Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRMÚLA 21, 533 2020
HANDKLÆÐAOFNAR
Mikið úrval
handklæðaofna
á baðherbergið.
Stærðir frá 60-181 cm.
ÁFERÐ: HVÍT EÐA
KRÓMLITUÐ.
Framleiðsla úr fiski
Til sölu er landsþekkt fyrirtæki tengt fiski. Er með mjög góða og
þekkta framleiðslu sem seld er öllum helstu útsölustöðum á landinu,
til stærstu mötuneytanna og er auk þess með sölu á fiski. Miklir
framtíðarmöguleikar eru sjáanlegir jafnvel útflutningur. Fyrirtækið
er starfrækt í Reykjavík og nágrenni. Þjálfað starfsfólk. Laust strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina
auglýsingastofurnar AUK, Birting,
Hér og nú og XYZetu. Eignarhalds-
félag verður stofnað um reksturinn
en reknar verða tvær auglýsinga-
stofur á þess vegum. Annars vegar
verður starfsemi AUK og XYZetu
sameinuð og hins vegar starfsemi
Birtings og Hér og nú. Stofurnar
tvær verða reknar sem sjálfstæð fyr-
irtæki í fullri samkeppni.
Magnús E. Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri AUK, segir samein-
inguna koma til framkvæmda í
næsta mánuði. Enn sé verið að ræða
einstök atriði s.s. hvernig húsnæðis-
málum verði best skipað. Þá hafi
ekki verið spunnið alveg úr þeim
endum er lúta að stjórnun en hann
segir mynd vera komna þar á og um
hana sé full sátt.
Um ástæður sameiningarinnar
segir Magnús: „Menn eru sammála
um nauðsyn þess að mynda sterkari
rekstrareiningu til að ná hagræði, og
öflugari fyrirtæki til að veita sem
besta þjónustu í framtíðinni, núver-
andi og tilvonandi viðskiptavinum til
heilla.“
Stefnt er að því að ljúka frágangi
samkomulagsins á næstu dögum en
félagið verður næststærsta félagið á
auglýsingamarkaði á eftir ABS, sem
á Íslensku auglýsingastofuna og
Hvíta húsið. Í fréttatilkynningu
kemur fram að veltuaukning auglýs-
ingastofanna fjögurra hafi verið á
bilinu 6–84% á síðasta ári og heild-
arvelta þeirra hafi losað einn millj-
arð króna.
Þá segir að með sameiningunni
aukist verulega umsvif birtingafyr-
irtækisins Auglýsingamiðlunar ehf.,
sem hið nýja eignarhaldsfélag er
hluthafi í. Heildarvelta Auglýsinga-
miðlunar á þessu ári er áætluð 1,3
milljarðar króna.
AUK, Birtingur, Hér og nú og XYZeta sameinast
Fjórar auglýsingastof-
ur sameinast í tvær
SAMÞJÖPPUN á matvörumarkaði
hefur ekki valdið verðhækkunum
umfram gengisbreytingar, sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá GJ
Fjármálaráðgjöf. Í fréttatilkynning-
unni er minnst á hagvísa Seðla-
banka Íslands í janúar þar sem
fram hafi komið að hækkun á inn-
fluttum mat- og drykkjarvörum
hefði numið tæplega 28% síðustu 12
mánuði sem væri um 5,5% hækkun
umfram hækkun erlendra gjald-
miðla samkvæmt innflutningsveg-
inni gengisvog. Í hagvísunum segi
ennfremur: „... það er hugsanlegt að
minni samkeppni í matvöruverslun
en í annarri verslun í kjölfar sam-
þjöppunar undanfarinna ára eigi
hér einnig hlut að máli en um það
verður ekki fullyrt án ítarlegri at-
hugunar“.
