Morgunblaðið - 16.02.2002, Qupperneq 1
39. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 16. FEBRÚAR 2002
CARLA Del Ponte, aðalsaksóknar-
inn í réttarhöldunum yfir Slobodan
Milosevic í Haag, kom til Bosníu í
gær þar sem hún lagði að ráðamönn-
um meðal Bosníu-Serba að handtaka
þá menn, sem sakaðir væru um
stríðsglæpi og dveldust enn í serb-
neskum hluta landsins. Kvaðst hún
vera „ósátt og langþreytt“ á tregðu
Bosníu-Serba til að sýna samstarfs-
vilja í þessu efni.
Enn er leitað meira en 20 Bosníu-
Serba, sem sakaðir hafa verið um
stríðsglæpi, en mestur áhugi er á að
ná þeim Radovan Karadzic, leiðtoga
Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, og
Ratko Mladic hershöfðingja. Ræddi
Del Ponte í gær við Mirko Sarovic,
forseta Bosníu-Serba, og ætlaði síð-
an til fundar við aðra ráðamenn.
Ríkisstjórn Bosníu-Serba gaf í
fyrradag Karadzic og sökunautum
hans 30 daga frest til að gefa sig
fram og er það haft til marks um
aukinn vilja stjórnarinnar til að hafa
samstarf við stríðsglæpadómstólinn.
Skoraði hún jafnframt á innanríkis-
ráðuneytið í Júgóslavíu að framselja
þá Bosníu-Serba, sem handteknir
yrðu í Serbíu eða Svartfjallalandi.
Sagt er, að Karadzic sé í felum í
Bosníu-Serbíu en Del Ponte hefur
sakað Vojislav Kostunica, forseta
Júgóslavíu, um að hafa skotið skjóls-
húsi yfir Mladic. Kveðst hún vita
hvar hann búi í Belgrad.
Leit að
Karadzic
og Mladic
verði hert
Banja Luka. AFP.
Vænir/25
BRESK stjórnvöld telja að koma
beri Saddam Hússein Íraksforseta
frá völdum. Á hinn bóginn liggur
ekki fyrir hvort ríkisstjórn Bret-
lands myndi styðja að farið yrði með
hernaði gegn Írökum í þeim tilgangi.
Ummæli þessi lét Jack Straw, ut-
anríkisráðherra Bretlands, falla í
gær er hann var staddur í heimsókn í
Afganistan.
Bretar hafa verið dyggustu
bandamenn Bandaríkjanna í því
hnattræna stríði gegn hryðjuverka-
ógninni, sem George W. Bush lýsti
yfir eftir árásina á Bandaríkin 11.
september. Bush forseti hefur sagt
að Írak myndi ásamt Íran og Norð-
ur-Kóreu „öxul hins illa“ í heimi hér.
Hafa óstaðfestar fregnir hermt að
Bandaríkjamenn hyggist fara með
hernaði gegn Írökum á þeim for-
sendum að Saddam Hússein ógni
heimsfriðnum.
Straw kvaðst þeirrar hyggju að
„allir [æsktu] þess að Saddam [yrði]
komið frá völdum.“ Annað mál væri
síðan hvernig staðið yrði að slíku.
Hernaðaraðgerðir gætu aðeins talist
kostur teldu menn sýnt að endi yrði
ekki bundinn á valdaskeið Saddams
með öðrum hætti. Ekki væri tíma-
bært að draga ályktanir í því efni og
Bretar hefðu ekki gert upp hug sinn
um hvort þeir myndu styðja herför
gegn Íraksforseta og stjórn hans.
Gætu farið einir
gegn Saddam
Viðbrögð við fregnum þess efnis
að bandarískir ráðamenn hyggist
steypa Saddam með hervaldi hafa
verið neikvæð á meðal helstu banda-
manna Bandaríkjanna jafnt í Evr-
ópu sem í ríkjum araba. Colin Pow-
ell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, brást við þeirri gagnrýni, sem
fram hefur komið, aðfaranótt föstu-
dags og lýsti yfir því að Bandaríkja-
menn myndu hafa samráð við banda-
menn sína áður en Bush forseti tæki
ákvörðun um hvernig best yrði
„reynt að koma á stjórnarskiptum í
Írak“.
Á hinn bóginn myndu Bandaríkja-
menn halda þeim möguleika opnum
að fara einir gegn Saddam en Bush
forseti hefði enn enga ákvörðun tek-
ið varðandi hernað gegn Írökum.
Bretar vilja
Saddam frá
Powell heitir samráði við bandamenn
London, Washington. Associated Press.
MINNINGARATHÖFN um Mar-
gréti Bretaprinsessu fór fram í
Windsor-kastala, vestur af London,
í gær en Margrét lést um síðustu
helgi, 71 árs að aldri. Elísabet, móð-
ir Elísabetar Englandsdrottningar,
fór fyrir syrgjendum, sem voru alls
um 400, en hún er orðin 101 árs
gömul og er sögð heilsulítil um
þessar mundir. Margrét prinsessa
var yngsta systir drottningarinnar
en forboðin ást, fjöldi ástarævin-
týra og skilnaður settu mark sitt á
líf hennar.
