Morgunblaðið - 29.01.2002, Síða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 15
SUÐURNES
KRISTMUNDUR Ásmundsson og
Kristján Gunnarsson, tveir af fjórum
bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ, gefa ekki kost á sér
áfram. Frestur til að skila inn fram-
boðum í prófkjöri flokksins rann út
síðastliðinn sunnudag en kjörnefnd-
in mun greina frá nöfnum frambjóð-
enda eftir viku.
Kristmundur var í öðru sæti á
framboðslista Samfylkingarinnar við
síðustu bæjarstjórnarkosningar og
hefur meðal annars setið í bæjarráði
fyrir flokkinn, áður var hann bæj-
arfulltrúi í Grindavík í tvö kjörtíma-
bil. Hann er jafnframt yfirlæknir hjá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. „Ég
er búinn að vera í þessu í tólf ár og er
orðin þreyttur. Þegar svo er komið
er ágætt að aðrir taki við og haldi
uppi merkinu,“ segir Kristmudur en
tekur fram að starfið að bæjarmál-
unum hafi verið skemmtilegt, annars
hefði hann ekki tekið þátt í því.
Kristján, sem jafnframt er for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur og nágrennis, er að
ljúka sínu þriðja kjörtímabili í bæj-
arstjórn. Hann var í þriðja sæti á
lista Samfylkingarinnar við síðustu
kosningar. „Maður má ekki mosa-
vaxa í þessu. Ég tel rétt að yngra
fólk komi að þessu, fólk sem getur
unnið stærri sigra en ég,“ segir
Kristján um ákvörðun sína. Hann
segist starfa áfram með Samfylking-
unni og leggja henni lið eftir getu.
Prófkjörið fer fram laugardaginn
23. febrúar. Vitað er að Jóhann Geir-
dal, oddviti listans, og Ólafur Thord-
ersen sem var í fjórða sæti gefa kost
á sér áfram. Ólafur hefur lýst því yfir
að hann sækist eftir öðru sætinu. Þá
hafa að minnsta kosti tveir vara-
fulltrúar flokksins haft hug á fram-
boði, Guðbrandur Einarsson, for-
maður Verslunarmannafélags Suð-
urnesja, og Sveindís Valdimarsson
kennari. Skúli Thoroddsen, for-
stöðumaður Miðstöðvar símenntun-
ar á Suðurnesjum, hefur opinberlega
lýst yfir framboði.
Kristmundur og
Kristján hætta
Reykjanesbær
BÆJARSTJÓRN og bæjarstjóri
Sandgerðis telja að ekki þurfi að gera
breytingar á fjárhagsáætlun Sand-
gerðisbæjar fyrir yfirstandandi ár
vegna bréfs eftirlitsnefndar um fjár-
reiður sveitarfélaga. Fjárhagsáætl-
unin var samþykkt samhljóða á fundi
bæjarstjórnar á dögunum.
Nefndin aðvaraði Sandgerðisbæ
eins og þrjátíu önnur sveitarfélög.
Fram kemur í bréfinu að samkvæmt
reikningsskilum ársins 2000 er fram-
legð sveitarsjóðs of lítil að mati
nefndarinnar og að í óefni geti stefnt
ef ekki verði úr bætt.
Seint fram komið
Fjallaði bæjarstjórn um málið við
lokaafgreiðslu fjárhagsáætlunar og
var bæjarstjóra falið að fullmóta svar
til nefndarinnar á grundvelli punkta
sem bæjastjórnin var sammála um.
Kemur þar meðal annars fram að
lögð hafi verið áhersla á að bæjar-
sjóður ætti ekki að seilast um of í vasa
fyrirtækja og einstaklinga til að auka
við þjónustu eða til óþarfa fram-
kvæmda. Lagalegum skyldum sé
fylgt.
Vakin er athygli á því að launa-
hækkunum hafi verið mætt með nið-
urskurði á starfsgildum á árinu 2000
og 2001. „Bæjarstjórn harmar hins-
vegar að athugasemdir skuli svo seint
fram komnar sem raun ber vitni og
hvetur nefndina til að hraða úrvinnslu
upplýsinga eins og frekast er kostur
og að [þær] verði fram komnar í lok
október ár hvert. Reikningar bæjar-
og sveitarsjóða eru stjórntæki sem
verður að nýta til að bregðast við inn-
an hvers rekstrarárs en ekki tveimur
árum síðar,“ segir meðal annars í
samþykkt bæjarstjórnarinnar.
