Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isKanadíska parið fær
líka gullverðlaun/B4
Eyjamenn í fimmta sætið
með stórsigri/B3
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r16.
f e b r ú a r ˜ 2 0 0 2
ÞÓ AÐ þau Maríana Pálmey, Sig-
ríður Þórdís og Victor Blær séu
bara þriggja og hálfs árs vita þau
allt um tölvur og Netið, eða að
minnsta kosti allt það merkileg-
asta og nóg til að geta haft gagn
af þessum fyrirbærum.
Senda mömmu
og pabba tölvupóst
Í leikskólanum Funaborg í
Grafarvogi er nefnilega unnið
markvisst með tölvur í daglegum
leik og starfi.
Meðal annars nota krakkarnir
sér Netið til að afla upplýsinga
um mikilvæga hluti eins og Bat-
man, sem var áberandi í
tengslum við öskudaginn á dög-
unum. Þá eru krakkarnir í tölvu-
póstsambandi við foreldra sína
auk þess sem leikskólinn heldur
úti sinni eigin heimasíðu. Í Morg-
unblaðinu í dag er rætt við þá
sem stýra þessu starfi í Funaborg
og forvitnast nánar um það sem
þau Maríana, Sigríður og Victor
hafa að segja um tölvurnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Tölvunám
á leikskólastigi
Tveggja til sex/15
ÞRÍR einstaklingar og Náttúruverndarsamtök
Íslands hafa stefnt umhverfisráðherra og fjár-
málaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins vegna
úrskurðar umhverfisráðherra um að fella úr gildi
úrskurð Skipulagsstofnunar og fallast á virkjun-
arframkvæmdir við Kárahnjúka. Aðalkrafa stefn-
enda er sú að úrskurður umhverfisráðherra verði
felldur úr gildi og honum gert að staðfesta úr-
skurð Skipulagsstofnunar. Til vara er þess krafist
að úrskurður umhverfisráðherra verði ómerktur.
Einstaklingarnir sem kæra eru Atli Gíslason
hæstaréttarlögmaður, Guðmundur Páll Ólafsson
rithöfundur og Ólafur S. Andrésson lífefnafræð-
ingur. Í frétt þeirra og Náttúruverndarsamtak-
anna segir að markmið stefnenda sé ekki aðeins
að vernda íslenska náttúru með því að fá úrskurði
umhverfisráðherra hnekkt með dómi heldur einn-
ig að verja þau lýðræðislegu réttindi sem almenn-
ingi eiga að vera tryggð með lögum um mat á um-
hverfisáhrifum, lögum um aðgengi að upplýs-
ingum, tilskipunum ESB þar um og alþjóðlegum
skuldbindingum sem Ísland hefur gengist undir.
Segjast stefnendur rökstyðja mál sitt þannig:
„Kárahnjúkavirkjun mun valda verulegum og
óafturkræfum umhverfisspjöllum sem ekki verða
fyrirbyggð eða bætt með mótvægisaðgerðum.
Umhverfisráðherra var því lögskylt að leggjast
gegn framkvæmdinni og staðfesta úrskurð Skipu-
lagsstofnunar.
Stór hluti þess afls sem fyrirhuguð Kára-
hnjúkavirkjun á að skila í upphafi mun fyrirsjáan-
lega þverra vegna setmyndunar í Hálslóni. Virkj-
unin uppfyllir því ekki skilyrði um endur-
nýjanlega orku líkt og kveðið er á um í „íslenska
ákvæðinu“ við Kyoto-bókunina.
Umhverfisráðherra bar að víkja sæti sökum
vanhæfis þar eð hún var bundin af virkjunar-
stefnu ríkisstjórnarinnar og hún líkt og aðrir ráð-
herrar hafði tekið afstöðu með Kárahnjúkavirkj-
un áður en málið kom til úrskurðar hennar í
Noral-yfirlýsingunum og öðrum opinberum skjöl-
um.
Umhverfisráðherra virti hvorki andmæla- né
upplýsingarétt stefnenda og braut jafnræðisreglu
stjórnsýslu þrátt fyrir skýr fyrirmæli í íslenskum
lögum og samsvarandi tilskipunum EB.
Ráðherra skorti lagaheimild til að taka á móti
og afla umfangsmikilla nýrra gagna og byggja úr-
skurð sinn á þeim. Einungis var fjallað um og úr-
skurðað um veigamikil efnisatriði á einu stjórn-
sýslustigi (kærustigi) andstætt lögum um um-
hverfismat og stjórnsýslu. Bar umhverfisráð-
herra því að vísa málinu til meðferðar Skipulags-
stofnunar á nýjan leik.“
Segja umhverfisráðherra hafa
virt rétt kærenda að vettugi
„Umhverfisráðherra hafnaði meginforsendu og
niðurstöðu Landsvirkjunar í skýrslu um umhverf-
isáhrif Kárahnjúkavirkjunar, að efnahagslegur
ávinningur virkjunarinnar vægi upp umtalsverð
umhverfisáhrif og kannaði ekki efnahagslegar
forsendur virkjunarinnar. Þannig hafði ráðherra
ólögmæt endaskipti á meðferð málsins á lægra
stjórnsýslustigi.
