Morgunblaðið - 29.01.2002, Side 38
38 C ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
VANTAR
Bragi Björnsson
lögmaður
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður
FAXAFENI 5
SÍMI 533 1080
www.foss.is
Netfang: foss@foss.is
FASTEIGNASALA
LEIGUHÚSNÆÐI
HLÍÐAR – LEIGA Glæsilegt íbúðarhúsnæði
í Hlíðunum til leigu frá 1. mars nk. til júníloka
2004. Húsnæðið er á tveimur hæðum og er
u.þ.b. 200 fm að stærð. Verð tilboð. Upplýsingar
gefa Börkur og Úlfar.
ATVINNUHÚSNÆÐI
HAFNARFJÖRÐUR – GLÆSILEGT Til
sölu eða leigu í miðbæ Hafnarfjarðar stórglæsi-
legt húsnæði með frábæru útsýni yfir höfnina, í
góðu lyftuhúsi. Lyklar og allar nánari upplýsing-
ar á skrifstofu.
NÝBYGGINGAR
KIRKJUSTÉTT - GRAFARHOLTI Falleg
raðhús, alls 193,3 fm, á tveimur hæðum á góð-
um stað í Grafarholtinu. Stutt verður í alla þjón-
ustu og skóla. Húsin afhent fullbúin að utan en
fokheld að innan og lóð grófjöfnuð. Húsin eru
tilbúin til afhendingar. Verð 15,5–15,8. Nánari
uppl. og teikn. á skrifstofu.
EINBÝLISHÚS
ELLIÐAVATN – STÓRGLÆSILEGT
Erum með á sölu einbýlishús í algerum sérflokki
við Elliðavatn. Húsið er 278,4 fm á þremur pöll-
um. Allar innréttingar einstaklega glæsilegar.
Húsið er hannað af arkitektinum Steve Christer.
SELTJARNARNES Vorum að fá í sölu
glæsilegt einbýlishús á einni hæð á frábærum
stað á Seltjarnarnesinu. Dökkt parket á gólfum,
3-4 svefnherbergi, mjög stór stofa, glæsilegt
baðherbergi. Stór bílskúr og glæsilóð. Verð 28,9
millj.
GARÐABÆR – MARARGRUND Glæsi-
legt einbýlishús á tveimur hæðum. Efri hæð:
Fallegt eldhús með sérhannaðari innréttingu,
stór stofa með samliggjandi borðstofu, stórt
hjónaherbergi með rúmgóðu fataherbergi. Bjart
barnaherbergi. Neðri hæð: Tómstundasalur,
tvöföld sturta og sauna, sjónvarpsherbergi og
annað stórt rými nýtt sem tómstundaherbergi í
dag. Húsið ekki fullklárað að innan.
GARÐABÆR – HOLTÁS Vorum að fá í
sölu fallegt 240 fm einbýlishús á mjög góðum
stað, innst í botnlanga í nýja Hraunholtshverfinu
í Garðabæ. Eignin er næstum fullkláruð að inn-
an án gólfefna og baðinnréttinga. Húsið verður
afhent fullklárað að utan, lóð jöfnuð. Verð 26,5
millj. Góð lán áhvílandi.
FUNAFOLD - GLÆSILEGT 185 fm 2ja
hæða einbýlishús auk 40 fm bílskúrs í Folda-
hverfi. Glæsilegar innréttingar. Fimm svefnher-
bergi, stór stofa, rúmgott eldhús, sólskáli og
verönd með heitum potti. Verð 25,5 millj.
RAÐHÚS
BÁSBRYGGJA – ÚTSÝNI Mjög gott ca
207 fm raðhús á þremur hæðum á frábærum
stað í Bryggjuhverfi. Húsið stendur við sjávar-
bakkann og er með glæsilegu útsýni. Rúmgóður
innbyggður bílskúr. Tilboð óskast.
SÉRHÆÐ
RAUÐALÆKUR – FALLEG Falleg 120 fm
5 herb. miðhæð í þríbýli auk 28 fm bílskúrs.
Íbúðin skipist í 3 svefnherbergi, stofu og borð-
stofu. Merbau-parket á flestum gólfum. Bað-
herbergi nýlega tekið í gegn, flísalagt með
mahóní-innréttingu. Tvennar svalir, aðrar stór-
ar. Góð sameign með þvottahúsi og góðum
geymslum. Bílskúr með vatni, rafmagni og fjar-
stýrðri opnun. Glæsileg eign. Verð 17 millj.
