Morgunblaðið - 16.02.2002, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Skýrr hf. verður haldinn
á Radisson SAS Hótel Íslandi
fimmtudaginn 28. febrúar nk. kl. 16:00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf
skv. 4.05 gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsins til kaupa
á eigin hlutum, sbr. 55. gr. laga um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Ennfremur er þessar upplýsingar að finna
á heimasíðu félagsins, www.skyrr.is.
Atkvæðaseðlar og fundargögn
verða afhent á fundarstað.
Hluthafar, sem ekki geta sótt fundinn
en hyggjast gefa umboð,
verða að gera það skriflega.
Aðalfundur Skýrr hf. 2002
ÁSTANDIÐ á martvörumarkaði í
dag styrkir þá eindregnu skoðun
Samtaka verslunarinnar að verð á
markaði ráðist fyrst og fremst af
markaðsaðstæðum, en síður af verði
aðfanga, að sögn Hauks Þórs Hauks-
sonar, formanns samtakanna. Hann
segir það staðreynd að á markaðnum
ríki fákeppni sem markaðurinn ráði
ekki við að leysa án utanaðkomandi
afskipta samkeppnisyfirvalda. Þetta
var meðal þess sem fram kom í ræðu
Hauks Þórs á aðalfundi Samtaka
verslunarinnar í gær.
Hann sagðist fullyrða að enginn
sem hafi reynslu af að starfa í sam-
keppnisumhverfi vilji hverfa aftur til
þess ástands sem ríkti fyrir tíma sam-
keppnislaga. Annað kunni að gilda
fyrir þá sem komið hafi sér upp mark-
aðsráðandi stöðu og málsvara þeirra.
Þá sagði hann að þau sjónarmið séu
fásinna, sem fram hafi komið á síð-
ustu dögum um að fákeppni á Íslandi
sé eðlileg, að markaðsráðandi staða
sé nauðsynleg, og að hörð samkeppni,
eins og hún birtist hjá stærri þjóðum,
sé lúxus sem Íslendingar hafi ekki
efni á. Málflutningur af þessu tagi sé
ekki sæmandi forystumönnum í ís-
lensku atvinnulífi.
„Ég tel að þróun í verslun, iðnaði,
landbúnaði og fleiri greinum eigi í
raun allt undir því að fákeppni fái ekki
þrifist í smásölu með matvæli. Þar
eru undir hagsmunir neytenda og það
er hlutverk Samkeppnisstofnunar að
sjá til þess að slík staða fái ekki við-
haldist,“ sagði Haukur Þór.
Vilja treysta Samkeppnis-
stofnun enn frekar í sessi
Aðalfundur Samtaka verslunarinn-
ar samþykkti ályktun þar sem stjórn-
völd eru hvött til að treysta Sam-
keppnisstofnun enn frekar í sessi
þannig að hún eigi auðveldara með að
tryggja virka samkeppni á öllum svið-
um íslensks viðskiptalífs. Í ályktun-
inni leggja samtökin einnig áherslu á
að niðurstöður rannsóknar Sam-
keppnisstofnunar á hugsanlegri mis-
notkun smásöluverslana á markaðs-
ráðandi stöðu þeirra verði gerðar
opinberar hið allra fyrsta. Þá vilja þau
að yfirvöld samkeppnismála hafi
frumkvæði að því að sem fyrst verði
settar siðareglur um samskipti smá-
sala og birgja á þeim sviðum versl-
unar þar sem fáar keðjur verslana
hafa náð yfirburðastöðu á markði. Er
þar einkum átt við dagvörumarkað-
inn og byggingavörumarkaðinn.
Haukur Þór sagði í ræðu sinni að
efnahagsumhverfið hafi almennt ekki
verið versluninni hagstætt á síðasta
ári. Samdráttur í neyslu og fjárfest-
ingum, gríðarlega háir vextir auk
mikils gengisfalls krónunnar hafi ein-
kennt árið. Öllum megi vera ljóst að
innflutningsverslunin hafi orðið einna
harkalegast fyrir barðinu á falli krón-
unnar, sem sett hafi verulegt strik í
reikninginn hjá mörgum fyrirtækj-
um. Hann sagði að samkvæmt laus-
legri könnun Samtaka verslunarinnar
hafi gengistap hjá tilteknum 45 inn-
flutningsfyrirtækjum verið samtals
um 1 milljarður króna á árinu 2001, en
það samsvari rúmu einu prósenti af
samanlagðri veltu fyrirtækjanna.
