Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 21
glænýi Ford-vörubíll, var bíla öflug-
astur í Mývatnssveit, þá réðumst við
Hallgrímur Þórhallsson (1914–1982)
bróðir Kristjáns til þessarar farar
með honum. Þannig er Hrafntinnu-
hrygg lýst í Landið þitt Ísland:
„Brattur fjallshryggur, 685 m.y.s. á
Mývatnsöræfum austur og suðaust-
ur af Kröflu. Efst í honum kemur
fram gangur úr hrafntinnu, en
hrafntinnumolar og brot finnast
hvarvetna í grenndinni. Óvíða eða
hvergi á landinu er eins fögur hrafn-
tinna og hér. Hrafntinnuhryggur er
að mestu leyti úr hrafntinnu og er
talið að hann hafi orðið til við gos
undir jökli.“ Pöntun þessi var frá
byggingarmeistara á Akureyri og
ætluð í húsbyggingu þar, áferð
skyldi vera svipuð og á Þjóðleikhús-
inu í Reykjavík. Þannig er hrafn-
tinnu lýst í Íslensku alfræðiorðabók-
inni: „Hrafntinna, svart, glerkennt
afbrigði af líparíti, stökkt og brotnar
líkt og tinnusteinn, myndað við
hraða kólnun hraunkviku, t.d. við
gos undir jökli.“ Við höfðum með-
ferðis mikið af strigapokum og geng-
um nú upp eftir hryggnum og hófum
að fylla pokana. Nokkra klukkutíma
tók það okkur að ná fullfermi á bíl-
inn, en ég fullyrði, að þetta er versta
vinna, sem ég hefi nokkurn tíma
stundað. Að ganga niður fjallshrygg
með fullan poka af hrafntinnu, þar
sem hver þynna skar sig inn í bakið á
mér, þannig að ég hálfhljóp undan
pokanum mest af leiðinni niður að
bílnum. Loks var fullfermi komið á
Þ-11 og við hugðumst leggja af stað
heim að Vogum.
En þá kom babb í bátinn, bíllinn
var orðinn svo þungur, að hann stóð
fastur í sandinum: „Þetta er eins og
ægisandur,“ man ég eftir að Hall-
grímur mælti. Eigi man ég gerla,
hvort við urðum að létta einhverjum
pokum af bílnum og bera þá síðan á
hann, þar sem fastara var undir, en
alla vega komumst við í Voga undir
kvöld og fór Kristján með farminn til
Akureyrar daginn eftir. Örugglega
prýðir hrafntinnan erfiða einhver
hús á Akureyri ennþá, en hvaða hús?
Glögga menn fyrir norðan bið ég nú
að senda mér línu um þetta mál, þótt
„aðeins“ 60 ár séu nú liðin frá þess-
um flutningum. Eggert Ólafsson og
Bjarni Pálsson komu í Mývatnssveit
árið 1752 og skoðuðu nágrenni sveit-
arinnar, einkum brennisteinsnám-
urnar og umhverfi Kröflu. Fyrst
rannsökuðu þeir brennisteininn í
Hlíðarnámum og fóru síðan á Hrafn-
tinnuhrygg. Þeir segja að hrafntinn-
an sé í þremur lögum efst í hryggn-
um, og sé miðlagið best og um alin á
þykkt (63 cm). Af hrafntinnunni
sendu þeir tvö stykki til Kaup-
mannahafnar og vógu þau 103 og 93
pund (51,5 kg og 46,5 kg).
Sumir hafa talið, að hrafntinnan
utan á Þjóðleikhúsinu sé úr Hrafn-
tinnuhrygg á Mývatnsöræfum, en
svo mun ekki vera. Húsið er pússað
með blöndu úr kvartsi og hrafntinnu
og mun hrafntinnan vera úr Hrafn-
tinnuhrauni á Landmannaafrétt í
Rangárvallasýslu. (Landið þitt Ís-
land, H–K, bls. 122–3.)