Umhverfisráðherra vanrækti þá lagalegu
skyldu sína að taka á og fella rökstuddan úrskurð
um kröfur og sjónarmið stefnenda, þrátt fyrir fyr-
irheit um efnisúrlausn. Virti hún þannig lögbund-
inn lýðræðislegan rétt kærenda að vettugi.“
Þá kemur fram í frétt Náttúruverndarsamtaka
Íslands að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi fallist
á flýtimeðferð í málinu og að héraðsdómari hafi
gefið stefnuna út. Verður málið þingfest næst-
komandi þriðjudag.
Stefna ráðherrum fyrir að
heimila Kárahnjúkavirkjun
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður
BSRB, segir það göfugt markmið að
jafna lífeyrisréttindin í landinu, sem
hann styðji heilshugar, aðspurður
um réttlæti þess að lífeyrisréttindi
opinberra starfsmanna eru að með-
altali 55% hærri en sambærileg rétt-
indi á almennum vinnumarkaði.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
segir þetta mismunun sem sé gjör-
samlega óverjandi.
Ögmundur Jónasson segir BSRB
aldrei hafa staðið í vegi fyrir því að
launafólk á almennum vinnumarkaði
nyti sambærilegra lífeyrisréttinda
og BSRB-félagar. „En menn vilja
ekki viðurkenna að þar með sé rétt-
lætanlegt að setja haft á framfara-
sókn okkar, eða skyldu menn vera að
gera kröfu um að við stöndum í stað?
Ég er þeirrar skoðunar að mikið sé
til vinnandi að kjör eftirlaunafólks
séu sem allra best þannig að fólk sé
ekki svipt efnalegum lífsgæðum þeg-
ar starfsævi lýkur. Í samræmi við
þetta hefur okkar markmið verið að
efla og bæta þessi réttindi.“
Varasamar alhæfingar
Fram hefur komið að laun opin-
berra starfsmanna hækkuðu að með-
altali um 9,6% milli 2000 og 2001 en
laun á almennum markaði um 8,3%.
Eins má nefna að laun opinberra
starfsmanna hafa hækkað um 53%
síðustu fimm árin en á almennum
markaði um 36,8%. Ögmundur sam-
þykkir ekki að þessar tölur sýni leið-
réttingu á launum opinberra starfs-
manna sem eigi að hafa áhrif á
lífeyrisréttindin. „Ég held að þessar
alhæfingar séu afskaplega varasam-
ar. Það er rétt að kjör margra hópa
sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum
hafa batnað verulega. Það sama á við
um kjör ýmissa hópa á almennum
vinnumarkaði. Aðrir hafa nánast
staðið í stað og því er mjög erfitt að
draga almennar línur í þessum efn-
um.“
Grétar Þorsteinsson segir að eftir
áralanga baráttu fyrir jöfnun lífeyr-
isréttinda sé þolinmæði ASÍ á þrot-
um. Fyrir dyrum standi viðræður við
fjármálaráðherra sem hann bindur
miklar vonir við.
„Ég ætla rétt að vona að viðræður
við fjármálaráðherra skili árangri og
ég hef engar efasemdir um það að ef
menn greiða ekki úr þessu í viðræð-
um við ráðherra, þá verður ekki
staðið upp frá næstu samningum
fyrr en búið er að slétta þetta út. Svo
einfalt er það,“ segir hann. „Að ríkið
sé að mismuna í réttindum er gjör-
samlega óverjandi, en ég bind auð-
vitað miklar vonir við að það takist
að greiða úr þessu og ætla ekki að
gera því skóna að það takist ekki.“
Aldrei staðið í
vegi fyrir jöfnun
lífeyrisréttinda
Ögmundur Jónasson formaður BSRB
Mismununin gjör-
samlega óverj-
andi að mati
forseta ASÍ
VIÐRÆÐUM um sölu á Landssíma
Íslands til kjölfestufjárfestis hefur
ekki verið slitið en líkur á sölu til
kjölfestufjárfestis hafa minnkað upp
á síðkastið. Hefur Verðbréfaþing Ís-
lands sett hlutabréf Landssíma Ís-
lands á athugunarlista vegna þeirrar
óvissu sem ríkir um hvort framhald
verði á söluferli til kjölfestufjárfest-
is.
Skýrist á næstu tveimur vikum
hvort af sölu verður
Að sögn Skarphéðins Bergs Stein-
arssonar, starfsmanns fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu,
hefur nefndin óskað eftir fundi með
fulltrúum TDC í næstu viku og er
það eini fundurinn sem boðaður hef-
ur verið með þeim sem sýnt hafa
áhuga á að verða kjölfestufjárfestar í
Landssímanum. Skarphéðinn segir
að á næstu tveimur vikum muni
skýrast hvort af sölu til kjölfestufjár-
festis verði.
Síminn settur
á athugunarlista
Litlar lík-
ur á sölu
FORRÁÐAMENN Barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans,
BUGL, óska eftir að koma því á
framfæri að engin fjáröflunarstarf-
semi standi nú yfir á vegum deild-
arinnar.
Ólafur Ó. Guðmundsson yfirlækn-
ir tjáði Morgunblaðinu að haft hefði
verið samband við deildina í gær þar
sem boðinn hefði verið geisladiskur
til styrktar henni. Segir hann slíka
sölu óviðkomandi deildinni. Hann
kvað mönnum hafa brugðið við að
deildin væri hugsanlega misnotuð í
slíkum tilgangi.
Engin fjár-
öflun á veg-
um BUGL