Morgunblaðið - 29.01.2002, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.01.2002, Qupperneq 17
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 17 IM (Information Management ehf.) og Streymi hf. hafa nýlega sameinast undir nafni IM og verður Ragnar Bjartmarz framkvæmdastjóri félags- ins. Í tilkynningu um sameininguna segir m.a. að einn meginstyrkur hins sameinaða fyrirtækis liggi á sviði upplýsingastjórnunar. Með upplýs- ingastjórnun sé á skipulegan hátt ver- ið að auðvelda aðgengi að stjórnunar- upplýsingum og að nýta þá þekkingu sem fyrirtæki búa yfir. „IM byggir á mikilli reynslu við ráðgjöf og gerð hugbúnaðarlausna á þessu sviði, bæði hér á landi og er- lendis. IM leggur ríka áherslu á ein- faldleika og að gera fyrirtækjum mögulegt að nýta sem best þau upp- lýsingakerfi sem eru til staðar innan þeirra. Hið sameinaða fyrirtæki sérhæfir sig meðal annars í ráðgjöf, veflausn- um og hugbúnaðarlausnum í Micro- soft-umhverfinu. Jafnframt rekur IM Vefskóla Streymis, en þar er hægt að sækja styttri og lengri námskeið,“ segir í tilkynningunni. Árið 2001 var eitt besta rekstrarár í sögu IM og fór veltan um það bil 10% fram úr áætlunum. Byrjun þessa árs lofar góðu og hafa stjórnendur og eig- endur miklar væntingar um að sam- runinn skapi góða möguleika til frek- ari sóknar. Samhliða sameiningunni var farið í hlutafjáraukningu og var völdum aðilum boðið að fjárfesta í IM. Átján fjárfestar hafa þegar ákveðið að fjárfesta í fyrirtækinu og eru þar á meðal nokkur stór fyrirtæki. IM og Streymi sameinast NÝLEGA fór fram hlutafjáraukning í Netskilum hf. Í boði voru 25 millj- ónir að nafnverði og skrifuðu nýir og eldri hluthafar sig fyrir allri þeirri upphæð. Að aukningu lokinni er nafnverð hlutafjár félagsins 115 milljónir króna. Um var að ræða lok- að hlutafjárútboð til fyrirliggjandi hluthafa og valins hóps nýrra fjár- festa. Markmið aukningarinnar var að afla nægilegs fjármagns til að standa undir áframhaldandi þróun á raf- rænni birtingu skjala og að efla fé- lagið með breiðri eignaraðild traustra aðila. Eftir hlutafjáraukn- inguna eru hluthafar Netskila orðnir alls 13 talsins. Stærstu hluthafar eru Mens Mentis hf., Spakur hf., Hita- veita Suðurnesja hf. og Orkuveita Reykjavíkur. „Nú þegar hafa 16 fyrirtæki og stofnanir gert samninga við Netskil um rafræna birtingu reikninga og annarra skjala á Netinu. Þjónusta Netskila gerir viðskiptavinum þess- ara aðila kleift að afpanta glugga- póstinn og fá rafrænan aðgang að reikningum sínum á einum stað. Unnið er að áframhaldandi út- breiðslu þjónustunnar og bindur fé- lagið vonir við að Ísland muni á næstu misserum ná afgerandi for- ystu í pappírslausum og þar með um- hverfisvænum viðskiptum,“ segir í frétt frá Netskilum. Hlutafjár- aukning hjá Netskilum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.