Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 6

Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ 34% DAGMÆÐRA á landinu voru með of mörg börn í gæslu heima hjá sér þegar könnun á daggæslu í heimahúsum fór fram í desember sl. og aðeins 59% dagmæðra á höf- uðborgarsvæðinu hafa gengist und- ir skoðun eldvarnareftirlitsins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun á daggæslu barna í heimahúsum sem gerð var fyrir fé- lagsmálaráðuneytið 10. og 11. des- ember 2001. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra segir það koma sér á óvart hve mikil brögð séu að því að reglu- gerð um daggæslu sé brotin. Í könnuninni kemur fram að 461 dagmóðir starfar við daggæslu í heimahúsum og eru flestar starf- andi á höfuðborgarsvæðinu, eða 77%. Á landinu eru 2.350 börn í heimagæslu og eru flest þeirra á aldrinum eins til tveggja og hálfs árs. Könnunin leiddi í ljós að alls voru 216 börn í heimagæslu um- fram það sem heimilt er í reglu- gerð, sem samsvarar 9% af heild- arfjölda barna. Könnunin var gerð í sveitarfélög- um með 1.000 íbúa eða fleiri og heimsóttu umsjónaraðilar með dag- gæslu barna í hverju sveitarfélagi dagmæðurnar. Í öllum sveitarfélög- um nema Kópavogi og Reykjavík reyndist unnt að fara inn á hvert heimili. Aðstæður voru kannaðar hjá rúmlega þriðjungi dagmæðra í Kópavogi og 39% dagmæðra í Reykjavík. Uppfylla þarf ýmis skilyrði til að fá leyfi fyrir daggæslu, samkvæmt ákvæðum reglugerðar frá 1992. Sé litið til nokkurra skilyrða kemur í ljós að 89% dagmæðra hafa slysa- tryggingu og 76% hafa lokið nám- skeiði fyrir dagmæður, hlutfallslega flestar á höfuðborgarsvæðinu en fæstar á Austurlandi, eða 29%. Hið lága hlutfall á Austurlandi vekur at- hygli og telur Björg Kjartansdóttir stjórnarfulltrúi hjá félagsmálaráðu- neytinu hugsanlegt að dagmæður á Austurlandi eigi ekki kost á nám- skeiðum í sama mæli og aðrar dag- mæður. Fæstar dagmæður skila inn sakavottorði á Austurlandi Austurland kom lakast út þegar skoðað var hlutfall dagmæðra sem skilað hafa inn sakavottorði, en það var 71%. Á höfuðborgarsvæðinu höfðu 89% dagmæðra skilað saka- vottorði. Hins vegar kom Austur- land mun betur út í samanburði við höfuðborgarsvæðið þegar kannað var með eldvarnareftirlit. Þar hafði 71% dagmæðra fengið skoðun eld- varnareftirlits en 59% á höfuðborg- arsvæðinu. Í reglugerðinni er kveðið á um skyldur dagmæðra, sveitarstjórna, ríkis og fleira. „Það kemur mér satt að segja á óvart hversu margar dagmæður fara ekki eftir reglugerðinni,“ sagði Páll Pétursson á blaðamannafundi í gær. „Ég tel óhjákvæmilegt að vekja athygli á reglugerðinni, hvað er heimilt og hvað ekki. Vera kann að foreldrum hafi ekki verið hún ljós en gera verður ráð fyrir því að foreldrum sé ljóst þegar brotið er gegn henni. Við verðum að halda sveitarfélögunum við efnið til að þau annist eftirlitsskyldur sínar. Það kemur líka til greina að endur- skoða reglugerðina.“ Tíð brot á reglugerð koma félagsmála- ráðherra á óvart Könnun á aðstæðum dagmæðra í heimahúsum Morgunblaðið/Sverrir Páll Pétursson félagsmálaráðherra kynnir niðurstöður könnunarinnar ásamt starfsfólki ráðuneytisins. FYRIRTÆKIN Sportvangur og Baðhúsið hafa gert með sér samning um byggingu líkamsræktarstöðvar í Smáranum í Kópavogi sem opnuð verður í ágúst nk. Stöðin mun heita Sporthúsið og nemur áætlaður kostnaður við bygginguna um 200 milljónum króna. Verður stöðin 6.500 fermetrar að flatarmáli og þar með langstærsta líkamsræktarstöð landsins að sögn aðstandenda henn- ar, en hún á að geta þjónað um 15 þúsund manns. „Við hyggjumst reisa alhliða íþróttamiðstöð að erlendri fyrir- mynd,“ segir Páll Kristjánsson framkvæmdastjóri Sportvangs. „Við erum ekki að fara út í áhætturekst- ur, því hér er um að ræða þekktar stærðir og verið að sinna þörfum neytenda. Það er mikil aukning í lík- amsræktargeiranum og markhópur- inn er stór.