Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN24/3 –30/3
ERLENT
INNLENT
LETTINN Jurijs Eglit-
is, sem nýlega var fram-
seldur til heimalands
síns, hefur játað á sig
fimm ránmorð. Er hann
talinn hafa haft ástæðu
til að fremja morð hér-
lendis til að fá dóm sam-
kvæmt íslenskum lögum
og komast þannig undan
refsingu í Lettlandi.
R-LISTINN fengi tíu
fulltrúa í borgarstjórn og
Sjálfstæðisflokkurinn
fimm yrði kosið nú sam-
kvæmt nýrri skoð-
anakönnun sem Gallup
kynnti á miðvikudag.
Framboð Frjálslyndra og
óháðra fengi engan full-
trúa. Reyndist fylgi R-
listans vera 61,1%, fylgi
sjálfstæðismanna 36,6%
og fylgi Frjálslyndra og
óháðra 2,3%.
FJÖLDI kaupmanna
við Laugaveg, í Kringl-
unni og Smáralind lækk-
aði vöruverð um 3% í vik-
unni eftir fundi með
forystumönnum ASÍ. Með
þessu eru kaupmennirnir
að leggja lóð á vog-
arskálarnar við að halda
verðlagi fyrir neðan
rauða strikið svokallaða,
en fari verðlag yfir það
er verkalýðshreyfingunni
heimilt að segja upp
kjarasamningum í maí.
KARLMAÐUR um
fimmtugt, sem hlaut al-
varlega áverka við hníf-
stunguárás í íbúð á
Grettisgötu í byrjun
mars, lést á sunnudags-
morgun. Kona, sem grun-
uð er um að hafa veitt
honum stungusár, situr í
gæsluvarðhaldi.
Seðlabankinn lækkar
stýrivexti
STÝRIVEXTIR Seðlabanka Íslands
voru lækkaðir um 0,5% á þriðjudag.
Var greint frá þessu á ársfundi bank-
ans. Sagði Birgir Ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri af þessu tilefni að
þróun gengis að undanförnu hefði ver-
ið hagstæð og tvær síðustu mælingar
bentu til lítillar undirliggjandi verð-
bólgu. Auknar líkur virtust því á að
verðbólguspá bankans gengi eftir.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að kaflaskil hefðu orðið og nú
horfði vel í íslensku efnahagslífi. Gott
jafnvægi væri að myndast í hagkerfinu
og tekist hefði að festa í sessi kaup-
máttaraukningu undanfarinna ára.
Innviðir hagkerfisins væru betri og
truastari en áður og kæmi ekki til
óvæntur andbyr mætti ætla að fram-
undan væri tímabil hagvaxtar og
áframhaldandi kaupmáttaraukningar.
Hröpuðu niður
40 metra
Tveir menn sluppu lítið meiddir þegar
jeppi þeirra lenti ofan í geil við Þursa-
borgir á Langjökli á föstudag og lenti
á hvolfi. Í fyrstu var talið að þeir væru
mikið slasaðir en í ljós kom að svo var
ekki.
Þyrla Landhelgisgæslunnar gat
ekki lent á jöklinum vegna veðurs en
félagar mannanna náðu þeim upp úr
bílnum og komu þeim áleiðis til móts
við björgunarsveitarfólk. Voru þeir
fluttir á sjúkrahús til skoðunar. A.m.k.
80 manns tóku þátt í björgunaraðgerð-
unum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
slasaðan vélsleðamann í Kerlingarfjöll
á skírdag og á föstudag var hafin leit
að vélsleðamanni sem varð viðskila við
félaga sína er þeir voru á leið frá Land-
mannalaugum til Veiðivatna. Fundu
björgunarsveitarmenn manninn heil-
an á húfi í gærmorgun en um 60 manns
tóku þátt í leitinni.
Um 1.000 farast
í jarðskjálfta
MARGIR eftirskjálftar töfðu verulega
fyrir björgunarstarfi á jarðskjálfta-
svæðunum í Afganistan á miðvikudag.
