Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. f í t o n / s í a www.bi.is Þú fellur aldrei á tíma í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans TVEIR menn voru hætt komnir þegar jeppi þeirra féll um 30–40 metra niður í geil við Þursaborgir á Langjökli á föstudag. Vegna slæms skyggnis gat þyrla Land- helgisgæslunnar ekki athafnað sig á staðnum og voru mennirnir því fluttir landleiðina niður af jöklin- um. Mennirnir voru í jeppaferð ásamt mönnum í fjórum öðrum jeppum og voru á leiðinni milli slóða þegar þeir fóru fram af. Var í fyrstu talið að þeir væru alvarlega slasaðir en svo reyndist ekki vera. Félagar þeirra komust akandi að þeim og náðu þeim út úr bílnum, sem hafði lent á hvolfi. Var síðan ekið með þá áleiðis niður af jökl- inum á móts við björgunarsveit- arfólk og lækna. Á meðan beið þyrla Landhelg- isgæslunnar í Húsafelli, en þangað voru mennirnir fluttir, og kom þyrlan þeim síðan á Landspítala – háskólasjúkrahús í Fossvogi í Reykjavík. Samkvæmt upplýsing- um þaðan liggja þeir á almennri deild og er líðan þeirra þokkaleg. 320 björgunarsveitarmenn voru við leit og björgun Björgunarsveitir á sunnan- og vestanverðu landinu höfðu í nógu að snúast frá föstudegi og fram eft- ir gærdeginum. Alls komu 320 björgunarsveitarmenn, 35 jeppar, 40 vélsleðar og sex snjóbílar að leitar- og björgunaraðgerðum á einum sólarhring skv. upplýsingum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Um klukkan 14. á föstudag slas- aðist maður á vélsleða sunnan við Kerlingarfjöll. Komu börgunar- sveitarmenn manninum til aðstoð- ar og var hann síðan fluttur tölu- vert mikið slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík. Um áttatíu björgunarsveitar- menn hófu leit að kvöldi föstudags að vélsleðamanni sem saknað var við Veiðivötn. Voru allar björgun- arsveitir frá höfuðborgarsvæðinu og austur að Vík kallaðar út. Mað- urinn fannst heill á húfi um klukk- an sjö í gærmorgun. Aðstoðuðu fólk sem hafðist við í jeppum í vonskuveðri Björgunarsveitarmenn þurftu einnig að aðstoða fólk í jeppum við Frostavatn að fjallabaki. Fólkið hafðist við í bílum sínum í fyrrinótt þar til þrír öflugir jeppar björg- unarsveita komu þeim til aðstoðar og fluttu inn í Landmannalaugar. Einnig fóru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar inn á Sigölduheiði í gærmorgun að aðstoða fólk sem þurfti að hafast þar við í einum jeppa í fyrrinótt. Þá óskaði hópur þrettán útlend- inga í Landmannalaugum eftir að- stoð við að komast til byggða. Út- lendingarnir ætluðu að ganga niður í Hrauneyjar, en treystu sér ekki til þess sökum veðurs og ófærðar og fóru björgunarsveitir og aðstoðuðu fólkið. Skv. upplýsingum Valgeirs Elí- assonar, upplýsingafulltrúa Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, var veður á þessum slóðum slæmt, þungt færi og snjókoma og tals- verður vindur. Var sérstaða við all- ar björgunar- og leitaraðgerðirnar sú að treyst var á öflug farartæki, mikið breytta og öfluga jeppa, vél- sleða og snjóbíla, að sögn hans. Óku bílstjórar eftir GPS-staðsetn- ingartækjum sem tengd eru far- tölvum með kortagrunnum af Ís- landi, oft í blindhríð. Jeppi með tveimur mönn- um féll 30 til 40 metra Morgunblaðið/Júlíus TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, lenti í Reykjavík með mennina tvo af Langjökli í fyrrinótt. Voru þeir flutt- ir á Landspítala – háskólasjúkrahús í Fossvogi þar sem líðan þeirra er sögð þokkaleg.  