Morgunblaðið - 29.01.2002, Side 34
34 C ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
U
M MIÐJA nítjándu öld
var Jónasi Helgasyni
járnsmið úthlutað lóð á
þessum slóðum. Af
ókunnum ástæðum afsalaði hann
lóðinni til bæjarins og var henni þá
úthlutað til Ólafs Þorkelssonar
snikkara, sem byggði þar íbúðarhús
úr timbri. Það var síðar kennt við
Vigdísi Waage sem lengi átti húsið
og bjó þar með dóttur sinni, Önnu
Þorsteinsdóttur.
Árið 1892 var eignin seld, þá skráð
á dánarbú Önnu Þorsteinsdóttur.
Kaupandi var Jón Þórðarson kaup-
maður sem sama ár lét rífa húsið og
byggði á lóðinni hús úr steini sem
enn stendur.
Lóðaviðbót fær Jón, ræmu með-
fram Þingholtsstræti, jafn langa lóð
sinni í maí 1893. Í september 1893
byggir hann timburskúr á lóðinni,
41⁄4 x 33⁄4 álnir að grunnfleti.
Í maí 1897 fær Jón Þórðarson leyfi
til þess að lengja íbúðarhúsið til
austurs og er viðbótin byggð úr
steini með sama frágangi og eldri
byggingin.
Sama ár byggir hann inngöngu-
skúr úr timbri með skáþaki sunnan
við húsið.
Í desember árið 1897 er bruna-
virðingin gerð á húsinu, þar segir að
það sé 20 álnir á lengd, 12 álnir á
breidd og 10 álna hátt, byggt af
steini og tvílofta, með brotnu þaki,
járnklæddu á súð með pappa í milli.
Niðri í húsinu er sölubúð sem
skipt er í tvennt, með hillum, skúff-
um, borðum og skápum, allt þiljað og
málað. Þar eru einnig tvö geymslu-
herbergi, þiljuð en ómáluð. Í sölu-
búðinni er einn ofn. Loftið yfir hæð-
inni er tvöfalt. Á efri hæð eru fjögur
íbúðarherbergi og eldhús. Allt þiljað
og málað og með þreföldum loftum.
Á efsta lofti eru fimm herbergi, öll
þiljuð og máluð, þar er einn ofn.
Kjallari er undir húsinu, hólfaður í
tvennt.
Við suðurhliðina er inn- og upp-
gönguskúr með skúrþaki, byggður
af bindingi, klæddur utan með járni
og allur þiljaður að innan.
Í júní kaupir Jón Þórðarson 60
álna lóðarspildu af Magnúsi Gunn-
arssyni, Þingholtsstræti 3, til viðbót-
ar við lóð sína. Hann fær leyfi til þess
að byggja á lóðinni skúr, 9½ x 5 álnir
að grunnfleti. Ári síðar tekur bærinn
ræmu af lóðinni til breikkunar Þing-
holtsstrætis.
Tvíbýli
Samkvæmt íbúaskrá frá árinu
1901 var tvíbýli í Þingholtsstræti 1.
Á öðru heimilinu voru: Jón Þórðar-
son, húsbóndi, kaupmaður og út-
gerðarmaður, 47 ára, fæddur í
Stóruvallasókn; Þorbjörg Gunn-
laugsdóttir, kona hans, 44 ára, fædd í
Breiðabólstaðarsókn í Fljótshlíð;
Guðrún Runólfsdóttir, fósturdóttir
hjónanna, 9 ára, fædd í Lágafells-
sókn.
Ennfremur Guðrún Gunnlaugs-
dóttir, vinnukona, 43 ára, fædd í
Breiðabólstaðarsókn; Halldór Kjart-
ansson, hjú, 21 árs, fæddur á Siglu-
firði og Gunnar Brynjólfsson, leigj-
andi, 16 ára, fæddur í Kirkjuvogs-
sókn.