Ekki ástæða
til breytinga
Sandgerði
BREYTINGARTILLÖGUR Sam-
fylkingarfélags Grindavíkurlistans
við síðari umræðu fjárhagsáætlunar
voru felldar á bæjarstjórnarfundi í
Grindavík og sat listinn hjá við loka-
afgreiðslu áætlunarinnar.
Bæjarfulltrúar Grindavíkurlistans
lögðu til að felld yrði út fjárveiting til
viðhalds á áhaldahúsi og girðingu við
það svo og lagning gangstéttar við
Austurveg, samtals rúmar 11 millj-
ónir kr. Féð yrði í staðinn notað til að
greiða niður máltíðir grunnskóla-
nema, til að hita upp fyrirhugaðan
göngustíg frá hjúkrunarheimilinu
Víðihlíð að íþróttasvæði bæjarins, til
að gera hjólabrettaaðstöðu við
grunnskólann og til að fara að tillögu
íþrótta- og æskulýðsnefndar um
aukið fé til tækjakaupa í þreksal
sundlaugar.
Tillagan var felld með fjórum at-
kvæðum bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks.
Tillögur minnihlutans felldar
Grindavík
RÍKISKAUP hafa fyrir hönd
menntamálaráðuneytisins óskað
eftir tilboðum sem felast í að
byggja og reka rannsókna- og ný-
sköpunarhús við Háskólann á Ak-
ureyri. Um er að ræða lokað útboð
að undangengnu forvali og eru
þátttakendur annars vegar Íslensk-
ir aðalverktakar og ISS á Íslandi
og hins vegar Ístak og Nýsir. Til-
boðum á að skila 21. mars næst-
komandi.
Markmið þessa verkefnis er að
stuðla að uppbyggingu þekkingar-
og tæknigarðs í tengslum við Há-
skólann á Akureyri með aðstöðu
fyrir rannsóknastofnanir ríkisins og
jafnframt að boðið verður upp á að-
stöðu fyrir fyrirtæki í þróunarvinnu
sem geta nýtt sér nálægð við há-
skólaumhverfið.
Húsnæðið verður í eigu einka-
félaga og rekið af því, en gert er
ráð fyrir leigusamningi til 25 ára.
Auk Háskólans á Akureyri munu
rannsókna- og þróunarstofnanir á
vegum iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytis, sjávarútvegs- og umhverf-
isráðuneyta hafa aðsetur í rann-
sóknahúsinu. Þá verður hluti af
húsinu leigður til sprotafyrirtækja
sem hag hafa af staðsetningu í slíku
umhverfi.
Rannsókna- og nýsköpunarhúsið
verður allt að 7.500 fermetrar að
stærð. Gert er ráð fyrir að húsið
verði afhent tilbúið til notkunar 1.
október 2003.
Fullt samkomulag hefur náðst
milli Háskólans á Akureyri og
Glámu/Kím arkitekta um þátt
hönnuða í uppbyggingu háskóla-
svæðisins á Akureyri. Í því felst
m.a. að gert er ráð fyrir að unnið
verði við nýbyggingar Háskólans á
Akureyri með hliðsjón af tillögu
Glámu/Kíms í samkeppni um hönn-
un og skipulag Háskólans frá árinu
1996. Gláma/Kím arkitektar gera
ekki athugasemdir við að rann-
sóknahús háskólans verði boðið út
sem einkaframkvæmd og staðsett á
háskólasvæðinu samkvæmt núver-
andi deiliskipulagi.
Rannsókna- og nýsköpunarhús við Háskólann á Akureyri
Óskað eftir tilboðum í
7.500 fermetra byggingu
NÚ stendur yfir sýning Brians
Wendleman í Ketilhúsinu á Akur-
eyri.
Brian dvelur í gestavinnustofu
Gilfélagsins um þessar mundir og
vinnur út frá þeirri hugmynd að í
Listagilinu hafi verið smjör- og
mysuostaframleiðsla. Sýningin er
því skemmtileg tenging við gamla
tímann í Gilinu.