Reuters
Margrétar minnst
LIÐSMAÐUR palestínsku ör-
yggislögreglunnar lést í gær-
kvöldi þegar Ísraelar gerðu
loftárásir á Jabaliya-flótta-
mannabúðirnar á Gazaströnd-
inni. Þrjátíu aðrir særðust í
árásinni, bæði óbreyttir borg-
arar og nokkrir öryggislög-
reglumenn til viðbótar. Þá hafa
alls 1.208 fallið í átökum í Mið-
austurlöndum frá því í septem-
ber árið 2000, 924 Palestínu-
menn og 262 Ísraelar.
Fyrr í gær hafði Ísraelsher
orðið fyrir áfalli þegar einn af
foringjum sérsveita hans lést
er húsveggur féll á hann í þorp-
inu Saida á Vesturbakkanum.
Höfðu sérsveitirnar fyrr um
daginn ráðist inn í Saida með
vopnavaldi og eyðilagt bæði
hús og gróðurland heima-
manna. Ísraelsher stóð fyrir
sams konar aðgerðum víðs veg-
ar á Gazaströndinni í gær en í
fyrrakvöld höfðu þrír hermenn
fallið þegar sprengja sprakk
undir skriðdreka þeirra á Gaza-
svæðinu.
Hundruð Palestínumanna
köstuðu í reiði sinni grjóti að
bækistöðvum Yassers Arafat,
forseta heimastjórnar Palest-
ínumanna, í Ramallah í gær.
Kröfðust þeir þess að heima-
stjórnin léti lausa fanga, sem
aðild eiga að nokkrum öfgahóp-
um Palestínumanna, og að
bundinn yrði endi á þá ógnar-
stjórn sem þeir segja Palest-
ínumenn nú mega þola.
Ísraelar
gera loft-
árásir á
Gaza
Gaza, Jerúsalem, Ramallah. AFP.
HAMID Karzai, forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnarinnar í Afgan-
istan, kenndi í gær hátt settum emb-
ættismönnum í stjórninni um morðið
á flugmálaráðherra hennar, Abdul
Rahman, sem var ráðinn af dögum á
Kabúlflugvelli í fyrradag. Hét hann
því að mennirnir yrðu sóttir til saka
fyrir ódæðið og sagði að aldrei fyrr
hefðu erindrekar í stjórn Afganist-
ans beint spjótum sínum að eigin
fulltrúum með þessum hætti.
„Sumir þeirra manna, sem stóðu
að þessu ódæði, hafa unnið fyrir afg-
önsku öryggissveitirnar og við höf-
um handtekið þá og sett á bak við lás
og slá. Við munum færa þá fyrir dóm
og sjá til þess að refsingu dómara
verði framfylgt,“ sagði Karzai.
Afganskir pílagrímar fyrst
sagðir hafa myrt ráðherrann
Karzai sagði að fjórir menn, þeirra
á meðal tveir hátt settir herforingj-
ar, hefðu verið handteknir vegna
morðsins. Þrír aðrir hefðu komist
undan til Sádi-Arabíu. Hafa stjórn-
völd þar í landi verið beðin um að
snúa þeim til baka, að sögn Karzais.
Karzai sagði að ráðherrann hefði
verið myrtur „af persónulegum
ástæðum“ þegar hann var í þann
veginn að leggja upp í ferð til Nýju-
Delhí á Indlandi með flugvél frá afg-
anska ríkisflugfélaginu Ariana.
Áður höfðu embættismenn sagt að
pílagrímar, sem beðið höfðu í tvo
daga eftir flugi til Mekka, hefðu ráð-
ist á Rahman og barið til ólífis vegna
orðróms um að hann hefði aflýst fyr-
irhuguðu flugi til S-Arabíu.
Árásarmennirnir voru sagðir hafa
komist inn í stjórnklefa flugvélarinn-
ar eftir stiga, leitað Rahman uppi og
myrt hann. Sagt var að þeir hefðu
síðan fleygt líki hans út úr vélinni.
Réðust þeir líka á forstjóra Ariana,
Ruhullah Aman, sem slasaðist tölu-
vert. Karzai fullyrti hins vegar í gær
að pílagrímar hefðu ekkert haft með
morðið á ráðherranum að gera.
Afganska stjórnin kom saman til
langs skyndifundar vegna þessara
atburða en þeir voru teknir upp á
myndband af viðstöddum blaða-
mönnum.
Flugmálaráðherra Afganistans ráðinn af dögum
Embættismönnum
kennt um morðið
Kabúl. AFP.
AP
MIKIÐ öngþveiti greip um sig
þegar hópur Afgana, sem höfðu
orðið frá að hverfa, reyndi að
brjóta sér leið inn á íþróttaleik-
vanginn í Kabúl í gær til þess að
horfa á knattspyrnuleik milli úr-
valsliðs heimamanna og alþjóð-
legu friðargæslusveitanna.
Særðust nokkrir tugir manna í
átökunum en inni á íþróttaleik-
vanginum fóru leikar þannig að
friðargæslusveitirnar unnu með
þremur mörkum gegn einu.
Barist um
stúkusæti