Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRNARANDSTAÐAN í Írak hefur að undanförnu lagt áherslu á að fá til liðs við sig ýmsa fyrrver- andi foringja úr Íraksher sem hrak- ist hafa í útlegð en forystumenn stjórnarandstöðunnar eru sann- færðir um að Bandaríkin hyggist senn láta til skarar skríða gegn Saddam Hussein, forseta Íraks. Vilja stjórnarandstæðingar funda með herforingjunum á næstunni í því skyni að ræða hverjir gætu tek- ið við yfirstjórn hernaðarmála í Írak ef Saddam yrði velt úr sessi. Um er að ræða samtök stjórn- arandstæðinga, Þjóðþing Íraks, sem njóta velvildar Bandaríkjastjórnar. Hefur undirbúningi vegna hugsan- legs fundar með útlægum liðsmönn- um Írakshers verið hraðað í kjölfar þess að Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hélt í för sína til Mið-Austurlanda, að því er fullyrt er í því skyni að óska eftir stuðningi við áætlanir Bandaríkjamanna um hernaðaraðgerðir gegn Írak. Stjórnarandstaðan er að sögn að- eins að leita manna sem tekið gætu við yfirstjórn Írakshers en frétta- skýrendum þykir ekki ólíklegt að viðkomandi einstaklingur fengi enn veigameira hlutverk við stjórn landsins í ljósi þess hversu mikil- vægu hlutverki herinn hefur gegnt í Írak. Sömuleiðis er hin borgaralega stjórnarandstaða í Írak afar veik eftir langvinnar innbyrðis illdeildur. Til að mynda er þriggja manna ráð Þjóðþings Íraks óstarfhæft sökum persónulegra deilna og þó að nokkr- ir liðsmenn samtakanna séu í Írak og reyni þar að virkja andstöðu gegn Saddam, þá njóta þau í reynd lítils fylgis meðal almennings í land- inu. Al-Khazraji líkt við Hamid Karzai Meðal þeirra foringja úr hernum sem hrakist hafa í útlegð og sem þykja koma til greina sem framtíð- arforystumenn hersins í Írak, verði Saddam steypt af stóli, er Nizar al- Khazraji hershöfðingi sem gat sér gott orð heimafyrir vegna frammi- stöðu sinnar í stríðinu við Írani 1980–1988 en sem býr nú í Dan- mörku og hefur óskað þar eftir hæli sem pólitískur flóttamaður. Al- Khazraji er súnní-múslimi en þeir hafa ráðið ríkjum í Írak frá því að landið hlaut sjálfstæði 1922. Hann er hæst setti yfirmaðurinn úr her Saddams sem flúið hefur land og talið er að hann njóti enn talsverðr- ar virðingar meðal liðsmanna hers- ins. Þessir kostir – sem og sú stað- reynd að hann hefur ekki blandað sér í pólitískar væringar innan stjórnarandstöðunnar – gera að verkum að margir líkja al-Khazraji við Hamid Karzai, sem gerður var að forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinn- ar í Afganistan í haust. Aðrir hafa þó verið nefndir til sögunnar sem hugsanlegir liðsmenn bráðabirgðastjórnar í Írak, s.s. Fawzi al-Shamari, sem flúði land um miðjan níunda áratuginn og sem nú býr í Bandaríkjunum. Jafnframt hefur Jalal Talabani, leiðtogi Þjóð- arsamtaka Kúrdístans, verið nefnd- ur til sögunnar en hann gæti reynst verðugur fulltrúi minnihlutahóp- anna í Írak, þ.e. Kúrda og shíta- múslima. Al-Khazraji er hins vegar atvinnuhermaður, vel metinn yfir- foringi sem gæti fylkt Íraksher á bak við sig, að sögn Haroun Mohha- med, írasks blaðamanns sem þekkir feril hans. Virðist sem Saddam sjálfur meti hlutina eins og sjái al-Khazraji sem hættulegan keppinaut. Þannig hefur Babil, dagblaðið sem lýtur stjórn elsta sonar Saddams, reynt að eyði- leggja það orðspor sem af al-Khaz- raji fer, með því að velta upp spurn- ingum um hátterni eiginkonu hans. Þá hefur Íraksstjórn farið fram á að al-Khazraji verði framseldur til Íraks á þeirri forsendu að hann sé grunaður um að hafa orðið valdur að árekstri þar sem annar ökumað- ur lést eða slasaðist illa. Kveðst ekki hafa áhuga á stóli Saddams Al-Khazraji, sem verið hefur í út- legð síðan 1995, hefur sjálfur rætt opinberlega áætlanir um stjórnarskipti í Írak þar sem her landsins tæki að sér stjórn mála tíma- bundið, uns búið væri að kjósa nýja ríkisstjórn. Hann neitar því hins vegar að hann hafi nokkurn hug á því að setjast sjálfur í stól Saddams. „Hlutverk hersins er að steypa Saddam af stóli og láta svo stjórn- málamennina, fólkið sjálft, sjá um framhaldið,“ segir hann. „Ég er hermaður og hyggst láta það duga.“ Helsti dragbítur al-Khazrajis er ásakanir um að Íraksher hafi beitt eiturefnavopnum gegn kúrdíska minnihlutanum í Írak á meðan hann veitti hernum forystu. Al-Khazraji heldur hins vegar fram sakleysi sínu og segir að það hafi verið Sadd- am sem réð yfir efnavopnaforða hersins. Segir hann að Saddam hafi fyrirskipað efnavopnaárásirnar og að náinn samverkamaður forsetans hafi stýrt aðgerðunum. Hafa nokkur samtök Kúrda sagt að þau taki þessar staðhæfingar al-Khazrajis trúanlegar. Dönsk yfirvöld hafa á hinn bóginn fyrirskipað rannsókn á ásökunum og al-Khazraji getur ekki ferðast frá Danmörku á meðan verið er að ákveða hvort ástæða sé til að kæra hann fyrir stríðsglæpi vegna beit- ingar efnavopna. Kveðst al-Khazraji hvort eð er ekki hafa ætlað að vera viðstaddur hershöfðingjafund þann, sem íraska stjórnarandstaðan und- irbýr nú af kappi, og segir betra að allar meiriháttar ákvarðanir séu teknar fjarri vökulu auga fjöl- miðlanna, en þeir myndu óhjákvæmilega fylgjast grannt með gangi mála á fyrrnefndum fundi. Nokkrir fyrrverandi foringjar úr Íraksher hafa boðað þátttöku sína en margir aðrir hafa lýst efasemdum eða bein- línis gefið afsvar, enda hafi samtök stjórnarandstæðinga ekki lagt fram nein bein áform um aðför gegn stjórn Saddams. Segja sumir frétta- skýrendur að stjórnarandstaðan sé allt of veikburða til að hafa nokkurt roð við Saddam. Najib al-Salehi, útlægur hers- höfðingi sem nú fer fyrir Samtökum frjálsra íraskra liðsforingja, kveðst hins vegar bjartsýnn. Segir hann að Bandaríkjastjórn virðist nú staðráð- in í að velta Saddam úr sessi, jafn- vel þó beita þurfi valdi til þess. „Þess vegna getum við ekki bara setið með hendur í skauti,“ segir hann. Hafa verið leiddar að því líkur að stjórnarandstaðan sjái fyrir sér uppreisn sem ætti sér stað á sama tíma eða strax í kjölfar árása Bandaríkjahers gegn helstu stoðum Írakshers. „Bandaríkjamenn hafa rætt um stjórnarskipti í Írak sem þýðir að daginn eftir [að þeir láta til skarar skríða] þarf einhver að vera til staðar til að taka við stjórninni,“ segir Mohammed Kardri Saeed, sérfræðingur í hernaðarmálum við Al Ahram-stofnunina í Kaíró í Egyptalandi. Nokkur samtök útlægra Íraka hafa þó lýst efasemdum um aðgerð- ir, sem njóta myndu stuðnings Bandaríkjamanna með þessum hætti. Óttast þeir að hverjir þeir að- ilar, sem tækju við stjórn landsins, yrðu sakaðir um að vera leik- brúður Bandaríkjastjórnar eða þá að umbreytingarnar myndu einfald- lega leiða til þess að herforingja- stjórn tæki við í Írak. Sagði Tal- abani, leiðtogi Kúrda, nýverið að sín samtök legðu áherslu á að „lýðræð- islegar breytingar“ ættu sér stað í Írak. „Við styðjum ekki áætlanir sem fela í sér að einum einræð- isherra verður skipt út fyrir annan,“ sagði hann. Brotthvarf Sadd- ams undirbúið Reuters Hópur Íraka hrópar ókvæðisorð að Bandaríkjunum. Saddam Hussein, forseti Íraks, hefur nýverið reynt að tryggja andstöðu annarra arabaríkja við hugsanlegar hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Írak. Útlægur hers- höfðingi nefnd- ur sem líklegur framtíðar- leiðtogi Íraks Kaíró. AP. Ég er hermaður og hyggst láta það duga Borgaraleg stjórnarand- staða afar veik KIM Jong Il, leiðtogi Norður- Kóreu, hefur brugðist með já- kvæðum hætti við þeirri til- lögu ríkisstjórnar Suður-Kór- eu að teknar verði upp viðræður á ný. Forseti Indónesíu greindi frá þessu í Seoul í Suður-Kóreu í gær. Forsetinn, Megawati Suk- harnoputri, sagði á blaða- mannafundi að hún hefði fært Kim Jong Il skilaboð frá Kim Dae- jung, for- seta Suður- Kóreu. Hefði sá fyrrnefndi brugðist við „með jákvæðum hætti“. Hún greindi ekki frá orðlagi þeirra skilaboða né nánar frá viðbrögðum Kim Jong Ils. Hins vegar höfðu suður- kóreskir embættismenn áður greint frá því að skilaboðin fælu í sér ákall frá forseta Suður-Kóreu þess efnis að hafnar yrðu viðræður Kóreu- ríkjanna tveggja og Norður- Kóreu og Bandaríkjanna. Fréttir af viðbrögðum Kims þóttu gefa til kynna að auknar líkur væru á því að Kóreuríkin tvö tækju á ný upp viðræður um bætt sam- skipti og aðgerðir til að draga úr spennu í þessum heims- hluta. Öryggisráðgjafi Indónesíuforseta sagði við blaðamenn í gær að skila- boðin frá forseta Suður-Kór- eu hefðu eingöngu varðað rík- in tvö en ekki Bandaríkin. Kosið í Úkraínu KOSNINGAR fara fram í Úkraínu í dag, sunnudag, þær þriðju í landinu frá því að það hlaut sjálfstæði við hrun Sov- étríkjanna fyrir tíu árum. Alls bjóða 33 flokkar og fylkingar fram í þing- kosningun- um en keppnin er einkum talin standa á milli svokall- aðs „Valda- flokks“ sem styður Leoníd Kútsma for- seta og bandalags stjórnar- andstöðuflokka en fyrir því fer Viktor Júshenko, fyrrum forsætisráðherra. Almennt er talið að þessir tveir menn muni síðan takast á þegar forsetakosningar fara fram eftir tvö ár. Kosningarnar í dag eru taldar mikilvægar með tilliti til forsetakosninganna og stöðu Kútsma sem berst nú fyrir pólitísku lífi sínu eftir að hafa verið vændur um spill- ingu og valdníðslu í embætti. Vilja hefja hvalveiðar NÆSTUM helmingur Japana vill að hvalveiðar í ágóðaskyni verði hafnar á ný. Þetta kem- ur fram í könnun sem birt var í gær, laugardag, í dagblaðinu Asahi Shimbun. Alls kváðust 47% hlynnt því að slíkar veið- ar yrðu hafnar á ný en 36% sögðust því andvíg. Japanir veiða nú um 400 hvali á ári í nafni vísindarannsókna. STUTT Auknar líkur á viðræðum Kóreuríkja Kim Jong Il. Leoníd Kútsma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.