættinni, alltaf
var pláss fyrir alla og
allir höfðu gaman af,
bæði stórir og smáir.
Þú hafðir sérstaklega
gaman af því þegar krakkarnir tóku
sig til og sungu en það var mikill
metnaður í þeim að gera það vel. Þau
komu saman fyrir jólin og æfðu sig til
þess að flutningurinn yrði sem best-
ur. Krökkunum fannst þetta ekki síð-
ur skemmtilegt og skapaðist sú hefð
að æfa og setja upp heilu söng- og
leikatriðin þegar ættin kom saman.
Ég veit að þú vildir að við héldum
áfram að hittast ættingjarnir og vona
ég að svo verði áfram. Elsku amma,
ég átti ekki von á því þegar við heim-
sóttum þig í byrjun desember að það
yrði í síðasta sinn sem við sæjum þig,
en svo fór þó samt. Ég er afar glaður
fyrir þína hönd að hafa fengið að fara
án langrar sjúkralegu því ég veit það
svo vel að þess óskaðir þú svo heitt.
Það hefði verið sorglegur endir á ævi
svo sjálfstæðrar konu sem þú alltaf
varst. Minningarnar hrannast upp og
svo mörgu frá að segja. Það er mikill
fjársjóður sem við eigum í minning-
unum um þig og þökkum við kærlega
fyrir það.
Bless, elsku amma.
Páll, Berglind, Eva Dögg,
Aron og Anton Örn.
Elsku Gilla amma. Það eru ekki
einu sinni liðnir tveir mánuðir síðan
þú varst hérna í Noregi, sá tími sem
við áttum með þér hér var sá besti
sem við höfum átt síðan við fluttum
hingað. Við hlökkuðum alltaf til að
koma heim úr skólanum því þar sast
þú, prjónandi eða að leggja kapal. Við
höfðum alltaf eitthvað til að tala um
og við gátum talað við þig um allt
milli himins og jarðar, hvort sem það
var um daginn og veginn eða snjó-
bretti og skellinöðrur. Þú hafðir alltaf
tíma fyrir okkur og oft vorum við að
dunda okkur saman, til dæmis við að
sauma bolta úr gömlum tuskum eða
að prjóna eins og þú kenndir okkur.
Þær stundir sem við áttum saman
voru æðislegar og við munum aldrei
gleyma þeim. Við munum heldur
aldrei gleyma þér, elsku amma, því
þú ert sú besta amma sem nokkur
maður getur óskað sér.
Bless, elsku amma, og hvíl í friði.
Sindri og Sölvi.
TILKYNNINGAR
Vinningsnúmer
í happdrætti
Styrktarfélags
vangefinna 2001
1. vinningur: Mitsubishi Pajero Sport
að verðmæti kr. 3.245.000 kom á miða
nr. 4651.
2.-19. vinningur: Heimilistæki frá Elec-
tric raftækjaverslun Heklu, hver að verð-
mæti kr. 100.000 komu á miða nr.
2315-3237-3972-4346-5234-6890-8768-
14574-15023-15387-16945-18854-19933-
20305-22294-24215-24414-24983.
Félagið þakkar stuðninginn og óskar
landsmönnum öllum gleðilegs árs.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 182198 xx
GLITNIR 6002010919 I H.v.
Njörður 6002010919 II
I.O.O.F. 7 182197½ Á.S.
I.O.O.F. 9 182198½ 9.0.
Hamar 6002010919 III
HELGAFELL 600201099 IV/V
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Myndasýning í FÍ-salnum mið-
vikud. 9. janúar 2002 kl. 20:30.
Gerður Steinþórsdóttir, ritari FÍ,
sýnir myndir frá þjóðgörðum
Klettafjalla í Kanada og úr
nokkrum ferðum síðasta sum-
ars, þ. á m. frá Arnarvatns-
heiði og Eiríksjökli. Allir vel-
komnir, kaffiveitingar í hléi, verð
500. Félagar, fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
Sunnud. 13. jan., Herdísarvík
með Páli Sigurðssyni, próf-
essor. www.fi.is, textavarp RUV
bls. 619.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R