Eftirmáli
Hinn 30. jan. sl. reit ég Velvak-
anda Mbl. bréf, er birt var skömmu
síðar í Mbl. og þar var spurt í 1. lagi:
„Hvaðan er hrafntinnan á útveggj-
um Þjóðleikhússins?“ Margt manna
hefur hringt til mín og gefið gagn-
legar upplýsingar og niðurstaða mín
eftir úrvinnslu þeirra er þessi:
a) Sigurður Jónsson frá Laug
(1890-1936) sá um flutningana á
hrafntinnunni úr Hrafntinnuhrauni í
Þjóðleikhúsið. Torleiði var mikið á
þessari leið, svo Sigurður varð m.a.
að hlaða sandpokum á hrygg einn,
svo yfir hann mætti komast, og er
hann nefndur Pokahryggur og sér
enn fyrir pokunum. Einn af bílstjór-
um Sigurðar frá Laug tjáði mér, að
hann hefði flutt 30 tonn af hrafntinnu
í Þjóðleikhúsið.
b) Mývetningar fluttu talsvert
magn af hrafntinnu til Húsavíkur,
þegar á 4. áratugnum. Fyrst var
hrafntinnan flutt á hestum að
Langavog við Mývatn, sem er í svo-
nefndum Stekkjarhaga í landi Voga.
Þaðan á vélbát í Álftagerði og þaðan
með bílum til Húsavíkur. Hús at-
vinnudeildar HÍ, Flensborgarskól-
inn, Alþýðuhúsið og fjölda íbúðar-
húsa eru með slíka áferð. Einnig
mun eitthvað hafa verið flutt til út-
landa handa sjónglerjaverksmiðjum,
t.d. Zeiss Ikon í Jena í Þýskalandi,
og í stjörnukíkinn á Palomarfjalli í
Kaliforníu, sem tekinn var í notkun
1948, en þar var þá stærsti spegil-
sjónauki í heimi, 5 m í þvermál. Þess-
ar útflutningsfréttir eru óstaðfestar
og eru í athugun sérfræðinga við HÍ
og eru efni í aðra grein.
Heimildir:
1. Reise igjennem Island, prentuð í Sorø
árið 1772, eftir þá Eggert Ólafsson vara-
lögmann og skáld (1726–1768) og Bjarna
Pálsson landlækni (1719–1779), bls.
725–6.
2. Ódáðahraun I. eftir Ólaf Jónsson, bls. 55
og 203, Bókaútg. Norðri 1945.
3. Þjóðleikhúsið eftir Jónas Jónsson frá
Hriflu, útg. 1953.
4. Landið þitt Ísland, H–K, bls. 122–3, Örn
& Örlygur 1981, 2. bindi eftir þá Þor-
stein Jósepsson og Steindór Stein-
dórsson frá Hlöðum.
5. Símbréf frá Veiðimálastofnun dags. 30.
janúar 2002 um silung í Eilífsvötnum.
6. Reykjahlíðarætt, VII,2, bls. 619, Líf &
saga, Reykjavík 1993.
Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík.
Vogabræður, synir Jónasar Péturs Hallgrímssonar og Guðfinnu Stefánsdóttur: Frá vinstri Jón, Stefán, Sigurgeir, Þorlák-
ur, Hallgrímur og Pétur.
Ljósmynd/Oddur Sigurðsson
Í nágrenni Jörundar (t.h.) og Hrafntinnuhryggs.
Ljósmynd/Oddur Sigurðsson
Hrafntinna.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 21
...á Mallorca
...á Benidorm
...á Krít
...í Portúgal
...til Alicante
Ó
d‡
ra
st
ir
a
lls
s
ta
›a
r
Ó
d‡
ra
st
ir
a
lls
s
ta
›a
r
Verðdæmi á mann með SólarPlús
2. september.
Innifalið: Flug, gisting í 2 vikur (ekki
fyrirfram vitað um nafnið), ferðir til
og frá flugvelli erlendis og íslensk
fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvallarskattar, 3.730 kr. fyrir
fullorðna og 2.955 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
39.900 kr.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Tropic Mar
í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvallarskattar, 3.730 kr. fyrir
fullorðna og 2.955 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
46.600kr.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Skala í
2 vikur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvarllaskattar, 4.470 kr. fyrir
fullorðna og 3.695 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
54.700kr.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Sol Dorio í
2 vikur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvarllaskattar, 4.455 kr. fyrir
fullorðna og 3.680 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
49.700kr.
Verðdæmi á mann miðað við
brottför 2. apríl eða 22. maí.
Innifalið er flug.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvallarskattar, 3.730 kr. fyrir
fullorðna og 2.955 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
26.900kr.
Hlí›asmára 15 • Kópavogi
Opi› í dag
kl. 13-16
Uppselt 17. júní og 15. júlí.
Uppselt 31. júlí.
Uppselt 30. maí og 20. júní.
Uppselt 18. júní og 16. júlí.