Í fréttatilkynningunni segir að GJ
Fjármálaráðgjöf hafi framkvæmt ít-
arlegri athugun á efninu með sam-
bærilegum gögnum og Seðlabank-
inn. „Í ljós kom,“ segir í tilkynn-
ingunni, „að ofangreindar vanga-
veltur, þótt varlega séu settar fram,
eiga ekki við rök að styðjast. Síð-
ustu 12 mánuði á undan var sam-
bærileg tala -8,4%, þ.e. innfluttar
mat- og drykkjarvörur lækkuðu um
8,4% miðað við gengi. Síðustu 24
mánuði hefur verðlag á þessum
vörum því samtals lækkað miðað við
gengi erlendra gjaldmiðla.
Eðlilegt er að miða fremur við
löng tímabil en stutt í athugun af
þessu tagi. Gengisbreytingar hafa
ekki endilega strax áhrif á verðlag
og getur verið mikið misræmi þar á
milli á stuttum tímabilum.
Athugunin bendir til þess að fyr-
irtæki í matvöruverslun hafi fremur
tekið á sig gengisbreytingarnar í
nokkurn tíma og ekki velt þeim
strax út í verðlag. Þá lækkar verð
miðað við gengi. Þegar verð er svo
loks hækkað til samræmis við gengi
skapast umrætt misræmi.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Verðlag ekki
hækkað umfram
gengisbreytingar
ÍRSKA lágfargjaldaflug-
félagið Ryanair hefur til
skoðunar að hefja flug til
einhverra af um 40 nýjum
áfangastöðum í Evrópu.
Talsmaður félagsins vildi í
samtali við blaðamanna
Morgunblaðsins í gær hvorki
játa því né neita hvort til at-
hugunar sé að hefja flug til
Íslands. Hann sagði ótíma-
bært á þessu stigi að gefa
upp hvaða áfangastaðir séu
til skoðunar hjá félaginu.
Ryanair var stofnað árið
1985. Eins og önnur evrópsk lágfar-
gjaldaflugfélög fékk félagið byr
undir báða vængi árið 1997, er Evr-
ópusambandið ákvað að koma á
frjálsri samkeppni í flugsam-
göngum. Umsvif og hagnaður fé-
lagsins hefur stöðugt aukist og
gera áætlanir þess ráð fyrir að
framhald verði þar á á þessu ári.
Félagið flýgur frá Írlandi og
Englandi til Skotlands, Belgíu,
Frakklands, Þýskalands, Ítalíu,
Austurríkis, Danmerkur, Svíþjóðar
og Noregs.
Ryanair með í athugun
að fjölga áfangastöðum
Reuters
Michael O’Leary forstjóri við eina af flug-
vélum lággjaldaflugfélagsins Ryanair.
Í GJALDEYRISMÁLUM, sem
Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. gefa
út, er því spáð að vísitala neyslu-
verðs verði 222,7 stig í maí, en í sam-
komulagi Samtaka atvinnulífsins og
ASÍ í desember var gert ráð fyrir að
vísitalan yrði ekki hærri en 222,5 í
maí. Þetta þýðir að gangi spá Ráð-
gjafar og efnahagsmála eftir bresta
verðlagsforsendur samkomulags að-
ila vinnumarkaðarins í maí, svokall-
að rautt strik, og launaliðir kjara-
samninga verða þá uppsegjanlegir
með þriggja mánaða fyrirvara.
Í desember gerði spá Ráðgjafar
og efnahagsmála ráð fyrir að vísital-
an yrði innan þeirra marka sem
samningar á vinnumarkaði gera ráð
fyrir, en hækkun vísitölunnar í jan-
úar var langt umfram það sem þá var
spáð. Í spánni nú segir þó að margir
óvissuþættir séu í verðlagsmálum
líkt og undanfarna mánuði, bæði um
verðhækkun og tímasetningu kjara-
mála, en gert er ráð fyrir stöðugu
gengi á næstu mánuðum.
Ráðgjöf og efnahagsspár gera ráð
fyrir að verðbólga milli áranna 2001
og 2002 verði 5,7% en 3,6% innan
þessa árs.
Ný verðbólguspá Ráðgjafar og efnahagsmála
Rautt strik í hættu