Morgunblaðið - 16.02.2002, Side 4

Morgunblaðið - 16.02.2002, Side 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ segja til um það. „En það liggur hins vegar ljóst fyrir að það er mjög áhugavert og mikilvægt fyr- ir okkur að fylgjast mjög náið með þessu starfi. Við höfum jafnframt mikla þekkingu á þessu sviði og höfum átt afskaplega gott samstarf við Dani, sem eru mikil sjávarútvegsþjóð eins og við. Þannig að það eru að mínu mati meiri líkur á skynsamlegri niðurstöðu undir forystu þeirra en margra annarra.“ Munu Íslendingar, að sögn Halldórs, einnig fylgjast grannt með vinnu að nýjum sáttmála ESB þar sem m.a. væri fjallað um nálægðarregl- una, sem kveður á um að taka skuli ákvarðanir á lægsta mögulega stjórnsýslustigi. Er Halldór þeirrar skoðunar að útfærsla þessarar reglu geti haft mikil áhrif, m.a. á framkvæmd sjávarút- vegsstefnu ESB. Að því er varðar EES-samninginn sagði Hall- dór að Íslendingar og Norðmenn hefðu farið yfir þau mál og lagt áherslu á að þjóðirnar þyrftu að ÍSLENSK stjórnvöld hafa samið um það við Dani, sem fara munu með formennsku í ráð- herraráði Evrópusambandsins á síðari hluta þessa árs, að einn starfsmaður íslensku utanrík- isþjónustunnar starfi með þeim að útfærslu á sjávarútvegsstefnu ESB en núverandi reglur sem að henni lúta falla úr gildi í árslok. Segist Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra ekki eiga von á neinum grundvallarbreytingum á sjávarút- vegsstefnunni en að frá sjónarhóli Íslendinga séu vart til heppilegri verkstjórar í þessu efni en Danir. Utanríkisráðherrar Norðurlandanna funduðu í Ósló í Noregi í gær og ræddu þar m.a. málefni Evrópusambandsins. Sagði Halldór að Danir hefðu upplýst að ganga þyrfti frá nýjum reglum um sjávarútvegsstefnu ESB fyrir árslok. Að- spurður um það hvort áðurnefnd aðkoma Íslend- inga að því starfi væri líkleg til að skila okkur einhverjum ávinningi sagði Halldór útilokað að Danir stýra útfærslu nýrrar sjávarútvegsstefnu ESB SCANPIX Frá fréttamannafundi sem utanríkisráðherrar Norðurlandanna héldu eftir fund sinn í Ósló í gær. Íslendingar fá aðkomu að endurskoðuninni fá úrbætur á sínum málum þegar fríverslunar- samningar við ríki í Mið- og Austur-Evrópu, sem líkleg eru til að fá inngöngu í ESB, falla úr gildi. Var á þessu fullur skilningur meðal ráðherra hinna Norðurlandaþjóðanna, að sögn Halldórs. Árásarstefna Sharons í öngstræti Á fundinum í Ósló var einnig rætt um barátt- una gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi, ástandið í Afganistan, sem og í Miðausturlönd- um. Voru norrænu utanríkisráðherrarnir sam- mála um það að sú árásarstefna sem Ariel Shar- on, forsætisráðherra Ísraels, hefði beitt gegn Palestínumönnum undanfarnar vikur og mánuði væri í algeru öngstræti. Deilendur yrðu hvorir um sig að hætta ofbeldisverkum og setjast að samningaborði. Voru ráðherrarnir sammála um að deilur Ísraela og Palestínumanna yrðu aðeins leystar með stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis, jafnframt því sem öryggi Ísraels yrði tryggt. ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn- ismála hefur í nýjum úrskurðum lækkað stjórnvaldssektir á hendur Símanum og Skífunni um tugi millj- óna króna en bæði fyrirtækin áfrýjuðu úrskurðum samkeppnis- ráðs frá því í desember sl. gegn sér til nefndarinnar. Sekt Símans, fyrir brot á samkeppnislögum í samningi um fjarskiptaþjónustu við Hafnar- fjarðarbæ, var lækkuð úr 40 í 10 milljónir króna og sekt Skífunnar var lækkuð úr 25 í 12 milljónir en samkeppnisráð hafði ógilt samning fyrirtækisins við Aðföng hf. um sölu á geisladiskum Skífunnar í Hag- kaupi. Áfrýjunarnefnd staðfestir hins vegar ógildingu samkeppnisráðs á þessum samningum og lækkar að- eins sektargreiðslurnar. Ragnar Birgisson, framkvæmda- stjóri Skífunnar, vissi ekki til þess að búið væri að ákveða að áfrýja úr- skurðinum til dómstóla, þegar Morgunblaðið náði tali af honum, en það var haft eftir Sigurði G. Guð- jónssyni, lögmanni fyrirtækisins, í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Ragnar sagðist eiga eftir að kynna sér úrskurð áfrýjunarnefndar og hafði ekki heyrt frá Sigurði, sem er í