Morgunblaðið - 17.02.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Ökuníðingar
VEGNA fréttar, Smala-
mennska á Keflavíkurvegi,
sem birtist fyrir stuttu vil
ég koma því á framfæri að
ég er atvinnubílstjóri og
lenti í svipuðu atviki í
fyrra. Tveir bílar unnu
saman að því að reyna að
fá mig til þess að stoppa og
ég komst ekki framúr.
Þetta voru fyrirtækjabílar
úr Grindavík. Lét lögregl-
una í Keflavík vita og svör-
in sem ég fékk voru þau að
ég skyldi víkja út á axl-
irnar fyrir þessum mönn-
um og hleypa þeim framúr
til þess að skapa ekki pirr-
ing. Ef þetta er viðhorfið
hjá lögreglunni, þá er ekki
skrýtið þó að þessir öku-
níðingar haldi uppteknum
hætti.
Daði Runólfsson.
RÚV
NÚ heyrir maður mikið
vælt og volað um slæma
stöðu okkar góða RÚV. Er
það illt að heyra um svo
gagnmerka stofnun. En
það er eitt sem ég skil
ekki. Hvers vegna er ekki
bara öllum 16 ára og eldri
gert að greiða smáupphæð
með sköttum hvers og eins
fyrir þessa sjálfsögðu þjón-
ustu sem allir njóta góðs
af, en ekki bara þeim sem
skráðir eru eigendur tækj-
anna, sem eru kannski
bara einn á hverju heimili.
Þetta hlyti að vera stærri
tekjulind þótt upphæðin
væri lág á hvern og einn.
Fyrir utan það sem spar-
aðist vegna innheimtu-
gjalda sem mér er sagt að
sé engin smáupphæð.
Fróðlegt væri að fá skýr-
ingu ef þetta er talin ófær
leið.
Anna Árnadóttir.
Þjónusta til
fyrirmyndar
LESANDI hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri ánægju
sinni með þjónustu hjá
Kentucky Fried Chicken í
Hafnarfirði. Hann býr í
Reykjavík en keyrir til
Hafnarfjarðar til að versla
þar. Segir hann að stúlk-
urnar þarna séu einstak-
lega hressar og hver ann-
arri skemmtilegri og
þjónustulundin alltaf í fyr-
irrúmi. Þjónustan sem
stúlkurnar veita er alveg
til fyrirmyndar. Sendir
hann þeim sínar bestu
þakkir.
Hversu dýru verði
skal frelsið keypt?
NÚ hefur hið háa Alþingi
lögleitt hnefaleika á Ís-
landi. En setja hefði þurft
inn í lögin reglur þess efn-
is, að þeir sem slasast í
slíkri keppni greiði sjálfir
fyrir lækniskostnað sem
þeir þurfa á að halda eftir
bardagann, þar sem þetta
er þeirra val, að berja aðra
– eða verða barðir niður.
Keppnin snýst nú einungis
um það.
Alltaf er verið að tala um
forræðishyggju ef frelsi er
heft að einhverju marki.
Við samborgararnir erum
ekki spurðir hvort við vilj-
um að skattpeningum okk-
ar sé svo illa varið að leyfa
hnefaleikamönnum að
skaða hver annan. Ekki
höfum við neitt val. Þeir
sem mæla með þessari
íþrótt benda á að slys verði
í öllum íþróttagreinum. Jú,
satt er það. En það er þó
ekki tilgangurinn með öðr-
um íþróttum, þótt slys geti
hent. Þá má alveg eins
spyrja, hvort banna eigi
Vítisengla hér á landi? Er
ekki sjálfsagt að fólk beri
byssur og vopn og notkun
þeirra verði gefin frjáls?
Við eigum að bera traust
hvert til annars, því í þessu
landi býr svo gáfuð þjóð.
171037-3449.