Ollu þeir skriðuföllum, sem lokuðu
vegum og komu í veg fyrir flutning á
hjálpargögnum. Um 20.000 manns
misstu heimili sitt í hamförunum á
mánudag en tölur um látna eru enn á
reiki. Segja sumir um 1.000 en afg-
anskir embættismenn telja, að allt að
3.000 manns kunni að hafa farist.
Starfsmenn hjálparstofnana draga
það þó í efa. Talsmaður Sameinuðu
þjóðanna sagði á miðvikudaginn að sex
bæir hefðu hrunið alveg til grunna.
Kom það í ljós er flogið var yfir þá en
akstur á þessu svæði var mjög vara-
samur vegna mikils fjölda jarð-
sprengna. Á þessum slóðum var lengi
helsta víglínan milli Norðurbandalags-
ins og talibanahersins.
Arafat fór ekki á fund
Arababandalagsins
YASSER Arafat, forseti heimastjórn-
ar Palestínumanna, fór ekki á ráð-
stefnu Arababandalagsins, sem hófst í
Beirút í Líbanon á miðvikudaginn. Í
tilkynningu frá heimastjórninni á
þriðjudagskvöld sagði að Arafat
myndi halda sig á heimastjórnarsvæð-
unum, því ekki þætti ástæða til að gefa
Ísraelum tilefni til að meina honum að
snúa til baka. Þrátt fyrir að Banda-
ríkjamenn hafi þrýst á Ísraela að leyfa
Arafat að fara til Beirút sagði Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels, á
þriðjudaginn, að Ísraelar yrðu að eiga
rétt á því að meina Arafat að snúa aft-
ur frá fundinum í Beirút, ef hryðju-
verk yrðu unnin í fjarveru hans. Ísr-
aelar hafa haldið Arafat í herkví í
borginni Ramallah á Vesturbakkanum
frá því í desember síðastliðnum, en ný-
verið sögðu þeir að honum væri frjálst
að fara um heimastjórnarsvæðin.
FINNSKA fjarskipta-
fyrirtækið Sonera og hið
sænska Telia greindu
frá því á þriðjudaginn að
ákveðið hefði verið að
sameina fyrirtækin. Með
sameiningu þeirra verð-
ur til stærsta fjarskipta-
fyrirtæki á Norð-
urlöndum og eitt hið
stærsta í Evrópu. Höf-
uðstöðvar samstæðunnar
nýju verða í Stokkhólmi,
en starfsmenn fyrirtæk-
isins verða í kringum 34
þúsund. Eignarhlutur
Telia verður 64% en
hlutur Sonera 36% í hinu
nýja fyrirtæki, sem enn
hefur ekki hlotið nafn.
LEIÐTOGAR nær 60
ríkja um allan heim sam-
þykktu á fundi sínum í
Monterrey í Mexíkó í lok
síðustu viku áætlun um
baráttu gegn fátækt í
heiminum. Ætlunin er að
auka fjárhagsaðstoð við
fátækar þjóðir, fella nið-
ur skuldir þeirra og ýta
undir milliríkjaviðskipti.
George W. Bush Banda-
ríkjaforseti lagði á hinn
bóginn áherslu á að fá-
tæk ríki yrðu að opna
markaði sína auk þess
að verja réttarríkið og
lýðræðið.
TVEIR eftirlitsmenn
á vegum Alþjóðlegu
gæslusveitarinnar í
Hebron, Svisslendingur
og Tyrki, voru skotnir
til bana á Vesturbakk-
anum á þriðjudaginn.
Þetta er í fyrsta sinn
sem liðsmenn gæslu-
sveitarinnar eru felldir
síðan hún var stofnuð
fyrir átta árum.
MAGNÚS Pétursson, forstjóri
Landspítalans, segir að sér vit-
andi hafi fram til þessa ekki
verið innheimt sérstakt gjald
vegna hjartaþræðinga á
göngudeild. Hins vegar komi
sumir í hjartaþræðingu og fari
jafnvel út að kvöldi þannig að
þá sé þetta eins og göngudeild-
arstarfsemi.
„Sumir þurfa auðvitað að
liggja inni og jafnvel lengi. Við
höfum hins vegar talað um það
að það væri eðlilegt að taka
gjald fyrir þetta og þá eins og
göngudeildargjaldið er.