“ Hluti húsnæðis Sportvangs, Tenn- ishöllin í Kópavogi, verður nýtt undir nýju stöðina en svo verður byggt við hana. Byggingin verður níu metrar að hæð þar sem hún verður hæst og á tveimur hæðum auk riss. Sporthúsið mun bjóða upp á stærsta leikfimisal landsins, golf, golfherma, fullkominn tækjasal, fót- bolta, körfubolta, hnefaleika, skvass, badminton, tennis, jóga, leikfimisali, barnagæslu, verslun og fleira. Fram kom á blaðamannafundi í gær, þar sem greint var frá samn- ingnum, að Sporthúsið verði ekki rekið sem lúxuslíkamsræktarstöð heldur verði verð á þjónustunni mið- að við það sem almennt gerist á markaðnum. Kópavogsbær mun ekki koma að fjármögnun framkvæmda en fulltrú- ar Sportvangs greindu frá því á fundinum að bæjaryfirvöld væru mjög jákvæð gagnvart framkvæmd- unum. Nýtt hlutafé mun koma frá eigendum og öðrum aðila. Ekki hef- ur verið gengið frá samningum við byggingaraðila. Baðhúsið verður rekið áfram í sömu mynd en um 1.600-1.700 konur koma þangað á degi hverjum. Stefna að byggingu stærstu líkams- ræktarstöðvar landsins Morgunblaðið/Sverrir Frá undirskrift samningsins. Frá hægri: Linda Pétursdóttir, eigandi Bað- hússins, Pétur Bjarnason, eignaraðili Sportvangs, Páll Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Sportvangs, og Harald Ísaksen, eignaraðili Sportvangs. Stefnt að opnun Sporthússins í ágústmánuði PRÓFKJÖR sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði vegna bæjarstjórnar- kosninganna í vor fer fram í Víði- staðaskóla í dag. Hefst kjörfundur kl. 10 og stendur til kl. 20. Þátttaka í prófkjörinu er opin þeim stuðningsmönnum Sjálf- stæðisflokksins sem eiga kosn- ingarétt í Hafnarfirði á kjördegi, svo og þeim félögum sjálfstæð- isfélaganna sem búsettir eru í Hafnarfirði og hafa náð 16 ára aldri á kjördegi. Úrslit tilkynnt á kosninga- vöku í Sjálfstæðishúsinu Sextán frambjóðendur eru í kjöri í prófkjörinu og raða kjós- endur þeim í sæti, fæst sex og flest níu. Verður kosningin í Víði- staðaskóla rafræn og aðstoð verð- ur veitt eftir þörfum, að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfé- laganna í Hafnarfirði um fram- kvæmd prófkjörsins. Þátttakend- um stendur einnig til boða að kjósa með hefðbundnum hætti. Kosningavaka verður haldin í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og hefst hún kl. 21. Þar verða úrslit í próf- kjörinu tilkynnt þegar þau liggja fyrir. Kosningin er rafræn og aðstoð veitt ef þarf Prófkjör sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði fer fram í dag GUÐNI Ágústsson landbún- aðarráðherra setti í gærkvöldi bridshátíð með viðhöfn á Hótel Loftleiðum, en þetta er 21. bridshá- tíðin sem haldin er á vegum Brids- sambandsins, Bridsfélags Reykja- víkur og Flugleiða. Fjöldi erlendra þátttakenda er á mótinu auk okkar bestu bridsspil- ara. Mótið hófst á tvímennings- keppni sem lýkur í dag en á morg- un byrjar sveitakeppni. Bridshátíð lýkur á mánudagskvöld með verð- launaafhendingu. Fjölmenni á bridshátíð Morgunblaðið/Golli Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra setti í gærkvöldi 21. bridshá- tíðina sem haldin er á vegum Bridssambandsins, Bridsfélags Reykjavík- ur og Flugleiða. Þessi mynd var tekin við fyrstu umferð mótsins. Þeir Geir Helgemo og Paul Hackett spila gegn Guðmundi Ágústssyni, for- seta Bridssambands Íslands, og Sigtryggi Jónssyni. PRÓFKJÖRI Samfylkingarinnar vegna vals frambjóðenda á Reykja- víkurlistann lýkur kl. 17 á sunnudag- inn. Prófkjörið hófst sl. miðvikudag og í gær rann út frestur til að póst- leggja póstatkvæði en kjörfundur verður opinn í dag og á morgun. Kjörstaðurinn hefur verið fluttur yf- ir í Hótel Vík við Ingólfstorg og verð- ur opið frá 10–17 á laugardag og sunnudag. Að sögn Katrínar Theodórsdóttur, formanns framkvæmdanefndar prófkjörs Samfylkingarfélaganna í Reykjavík, hefur þátttaka í prófkjör- inu verið mjög góð það sem af er og mikill straumur fólks á kjörstað. Úrslit ljós á þriðjudagskvöld eða á miðvikudag Prófkjörið er opið öllum fé- lagsmönnum í Samfylkingunni, sem fengu sendan atkvæðaseðil í pósti, og óflokksbundnir geta einnig tekið þátt í prófkjörinu og kosið á kjör- stað, séu þeir búsettir í Reykjavík og lýsi stuðningi við Samfylkinguna. Þar sem beðið verður eftir að póst- atkvæði sem póstlögð voru í gær verði borin út eftir helgina er að sögn Katrínar stefnt að því að talning geti hafist síðdegis á þriðjudag. Má þá gera ráð fyrir að úrslit liggi fyrir seint á þriðjudagskvöld eða á mið- vikudaginn. Prófkjör Samfylkingarinnar Kjörfundi lýkur á sunnudag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.