Á hinu heimilinu voru Jón Lúð-
víksson, húsbóndi og verslunarmað-
ur, 22 ára, fæddur í Kirkjuvogssókn;
Lúðvík Jónsson, faðir hans, dag-
launamaður, 51 árs, fæddur í Dals-
sókn, flytur til Reykjavíkur frá Vall-
arhúsum í Höfnum; Margrét
Þórðardóttir, kona hans, 51 árs,
fædd í Stóruvallasókn og Guðrún
Jónsdóttir, leigjandi og saumakona,
35 ára, fædd í Staðarsókn.
Árið 1907 byggir Jón sunnan við
húsið. Byggingin virðist hafa gengið
hratt fyrir sig því að eignin öll var
brunavirt í nóvember sama ár. Þar
segir að sunnan við húsið hafi
verið byggð tvílyft viðbygging
með skúrþaki (nýja húsið), 11
x 11 álnir að grunnfleti, byggð
úr bindingi, klædd utan með
plægðum 1" borðum og járni.
Þakið er járnklætt á 1"
plægðri borðasúð og með
pappa í milli. Eldvarnarvegg-
ur er að sunnanverðu. Innan á
bindin á veggjum er pappi og
milligólf í báðum bitalögum.
Niðri í húsinu eru þrjú íbúð-
arherbergi, eldhús, gangur og
tveir fastir skápar. Herbergin
og gangurinn eru með striga
og pappa á veggjum og loftum
og allt málað. Þar er einn ofn
og ein eldavél.
Kjallari 23⁄4 álnir á hæð, er undir
allri útbyggingunni með stein-
steypugólfi og hólfaður í tvennt. Við
austurgaflinn er skúr byggður af
bindingi með járni á þaki og hliðum.
Eldvarnarveggur er að sunnan-
verðu. Í skúrnum eru þrjú klósett og
ein geymsla.
Í sama skipti var steinhúsið virt.
þá höfðu orðið þær breytingar að
uppi eru fimm herbergi og gangur í
stað fjögurra áður og þar eru tvær
eldavélar. Á þriðja gólfi er sú breyt-
ing að þar hefur verið gert eldhús
með eldavél, gangur, tveir geymslu-
klefar og þrír fastir skápar. Þar uppi
eru þrjár eldavélar. Þá er getið um
peningakassa í verslun sem var met-
inn á 2.000 kr.
Ein fyrsta verslunin
fyrir austan Læk
Talið er að í eldra húsinu (stein-
húsinu) hafi verið stofnuð ein af
fyrstu verslununum fyrir austan
Læk. Ártalið 1892 er letrað
fyrir ofan glugga á horni
hússins á mótum Banka- og
Þingholtsstrætis og í glugg-
ana götumegin var letrað með
gullnum stöfum „Verslun
Jóns Þórðarsonar“.
Laust fyrir aldamótin 1900
var að mestu leyti hætt að
flytja inn kornið ómalað. Þá
keypti Jón Þórðarson korn-
mylluna í Bankastræti og not-
aði hana fyrir geymslu. Myll-
an var rifin 1902.
Í september 1915 voru sett-
ar dyr í vestur þar sem áður
var verslunargluggi. Glugg-
um á götuhlið hússins var
breytt árið 1941 bæði Þingholts- og
Bankastrætismegin.
Viðbygging úr steinsteypu, 8 fer-
metrar að grunnfleti, var byggð
1937, geymsla baka til við húsið.
Í brunamati frá nóvember 1946
segir að verslunar- og íbúðarhúsið sé
óbreytt frá mati 1944. En íbúðar- og
hárgreiðsluhús, tvílyft sambygging,
sé óbreytt að öðru leyti en því að nú
sé hárgreiðslustofan á neðri hæð-
inni, en uppi eru tvö herbergi, eld-
hús, snyrting og gangur. Þvottahús
er í kjallara. Í þessu mati var
geymsluskúr með skáþaki óbreyttur
frá mati 1944.