Göngudeildargjaldið er mjög
misjafnt, það er grunngjald og
hlutfall þannig að ég get ekki
nefnt neina tölu að svo
stöddu.“
Göngu-
gjald vegna
hjarta-
þræðingar
AÐ MEÐALTALI voru starf-
andi einstaklingar 165.615 hér
á landi í fyrra á móti 163.537 að
meðaltali árið 2000 og hefur
vinnandi fólki því fjölgað um
liðlega fjögur þúsund eða 2,5%
á milli ára að því er kemur fram
í útreikningum Hagstofu Ís-
lands.
Nokkur munur er á fjölda á
vinnumarkaði eftir ársfjórð-
ungum. Þannig voru starfandi
einstaklingar tæplega 172.350 á
þriðja fjórðungi ársins í fyrra
en 157.777 fyrstu þrjá mánuði
ársins.
Fjölgar um
fjögur þús-
und á vinnu-
markaði
ÍSLENSK skonnorta hefur ekki
sést á siglingu hér við land frá því
snemma á tuttugustu öldinni, en í
vor mun íslensk tveggja mastra
skonnorta kljúfa norðlenskar öldur
á nýjan leik.
Í vetur hefur verið unnið að því
að breyta hvalaskoðunarskipi
Norður-Siglingar á Húsavík, mb.
Hauki, í skonnortu og á að hleypa
henni af stokkunum í vor.
Þekkingin að hverfa
Hörður Sigurbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Norður-Siglingar,
neitar því ekki að það sé mikið fyr-
irtæki að breyta eikarbátnum
Hauki í skonnortu. „Við erum loks-
ins að sjá fyrir endann á fimm ára
undirbúningi og vinnu. Það eru ís-
lenskir skipasmiðir með yfirsmið-
inn Hall Fáskrúðsfirðing Guð-
laugsson í fararbroddi sem hafa
unnið við breytingarnar. Ég tel að
það hafi verið síðustu forvöð að
gera þetta því þessi þekking er að
hverfa.“
Hörður segir að þegar farið hafi
verið út í það að taka íslenska eik-
arbáta til varðveislu hafi menn séð
að verkið yrði aldrei fullkomnað
nema að rifja líka upp skútuöldina.
„Og það erum við að gera með þess-
um bát. Þetta er eiginlega punkt-
urinn yfir i-ið í því að endurvekja
og skila til næstu kynslóðar þeim
verðmætum sem liggja í okkar ís-
lensku eikarbátum. Klassísk segl-
skip eru alls staðar til nema hér á
Íslandi og Færeyingar eiga til
dæmis bæði kútter og skonnortu.“
„Enginn Íslendingur kann að
sigla svona skipi. Við fáum til okkar
erlenda sérfræðinga til að kenna
okkur, bæði að útbúa reiðann og
sigla skipinu þegar við sjósetjum í
vor. Haukur verður notaður í hefð-
bundnar hvalaskoðunarsiglingar
en þetta gerir okkur einnig kleift
að bjóða mönnum upp á einstaka
upplifun óháða hvölum, þ.e. að sigla
á gamaldags seglskipi og lengja
ferðamannatímann. Haukur er 15,5
metrar að lengd og tekur 46 far-
þega.“
Hörður segir að það þurfi tvo til
þrjá menn í áhöfn til þess að sigla
Hauki undir seglum.
„Hærra mastrið er sautján metr-
ar en við þurfum sem betur fer ekki
að klifra upp í það til að hagræða
seglunum. En auðvitað getum við
neyðst til þess að fara þarna upp í
neyðartilvikum. Þetta eru hins veg-
ar skip sem eiga þola öll veður en
menn verða vitaskuld að haga segl-
unum eftir vindi.“
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Haukur eins og hann var fyrir breytingarnar.
Seglskip til hvala-
skoðunar frá Húsavík
Möstrin eru engin smásmíð,
lengra mastrið er tæpir sautján
metrar að lengd.
Haukur er 15,5 metra langur
og hærra mastrið verður 17
metrar á hæð.