Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ HEILDARKOSTNAÐUR við kaup á sérfræðiþjónustu framkvæmda- nefndar ríkisstjórnarinnar um einka- væðingu frá árinu 1996 nemur 326 milljónum kr. Þar af eru kaup á þjón- ustu nefndarmanna tæp 31 millj. kr. og er ríflega helmingur þeirrar fjár- hæðar vegna formanns nefndarinn- ar, Hreins Loftssonar hrl. Heildar- kostnaður við sérfræðiþjónustu nemur á tímabilinu um 1,3% af and- virði seldra hlutabréfa og þóknun til nefndarmanna nemur 0,13% af sölu- andvirði. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möller (S) um fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu. Hlutverk framkvæmdanefndar um einkavæðingu hefur verið að útfæra stefnu stjórnvalda og kaupa þá sér- fræðiþjónustu sem á hefur þurft að halda vegna einkavæðingar ríkisfyr- irtækja. Í svari forsætisráðherra seg- ir að algengt sé að miða við að kostn- aður við sölu fyrirtækja nemi 2–3% af söluandvirði eða um tvöfalt hærra hlutfalli en sem nemur þeim kostnaði sem verið hefur af einkavæðingu hér á landi undanfarin ár. Núverandi nefnd skipuð í febrúar 1996 Sú framkvæmdanefnd um einka- væðingu sem nú situr var skipuð 14. febrúar 1996. Í henni eiga sæti Hreinn Loftsson hrl., formaður, Steingrímur Ari Arason fram- kvæmdastjóri, tilnefndur af fjár- málaráðherra, Jón Sveinsson hrl., til- nefndur af utanríkisráðherra og Sævar Þ. Sigurgeirsson endurskoð- andi, tilnefndur af viðskiptaráðherra. Frá því núverandi nefnd tók til starfa hafa verið seld hlutabréf í 14 fyrir- tækjum fyrir rúmlega 24 milljarða króna. Á meðal þeirra fyrirtækja sem nefndin hefur unnið við að einkavæða eru Landsbanki Íslands hf., Búnað- arbanki Íslands hf., Fjárfestingar- banki atvinnulífsins hf., Íslenska járnblendifélagið hf., Bifreiðaskoðun Íslands hf., Íslenskir aðalverktakar hf., Stofnfiskur hf., Áburðarverk- smiðjan hf. og Landssími Íslands hf., að því er fram kemur í svari forsætis- ráðherra. Þar kemur einnig fram að þrír nefndarmanna í framkvæmdanefnd um einkavæðingu eru sjálfstætt starfandi ráðgjafar og að þeim sé greitt í samræmi við það. Annars vegar er þeim greiddur ákveðinn tímafjöldi á viku vegna reglulegra funda nefndarinnar og hins vegar viðbót sem tekur mið af tímabundnu álagi í nefndarstörfum eða sérfræði- störfum fyrir nefndina hverju sinni. Fastar greiðslur til hvers nefndar- manna um sig nemi sem svarar þremur stundum á viku en fimm til formanns nefndarinnar. Tímagjald er nú 5.500 kr. án virðisaukaskatts. Kaup á þjónustu nefnd- armanna tæp 31 milljón                          !  !              !"         ""  " "  ##                  Heildarkostnaður við sérfræðiþjónustu einkavæðingarnefndar 326 milljónir ÁSTA R. Jóhannesdóttir (S) gagn- rýndi harkalega við upphaf þingfund- ar á Alþingi í gær að Guðni Ágústsson (B) landbúnaðarráðherra skyldi gera grein fyrir viðbótarupplýsingum um sölu ríkisjarða á blaðamannafundi sl. föstudag en ekki í þingsal Alþingis þar sem fyrirspurn um þessi efni hefði þó verið borin fram. Guðni Ágústsson segir sjálfsagt að verða við þessum óskum og svarið muni berast þingmönnum í dag, þriðjudag. Ásta Ragnheiður vísaði til þess að fyrir jól hefði landbúnaðarráðherra upplýst að hann hefði sent forsætis- ráðherra fyrirspurn um það hvort honum bæri að svara frekar fyrir- spurnum um sölu ríkisjarða en þegar hefði verið gert. Tíu dagar væru nú frá því forsætisráðherra hefði sent svarbréf