Jón Þórðarson var frá Mörk í
Landsveit. Þegar hann og kona hans
fluttu til Reykjavíkur komu þau að
austan á tveimur hestum og settust
að í Ártúni rétt austan við Elliðaár.
Fljótlega fóru þau hjón að selja veit-
ingar en í Ártúni var mikill gesta-
gangur. Sveitafólk sem erindi átti til
Reykjavíkur kom þar gjarnan við og
einnig þeir sem fóru úr bænum.
Brautryðjandi
í verslun
Jón var brautryðjandi í íslenskri
verslun og mikill áhugamaður um
iðnað, kom á fót pylsugerð og nið-
ursuðu og reisti fyrsta (eða með
fyrstu) sláturhúsið í Reykjavík, en
það var í Þingholtsstræti 1. Í versl-
uninni var verslað með allar innlend-
ar afurðir. Jón Þórðarson byggði
húsið Bankastræti 10 og hafði þar
verslun.
Árið 1908 keypti Sláturfélagið
pylsugerðina af Jóni og var hún þá
rekin af Matardeildinni sem síðar
rak sölubúð í Bankastræti 10 en
Sláturfélagið leigði húsnæðið af Jóni
Þórðarsyni. Jón hafði fram að þeim
tíma rekið mikla fjárverslun fyrir
bændur. Tómas Jónsson, sem um
skeið starfað hjá Jóni Þórðarsyni,
keypti síðan þessa verslun af Slát-
urfélaginu en flutti hana seinna að
Laugavegi 2.
Á sumrin geymdi Jón nautgripi úti
í Örfirisey. Þegar átti að slátra fór
hann fótgangandi og sótti naut og
teymdi það í gegnum bæinn. Komu
þá væntanlegir kaupendur og pönt-
uðu þann part af nautinu sem þeir
vildu fá. Oft var allur tuddinn upp-
pantaður áður en honum var slátrað.
Jón Þórðarson var vandaður mað-
ur, hörkuduglegur og prúður í um-
gengni. Hann lést langt um aldur
fram árið 1911. Ekkja hans, Þor-
björg Gunnlaugsdóttir, bjó áfram í
húsinu þar til hún lést 1931.
Sonur þeirra, Þórður Jónsson, tók
við verslunarrekstrinum með móður
sinni og öðrum rekstri sem faðir
hans hafði verið með. Kona hans var
Þóra Jónsdóttir frá Skipholti í
Reykjavík. Þau hjón bjuggu í húsinu
ásamt fjölskyldu sinni. Sonur þeirra,
Jón Þórðarson og kona hans Mar-
grét Sæmundsdóttir, tóku síðan við
rekstrinum.
Jón og Margrét bjuggu einnig í
húsinu til ársins 1967, þar til rekst-
urinn var fluttur inn á Laugaveg 81.
Eftir það voru afkomendur Jóns
Þórðarsonar eldri og Þorbjargar
Gunnlaugsdóttur ekki með atvinnu-
rekstur eða heimili í húsinu.
Jón Sævar Þórðarson þróttakenn-
ari, langafabarn Jóns Þórðarsonar,
ólst upp í Þingholtsstræti 1.
Frá barnæsku sinni eru honum
Þingholtsstræti 1
Húsið var upphaflega
byggt 1892. Það er verð-
ugur fulltrúi fallegra
steinbygginga þeirra
tíma, segir Freyja Jóns-
dóttir. Það er hlaðið úr
grágrýti og hefur mjög
verið vandað til bygg-
ingar þess.
Jón Þórðarson yngri Margrét Sæmundsdóttir
Laust fyrir aldamótin 1900 var að mestu leyti hætt að flytja inn kornið ómalað. Þá keypti Jón Þórðarson kornmylluna í Bankastræti og notaði hana fyrir geymslu.
Myllan var rifin 1902.
Húsið var byggt sem verslunar- og íbúðarhús. Það er hlaðið úr grágrýti og vel hefur verið vandað til byggingar þess.