Metnaðar- og skilningsleysi drag-
bítur á alþjóðavæðingu
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, sagði í ræðu sinni á fund-
inum í gær að í alþjóðavæðingu væru
Íslendingar tvístígandi þegar þörf
væri á að grípa tækifæri sem gefast.
Hér á landi væru enn að mestu stund-
uð gamaldags stjórnmál þar sem
minnsti samnefnarinn úr átökum
hagmunahópa mótaði framtíðarsýn-
ina. „Að mínum dómi eru metnaðar-
og skilningsleysi dragbítur á alþjóða-
væðingu íslensks atvinnulífs um þess-
ar mundir og hætt við að margskonar
tækifæri til auðssköpunar í þágu
þjóðarinnar fari forgörðum af þeim
sökum. Ef við höldum áfram að
hlaupa á staðnum meðan atvinnulíf
samkeppnisþjóða alþjóðavæðist af
kappi munu lífskjör fara hlutfallslega
versnandi hér á komandi árum.“
Sigurður sagði að Ísland hefði
dregist aftur úr öðrum þjóðum í al-
þjóðavæðingu, mælt í fjárfestingum
milli þjóða. Hér á landi virtist ríkja
nokkurskonar millibilsástand og bið-
staða í viðskiptalífinu. Brýn nauðsyn
væri að koma viðskiptalífnu aftur á
beina braut efnahagsframfara og
þróttmikillar alþjóðavæðingar. Ljóst
væri að á komandi árum myndi Ísland
standa utan Evrópusambandsins og
evrusvæðisins, og búa við fljótandi
gengi og verðbólgumarkmið Seðla-
bankans. „Á þessum forsendum þarf
að taka ákvarðanir sem gera þjóð-
arbúið samkeppnishæft í samfélagi
þjóðanna á næstu misserum og skapa
skilyrði fyrir útrás íslenskra fyrir-
tækja á alþjóðavettvangi, um leið og
dyrnar verða opnaðar upp á gátt fyrir
erlendri fjárfestingu,“ sagði Sigurð-
ur.
Morgunblaðið/Sverrir
Haukur Þór Hauksson, formaður Samtaka verslunarinnar, sagði á aðalfundi
samtakanna í gær að þróun í verslun, iðnaði, landbúnaði o.fl. greinum ætti í
raun allt undir því að fákeppni fengi ekki þrifist í smásölu með matvæli.
Aðalfundur Samtaka verslunarinnar
Fásinna að fákeppni
á Íslandi sé eðlileg
SWAN Net Ltd., dótturfyrirtæki
Hampiðjunnar hf. í Killybegs á Ír-
landi, hefur gert tilboð í allt hlutafé
Gundrys Ltd. Hluthafar Gundrys
hafa samþykkt að ganga til samn-
ingaviðræðna á grundvelli tilboðsins.
Ýmis atriði kaupsamningsins eru
enn óútkljáð, en aðilar stefna að því
að ljúka samningsgerðinni í byrjun
mars nk. Í tilkynningu til Verðbréfa-
þings Íslands kemur fram að Gundr-
ys framleiðir og selur veiðarfæri og
íhluti þeirra. Félagið er með höfuð-
stöðvar í Killybegs sem er um fjögur
þúsund manna bær á vesturströnd
Írlands, en þaðan er langstærsti
hluti írskra fiskiskipa gerður út. Fé-
lagið á dótturfyrirtæki í Skotlandi og
Englandi sem sinna sölu og fram-
leiðslu á veiðarfærum og dótturfyr-
irtæki á Írlandi sem veitir þjónustu
fyrirtækjum í fiskeldi. Velta Gundr-
ys-samstæðunnar á síðasta ári var
um 650 milljónir króna og hagnaður
eftir skatta, skv. óendurskoðuðu
uppgjöri félagsins, var um 40 millj-
ónir króna. Tilboðið gerir ráð fyrir
að hluthafar Gundrys fái, til viðbótar
peningagreiðslum, 16,67% hlut í
Swan Net með útgáfu nýs hlutafjár í
því félagi. Í kjölfar kaupanna er
stefnt að sameiningu Swan Net og
Gundrys, en félögin eru svipuð að
stærð og aðalstarfsemi beggja félag-
anna sú sama. Þá hafa þau bæði höf-
uðstöðvar sínar í Killybegs á Írlandi.
Ef ofangreind kaup og sameining
ganga eftir mun Hampiðjan eiga
50,2% hlut í sameinuðu félagi. Áætl-
anir gera ráð fyrir að sameinað félag
verði með um 1,2 milljarða króna í
árlega.