sitt, en landbúnaðarráð- herra væri þó ekki enn búinn að skýra málið fyrir þingheimi, en hefði þess í stað efnt til blaðamannafundar sl. föstudag þar sem svarbréfið hefði verið kynnt ásamt með úttekt Ríkis- endurskoðunar og þar m.a. verið upp- lýst að kaupverð og upplýsingar um sölu ríkisjarða væri nú að finna á vef ráðuneytisins. Sagði Ásta fráleitt að fyrirspurnum sem lagðar eru fram á Alþingi sé svarað annars staðar. Þar sem Vinstri grænir kjafta mann ekki í kaf Guðni Ágústsson sagðist í svari sínu þurfa að verja einstaklingsrétt- inn og þrátt fyrir svar forsætisráð- herra yrði hann eigi að síður að gæta þess að hann væri sá ráðherra sem færi með málið og bréf forsætisráð- herra hefði falið í sér álit en ekki úr- skurð af hans hálfu. „Í meginatriðum erum við sam- mála,“ sagði Guðni og vísaði til sín og forsætisráðherra og lagði áherslu á að nú liggi fyrir skýr stefna á þessu sviði. Upplýsingar um sölu ríkisjarða verði á vef landbúnaðarráðuneytisins og þar með aðgengilegar öllum almenn- ingi. „Með blaðamannafundi, að þá eru þeir auðvitað ekki þingstörf. En það er þó alveg ljóst að Vinstri grænir kjafta mann ekki þar í kaf,“ sagði landbúnaðarráðherra undir lok um- ræðunnar og uppskar fyrir vikið mik- inn hlátur í þingsal. Óskað svara á réttum vettvangi Enn deilt um sölu ríkisjarða VALGERÐUR Sverrisdóttir (B) við- skiptaráðherra sagði á Alþingi í gær að hún væri því mjög fylgjandi að samkeppnislög, og þar með staða Samkeppnisstofnunar, verði styrkt. Hún lýsti hins vegar efasemdum um að það standist stjórnarskrána að stórfyrirtækjum verði skipt upp og þeim gert að selja hluta af starfsemi sinni. Þetta kom fram í svari viðskipta- ráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Sam- fylkingarinnar, á Alþingi í gær. Öss- ur vísaði til mikillar umræðu í þjóð- félaginu um verðlagsmál og hækkun vísitölu og benti m.a. á nýlega frétt Morgunblaðsins, þar sem fram kom að tólf vöruflokkar hefðu hækkað um 20–38% sem væri langt umfram lækkun gengis og verðbólgu. Vísaði hann ennfremur til aðgerða verka- lýðshreyfingarinnar og umræðu utan dagskrár á Alþingi í fyrri viku, þar sem m.a. hann og forsætisráðherra lýstu yfir áhyggjum af samþjöppun á matvælamarkaði og fákeppni af hennar völdum. Forsætisráðherra hefði þar m.a. látið þau ummæli falla að til greina kæmi að skipta eignum slíkra markaðsráðandi verslunar- aðila upp misnotuðu þeir vald sitt. Össur velti því upp hvort viðskipta- ráðherra hafi í kjölfar ummæla for- sætisráðherra hafið vinnu í ráðuneyti sínu við það að breyta lögum í því skyni að auka heimildir Samkeppn- isstofnunar til að grípa til aðgerða gegn fyrirtækjum sem misnota markaðsráðandi stöðu sína. Valgerður Sverrisdóttir sagði að ef stórfyrirtæki misnotuðu markaðs- ráðandi stöðu sína væri það ólög- mætt. Spurningin væri hvort þetta sé tilfellið og það sé einmitt hlutverk Samkeppnisstofnunar að fylgjast með því. Sagðist ráðherrann gleðjast yfir því ef samstarfsflokkurinn í rík- isstjórn vildi styrkja samkeppnislög. „Ég er ekki sannfærð um að þetta geti gengið,“ sagði viðskiptaráðherra um aukin völd samkeppnisyfirvalda á þessu sviði og sagðist hún m.a. velta því fyrir sér hvort slíkar aðgerðir, þ.e. að skipta eignum upp með þeim hætti að einstökum aðilum verði gert skylt að selja, standist ákvæði stjórn- arskrárinnar. Benti hún aukinheldur á að fyrirtæki hefðu ekki aðeins markaðsráðandi stöðu