Morgunblaðið - 29.01.2002, Page 40

Morgunblaðið - 29.01.2002, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ                               BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. VIÐ ERUM í stöðugu kapp- hlaupi. Við setj- um okkur mark- mið, áföngum er náð, tímamót verða. Við upplif- um hver tímamót- in af öðrum. Klíf- um fjallið sem virtist svo hátt í fyrstu. Þegar okkur virðist að toppn- um sé náð koma bara í ljós nýir topp- ar. Þótt gangan milli áfanga virðist oft styttri þegar ofar dregur í fjallið heldur en þegar við lögðum fyrst af stað, svo ung og fersk. Full af bjart- sýni, djörfung og eldmóð. Við taka ný markmið, nýir áfangar, jafnvel ný viðmið eftir því sem árin og reynslan taka að marka okkur. Við gefum af okkur. Eyðum nán- ast allri okkar orku, tíma og fjármun- um í verkefni dagsins eins og það sé okkar síðasta. Oft einblínum við á einn punkt í einu. Eins og ekkert taki við. Þó þekkjum við öll svo vel að lífið heldur áfram þrátt fyrir öll tímamót. Alla áfanga og fjarlæg markmið, sem oft virðast eins og lokatakmark í óra- fjarlægð. Þrátt fyrir öll tímamót gleði og sigra, þótt áföngum sé náð, þá heldur lífið áfram. Og þrátt fyrir allt mót- læti, torfærur og brekkur, baráttu og ósigra þá heldur lífið einnig áfram. Jafnvel þótt ævinni ljúki, já, jafn- vel þrátt fyrir sjálfan dauðann sem hljóta að teljast sannkölluð tímamót, þá heldur lífið áfram, og ekkert fær það stöðvað. Erum við meðvituð um lífið? Það er lífið, að þekkja hann sem kveikti lífið og þann sem einn megn- ar að viðhalda því um eilífð. Lifum í meðvitaðri þökk til hans sem blés í okkur lífið fyrir anda sinn og mátt og til hans sem einn megnar að viðhalda því. Lofað sé lífið. Hann sem er vegurinn til lífsins, lífið sjálft. Lifi lífið! SIGURBJÖRN ÞORKELSSON, rithöfundur, framkvæmdastjóri Laugarneskirkju og forseti Lands- sambands Gídeonfélaga á Íslandi. Lífið heldur áfram Frá Sigurbirni Þorkelssyni: Sigurbjörn Þorkelsson FRÁ ÞVÍ um síðustu jól hefur verið sýnd í kvikmyndahúsum borgarinnar kvikmyndin Hringadróttinssaga, sem gerð er eftir samnefndri sögu Tolkiens. Í fjölmiðlaauglýsingum stendur undir titli myndarinnar „Æv- intýrið lifnar við“, „Besta mynd árs- ins“ o.s.frv. en þess er hvergi getið hvorki í blöðum né þeim auglýsingum sem ég hef heyrt í útvarpi að þessi mynd þykir ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. Kvikmyndaeftirlit Íslands hefur engu að síður bannað myndina börnum yngri en 12 ára. Í janúar sl. sat ég fund með for- svarsmönnum kvikmyndaeftirlits Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar en í þeim löndum er þessi mynd bönnuð áhorfendum yngri en 11 ára. Starfs- menn kvikmyndaeftirlits þessara landanna töldu þó þörf á að senda út fréttatilkynningu til að benda foreldr- um á að samspil myndar og hljóðs væri mjög áhrifaríkt og að viðkvæmir áhorfendur yngri en 16 ára ættu ekki erindi á myndina. Finnar bönnuðu myndina upphaflega áhorfendum yngri en 16 ára en breyttu þeirri ákvörðun þegar nágrannalönd þeirra sættust á 11 ára aldurstakmark. Mér var tjáð að á hinum Norður- löndunum væri skylda að taka fram í auglýsingum ef kvikmyndaeftirlit setti aldurstakmark á kvikmyndir, einnig að dyravörðum væri skylt að fara eftir settum reglum þar að lút- andi. Annað virðist upp á teningnum hér á landi því starfsmaður í miðasölu sagði mér þegar ég keypti miða á myndina að fólk færi með börn alveg niður í 4 ára á þessa mynd sem væri allt í lagi, því að það væri svo sem ekkert skelfilegt að sjá á þessari mynd. Þrátt fyrir það álit starfsmanns kvikmyndahússins tel ég að foreldrar barna sem ekki hafa náð 16 ára aldri eigi fullan rétta á að sjá í kvikmynda- auglýsingum, úrskurð kvikmyndaeft- irlits ef það setur aldurstakmark á kvikmyndir. Þannig geta foreldrar nýtt sér úrskurðinn börnum sínum til verndar. KRISTBJÖRG HJALTADÓTTIR, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra. Er þitt barn yngra en 12 ára? Frá Kristbjörgu Hjaltadóttur: stretch- gallabuxur Kringlunni, sími 588 1680 v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. iðunn tískuverslun 3 skálmalengdir w w w .t e xt il. is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.