Dótturfyrirtæki
Hampiðjunnar í sam-
einingarviðræðum
ACOTÆKNIVAL var gert upp með
1.082 milljóna króna tapi á árinu
2001. Í ársuppgjöri félagsins kemur
fram að rekstrartekjur á árinu nema
5.104 milljónum króna en Aco og
Tæknival voru sameinuð á síðasta
ári. Sameiginleg velta þessara félaga
á árinu 2000 var 5.863 milljónir
króna.
Gengislækkun krónunnar um
14,8% á árinu hafði djúpstæð áhrif á
reksturinn, einkum vegna skuld-
setningar félagsins í erlendum lán-
um. Fjármagnsliðir félagsins á árinu
voru neikvæðir um 383 milljónir
króna, þar af var gengistap 249 millj-
ónir króna. Kostnaður og taprekstur
vegna nýfjárfestinga var einnig um-
talsverður hjá félaginu, einkum
vegna Office 1-stórmarkaðanna. Út-
lánatöp höfðu einnig neikvæð áhrif á
rekstrarafkomu félagsins og þar
munaði mest um afskriftir vegna
kaupa Aco á raftækjadeild Japis og
afskrifaðar kröfur Tæknivals vegna
Íslenskrar miðlunar. Afskriftir
vegna tapaðra viðskiptakrafna og
hlutabréfa námu 179 milljónum
króna. Afskriftir og niðurfærsla
vörubirgða voru um 200 milljónir
króna. Eigið fé félagsins nam tæpum
49 milljónum króna 31. desember
2001.
Gert ráð fyrir 90 milljóna króna
hagnaði á árinu 2002
Forsendur áætlunar ársins 2002
miðast við stöðugt gengi krónunnar
og lágt verðbólgustig. Gert er ráð
fyrir 5.200 milljóna króna veltu fé-
lagsins á árinu 2002. Áætlanir gera
ráð fyrir rúmlega 90 milljóna króna
hagnaði eftir skatta á árinu en reikn-
að er með að hagnaðurinn verði allur
á 4. ársfjórðungi. Afkoma fyrirtæk-
isins í upphafi árs er samkvæmt
áætlun. Velta, framlegð og rekstrar-
kostnaður voru í samræmi við áætl-
anir í janúarmánuði.
Þótt heimild liggi fyrir um sölu á
verslanasviði félagsins verður það
ekki selt að svo stöddu nema viðun-
andi tilboð berist, að því er segir í
fréttatilkynningu. Aðalfundur Aco-
Tæknivals verður haldinn 1. mars
nk.
!"#
!
$"
$%&!
$#'
& #%%
'&
('
%)&
&"#
!"
# $ # $
!"
!"
# $ 1.082 milljóna tap
hjá AcoTæknivali
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Fitch staðfesti í gær lánshæfisein-
kunnina AA- fyrir ríkissjóð Íslands
vegna lána í erlendri mynt. Fyrir-
tækið staðfesti jafnframt lánshæfis-
einkunnir fyrir skuldbindingar í ís-
lenskum krónum en þær eru AAA
fyrir langtímaskuldbindingar og
F1+ fyrir skammtímalán. Horfur
um lánshæfiseinkunnir vegna lang-
tímalána eru nú taldar neikvæðar en
voru áður stöðugar.
Í frétt Fitch segir að á síðasta ári
hafi hægt verulega á hagvexti á Ís-
landi og gert sé ráð fyrir samdrætti á
árinu 2002. Við þessar aðstæður hafi
afkoma ríkissjóðs og skuldastaða
hins opinbera versnað. Fitch telur
hins vegar að slík aðlögun hafi verið
nauðsynleg til að draga úr viðskipta-
halla. Eigi að síður telur Fitch að að-
lögunin sem nú á sér stað gæti
reynst erfiðari en ráð er fyrir gert.
Til lengri tíma litið muni minni
viðskiptahalli fela í sér að erlenda
skuldastaðan verði viðráðanlegri.
Hin nýja peningamálastefna sem fel-
ist í verðbólgumarkmiði og markaðs-
gengi styrki þessa mynd, auk þess að
bæta getu hagkerfisins til að bregð-
ast við ytri áföllum. Skuldastaðan
muni samt sem áður enn um sinn
takmarka möguleika á betra láns-
hæfismati. Hreinar skuldir erlendis
hafi aukist verulega frá því að láns-
hæfiseinkunnin AA- (AA mínus) var
gefin í febrúar árið 2000. Þær nema
nú um 266% af útflutningstekjum.
Lánshæfis-
einkunn Ís-
lands í AA-
flokki
♦ ♦ ♦