Tapað/fundið
Gullarmband týndist
GULLARMBAND, frekar
breitt, týndist í desember
sl. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 564-3350.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA er fyrirmunað aðskilja þá ákvörðun ársþings
Knattspyrnusambands Íslands um
síðustu helgi að héðan í frá fari leikir
í undanúrslitum bikarkeppni karla
fram á Laugardalsvelli.
Hvers á fólk á Akranesi, Akureyri
og Vestmannaeyjum – svo helstu
knattspyrnustaðir utan höfuðborgar-
innar séu nefndir – að gjalda komist
lið þeirra í undanúrslit? Dragist KA
gegn Fram eða Þór gegn Fram fer
leikurinn fram á heimavelli Reykja-
víkurliðsins en stemmningin við það
að fá heimaleik í undanúrslitum
stendur liðunum úti á landi ekki leng-
ur til boða. Þetta er með ólíkindum.
x x x
ÞAR sem vinur Víkverja var í sveitsem barn og unglingur var alltaf
sagt sem svo að dýrin ætu en menn
borðuðu eða snæddu. Það þótti ekki
góð latína að láta það út úr sér að
menn ætu, en það kom þó fyrir að
tekið væri þannig til orða. Alltaf hef-
ur blessaður vinurinn haldið að það
væri röng notkun á málinu að segja
að dýr borðuðu. Því rak hann í vörð-
urnar þegar hann hlýddi 6 ára syni
sínum yfir heimalesturinn á dögun-
um. Þá las drengur sögu um hund
einn sem glaður var en svangur þeg-
ar hann loks kom heim til eiganda
síns eftir hrakfarir og fékk að
„borða“.
Ekki var farið út í hverslags borð-
siðir voru viðhafðir. Vini Víkverja
þótti þetta einkennilegt en taldi víst
að þarna hefði villa slæðst inn í text-
ann. Nokkrum dögum síðar settist
vinur Víkverja aftur niður með syn-
inum við heimalærdóminn. Þá lá fyr-
ir að lesa sögu um ketti og þeir virt-
ust vera sjóaðri í borðsiðunum en
kettirnir á Ströndum norður fyrir
aldarfjórðungi sem urðu að láta sér
nægja að éta og lepja úr skál.
Snemma sögunnar var getið um kett-
ling sem sem óx hratt og varð nokkru
síðar að kisu sem ekki væri í frásögur
færandi nema vegna þess að „kisan
borðaði mikinn fisk“. Nokkru síðar í
sögunni hafði fjölgað í kattarfjöl-
skyldunni en það breytti ekki þeirri
staðreynd að kisurnar „borðuðu mik-
inn fisk“. Þegar lengra leið á söguna
voru kettirnir enn við sama hey-
garðshornið og lystugir sem aldrei
fyrr því þá var greint frá að þeir
„borðuðu mjög mikinn fisk“. Aðeins
einu sinni var þess getið í sögunni,
sem tók yfir 24 blaðsíður, að kettirnir
ætu fisk.
Sannast sagna þykir vini Víkverja
það vera mjög miður þegar villur
sem þessar komast inn í kennslu-
bækur, ekki síst yngstu nemend-
anna, sem leggja sig alla fram við
lærdóminn og hafa löngun til að
skilja rétt hvert einasta orð sem í
bókunum stendur.
x x x
FÓLKI er eflaust í fersku minniatvikið þegar Halldór Blöndal,
forseti Alþingis, vítti Ögmund Jón-
asson fyrir skömmu vegna þess með
hvaða hætti hann kallaði fram í þegar
forseti talaði. Víkverji hlustaði á út-
sendingu frá Alþingi á dögunum,
skömmu eftir ofannefnt atvik; Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, var í ræðustóli þegar
kallað var fram í fyrir henni og hún
spurði forseta, hvort þetta væri orð-
inn fastur liður á hinu háa Alþingi.
