Morgunblaðið - 29.01.2002, Page 1
23. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 29. JANÚAR 2002
ASTRID Lindgren, sem glatt hefur börn á öllum
aldri um áratugaskeið, lést í gær á heimili sínu í
Stokkhólmi. Lést hún í svefni eftir nokkur veikindi
síðustu daga. Líklega var hún frægust fyrir sög-
una um „Línu langsokk“ en eftir hana liggja meira
en 100 verk af ýmsum toga, skáldsögur, smásögur,
leikrit, söngvasöfn og ljóð.
Lindgren sagði einu sinni, að í sögunum hefði
hún oft verið að skrifa um sína áhyggjulausu
æsku, um ævintýraleiki barnanna í grænu skrúði
skógarins og á ísilögðum vötnum.
„Ég skrifaði til að skemmta barninu í sjálfri mér
og gat aðeins leyft mér að vona, að ég gæti
skemmt öðrum um leið,“ sagði Lindgren en segja
má, að hún hafi orðið kunn og jafnvel fræg á einni
nóttu er „Lína langsokkur“ kom út 1945. Varð
Lína strax uppáhald allra barna en sumir foreldr-
ar voru þó dálítið á báðum áttum með þessa frekn-
óttu, uppreisnargjörnu stelpu, sem leyfði sér að
gera góðlátlegt grín að virðulegum stofnunum
eins og lögreglunni.
Fyrsta bók Lindgrens, „Britt-Mari léttir á
hjarta sínu“, kom út 1944 og fékk þá önnur verð-
laun í samkeppni, sem útgefandinn efndi til, en
„Lína langsokkur“ þau fyrstu árið eftir. Af öðrum
bókum, sem lengi munu halda á loft nafni Astrid
Lindgren, má nefna „Elsku Míó minn“, „Bróður
minn, Ljónshjarta“ og „Ronju ræningjadóttur“.
Astrid Lindgren fæddist 14. nóvember 1907,
bóndadóttir í Smálöndum, en 19 ára gömul, þá
ófrísk og ógift, yfirgaf hún átthagana og hneyksl-
aða samborgara sína og settist að í Stokkhólmi.
Þar átti hún barnið, soninn Lars, og fimm árum
síðar giftist hún Sture Lindgren. Saman áttu þau
dótturina Karin. Mann sinn missti Astrid 1952 og
Lars, sonur hennar, lést 1986.
Svíi 20. aldar
Bækur Astrid Lindgren hafa verið þýddar á
ótal tungumál um allan heim og meira en fjörutíu
kvikmyndir og sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar
eftir sögum hennar. Í Svíþjóð eru þær fyrir löngu
orðnar hluti af sænskri menningu og sjálfri þjóð-
arvitundinni og í könnun var hún kjörin Svíi síð-
ustu aldar.
Astrid Lindgren tók við mörgum verðlaunum
fyrir bækur sínar, utanlands sem innan, og 1958
var hún sæmd Hans Christian Andersen-orðunni,
eftirsóttustu viðurkenningu barnabókahöfundar.
Sænski barnabókahöfundurinn Astrid Lindgren látinn, 94 ára að aldri
„Skrifaði til að skemmta
barninu í sjálfri mér“
AP
Astrid Lindgren á mynd frá 1997. Með henni
er Linnea Roxenhielm, sem þá lék Línu lang-
sokk á sviði í Stokkhólmi.
Stokkhólmi, AP, AFP.
Leiðari/26
Sköpunargleði/27
LJÓST er að meira en 600 manns
létu lífið í Lagos í Nígeríu eftir að
miklar sprengingar urðu í vopna-
búri í borginni um helgina. Mikil
skelfing greip um sig þegar hamfar-
irnar hófust og er talið að meirihluti
fólksins hafi drukknað í skurði
vegna troðnings sem varð er menn
reyndu að forða sér burt. Mörg
börn voru meðal hinna látnu og einn
maður er sagður hafa misst sex af
börnum sínum í harmleiknum.
Sprengingin varð seint að stað-
artíma á sunnudagskvöld í Ikeja-
borgarhverfinu en talið er að hún
hafi orðið eftir að eldur kviknaði á
útimarkaði við hlið vopnabúrsins.