4RA-5 HERBERGJA
VESTURBÆR – KAPLASKJÓLSVEG-
UR Rúmgóð íbúð á tveimur hæðum í góðu fjöl-
býlishúsi. Góð stofa með gegnheilu parketi.
Fjögur svefnherbergi. Upprunalegar innrétting-
ar í eldhúsi og á baði. Verð 11,9 millj.
BJARNARSTÍGUR – ÞINGHOLT Mjög
falleg og skemmtileg íbúð á tveimur hæðum á
besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Tvær bjartar
stofur og 2-3 svefnherbergi. Verð 13,5 millj.
SÓLHEIMAR – AUSTURBÆ Góð íbúð á
1. hæð í vinsælu lyftuhúsnæði. Tvær stórar stof-
ur með rennihurð á milli. Rúmgott hjónaher-
bergi og lítið aukaherbergi. Húsnæðið hentar
eldra fólki mjög vel. Aðgengi er mjög gott. Hús-
vörður og góð sameign. Verð 12,3 millj.
3JA HERBERGJA
HVERAFOLD - ÁHV. BYGGSJ. CA
5,6 Góð ca 90 fm íbúð á 2. hæð í góðri vel stað-
settri blokk, glæsilegt útsýni. Þvottahús í íbúð.
Parket og flísar á gólfum. Verð 11,9 millj.
LANGHOLTSVEGUR – SÉRHÆÐ Fal-
leg rishæð með sérinngangi. Björt og rúmgóð
parketlögð stofa. Tvö góð parketlögð svefnher-
bergi. Þvottahús í íbúð. Íbúðinni fylgir góður bíl-
skúr. Falleg eign á góðum stað. Verð 12,9 millj.
HLÍÐAR – RIS Góð 3ja-4ra herbergja ris-
íbúð í Mávahlíð. Tvö góð herbergi og möguleiki
á þriðja. Góð stofa. Góð eign á vinsælum stað.
Ekkert greiðslumat. Ósamþykkt. Verð 6,7 millj.
GRAFARVOGUR – STARENGI Glæsi-
leg, rúmgóð 3ja herbergja íbúð á góðum stað í
Engjahverfi í Grafarvogi. Stór stofa og tvö góð
svefnherbergi. Sérinngangur, sérgarður og sér-
þvottahús. Skipti möguleg á minni eign. Verð
11,9 millj.
2JA HERBERGJA
MIÐBÆR – LAUGAVEGUR Mjög góð
tveggja herbergja risíbúð í bakhúsi við Lauga-
veginn. Spónaparket á gólfum. Íbúðinni er hag-
anlega fyrir komið og hver fermetri nýttur til
hins ítrasta. Verð 7,1 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL
LEIGU EÐA SÖLU
TIL LEIGU EÐA SÖLU HÚSNÆÐI Á
HELSTU VERSLUNARSVÆÐUM
BORGARINNAR
KNARRARVOGUR Vorum að fá í sölu gott
ca 670 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði við
Knarrarvog í Reykjavík. Húsnæðið skiptist í
290,54 fm kjallara sem er með sérinnkeyrsludyr-
um, flísalagður og tengist verslun með stiga
upp á fyrstu hæð. Góð lofthæð. Verslunarhæð
sem er 261,95 fm, bjart með góðri aðkomu.
Fjögur rúmgóð skrifstofurými á annarri hæð
(116,48 fm). Fyrir framan húsið er óvenju stór
malbikuð lóð með merktum bílastæðum. Aug-
lýsingagildi eignarinnar er gott og blasir húsið
við umferð um Sæbraut og Miklubraut. Ástand
húss og lóðar er gott. Verð 59 millj.
GRAFARVOGUR Til sölu blandað glæsi-
legt skrifstofu- og lagerhúsnæði við Fossaleyni.
Stærð húss er rúmlega 2.100 fm.
FAXAFEN Til leigu við Faxafen, um 700 fm.
Hagstæð leiga.
HLÍÐASMÁRI 2.000 fm, þar af 1.000 á versl-
unarhæð. Verð 1.200 og 1.400 kr. fm.
VATNAGARÐAR Gott atvinnuhúsnæði,
945,8 fm. Húsnæðið er á tveimur hæðum. Húsið
var tekið í gegn að innan fyrir u.þ.b. tveim árum.
Mikið útsýni til Esjunnar. Gæti vel hentað sem
lager- og skrifstofuhúsn. Tvennar aðkeyrsludyr
eru á framhlið. Símkerfi ásamt tölvu- og raf-
lögnum getur fylgt. Húsnæðið er laust nú þegar.
Góð lán geta fylgt með. Tilboð.
