Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 41
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Höfum fengið til sölu gistiheimili í fullum rekstri í hjarta miðbæjarins.
Eignin sem er mikið endurnýjuð og í góðu ásigkomulagi skiptist í sex
samþykktar íbúðir, tvö herbergi og góða morgunverðaraðstöðu. Auk
þess er óinnréttað ris þar sem möguleiki er að útbúa tvö til fjögur
herbergi eða tvær stúdíóíbúðir. Áhv. húsbr. 21 millj.
TILVALIÐ FYRIR SAMHENTA FJÖLSKYLDU.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
VITASTÍGUR
GISTIHEIMILI Í FULLUM REKSTRI
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L A
UGLUHÓLAR 6 -
MEÐ BÍLSKÚR
Falleg 89 fm íbúð á 3ju hæð (efstu) í
litlu fjölbýli. Íbúðin er 4ra herb. auk bíl-
skúrs. Góðar suðursvalir, glæsilegt út-
sýni. Íbúðin er til afh. mjög fljótt. Verð
kr. 11,9 millj. Bjalla merkt Vera Björk.
AUSTURBERG 32
Vel skipulögð endaíbúð með sérinn-
gangi á fyrstu hæð. Íbúðin er um 85
fm, 3ja herb. björt og góð. Góð vestur-
verönd. Stutt í alla þjónustu. Verð kr.
9,8 millj. Góð lán áhvílandi. Bjalla
merkt Rannveigu.
Allar upplýsingar á Borgum fasteignasölu í síma 588 2030
OPIÐ HÚS SUNNUDAG MILLI KL. 14 OG 16
OPIÐ HÚS MILLI KL. 14 OG 16
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
HLÍÐARÁS 8 - MOSFELLSBÆ
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17
ÁLFTAHÓLAR 4 - LYFTUBLOKK
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17
Í dag sýnum við þetta reisulega tveggja íbúða einbýlishús. Húsið,
sem er samtals 254 fm, er vel staðsett innst í lokaðri götu. Á neðri
hæðinni er innbyggður tvöfaldur bílskúr ásamt 3ja herbergja
aukaíbúð en hæðin uppi skiptist m.a í stórar stofur með útgengi á
svalir með glæsilegu útsýni, stórt eldhús með góðum innrétting-
um, þvottahús með bakinngangi og í sér svefnálmu 3 góð her-
bergi og baðherbergi. Á gólfum er nýlegt parket og flísar.
HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG frá KL. 14-17
Í þessari fallegu lyftublokk er til sýnis og sölu góð 4ra-5 herbergja
íbúð á 4. hæð merkt 4-A. Nýlegar innréttingar og parket. Suður-
svalir. Glæsilegt útsýni.
Rebekka og Jósef sýna íbúðina
í dag frá kl. 14 og 17
OPIÐ Á LUNDI Í DAG FRÁ KL. 12-14
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
OPIÐ HÚS - Reykás 41 - 2ja herb.
Í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
sýna Ívar og Hrönn fallega 77 fm
2ja herb. íbúð á 1. hæð á mjög
góðum útsýnisstað í litlu fjölbýli.
Rúmgóð stofa. Baðherb. flísalagt
í hólf og gólf. Þvottaherb. í íb.
Mikið útsýni. Góð verönd við
stofu. Áhv. 4,2 m. V. 9,5 m. 3273
✝ Guðni HeiðarRichter fæddist
á Akranesi 25. apríl
1977. Hann lést 9.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Emil Samúel Richt-
er, f. 26. janúar
1931, d. 10. janúar
2000, og Halldóra
Ingibjartsdóttir, f. 3.
janúar 1948. Bræður
hans eru: Ingibjart-
ur Geir, f. 11. des-
ember 1972, Hjalti
Rúnar, f. 29. desem-
ber 1978 og Gunnar
Örn, f. 3. apríl 1982. Hálfsystkin
hans samfeðra eru: Reinhold, f.
23. maí 1956, Ómar Þröstur, f.
17. febrúar 1958, Signý Ósk, f.
17. maí 1960, Guð-
rún Perla, f. 21.
ágúst 1960, Þor-
steinn, f. 20. maí
1962, Valur, f. 2.
júní 1963, og Krist-
inn, f. 13. nóvember
1964. Barnsmóðir
Guðna er Perla
Dögg Einarsdóttir
Geirdal, f. 29. des-
ember 1980, og eru
börn þeirra Stjarna
Rós, f. 15. mars
1998, og Einar Logi,
f. 22. september
1999.
Útför Guðna Heiðars Richter
fer fram frá Akraneskirkju á
morgun, mánudaginn 18. febrúar
og hefst athöfnin klukkan 14.
Hvað er það sem veldur því að unga
fólkið okkar, þetta fallega og vel
gerða fólk, lendir undir í lífsbarátt-
unni, missir tökin og getur ekki fund-
ið leið úr sálarkreppunni sem örlögin
hafa spunnið, með þræði svo óendan-
lega sterkum að engin leið virðist að
komast út úr?
Hvað er það sem gerist? Erum það
við sem bregðumst, eða kapphlaupið
á eftir lífsþægindum, sem við eltumst
við endalaust? Þjóðfélagið, hvað?!
Við getum endalaust spurt en fáum
engin svör.
Getum við sætt okkur við að sjá á
eftir hraustu og góðu fólki, sem hefur
allt til brunns að bera, vegna þess að
það gefst upp? Hvernig stöndum við
eftir? Undrandi? Öll fæðumst við með
sömu tækifærin, í uppeldinu er okkur
kennt að fara beina braut en fyrir þau
okkar sem leita út af henni, hvert
stefnir þá? Því þarf lífið að verða svo
óbærilegt að engar sjáanlegar leiðir
séu til baka aftur á beinu brautina?
