Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 47
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 47 EINU sinni voru tveir litl-ir ungar í eggi. Þar varlítið pláss, svo að þeirvoru í einu hnipri sam-an. Þetta voru tvíbu- raungar. Einhvern tíma sagði annar við hinn: „Heyrðu, bróðir minn sæll, heldurðu að það sé eitthvað utan við eggjaskurnina?“ „Það held ég ekki, systir góð; mikið spyrðu nú heimskulega.“ „Nei, mér datt þetta bara svona í hug,“ hélt systirin áfram, og klóraði sér hugsi í kollinum, með vængstubbinum, sem var kirfi- lega fastur upp við eggja- skurnina. „Ég var nefnilega að vona að ungamamma væri þar.“ „Ungamamma,“ sagði bróð- irinn hneykslaður. „Það er ekkert til, sem heitir ungamamma.“ „En svo var ég líka að velta því fyrir mér hvað við erum orðin stór. Ég man þegar var nægilega mikið rúm hérna fyrir okkur bæði. Þá gátum við farið í eltinga- leik og synt í eggjahvítunni, hleg- ið og leikið okkur. En núna getum við naumast hreyft okkur.“ Og það var satt. Ungarnir voru allt að því vafðir hvor um annan. Fóturinn á öðrum þeirra var flæktur upp við stélið á hinum, og svo þröngt var orðið, að þeir gátu varla opnað gogginn til þess að ræða saman af einhverju viti. „Veistu það, systir mín góð,“ sagði bróðirinn, „að ég á afar bágt með að trúa að það sé nokkur fyr- ir utan eggjaskurnina. Ég held að þar sé ekkert, bara myrkur, svart og tómt.“ „Nei, bróðir, ég trúi því að eitt- hvað mjög fallegt sé utan við eggjaskurnina, og nú ætla ég að gogga í hana og athuga hvort ég get búið til lítið gat!“ „Nei, ekki gera það; ekki gera það,“ hrópaði bróðirinn, örvænt- ingarfullur. „Myrkrið, sem er fyr- ir utan, gæti lekið hingað inn til okkar, og hvað verður um okkur þá?“ „Ég er ekkert hrædd við það, bróðir, enda er ekki pláss fyrir okkur hérna miklu lengur. Svona, hjálpaðu mér nú!“ Og systirin byrjaði að gogga í eggjaskurnina. Bróðirinn lokaði augunum, og hélt skelfdur fyrir hlustirnar, með vængjunum. „Hættu þessu undir eins, plís,“ sagði hann. En systir hans lét öll mótmæli sem vind um eyru þjóta og hélt ótrauð áfram. „Ég held að það sé að koma gat,“ sagði hún loks hreykin og spennt. „Nei, ekki gera þetta!“ hélt bróðirinn áfram, nú volandi. „Nei... hvað sé ég!“ Systirin var meira en lítið undrandi. „Það er ekki myrkur þarna úti!“ „Nú? Hvað er það þá,“ spurði bróðirinn önugur og vantrúaður. „Það er örugglega ekkert þarna.“ „Ó, jú.“ Það er skjannabirta! Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt! Komdu og sjáðu!“ Bróðirinn mjakaði sér hægt nær opinu og kíkti út. Það var ekki um að villast. Hvílík birta! Þau flýttu sér að gogga stærra op á eggjaskurnina. Þau gogguðu og gogguðu og gogguðu. Og að lok- um var gatið orðið það stórt, að þau gátu rekið kollana út um það. „Leyfðu mér fyrst,“ sagði bróð- irinn, og tróðst í gegnum gatið og út í stóru veröldina, sem hann aldrei trúði að væri þarna. Og á eftir kom systir hans. Þau sáu varla nokkurn hlut fyrir sólarljós- inu. Er þau voru farin að venjast að- eins birtunni, spurði bróðirinn allt í einu: „Bíddu nú aldeilis, hvað er nú þetta?“ Systirin leit upp, og við henni blasti hvítur fugl, sem horfði til þeirra glaður og bros- andi. „Þetta hlýtur að vera unga- mamma,“ sagði hún því næst. „Ég vissi að hún væri til, ég sagði það!“ Og litlu ungarnir tveir, þreyttir eftir átökin við eggjaskurnina, flýttu sér undir hlýjan og mjúkan væng móður sinnar, og hvíldust þar í skjóli fjaðranna. Þessi saga, eftir einhvern mér óþekktan höfund, er allra besta guðfræðilega útlistun, sem ég hef augum litið, á afleiðingum þeirra atburða, sem gerðust á Hausa- skeljastað úti fyrir Jerúsalem fyr- ir 2000 árum. Í bókinni „Táknmál trú- arinnar“, eftir Karl Sigurbjörns- son biskup, segir orðrétt: „Í frumkirkjunni litu menn á eggið sem tákn upprisunnar. Eins og unginn lifir í egginu og brýst út úr því þegar tíminn er fullnaður, þannig munum við og lifa og losna úr viðjum dauðans vegna upprisu Krists. Í grísku kirkjunni setja menn um páskana egg á leiði hinna látnu sem tákn uppris- unnar. Á eggin er ritað fanga- mark Krists.“ Páskaegg nútímans eiga ættir að rekja til hins gamla tíma. Það var upprisan, sem breytti ótta Péturs í djörfung, og efa- semdum Jakobs í trú. Það var upprisan, sem breytti hvíldardeg- inum, sem þá var laugardagur, í sunnudag, og hópi gyðinga í kristna menn. Og það var upp- risan, sem breytti faríseanum Sál í leiðtogann Pál, breytti ofsækj- anda í boðbera þeirra trúar, sem hann áður hafði sleitulaust reynt að þurrka burt af yfirborði jarðar. Á bak við þessa umsköpun er hinn krossfesti og upprisni, er síð- an þá bíður allra lærisveina sinna með opinn faðminn, bæði hér á jörðu sem á himni. Ekki ósvipað og ungamamma. Gleðilega páska! sigurdur.aegisson@kirkjan.is Páskarnir eru ekki minningarathöfn um Jesú Krist, heldur vitnis- burður um það, að hann er á meðal okkar í dag. Sigurður Ægisson fjallar hér um sigurhátíð lífsins yfir dauðanum. Landið hinumegin Við tökum við ávísunum www.spar.is Spariskírteini ríkissjóðs verða greidd út 1. apríl næstkomandi. Þá er gott að vita af fjölbreyttum ávöxtunarleiðum Sparisjóðsins. Hvort sem þú hyggst ávaxta sparifé þitt til lengri eða skemmri tíma býður Sparisjóðurinn ávöxtun sem er með því besta sem gerist á íslenskum fjármagnsmarkaði. Hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar. Komdu í Sparisjóðinn með ávísunina frá Seðlabankanum. Tryggðu þér betri ávöxtun ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S S PA 1 71 88 03 /2 00 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.