Sýningin verður opin til 31. janúar
frá kl. 14 til 18 alla dagana.
Smjör og
mysuostur
Í HÖRKUFROSTI verða til fjöl-
breyttar klakamyndir sem gleðja
augu göngumanna á Mývatni. Á
vatninu er nú afbragðs gott færi
bæði fyrir skíðagöngumenn og vél-
sleðamenn enda notfærðu sér það
margir um helgina.
Myndin er tekin á sunnudag við
Dauðanes og er horft til Bláfjalls
þar sem nokkur þokukúfur er yfir
fjallinu. Kom þá í hugann gömul
vísa Baldvins Stefánssonar:
Bláfjalls þegar byrgir tind
bústinn þokukúfur
Sagt er að boði sunnanvind
sár en stundum ljúfur.
Ekki er þó fyrirsjáanlegur sunn-
anvindur í veðurhorfum vikunnar.
Morgunblaðið/BFH
Gott göngu-
og sleðafæri
á Mývatni
Mývatnssveit
ÁSGEIR Magnússon, oddviti Akur-
eyrarlistans í bæjarstjórn Akureyr-
ar, segir að einn af þeim 18 sem tóku
þátt í skoðanakönnun meðal fé-
lagsmanna í Samfylkingunni á Ak-
ureyri og Stólpa, félagi ungra jafn-
aðarmanna á Akureyri um röðun á
framboðslista Samfylkingarinnar
vegna komandi sveitarstjórnarkosn-
inga hafi snúið þátttöku sinni upp í
prófkjörsslag sem augljóslega hafi
haft talsverð áhrif, því komi niður-
staðan ekki algerlega á óvart.
„Meiningin var að gefa fé-
lagsmönnum tækifæri til að segja
sinn hug varðandi uppröðun á
listann. Átján tóku þátt, þátttaka var
frekar lítil og því dreifðist þetta mik-
ið. Og þegar einn maður er í próf-
kjörsslag, eins og í þessu tilfelli, þá
hefur það áhrif,“ sagði Ásgeir, sem
vildi ekki nefna nafn í þessu sam-
bandi.
Hann sagði að uppstillingarnefnd
væri að vinna að uppstillingu á
listann og vildi því ekki tjá sig frekar
um málið.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á föstudag fékk Oktavía Jó-
hannesdóttir flest atkvæði í könnun-
inni en Ásgeir varð í öðru sæti. Þar
kom fram að félagsmenn fengu send
gögn heim vegna könnunarinnar en
að sögn Oktavíu var þar ekki getið
um hvort frambjóðendur stefndu á
ákveðið sæti. Sjálf sendi hún út bréf
þar sem fram kom að hún stefndi á
fyrsta sætið.
Einn aðili var í
prófkjörsslag
Ásgeir Magnússon, oddviti
Akureyrarlistans
HELGA María Þórarinsdóttir
heldur fyrirlestur um heimspeki-
vinnu með börnum í Háskólanum á
Akureyri í dag, þriðjudaginn 29.
janúar. Fyrirlesturinn verður flutt-
ur í stofu L-203 og hefst kl. 16.
Kynnt verður hugmyndafræði
og aðferðir svonefndrar barna-
heimspeki. Helga María útskrifað-
ist frá Háskólanum á Akureyri
1999 og er leikskólakennari á
Lundarseli á Akureyri. Hún hefur
unið að þróunarverkefninu Ís-
lenskar barnabókmenntir og þjóð-
sögur sem uppspretta heimspeki-
legrar samræðu meðal leikskóla-
barna.
Heimspekivinna
með börnum
♦ ♦ ♦
ALFA-námskeið verða kynnt á fundi
í Hvítasunnukirkjunni á Akureyri í
kvöld, þriðjudagskvöldið 29. janúar,
kl. 20.
Alfa-námskeið eru þverfagleg
námskeið sem fjalla um grundvallar-
atriði kristinnar trúar. Þau eru haldin
í um níutíu löndum og öllum kristnum
kirkjudeildum. Um er að ræða tíu
vikna námskeið og er það ókeypis og
öllum opið. Nánari upplýsingar eru
veittar í Hvítasunnukirkjunni.
Alfa-
námskeið