Eldurinn barst í vopnabúrið, sem er
hluti af búðum nígeríska hersins
sem þarna eru, og í kjölfarið urðu
miklar sprengingar og sannkallaður
vítiseldur magnaðist.
Herbúðirnar eru í miðju íbúðar-
hverfi og í næsta nágrenni við fjöl-
menna samgöngumiðstöð og því
voru margir á ferli þegar atburð-
urinn átti sér stað. Útimarkaðurinn
varð eldinum alveg að bráð, nálæg
kirkja jafnaðist við jörðu og hverf-
issjúkrahúsið skemmdist illa.
„Það ríkti alger ringulreið og allir
voru skelfingu lostnir … allt hristist
og skalf,“ var haft eftir einum íbúa
hverfisins á fréttasíðu BBC í gær.
Margir létust í sprengingunni
sjálfri en ekki varð ljóst fyrr en að
sprengingunum afstöðnum að
hundruð manna höfðu einnig látist
vegna troðnings sem varð þegar
fólk reyndi að hafa sig á brott frá
slysstaðnum. Þykir líklegt að troðn-
ingurinn hafi orðið til þess að fólkið
lenti ofan í skurði þar sem það
drukknaði.
Olusegun Obasanjo, forseti Níg-
eríu, kom á slysstaðinn í gær og til-
kynnti að fram færi ítarleg rann-
sókn á tildrögum sprenginganna.
Þær voru svo öflugar að byggingar í
miðborg Lagos skulfu en miðbær-
inn er í fimmtán kílómetra fjarlægð
frá Ikeja-hverfinu.
Hundruð manna fórust
eftir miklar sprengingar
AP
Eitt af húsunum í Ikeja-hverfinu í Lagos, sem eyðilögðust í sprengingunum í vopnabúri hersins í fyrrinótt.
Lagos. AFP.
FARÞEGAÞOTA í eigu flug-
félagsins TAME í Ekvador
fórst í gær við borgina Ipiales
í Kólombíu. Óttast var að allir
um borð, 94 að tölu, hefðu far-
ist.
Þotan, Boeing 727-100, var á
leið frá Quito, höfuðborg
Ekvadors, til landamæraborg-
arinnar Tulcans en samband
við hana rofnaði klukkan 10.23
að staðartíma eftir 20 mín.
flug.
Talsmaður flugfélagsins
sagði í gær að vitað væri að
þotan hefði hrapað til jarðar
við Ipiales en ekki var ljóst þá
hvort einhver eða einhverjir
hefðu komist lífs af. Haft var
eftir fólki, sem býr nálægt
slysstaðnum, að það hefði
heyrt mikla sprengingu, trú-
lega er vélin kom niður.
Flugslys
í Ekvador
Óttast um
afdrif 94
Quito. AP.
LEIÐTOGI hinna herskáu
Hamas-samtaka í Palestínu
sagði í gær, að ekkert bannaði
konum að fórna lífi sínu í heil-
ögu stríði. Fyrr í gær sprengdi
palestínsk kona sjálfa sig í loft
upp í Vestur-Jerúsalem og varð
um leið einum Ísraela að bana.
Um 150 manns særðust.
Tilræðið í gær var það fjórða
í Ísrael á 11 dögum og það hef-
ur vakið ótta, að kona skuli hafa
verið að verki. Hingað til hafa
karlmenn aðeins tekið þátt í
sjálfsmorðsárásum en Hassan
Yusef, leiðtogi Hamas, sagði í
gær, að Múhameð spámaður
hefði varið rétt kvenna til að
taka þátt í heilögu stríði.
Ísraelskir fjölmiðlar sögðu,
að konan hefði heitið Shihaz
Amudi, tvítug að aldri og náms-
maður við Al-Najah-háskólann
í Nablus, en rektor hans vildi
ekki kannast við það.
Fréttir um að Bandaríkja-
stjórn hyggist jafnvel rjúfa öll
tengsl við Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, hafa vak-
ið hörð viðbrögð í arabaríkjun-
um og einnig í Evrópu. Anna
Lindh, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, sagði, að stefna Banda-
ríkjastjórnar í þessu máli væri
„hættuleg“.
Óttast
árásir
kvenna
Jerúsalem. AFP.
Þrýstingur gagnrýndur/22
Sprengjutilræði
í Jerúsalem