VIÐ LAUGAVEG 800 fm á 1. og 2. hæð og í
kjallara. Hagstæð leiga.
GRAFARVOGUR Skrifstofu- og þjónustu-
rými, 2.150 fm. Meðalverð 1.000 kr. fm.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR Til sölu glæsilegt
rúmlega 300 fm atvinnuhúsnæði, miklir mögu-
leikar. Frekari upplýsingar á skrifstofu.
VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR OKKUR
ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ
Magnús I. Erlingsson
lögmaður
SÍMI 533 1080 - FAX 533 1085 - HEIMASÍÐA www.foss.is - NETFANG foss@foss.is -
Félagsmálaráðuneytið hefurákvarðað ný tekju- ogeignamörk vegna viðbót-arlána Íbúðarlánasjóðs.
Þá hefur stjórn Íbúðalánasjóðs
ákvarðað vexti viðbótarlána fyrir ár-
ið 2002.
Þess má geta að sömu tekju- og
tekjumörk gilda fyrir umsækjendur
um félagslegar leiguíbúðir sem bera
niðurgreidda vexti og lúta ákvæðum
húsnæðislaga um sérstök tekju- og
eignamörk.
Viðbótarlán Íbúðalánasjóðs
Viðbótarlán Íbúðalánasjóðs eru
ætluð þeim sem búa við erfiðar að-
stæður og þurfa sérstaka aðstoð við
íbúðarkaup. Lánin koma til viðbótar
húsbréfalánum og geta numið allt að
25% af markaðsverði íbúðar. Heild-
arlánveiting Íbúðalánasjóðs má þó
aldrei fara yfir 90% af markaðsverði
að teknu tilliti til áhvílandi veð-
skuldbindinga.
Þess ber þó að geta að húsnæðis-
nefndir sveitarfélaganna geta sett
þrengri skilyrði fyrir veitingu við-
bótarlána í vinnureglur sínar.
Viðbótarlán eru:
veitt til 40 ára
verðtryggð
afborgunarlaus fyrsta árið, aðeins
eru greiddir vextir og verðbætur
endurgreiddar með jöfnum
greiðslum vaxta og afborgana
(annuitet) með minnst fjóra gjald-
daga á ári.
Undirstrikað skal að viðbótarlánin
eru bein peningalán en ekki hús-
bréfalán. Þau bera því ekki afföll eða
yfirverð eins og húsbréf sem þarf að
selja á fjármálamarkaði til þess að fá
peninga í hendur.
Tekjumörk
Tekjumörk miðast við meðal-
tekjur síðustu þriggja ára sam-
kvæmt skattframtali, það er heildar-
tekjur umsækjenda, maka hans og
barna sem eru 20 ára og eldri og búa
á heimilinu.
Tekjumörk fyrir árið
2002 eru:
Meðaltekjur mega
nema allt að kr.
2.213.000,- fyrir hvern
fullorðinn einstakling á
heimilinu og kr. 370.000
fyrir hvert barn innan
tvítugs. Viðmið-
unartekjur hjóna og
fólks í sambúð eru hins vegar kr.
3.099.000.
Eignamörk
Eignamörk miðast við heildareign
að frádregnum heildarskuldum sam-
kvæmt síðasta skattframtali. Eigna-
mörk við veitingu viðbótarlána eru
kr. 2.390.000,-.
Umsókn um viðbótarlán
Við umsókn um viðbótarlán þarf
að liggja fyrir samþykki húsnæðis-
nefndar fyrir lánveitingu. Eftir að
umsækjandi hefur fengið greiðslu-
getu sína metna hjá banka eða spari-
sjóði leitar hann samþykkis húsnæð-
isnefndar fyrir viðbótarláni.
Að því loknu gerir hann kaup-
tilboð miðað við samþykkta láns-
fjárhæð og sendir að lokum umsókn
til Íbúðalánasjóðs sem útbýr fast-
eignaveðbréf og viðbótarlán.
Sala á íbúð með
viðbótarláni
Þegar íbúð með áhvílandi viðbót-
arláni er seld þarf annaðhvort að
greiða lánið upp eða kaupandi að
uppfylla öll skilyrði fyrir veitingu
viðbótarláns. Til þess að kaupandi
megi yfirtaka lánið þarf hann að
leggja fram samþykki viðkomandi
húsnæðisnefndar á rétti sínum til
viðbótarláns.
Ný tekju- og eignamörk vegna viðbótarlána
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon,
yfirmann gæða- og markaðsmála
Íbúðalánasjóðs/hallur@ils.is