Morgunblaðið - 09.01.2002, Síða 48

Morgunblaðið - 09.01.2002, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 326 1/2 Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 10.20. Vit 299 Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 328 1/2 Kvikmyndir.com strik.is 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 3.40. Ísl. tal. Vit 320 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit 319 Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 4. ísl tal. Vit 325 Sýnd kl. 4 og 8. E. tal. Vit 307 1/2 RadíóX 1/2 Kvikmyndir.is Tvöfaldur Óskarsverðlauna- hafi í magnaðri mynd sem þú verður að sjá og munt tala um. KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES HJ MBL ÓHT Rás 2 DV „Leikararnir standa sig einstaklega vel, ekki aðeins stórleikararnir Spacey og hinn óviðjafnanlegi Bridges, heldur er valið af slíkri kostgæfni í hvert og einasta aukahlutverk, að minnir á Gaushreiðrið.“ SV MBL Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit 327 1/2 Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 Kvikmyndir.is Allur heimurinn mun þekkja nafn hans strik.is  ÓHT Rás 2  MBL 1/2 RadíóX Sýnd kl. 5. Sýnd kl. 6. ísl tal Frábært ævintýri og grín fyrir alla aldurshópa! SV Mbl ÞÞ Strik.is ÓHT Rás 2  HL Mbl  SG DV Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 10. B.i.14. Ó.H.T Rás2 Strik.is 4 evrópsk kvikmyndaverðlaun . M.a. Besta mynd Evrópu, Besta leikstjórn og Besta kvikmyndataka. Kvikmyndir.com Ein persóna getur breytt lífi þínu að eilífu. Frá leikstjóra Delicatessen Sýnd kl. 8. Edduverðlaun6 SG. DV HL:. MBL HJ MBL ÓHT Rás 2 DV 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Tvöfaldur Óskarsverðlauna- hafi í magnaðri mynd sem þú verður að sjá og munt tala um. l l - i í i j l „Leikararnir standa sig einstaklega vel, ekki aðeins stór- leikararnir Spacey og hinn óviðjafnanlegi Bridges, heldur er valið af slíkri kostgæfni í hvert og einasta aukahlutverk, að minnir á Gaushreiðrið.“ SV MBL Sýnd kl. 8 og 10.30.  Kvikmyndir.com KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. HLJÓMSVEITIN Sigur Rós, tón- listarmaðurinn Hilmar Örn Hilm- arsson og kvæðamaðurinn Steindór Andersen munu á næstunni leiða saman skáldhesta sína í nokkuð at- hyglisverðu verkefni. Um er að ræða tónlistarverk, unnið upp úr Eddu- kvæðum, og verður frumflutningur á verkinu í Lundúnum hinn 21. apríl næstkomandi í Barbican Centre, al- mennri listamiðstöð sem ku vera sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu og hýsir bæði Sinfóníuhljómsveit Lund- úna og Konunglega Shakespeare leikhúsið. Hérlendis verður það svo flutt, í talsvert breyttri mynd, á Listahátíð hinn 24. maí. Við settum okkur í samband við Hilmar og spurðum hann nánar út í þetta mál. „Það má segja að þetta sé eins konar „generalprufa“ þarna úti í London. Þá verður líka meiri áhersla á tónlistarþáttinn en á Listahátíðinni verður meiri áhersla á textann. Þetta er unnið upp úr gömlu Eddukvæði sem kallast Hrafnagaldur Óðins. Þetta er kvæði sem hefur verið kallað forspjallsljóð og lengi hefur það verið talið sem hálfgerður inngangur að Völuspá. Síðar komst merkur fræðimaður að nafni Sophus Bugge að því að kvæð- ið væri seinni tíma fölsun. Í útgáfu hans á Eddukvæðunum frá 1867 sagði hann að þetta ætti að vera í síðasta sinn sem það yrði birt, þar eð það ætti ekki heima þar.“ Hilmar segir kvæðið um margt vera sérstakt. „Það eru miklar og flottar myndir í því þó að enginn hafi í raun getað ráðið í um hvað það fjalli í sjálfu sér. Þetta er hugsanlega einhver heims- endasýn. Nú hafa íslenskir fræði- menn, Jónas Kristjánsson og Stefán Karlsson, kveðið upp úr um það að kvæðið sé gamalt og þetta sé della í Bugge.