„Það færist í vöxt!“ svaraði þá Blön-
dal forseti að bragði og þingheimur
skellti upp úr.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 gosdrykkurinn, 8
gjalds, 9 venja, 10 kjöt, 11
gæfa, 13 peningar,15
stilltar, 18 vondan, 21
ríkidæmi, 22 kalviður, 23
sigruðum, 24 matar-
skrína.
LÓÐRÉTT:
2 leyfi, 3 röska, 4 sjúga, 5
lykt, 6 þvottasnúra, 7 at,
12 spil, 14 reyfi,15 ræma,
16 greppatrýni, 17
hunda, 18 svelginn, 19
láðs, 20 að undanteknu.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gaufa, 4 hælum, 7 uggur, 8 lætur, 9 sót, 11
aumt, 13 árar, 14 ókátt,15 hagl, 17 alur, 20 áta, 22 fánýt,
23 gætin, 24 romsa, 25 agnir.
Lóðrétt: 1 gaupa, 2 ungum, 3 aurs, 4 holt, 5 letur, 6 múr-
ar, 10 ófátt, 12 tól, 13 áta,15 hafur, 16 gónum, 18 látin, 19
Rúnar, 20 átta, 21 agga.
K r o s s g á t a
MIG langar að gera at-
hugasemd við það hversu
fáránlegt verðlagið er á
erlendum tímaritum hér
á landi. Ef tekið er t.d.
tónlistartímaritið Q þá
kostar það 1.315 kr. í
næstu bókabúð. En sam-
kvæmt verðmerkingu á
blaðinu kostar það 3,30
pund í Bretlandi eða 475
kr. Mismunurinn er s.s.
840 kr. Það er ansi mikill
verðmunur eða 177%. Ef
við tökum svo annað
dæmi, kvikmynda-
tímaritið Empire, kostar
það hér 1.265 kr., en í
Bretlandi 3 pund sem
jafngildir 432 ísl. kr. Það
er 193% verðmunur. Auð-
vitað kostar eitthvað að
flytja blöðin inn og eitt-
hvað verður að leggja á
þau svo að bókabúðirnar
græði, en er þetta ekki
fullmikið? Svona er þetta
með næstum hvert ein-
asta erlenda tímarit sem
er til sölu hér á landi.
Eigum við að láta bjóða
okkur þetta ? Er þetta
kannski eins og með allt
annað á Íslandi, þetta við-
gengst eingöngu af því að
engin samkeppni er til
staðar ?
Salóme.
Tímarit
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss og Nordic Ice
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun koma Luhai og
Selfoss til Straums-
víkur og Radvila kem-
ur til Hafnarfjarðar.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 vinnustofa og
leikfimi, kl. 13 vinnu-
stofa, kl. 14 spilavist.
Farið verður í Bún-
aðarbankann þriðjud.
19. feb. kl. 10.15.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13.30–16.30 opin
smíðastofan/útskurður,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
16 myndlist. Allar upp-
lýsingar í síma
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–17 fóta-
aðgerð, kl. 10 sam-
verustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Eldri borgarar, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið í Hlaðhömr-
um er á þriðju- og
fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Jóga á föstudögum kl.
11. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum, fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8-16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan í Gullsmára
9 er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð
og myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna, kl.
13.30 enska, framhald.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
morgun mánudag pútt í
Bæjarútgerð kl 10–
11.30. Leikhúsferð,
verður fimmtudag 21.
feb. í Borgarleikhúsið
að sjá „Boðorðin níu“.
Upplýsingar í Hraun-
seli, s. 555-0142. Rúta
frá Hraunseli kl 19.15.
Félagsmiðstöðin verður
lokuð vegna flutnings í
Flatahrauni 3 í næstu
viku 18. feb. til 22 feb.
Vígsla nýrrar félags-
miðstövar verður laug-
ardaginn 23. feb. kl 14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Sunnudagur:
Félagsvist kl. 13.30.
