Morgunblaðið - 16.02.2002, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
BORGARSTJÓRINN Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir hefur tekið sér
það hlutverk að vera einskonar
uppboðshaldari borgarinnar.
Vinnumenn hennar og ráðgjafar
styðja hana dyggilega í því að koma
á, í sem flestum viðskiptum borg-
arinnar við íbúana, kerfi uppboða.
Um uppboð á lóðum borgarinnar
segir borgarstjórinn í Frétta-
blaðinu nýlega að þessi aðferðar-
fræði (uppboðsleiðin) sé komin til
að vera. Innan Vinstri – grænna
hefur þetta verið mikið gagnrýnt,
svo og margt annað sem lýsir mark-
aðshyggju R-listans. Á það hefur
verið bent að lóð þarf ekki að skila
inn öllum kostnaði sveitarfélagsins
þegar við úthlutun hennar eins og
R-listinn leggur þó áherslu á. Bygg-
ing á viðkomandi lóð gefur af sér
opinber gjöld í áratugi, jafnvel ár-
hundruð auk þess sem fyrirtæki eða
íbúar í viðkomandi byggingu gefa
sveitarfélaginu tekjur á sama máta
um langa framtíð. Þessvegna er það
einfaldlega blind markaðshyggja að
ætla lóðarkaupanda að greiða þegar
við úthlutun allan kostnað vegna
lóðarinnar. Í þessu máli hafa
Vinstri – grænir allt aðrar áherslur.
Innan þeirra er það og talið lýsa
mikilli vanþekkingu og fátæklegri
félagshyggju þegar borgarstjórinn
og formaður skipulagsnefndar lýsa
því yfir að með uppboðsleiðinni sé
öllum íbúum borgarinnar gert jafnt
undir höfði að klófesta lóð. Vinstri –
grænir telja að með uppboðsleiðinni
sé aftur á móti hinum efnaðri gert
greiðara að festa sér lóð. Þetta ger-
ir félagshyggjufólk sér hinsvegar
ljóst. Í komandi uppstillingum á R-
listann má vænta þess að Samfylk-
ingin velji sér markaðshyggjufólk
svo sem var reyndin síðast. Þess-
vegna er mikilvægt að framsókn-
armenn velji sér félagshyggjufólk
sem sína fulltrúa. Slíkt fólk finnst
þar enn. Hjá Vinstri – grænum er
nú í gangi könnun eða tilnefning til
framboðs. Sérstaða Vinstri –
grænna kemur þá í ljós, þegar upp-
stillingarnefndin leggur fram tillög-
ur sínar.
Þar hlýtur að verða lögð áhersla
á að til framboðs verði þeir valdir
sem engin tengsl hafa haft við R-
listann. Í því fælist sérstaða Vinstri
– grænna.
Óskhyggja Birgis Guðmundsson-
ar á DV og einhverra á Frétta-
blaðinu að troða Árna Þór Sigurðs-
syni inn á lista Vinstri – grænna er í
algerri mótsögn við sérstöðu
Vinstri – grænna.
KRISTINN SNÆLAND,
Engjaseli 65, 109 Reykjavík.
Uppboðshaldari
borgarinnar
Frá Kristni Snæland
leigubifreiðastjóra:
ÉG sá sl. laugardag þátt á Skjá 1 sem
heitir Djúpa laugin. Þessi þáttur er
mjög vinsæll hjá börnum og ungling-
um, enda efnistök miðuð við þennan
aldurshóp. Þátturinn gengur út á það
að reynt er að koma fólki saman á
stefnumót. Í sjálfu sér er hér um til-
tölulega græskulaust gaman að
ræða, ef vel er á haldið. Í umræddum
þætti voru þrjár stúlkur þátttakend-
ur og einn piltur. Stúlkurnar, sem
voru á að giska 17–19 ára gamlar,
voru kynntar og þær m.a. spurðar,
hvort þær hefðu lent í vandræðalegri
stöðu einhvern tíma á ævinni. Ein
þeirra sagði, að það hefði verið, þeg-
ar hún var í partíi með öðru ungu
fólki. Í partíinu voru fimm strákar og
hennar vandræðalega staða var, að
hún hafði sofið hjá þeim öllum...
Áhorfendum og stjórnendum þáttar-
ins fannst svarið ágætt, hlógu og
klöppuðu. Síðar í þættinum voru
þátttakendur spurðir hvort þeir
hefðu einhvern tíma farið á útihátíð.
Þessi sama stúlka sagðist hafa farið á
Eldborgarhátíð. Það hefði verið
mjög gaman, að vísu sagðist hún ekki
muna mikið eftir sér á hátíðinni, en
það var örugglega mjög gaman... Og
enn klöppuðu áhorfendur og
stjórnendur. Þegar hér var komið
var ég orðlaus. Næsta stúlka til-
greindi sitt atvik, og það var, að
móðir hennar hafði komið inn í her-
bergið hennar þar sem stúlkan og
þáverandi kærasti hennar stunduðu
kynlíf. Enn klappaði salurinn. Og
stúlkan bætti við, að mamma hennar
lofaði að banka framvegis áður hún
vogaði sér inn í herbergi dótturinnar.
Hvaða skilaboð fá nú unglingar
sem horfa á svona þætti? Það er allt í
lagi og bara flott að muna ekki eftir
sér á útihátíð og bara hálf vandræða-
legt þegar allir strákarnir í partíinu
hafa sofið hjá sömu stelpunni. Þeir,
sem halda svona efni að ungu fólki,
verða að átta sig á því, að þeir geta
haft mikil og varanleg áhrif á líf
þeirra ungmenna sem á horfa. Ég las
um helgina góða grein í Morgun-
blaðinu um líf unglinga á Íslandi, þar
sem m.a. kom fram að kynlíf færist
stöðugt neðar í aldri hjá unglingum.
Einnig var greint frá skelfilegum
hópkynlífsathöfnum unglinga allt
niður í 13–14 ára, með alvarlegum af-
leiðingum, andlegum og líkamlegum.
Er nema von að illa fari, þegar börn
og unglingar hafa fyrirmyndir eins
og lýst er hér að ofan?
Til viðbótar þessu má minna á
skelfilega sjónvarpsauglýsingu kvik-
myndarinnar Gemsa, þar sem mann-
fyrirlitningin er algjör. Þessi auglýs-
ing er sýnd a.m.k. á Stöð 2 snemma á
kvöldin, væntanlega til að tryggja að
sem flest börn og unglingar nái boð-
skapnum.
Ef fólki finnst að það sé í lagi, að
ungt fólk hegði sér með þessum
hætti, eða eins og Gemsa-auglýsing-
in segir, að allar stelpur séu annað-
hvort hórur eða feitar og leiðinlegar
stelpur sem hanga á bókasöfnum, þá
erum við verr stödd en ég hélt.
HJÖRTUR ÖRN
HJARTARSON,
Byggðarenda 15, Reykjavík.
Unglingamál
Frá Hirti Erni Hjartarsyni: