Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Alfa-námskeið hjá KFUM og KFUK
Árangur mælist
af ánægju
LAUST eftir páskastanda KFUM ogKFUK fyrir svo-
kölluðu Alfa-námskeiði, en
þau eru allviðamikil nám-
skeið um kristna trú og til-
gang lífsins, hvorki meira
né minna. Framkvæmda-
stjóri KFUM- og K í
Reykjavík er Kjartan
Jónsson guðfræðingur
m.m. og hann svaraði
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins um nám-
skeiðið.
– Á hvað er lögð áhersla
á Alfa-námskeiðum?
„Þetta eru tíu vikna
námskeið um kristna trú
og tilgang lífsins. Það er
sérstaklega hugsað fyrir
fólk sem er ekki kirkjuvant
en vill kynna sér kristin-
dóminn en það er einnig
mjög gagnlegt fyrir fólk sem sæk-
ir kirkju og samkomur að stað-
aldri. Mikilvægur þáttur í nám-
skeiðinu er umræður í hópum um
innihald kennslunnar og ýmsar
spurningar sem þátttakendur
glíma við.“
– Segðu okkur aðeins frá Alfa-
námskeiðunum...
„Alfa-námskeiðið hófst í Holy
Trinity kirkjunni í London. Upp
úr 1990 var það gert aðgengilegt
fyrir efahyggjufólk og þá sem
hafa litla þekkingu á kristinni trú
og þegar árið 1992 var farið að
halda slík námskeið utan Holy
Trinity-kirkjunnar. Árið 1993
voru haldin 200 Alfa-námskeið og
það þótti ástæða til að efna til ráð-
stefnu fyrir þá sem kenndu á nám-
skeiðinu eða höfðu í hyggju að
gera það. Slíkar ráðstefnur hafa
síðan verið haldnar árlega í Lond-
on. Fulltrúar frá Íslandi hafa sótt
þær frá 1995 og síðan þá hefur
námskeiðið verið kennt á Íslandi, í
samfélögum og söfnuðum innan
og utan þjóðkirkjunnar. Í júlí síð-
ast liðnum höfðu verið haldin
18.200 Alfa-námskeið víðs vegar í
heiminum með um þremur millj-
ónum þátttakenda í 126 löndum.
Meira en 1,2 milljónir manna úr
öllum stéttum þjóðfélagsins hafa
farið á Alfa-námskeið á Bret-
landseyjum. Síðastliðið haust
komu fulltrúar Holy Trinity-
kirkjunnar í London og héldu fjöl-
menna ráðstefnu í Grafarvogs-
kirkju í Reykjavík fyrir Alfa-
kennara og þá sem höfðu áhuga á
að halda slík námskeið hér á landi.
Á þessu ári hafa Alfa-námskeið
verið kennd á 15 stöðum hér á
landi. Biblíuskólinn við Holtaveg
sem er í húsi KFUM og KFUK
innleiddi námskeiðið hérlendis.“
– Hvar fer námskeiðið fram og
hvernig er það uppbyggt?
„Námskeiðið fer fram í húsi
KFUM og KFUK Holtavegi 28 og
hefst 2. apríl. Skráning fer fram á
skrifstofu félaganna í sama húsi.
Fyrsta kvöldið er kynning á nám-
skeiðinu sem er öllum opin og án
skuldbindingar um áframhaldandi
þátttöku. Það hefst með sameig-
inlegum kvöldverði
klukkan 19. Þannig
hefst námskeiðið í
hvert sinn og þar gefst
fólki kostur á að kynn-
ast. Síðan er kennsla í
45 mínútur og eftir stutt hlé eru
umræður í hópum. Námskeiðinu
lýkur klukkan 22. Þegar nám-
skeiðið er um það bil hálfnað er
farið út úr bænum í einn sólar-
hring og hluti námskeiðsins
kenndur þar. Þátttakendur hafa
margsinnis lýst því yfir hve þeim
hafi þótt helgarferðin góð. Einnig
finnst mörgum gott að geta rætt
málin í hópi með öðrum.“
– Er mikil aðsókn að Alfa-nám-
skeiðum?
„Já, hún er mikil og þegar hafa
mörg hundruð manns sótt Alfa-
námskeið hér á landi. Flestir þátt-
takendur hafa lýst mikilli ánægju
með það. Námskeiðið fer sigurför
um heiminn og sífellt fleiri söfn-
uðir taka það upp á arma sína.
Enskt dagblað spurði í fyrirsögn á
síðasta ári hvort Alfa-markaði
nýtt upphaf kristninnar þar í landi
en henni hefur hnignað mjög á
síðustu árum. Víða hefur starf
safnaða og kristilegra félaga lifn-
að við með tilkomu námskeiðsins.
Alfa-námskeiðið er orðið svo
þekkt í Englandi að sjónvarps-
maðurinn kunni David Frost
gerði tíu klukkustundarlanga
þætti um það, sem sýndir voru á
ITV-sjónvarpsstöðinni þar í landi
á síðasta ári.“
– Hvernig meta menn árangur
af svona námskeiðum?
„Árangurinn er margs konar.
Hann mælist í ánægju flestra
þátttakenda og því gagni sem þeir
telja sig hafa af því. Margir spyrja
að loknu námskeiði hvort ekki sé
hægt að fá framhaldsnámskeið og
því er boðið upp á svokallað Alfa-
námskeið 2 sem fjallar um efni
Filippíbréfsins í Nýja testa-
menntinu. Slíkt námskeið hefst
um leið og hið hefðbundna Alfa-
námskeið, á sama tíma í húsi
KFUM og KFUK. Það er eins
uppbyggt.
Margir sem farið
hafa á Alfa-námskeið
verða virkir þátttak-
endur í safnaðarlífi eða
starfi kristilegra fé-
laga. Svo margir hafa
bæst við söfnuðinn í Holy Trinity-
kirkjunni í London að haldnar eru
fjórar guðsþjónustur fyrir fullu
húsi á hverjum sunnudegi og fólk
úr söfnuðinum hefur tekið að sér
að endurlífga dauða söfnuði í
borginni. Alfa-námskeiðið er því
mikilvægt tæki til að byggja upp
starf safnaða og kristilegra félaga.
Vonandi verður sú raunin hér á
landi.“
Kjartan Jónsson
Kjartan Jónsson er fæddur 3.
apríl 1954 í Reykjavík. Guðfræð-
ingur frá Háskóla Íslands 1980,
prestsvígsla 1981. Preststörf í
Kenýa í 12 ár á bilinu 1981–1995.
Meistarapróf frá Fuller Theo-
logical Seminary, School of Worl
Mission 1991. Er doktorsnemi í
mannfræði við Háskóla Íslands.
Starfsmaður Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga til ársins 2000,
síðan framkvæmdastjóri KFUM
og KFUK í Reykjavík. Er kvænt-
ur Valdísi Magnúsdóttur kenn-
ara og eiga þau börnin Ólöfu
Inger og Jón Magnús.
...námskeiðið
fer sigurför
um heiminn
Þessi verður ekki frek á plássið, systir. Passar í kústaskáp undir súð.