Ekki hægt/4 TILKYNNT var um meðvitundar- lausan mann í heimahúsi á Bárugötu til lögreglu í gærmorgun en maðurinn hafði fyrr um nóttina lent í áflogum í miðbænum. Að sögn lögreglu var hann fluttur rænulítill á Landspítala – háskóla- sjúkrahús í Fossvogi þar sem hann var lagður á gjörgæsludeild. Sagði læknir þar í samtali við Morgunblaðið að líðan mannsins væri stöðug. Meðvitund- arlaus eftir áflog MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út þriðjudaginn 2. apríl nk. Fréttaþjónusta verður á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, alla páskahelgina. Þar er einnig að finna minnisblað lesenda og upplýsingar um kirkjustarf. Fréttaþjón- usta um páska ♦ ♦ ♦ ÁKVEÐIÐ hefur verið að skipa sér- staka viðræðunefnd til að fara yfir möguleika á nýjum samstarfsaðila í stað Norsk Hydro vegna byggingar álvers í Reyðarfirði. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra sagði að sérstök viðræðunefnd yrði skipuð strax eftir páska til að fara yfir málið og halda utan um könnunar- viðræður. Ekki væri hins vegar búið að ákveða hvort þessi nefnd myndi halda utan um málið yrði niðurstaðan sú að fara áfram í samningaviðræður. Nefndin myndi hafa það verkefni með höndum að meta stöðuna og hafa sam- band við þau fyrirtæki sem talið væri að gætu haft áhuga. Aðspurð hvort til greina kæmi að athuga möguleika á byggingu smærra álvers á Austurlandi sem fengi orku sína frá gufuaflsvirkjunum á Norðausturlandi sagði Valgerður að menn væru ekkert að hverfa frá því að virkja við Kárahnjúka. Hins vegar væri gott að vera ekki of fastur í ákveðinni stærð álvers. Áfram væri stefnt að undirbúningi þessa stóra verkefnis, sem hentaði álveri af þess- ari stærð. Menn færu ekki í hálfa Kárahnjúkavirkjun, það væri nokkuð ljóst. Sérstök við- ræðunefnd skipuð Álver í Reyðarfirði ÍSLENSKIR vísindamenn hafa í samvinnu við vísindamenn í nokkr- um löndum náð mikilvægum áfanga við rannsóknir á tengslum geðklofa og ákveðins erfðavísis sem talinn er geta haft áhrif á myndun sjúkdómsins. Skv. upplýs- ingum dr. Tómasar Zoëga geð- læknis, sem stýrir rannsókninni af hálfu íslensku vísindamannanna, hefur tekist að staðsetja svæði á litningi nr. 8 sem hefur með boð- efni (neuregulin) að gera, sem virðist gegna hlutverki í þróun miðtaugakerfisins. Greint er frá þessum rannsókn- arniðurstöðum í frétt AP-frétta- stofunnar og þar segir að niður- stöðurnar virðist marka þáttaskil í leitinni að orsökum geðklofasjúk- dómsins. Rannsóknin hefur staðið yfir í mörg ár Tómas segir að þessar rann- sóknir hafi staðið yfir í mörg ár. Þarna sé um töluvert merkar nið- urstöður að ræða þótt ljóst sé að ekki sé með þessu fundin eina skýringin á geðklofasjúkdóminum. Eru vonir bundnar við að sú vitneskja sem fengin er muni leiða til þess að takast megi að þróa lyf sem hafa áhrif á umrætt boðefni og vinna gegn sjúkdómnum. Tóm- as segir þó of fljótt að fullyrða nokkuð um það. Nær til 150 íslenskra sjúk- linga og aðstandenda þeirra Að sögn hans er efniviður rann- sóknarinnar íslenskur en hún nær til 150 íslenskra sjúklinga með geðklofa og aðstandenda þeirra. Að sögn Tómasar var rannsóknin sem fram fer hér á landi í fyrstu undir yfirumsjón Tómasar Helga- sonar, þáverandi prófessors í geð- lækningum. Einnig hefur Páll Matthíasson, sem leggur stund á sérnám í geðlækningum á Eng- landi, unnið að rannsókninni hér. Að rannsókninni stendur hópur vísindamanna frá mörgum löndum og er samstarfsverkefnið undir stjórn dr. Hans Moises sem starf- ar við háskólann í Kiel í Þýska- landi. Auk íslensku vísindamann- anna taka vísindamenn frá Þýskalandi, Bandaríkjunum, Ind- landi, Kína og Bretlandi þátt í rannsókninni. Tómas segir að rannsókninni sé hvergi nærri lokið en þær nið- urstöður sem nú liggi fyrir séu mjög athyglisverðar og mjög spennandi verði að halda henni áfram. Hann sagði að lengi hefði verið vitað að geðklofi væri arf- gengur sjúkdómur og staðsetning þessa erfðavísis skyti frekari stoð- um undir þennan arftæka þátt. Eykur vonir um þróun lyfja gegn sjúkdómnum Íslenskir og erlendir vísindamenn ná áfanga í rannsóknum á geðklofa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.