Morgunblaðið - 29.01.2002, Qupperneq 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 21
Notkunarsvið: Asýran inniheldur ranitidín sem er notað við sárasjúkdómum í meltingarfærum, s.s. maga- og skeifugarnasárum, og er
fyrirbyggjandi gegn slíkum sárum. Lyfið er notað við bólgum í vélinda sem stafa af því að magasýra kemst úr maga upp í vélinda.
Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir ranitidíni, barnshafandi konur og konur með börn á brjósti mega ekki nota lyfið. Fólki með
skerta nýrnastarfsemi er bent á að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er tekið. Aukaverkanir: Um 3-5% sjúklinga finna fyrir einhverjum
aukaverkunum af völdum Asýran‚ eins og t.d. höfuðverk, útbrotum, þreytu, niðurgangi og svima. Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um
skömmtun fylgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er með. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 15.10.01
Asýran
DREGUR ÚR SÝRUMYNDUN
ELLEFU ungmenni hótuðu í
gær að fremja sjálfsmorð í
Woomera-flóttamannabúðunum
í Ástralíu til að vekja athygli á
þeim aðbúnaði sem þeim og öðr-
um er þar dveljast er gert að
sætta sig við.
John Howard, forsætisráð-
herra landsins, sagði að ríkis-
stjórnin myndi ekki breyta
stefnu sinni í málefnum innflytj-
enda.
Ungmennin, sem flest eru af-
gönsk, eru á aldrinum 14 til 17
ára. Þau eru sögð hugleiða að
fyrirfara sér með því að stökkva
á beittan vír, skera sig eða
drekka eitraðan vökva.
Á síðustu viku hafa 15 manns í
flóttamannabúðunum reynt að
hengja sig en aðrir hafa gleypt
hársápu og hreinsiefni og kvart-
ar fólkið undan því að vera „í
búri líkt og dýr“.
Lögfræðingar flóttafólksins,
sem er í haldi ástralskra stjórn-
valda í Woomera, alls 370
manns, segja að fólkið neiti að
borða til að mótmæla aðbúnaði á
staðnum og töfum í málsmeð-
ferð.
Dæmdur
fyrir biblíu-
smygl
KAUPSÝSLUMAÐUR frá
Hong Kong var í gær dæmdur í
tveggja ára fangelsi í Kína fyrir
að hafa smyglað Biblíum inn í
landið.
Maðurinn, Li Guangqiang, var
handtekinn í maí sakaður um að
hafa reynt að smygla 16.280 ein-
tökum af Nýja testamentinu inn í
Kína. Tveir Kínverjar sem sak-
aðir voru um að hafa aðstoðað
manninn voru dæmdir til þriggja
ára fangelsisvistar. Fólkið var
sakað um „óleyfileg viðskipti“ en
hefði það verið ákært fyrir tengsl
við „óæskilega sértrúarhópa“
hefði dauðadómur vofað yfir
höfði þess.
Dómurinn þykir fallinn til að
auka enn áhyggjur á alþjóða-
vettvangi af frelsi manna til að
iðka trú sína í Kína. Bandaríkja-
stjórn hefur lýst yfir alvarlegum
áhyggjum sökum málsins en
George W. Bush forseti er vænt-
anlegur í opinbera heimsókn til
Kína í næsta mánuði.
Thatcher
veiktist
MARGARET
Thatcher,
fyrrverandi
forsætisráð-
herra Bret-
lands, hefur
fengið minni
háttar heila-
blæðingu.
Dóttir hennar,
Carol Thatch-
er, sagði í viðtali við breska rík-
isútvarpið, BBC, að móðir henn-
ar hefði veikst um áramótin en
veikindin hefðu ekki verið mjög
alvarleg.
Breska blaðið The Times,
sagði að Thatcher, sem er 76 ára
gömul, hefði veikst þegar hún
hélt upp á gullbrúðkaup þeirra
Denis Thatchers á portúgölsku
eynni Madeira. Thatcher dvaldi
tvo daga á sjúkrahúsi eftir að
hreyfigeta hennar skertist og
hún átti einnig erfitt um mál en
Times sagði að hún hefði nú náð
sér að fullu.
STUTT
Ungmenni
hóta sjálfs-
morði
Thatcher
MANNRÆNINGJAR í Pakistan hafa nú í haldi
bandarískan blaðamann stórblaðsins The Wall
Street Journal. Blaðamannsins, Daniel Pearl, hefur
verið saknað frá því á miðvikudag en hann hélt þá
frá bækistöðvum sínum í Bombay á Indlandi til Kar-
achi í Pakistan í því skyni að ræða við heimildar-
mann í tengslum við grein um hryðjuverk sem hann
hugðist skrifa.
Mannræningjarnir gerðu grein fyrir ráninu í
tölvupósti sem þeir sendu fjölmiðlum vestanhafs um
helgina. Krefjast þeir þess að Pakistönum í hópi liðs-
manna al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna sem vist-
aðir eru í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu verði
leyft að halda heim á leið og að fyrrverandi sendi-
herra Afganistans í Pakistan verði sleppt úr haldi.
Sögðu þeir jafnframt að Pearl væri haldið við
„ómannúðlegar“ aðstæður til að mótmæla meðferð
Bandaríkjamanna á föngunum á Kúbu.
Mannræningjarnir kenndu sig við samtök er þeir
kölluðu Þjóðarhreyfingu til að endurheimta fullveldi
Pakistans. Sökuðu þeir Pearl um að vera útsendara
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, en bæði The
Wall Street Journal og yfirmenn CIA hafa vísað
þessu á bug.
Heimildarmenn í Pakistan segja Pearl vera í haldi
liðsmanna Harkat ul-Mujahedeen, samtaka sem
sterk tengsl hafa við al-Qaeda og eru á lista Banda-
ríkjastjórnar yfir alþjóðleg hryðjuverkasamtök.
Bandarískur blaðamaður
í haldi mannræningja
New York. AP.
Reuters
Mannræningjarnir sendu bandarískum fjöl-
miðlum þessa mynd af Daniel Pearl.