í smásölu- verslun, það væri einnig tilfellið víð- ar, t.d. í flutningum og í flugsam- göngum. Össur túlkaði ummæli Valgerðar með þeim hætti að breið samstaða væri að myndast fyrir því að styrkja Samkeppnisstofnun svo hún geti skipt upp stórfyrirtækjum sem kom- in eru í fákeppnisaðstöðu á markaði ef slíkt reynist nauðsynlegt. Sagði hann einboðið að ráðherra undirbúi gerð lagafrumvarps í þessu skyni. Viðskiptaráðherra um stórfyrirtæki með ráðandi stöðu Vill að samkeppnis- yfirvöld verði styrkt ALÞINGI hefur hafið störf af fullum krafti eftir hlé um jólin. Það veitir ekki af að halda vel á spöðunum þar sem þingið verður óvenju stutt vegna sveitar- stjórnarkosninganna í vor. Á myndinni eru þing- mennirnir Þuríður Backman, Lúðvík Begvinsson og Einar K. Guðfinnson. Stutt þing framundan Morgunblaðið/Ásdís Yfirvinnu- bannið truflar flug- kennslu YFIRVINNUBANN flugum- ferðarstjóra hefur talsvert truflað flugkennslu á Reykja- víkurflugvelli og í Keflavík að sögn Steingríms Aðalsteins- sonar, flugkennara hjá Flug- skóla Íslands. Hann segir að umferð lítilla einkaflugvéla, þ.m.t. kennslu- flugvéla, sé það fyrsta sem er stöðvað þegar mannekla er í flugturninum á Reykjavíkur- flugvelli eða í Keflavík, t.d. vegna veikinda flugumferðar- stjóra. Um helgina viðraði sérlega vel til kennsluflugs en vegna yf- irvinnubannsins hafi flugkenn- arar átt í mesta basli með að fá leyfi til flugtaks. Þannig hafi engin leyfi verið á sunnudag og ekkert flugtak heimilað fyrir hádegi á laugardag. Þá hafi verulega verið dregið úr leyf- isveitingum fyrir snertilend- ingar á flugvöllunum í Reykja- vík og Keflavík og flugnemar jafnvel þurft að æfa á flugvell- inum á Selfossi þess í stað. Flugvöllurinn þar sé ekki jafn góður og umferð þar mun minni og því hafi æfingar þar ekki sama gildi fyrir flugnemana. Hann segir ástandið baga- legt, jafnt fyrir kennara sem nemendur. Tekjur kennara eru mjög háðar því að þeir komist í loftið með nemendur sína. Eins setji yfirvinnubannið strik í reikninginn hjá nemendum. Steingrímur segir að gremja flugkennara beinist ekki að yf- irvinnubanni flugumferðar- stjóra sem slíku heldur því að ekki skuli vera hægt að semja í kjaradeilunni. Fjórir flugskólar eru á Reykjavíkurflugvelli og einn í Keflavík og segist Steingrímur hafa haft spurnir að sama sé uppi á teningnum þar og hjá Flugskóla Íslands. ASÍ fundar með Baugs- mönnum FORYSTUMENN ASÍ fund- uðu í fyrrakvöld með stjórn- endum Baugs þar sem verð- lagsmál voru meginumræðu- efnið. Tryggvi Jónsson, að- stoðarforstjóri Baugs, segir að þetta hafi verið góður fundur enda sé Baugur að stíla inn á sömu markmið og ASÍ. „Við erum samherjar í þessu en ekki andstæðingar. Við ætlum að láta verkin tala en ekki vera með misjafnlega innihaldsríkar yfirlýsingar í fjölmiðlum.“ „Menn voru einfaldlega að skiptast á upplýsingum og fara yfir stöðuna,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda- stjóri ASÍ, „og menn voru al- veg þokkalega ánægðir með fundinn.“ HARÐUR þriggja bíla árekstur varð við Mýrarveg á móts við Goðabyggð á Akureyri síðdegis í gær en mikil hálka var á veginum að sögn lögreglunnar á Akureyri. Tveir farþegar voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og reyndust meiðsli þeirra minni- háttar. Bílarnir voru allir fluttir af vettvangi með kranabíl mikið skemmdir. Þriggja bíla árekstur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.