“ Hilmar segir að þetta verði flutt af hljómsveit og kór. „London Symphonietta verður þarna með okkur en við erum enn að velja úr breskum kórum. Þetta verð- ur flutt í fullri mynd hérlendis og þess má geta að þá verður þetta í fyrsta skipti sem þessi merki texti verður settur í prent í tæplega eina og hálfa öld.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Hljómsveitin Sigur Rós ásamt kvæðamanninum Steindóri Andersen í ruslaporti Gauks á Stöng. Morgunblaðið/Ásdís Hilmar Örn Hilmarsson Hljómlistarleg glíma við Eddukvæðin HÖH, Sigur Rós og Steindór Andersen í samstarf arnart@mbl.is „ÉG VEIT nú ekki hvort það megi kalla þetta skóla, kannski er heið- arlegra að kalla þetta námskeið,“ segir töframaðurinn Pétur pókus, kankvís á svip, en síðustu helgina í janúar (26.–27.) mun hann standa fyrir námskeiðum í töfrabrögðum. „Þetta er námskeið fyrir krakka á aldrinum þetta 6 til 7 ára og upp úr. Það verður farið í grunnatriði töfrabragðanna og krökkunum kennd töfrabrögð. Þau geta líka, ef þau vilja, komið með það töfradót sem þau eiga að heiman. Ég myndi þá útskrifa þau í þeim brögðum sem ég kenni, svo og í þeim sem þau koma með.“ Pétur segir að hugmyndin að þessu hafi ekki kviknað hjá sér. „Þetta er afleiðing þeirra bréfa og símtala sem ég hef verið að fá frá krökkum. Ég er því í raun að svara ákveðinni eftirspurn.“ Hann segist einnig ætla að sýna nokkur töfrabrögð – halda litla sýn- ingu fyrir nemendurna. „Ég ætla t.d. að kenna krökk- unum hvernig á að láta sig svífa ásamt auðvitað ýmsu öðru. Að sunnudegi loknum munu þau eiga auðvelt með að gabba foreldra og vini.“ Pétur segist hafa kynnst töfra- brögðum sex ára gamall. „En það komu svo síðar tímabil þar sem ég sinnti þeim ekkert. Fór t.d. í hljómsveit en komst fljótlega að því að ég væri bæði lag- og takt- laus þannig að ég seldi hljóðfærin mín og ákvað að gerast töframaður þar sem þyrfti hvorki að syngja né halda takti!“ Aðspurður hvernig menn yrðu sér úti um þekkinguna og færnina sagði Pétur: „Færnin er auðvitað eitthvað sem kemur bara með tímanum. Ef ég væri að pæla í lögfræði væri ég lík- ast til fær á því sviði. En það má ekki gleyma því að töfrabrögð eru númer 1, 2 og 3 skemmtun. Þau eru ekki dularfull eða neitt slíkt. Mikið af þessum tækjum og tólum sem fylgja þessu eru hversdagshlutir sem töframenn sjá í öðru ljósi en gert er venjulega. Mér finnst það yfirleitt skemmtilegustu atriðin. T.d. gaf ég út Prakk- arapakka Péturs pókuss fyrir þremur árum og í honum eru bara hversdagshlutir sem þú getur fund- ið inni á öllum heimilum en hins vegar gert ýmislegt skemmtilegt með.“ Námskeiðin verða haldin í Dugguvogi 11 og eru tvo tíma í senn eins og áður hefur komið fram á milli kl. 13–15 laugardag og sunnudag. Abrakadabra! Pétur Pókus opnar töfraskólann sinn í enda janúar. Töfraskóli Péturs pókuss arnart@mbl.is Morgunblaðið/RAX BASSALEIKARI hljómsveitarinnar forn- frægu EMF, Zak Foley, er látinn. Sveitin átti nokkra stórsmelli í blábyrjun tíunda áratugarins, m.a. „I Believe“, „I’m a Believer“ (ásamt Reeves og Mortimer) og „Unbelievable“ sem náði toppi bandaríska vinsældalistans árið 1991. Að sögn Cöru DeCarlo, umsjónarkonu op- inberrar vefsíðu sveitarinnar, var Foley ein- staklega sjarmerandi maður, fullur af orku og gleði öllum stundum. „Hann var alltaf mjög einbeittur hvað tónlistina varðaði og var óður og uppvægur í að fara til Bandaríkj- anna, en sveitin var á leið þangað til að kynna nýja safnplötu sveitarinnar,“ sagði DeCarlo en platan kom út á síðasta ári og spilaði sveitin á nokkrum endurkomutónleik- um vegna þessa. Ekkert hefur verið látið uppi um dán- arorsök Foleys. Fyrrverandi bassaleikari EMF allur Zak var jafnan fullur af orku og geislaði af lífsorku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.