Er það vegna þess að engin leið er til
baka? Eða að við gefum ekki þessu
fólki möguleika á að komast til baka
eða veitum því þau tækifæri sem til
þarf að ná áttum?
Því er þjóðfélagið okkar orðið
þannig að við höfum ekki tíma eða
gefum okkur ekki tíma til að hlusta og
heyra neyðarópin allt í kringum okk-
ur?
Mig skortir orð, það er ekkert hægt
að segja, manni svíður sárt að svona
ungur maður, aðeins tæpra 25 ára,
besti aldur sem hugsast getur, efni-
legur, myndarlegur maður, skuli ekki
hafa fengið að njóta tækifæranna sem
bjóðast í dag, eignast drauma og líf
fyllt af hamingju og gleði, heldur hafa
villst af braut og ekki séð að jafn-
margar leiðir eru til baka og þær voru
þegar rangar ákvarðanir voru teknar
á leiðinni.
Guðni frændi minn átti þó því láni
að fagna að eignast tvo litla sólar-
geisla, þau Stjörnu Rós og Einar
Loga. Þau voru honum svo mikis virði
og naut hann þeirra stunda sem hann
átti með þeim. Guðni hét í höfuðuð á
ömmu sinni og minni, Guðnýju, sem
nú hefur fengið barnabarnið til sín
svona stuttu eftir að sonur hennar
lést. Hann og hún umvefja hann án
efa og strjúka burtu tárin og mýkja
sviðann eftir svo stutta og erfiða veru
á meðal okkar sem raun ber vitni.
Hann átti góða samheldna bræður
og yndislega og þolinmóða móður
sem nú situr eftir óendanlega sár og
sorgmædd. Auk þess átti hann mörg
hálfsystkini sem sjá nú á eftir bróður
sem fá þeirra áttu kost á að kynnast
náið vegna aðstæðna sem urðu ekki
umflúnar.
Dóra mín, Stjarna Rós og Einar
Logi, Ingi, Hjalti og Gunnar og fjöl-
skyldur, orð eru til lítils á svona sorg-
arstundu. Megi algóður guð halda
verndarhendi sinni yfir ykkur og gefa
ykkur styrk til að takast á við þessa
miklu sorg.
Ásta Sigvaldadóttir
og frændsystkini.
Elsku Guðni minn. Ég trúi því
varla að þú sért endanlega farinn frá
mér, en það er nú sannleikurinn og ég
get ekkert gert til að fá þig til baka.
Eina sem ég get gert er að halda
minningu þinni lifandi í huga mér.
Síðustu daga hefur flóð tilfinninga
streymt gegum mig, ég hef rifjað upp
stundirnar sem við áttum saman og
hef grátið og hlegið til skiptis að
uppátækjum okkar.
Þegar ég hugsa til baka er hlátur
og vellíðan ofarlega í huga mér, mér
leið alltaf vel hjá þér. Bestu stundir
okkar saman áttum við án efa á litla
enginu okkar, þar sátum við saman
umvafin bláum blómum og fuglasöng,
þetta var okkar staður.
Við höfum nú brallað ýmislegt sam-
an enda leiddist okkur aldrei, við
spjölluðum um heima og geima og
þrættum svo yfir öllu saman. Þú
vannst að sjálfsögðu alltaf enda
þrjóskur eins og naut.
Það voru ófá skiptin sem við sett-
umst uppí bíl og keyrðum stefnulaust
út í bláinn til að sjá og skoða eitthvað
nýtt. Oft austur eftir en stundum á
Reykjanesið. Við vorum bókstaflega
búin að keyra allar götur á höfuðborg-
arsvæðinu, ef við sáum eitthvað sem
við áttum eftir að skoða gerðum við
það. Sunnudagsrúntur annan hvern
dag að minnsta kosti. Í þessum ferð-
um okkar sást þú yfirleitt einhvern bíl
sem þú vildir helst kaupa á staðnum
og ég þvældi um hvað þetta og þetta
gæti orðið falleg mynd og bætti svo
við „nei Guðni Heiðar það verður ekki
keyptur neinn bíll“. Við gátum með
góðu móti sameinað ólík áhugamál
okkar. Þá varst þú að leika þér á mót-
orhjólinu og ég útí móa rétt hjá að
taka myndir. Við áttum auðvitað ein-
hver sameiginleg áhugamál sem var
líka gott, að geta gert eitthvað alveg
saman.
Annars vorum við voðalega heima-
kær og nutum þess þegar við fengum
loksins íbúð að elda góðan mat og
kúra saman yfir góðri mynd og þá var
hið mjög svo rómaða Guðna-popp
ómissandi. Ég gæti eflaust haldið
áfram endalaust en stærsti parturinn
er að sjálfsögðu hvað okkur leið vel
saman og hversu vel við áttum saman
þrátt fyrir að vera ólík.
Ég veit að síðustu mánuði leið þér
ekki vel og að lokum hefur þú séð
þetta sem einu lausnina.
Þín verður sárt saknað.
Ég vona að nú hafir þú loksins öðl-
ast frið og að þið feðgar séuð samein-
aðir á ný, þá veit ég að þér líður vel.
Þín
Rebekka.
GUÐNI HEIÐAR
RICHTER
Golfkúlur 3 stk. í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is