Dansleikur kl. 20
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánud: Brids
kl. 13.30. Danskennsla,
framhald kl. 19 og
byrjendur kl. 20.30.
Þriðjud: Skák kl. 13 og
alkort spilað kl. 13.30.
Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði
í Glæsibæ, félagsheim-
ili Félags eldri borg-
ara, söng- og gam-
anleikinn „Í lífsins
ólgusjó“og „Fugl í
búri“, dramatískan
gamanleik. Sýningar:
Miðviku- og föstudaga
kl. 14 og sunnud. kl.
16. Miðapantanir í s.
588-2111, 568-8092 og
551-2203. Ferð á veg-
um Fræðslunefndar
FEB á Listasafn Ís-
lands miðvikud. 20.
febrúar kl. 14. Mæting
við Listasafnið, skrán-
ing á skrifstofu FEB.
Aðalfundur Félags
eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni verður
haldinn í Ásgarði,
Glæsibæ, sunnud. 24.
feb. kl. 13.30.
Námskeið í framsögn
og upplestri er fyr-
irhugað í mars ef næg
þátttaka fæst, leiðbein-
andi Bjarni Ingvars-
son.
Félag eldri borgara,
Selfossi. Aðalfundurinn
verður í dag, sunnu-
dag, kl. 14 í Græn-
umörk 5.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–
16 blöðin og kaffi. Á
morgun kl. 9–16.30 op-
in vinnustofa, handa-
vinna og föndur, kl. 9–
13 hárgreiðsla, kl. 14
félagsvist. Þorrablótið
verður 22. febrúar, til-
kynna þarf þátttöku í
síma 568-3132.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 13–16 er opin
myndlistasýning Braga
Þórs Guðjónssonar,
veitingar í veitingabúð,
listamaðurinn á staðn-
um Á morgun vinnu-
stofur opnar frá kl. 9–
16.30, frá hádegi spila-
salur opinn, kl. 15.30
dans hjá Sigvalda. Að-
stoð frá skattstofunni
verður veitt miðvikud.
20. mars, skráning haf-
in. Upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9 handa-
vinna, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.11
hæg leikfimi, kl. 13
lomber, kl. 13.30
spænska, kl. 17.15 kór-
inn. kl. 20 skapandi
skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
róleg stólaleikfimi, kl.
13 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulínsmálun
og kortagerð, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia,
kl. 13 frjáls spila-
mennska, kl. 13.30
gönguferð. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Félags-
starfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9–16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir og sund, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og
spilað.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Þriðju-
daginn 19. feb. leikfimi
kl. 11.15, kl. 12 verður
heimsókn í Hjalla-
kirkju, þar verður mat-
ur, helgistund, bók-
menntastund og kaffi.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 alla
mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
Kvenfélagið Keðjan
heldur aðalfund sinn í
Húnabúð, Skeifunni 11,
mánudaginn 18. feb. kl.
20.30.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Kristniboðsfélag karla,
fundur verður í Kristni-
boðssalnum Háaleitis-
braut 58–60 mánudags-
kvöldið 18. febrúar kl.
20 Benedikt Arnkels-
son hefur biblíulestur.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist kl. 14, annar
dagur í fjögurra daga
keppni.
Kvenfélag Kópavogs.
Afmælisfundur fimmtu-
daginn 21. febrúar kl.
20 í Hamraborg 10.
Spilað verður bingó.
Gestir velkomnir.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið, Hátúni 12. Á morg-
un kl. 19 brids.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar
eru afgreidd á bæj-
arskrifstofu Seltjarn-
arness hjá Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
síma 552-4994 eða síma
553-6697. Þau fást líka í
Háteigskirkju við Há-
teigsveg.
Í dag er sunnudagur 17. febrúar,
48. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Einum er fyrir andann gefið að
mæla af speki, öðrum að mæla af
þekkingu í krafti sama anda.
(1. Kor. 12.8.)