skíðaferðalagi erlendis. Félag íslenskra hljómlistar- manna, FÍH, sendi kæru til Sam- keppnisstofnunar í október árið 2000 vegna samnings milli Skífunn- ar annars vegar og Hagkaups, Ný- kaups og Baugs hins vegar um sölu á geisladiskum Skífunnar í versl- unum fyrirtækjanna sem bryti í bága við samkeppnislög. Sams kon- ar kæra barst frá Japis í maí í fyrra. Þótti sektarfjárhæð of há Heiðrún Jónsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Símans, sagði við Morgun- blaðið að ekki hefði verið tekin ákvörðun um það hvort farið yrði með mál þeirra lengra. Upp úr stæði að áfrýjunarnefndin hefði að nokkru leyti tekið undir meginsjón- armið Símans í sinni áfrýjun. Síminn gerði á síðasta ári alhliða þjónustusamning um fjarskipti við Hafnarfjarðarbæ en Títan, móður- fyrirtæki Íslandssíma, kærði samn- inginn til Samkeppnisstofnunar, einkum tvö ákvæði hans, þar sem talið var að Síminn hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Annars vegar var þetta ákvæði um aftur- virka afslætti á þjónustu og hins vegar ákvæði um að bærinn ætti að- eins viðskipti við Símann. Heiðrún sagði að þessi ákvæði hefðu ekki verið framkvæmd og Síminn hefði viðurkennt mistök varðandi þau. Hins vegar hefði fyrirtækinu þótt sektarfjárhæðin óeðlileg og meðal- hófsreglan verið stórlega brotin á Símanum. Sömuleiðis hefði sam- keppnisráð fært til þyngri sektar gömul og alls óskyld mál. Við með- ferðina hefði ekki verið fjallað um þessi mál og andmælaréttur því brotinn á fyrirtækinu. Úrskurðir áfrýjunarnefndar samkeppnismála Sektir Símans og Skíf- unnar stórlega lækkaðar Síminn viður- kenndi mistök, að sögn upplýs- ingafulltrúa HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðismanna, fagnaði í gær 75 ára afmæli sínu en það var stofn- að 16. febrúar 1927. Fyrsti for- maður Heimdallar var Pétur Haf- stein lögfræðingur. Í tilefni af þessum tímamótum var efnt til afmælisfagnaðar á veitingastaðnum Rex í Austur- stræti síðdegis í gær. Davíð Oddsson forsætisráðherra var heiðursgestur og í stuttu ávarpi þakkaði hann þau störf sem Heimdellingar hefðu innt af hendi í gegnum tíðina. Hann sagði gagnrýni ungliðanna í Sjálfstæðisflokknum nauðsynlega, hann fengi oftast gagnrýni úr „rangri átt“ en gagnrýni Heim- dellinga væri úr „réttri átt“. Hátíðarræðuna flutti Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor og gullmerki félagsins hlaut Jón Steinar Gunnlaugsson hæstarétt- arlögmaður, einn heiðursfélaga Heimdallar. DJ Margeir & Co fluttu tónlistaratriði og léttar veitingar voru á boðstólum. Morgunblaðið/Golli Björgvin Guðmundsson, formaður Heimdallar, afhendir Jóni Steinari Gunnlaugssyni hrl. gullmerki félagsins. 75 ára afmæli Heimdallar fagnað DANIRNIR þrír sem handteknir voru á Keflavíkurflugvelli í fyrra- kvöld í sameiginlegri aðgerð toll- gæslunnar og fíkniefnadeildar lög- reglunnar í Reykjavík voru í gær- kvöldi úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald. Tveir þeirra höfðu límt um tvö kíló af hassi á líkama sinn en í fyrstu var talið að þeir hefðu reynt að smygla hátt í fimm kílóum. Engin fíkniefni fundust á þeim þriðja. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst eigi að síður á kröfu lögreglunnar í Reykjavík og taldi grundvöll fyrir því að úrskurða hann í gæsluvarð- hald sem bendir til þess að lögregla hafi í höndunum gögn sem bendla hann sterklega við verknaðinn. Þá má telja líklegt að Danirnir hafi haft vitorðsmann eða -menn hér á landi. Þeir voru yfirheyrðir í gær en Ásgeir Karlsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirmaður fíkniefnadeildar lög- reglunnar í Reykjavík, sagði rann- sókn á frumstigi og ekki hægt að veita frekari upplýsingar um mála- vexti. Athygli vekur að Þjóðverji, sem á síðasta ári var dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir smygl á fimm kílóum af hassi til landsins, var um borð í sömu vél og Danirnir þrír. Var honum meinuð landganga á grundvelli sömu laga og nítján vítisenglum var synjað um landvist á Íslandi nýverið. Danirnir þrír sem handteknir voru á Keflavíkurflugvelli Allir í þriggja vikna gæslu- varðhald

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.