Morgunblaðið - 31.03.2002, Síða 34
MINNINGAR
34 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Jóhanna Álfheið-ur Steingríms-
dóttir fæddist í Nesi í
Aðaldal 20. ágúst
1920. Hún lést að-
faranótt mánudags-
ins 25. mars á heimili
dóttur sinnar í
Reykjavík. Jóhanna
Álfheiður var dóttir
hjónanna Steingríms
Sigurgeirs Baldvins-
sonar, bónda og
skálds í Nesi, f. 29.
okt. 1893 í Nesi, d. 4.
júlí 1968, og Sigríðar
Vilhelmínu Péturs-
dóttur, f. 13. mars 1899 á Sýreks-
stöðum í Vopnafirði, d. 1. feb.
1984. Jóhanna var elst fjögurra
systkina, en yngri systkinin eru
Pétur, f. 14. des. 1929, og tvíbura-
systurnar Arndís Björg og Krist-
björg Freydís, f. 21. sept. 1931.
Hinn 4. maí 1940 giftist Jóhanna
Hermóði Guðmundssyni, f. 3. maí
1915, d. 8. mars 1977, syni
hjónanna Guðmundar Friðjóns-
sonar og Guðrúnar Lilju Oddsdótt-
ur á Sandi. Börn Jóhönnu og Her-
móðs eru: 1) Völundur Þorsteinn,
Áslaugu Önnu konu hans. Árið
1962 hófu Jóhanna og Hermóður
rekstur veiðiheimilis í íbúðarhúsi
sínu, en byggðu síðan veiðihús
1967 sem þau ráku í sameiningu
og stýrði Jóhanna rekstri þess þar
til í sumarlok 2000, en vorið 2001
fluttist Jóhanna til Húsavíkur.
Jóhanna og Hermóður unnu
bæði ötullega að margvíslegum fé-
lagsmálum og stóðu í fylkingar-
brjósti fyrir verndun Laxár í svo-
kallaðri Laxárdeilu. Jóhanna var
um árabil formaður Kvenfélags
Nessóknar og Kvenfélagasam-
bands Suður-Þingeyinga og stóð
fyrir stofnun kvennakórsins Lis-
sýjar. Hún stofnaði fyrir nokkrum
árum vísnafélagið Kveðanda
ásamt fleiri hagyrðingum í Suður-
Þingeyjarsýslu, var fyrsti formað-
ur þess og í stjórn til dánardæg-
urs. Hún sendi frá sér 14 bækur
bæði fyrir börn og fullorðna, auk
þess ritstýrði hún nokkrum bókum
og tók virkan þátt í útgáfu bók-
anna Byggðir og bú, byggðasögu
Suður-Þingeyjarsýslu. Hún vann
auk þess fjölmarga þætti fyrir Rík-
isútvarpið, má þar nefna hina vin-
sælu þætti Á bökkum Laxár sem
seinna birtust í bók. Árið 1992 var
Jóhanna sæmd Hinni íslensku fál-
korðu fyrir störf að félags- og
menningarmálum.
Útför Jóhönnu var gerð frá Nes-
kirkju í Aðaldal 30. mars.
f. 8. nóv. 1940, kvænt-
ur Höllu Lovísu Lofts-
dóttur; börn þeirra
eru Steinunn Birna,
Viðar og Völundur
Snær. 2) Sigríður
Ragnhildur, f. 10. des.
1942, gift Stefáni
Vigni Skaftasyni,
börn þeirra eru Stein-
grímur Sigurgeir,
Vigdís Álfheiður og
Skafti Sæmundur. 3)
Hildur, f. 25. júlí 1950,
gift Jafet Sigurði
Ólafssyni, börn þeirra
eru Jóhanna Sigur-
borg, Ari Hermóður og Sigríður
Þóra. 4) Hilmar, f. 30. ágúst 1953,
d. 1. júní 1999, kvæntur Áslaugu
Önnu Jónsdóttur, börn þeirra eru
Þórólfur Baldvin (látinn), Hermóð-
ur Jón, Árni Pétur og Ester Ósk.
Barnabarnabörn Jóhönnu eru
þrjú, Jóhann Ágúst, Vilberg Lindi
og Stefán Þór.
Þau hjónin reistu nýbýlið Árnes
1945 þar sem þau stunduðu bland-
aðan búskap allt þar til Hermóður
lést en eftir það bjó Jóhanna fé-
lagsbúi með Hilmari syni sínum og
Fundum okkar Jóhönnu bar fyrst
saman sumarið 1973, ég var þá
mættur á Aðaldalsflugvelli og hún
kom til að sækja mig í vinnu-
mennskuna. Ég sá strax að þetta
var röggsöm kona og hún ók rosa-
lega hratt. Mig grunaði ekki þá að
þetta yrði síðar tengdamóðir mín og
afar góður vinur.
Hermóður og Jóhanna höfðu
byggt upp myndarbú í Árnesi, þar
voru löngum einn og tveir vinnu-
menn og alltaf var verið að byggja
og breyta.
Ef það voru ekki gripahúsin eða
íbúðarhúsið, þá var það veiðiheimilið
sem Jóhanna stjórnaði af miklum
skörungsskap í tugi ára. Fyrst
höfðu veiðimenn gist í íbúðarhúsinu,
en síðar var byggt stórt og mynd-
arlegt veiðihús sem sífellt var verið
að lagfæra að kröfum tímans. Jó-
hanna og Hermóður voru afar sam-
rýnd hjón, þótt ólík væru, hann var
formaður í mörgum samtökum,
stýrði meðal annars Búnaðarsam-
bandi Suður-Þingeyinga sem var
nánast eins og stórfyrirtæki á þeim
tíma, með vinnuvélar og verkamenn
á sínum snærum. Laxárdeilan hafði
tekið drjúgan tíma Árneshjóna og
Hermóður var langdvölum að heim-
an, Jóhanna stýrði öllu heima fyrir
með styrkri hendi og trúlega hafa
fáar ákvarðanir verið teknar af
hálfu bænda í Laxárdeilunni nema
bera þær undir hana. Það var ekki
lítið afrek að vinna fullnaðarsigur í
þeirri baráttu með alla ríkisstjórn-
ina og fleiri ráðamenn á móti sér.
Þessi deila markaði upphafið að um-
hverfisvernd á Íslandi og veit ég að
Jóhanna mat mikils góðan stuðning
Morgunblaðsins á þessum tíma, en
það þótti tíðindum sæta að blaðið
skyldi fara gegn stefnu ríkisstjórn-
arinnar með forsætisráðherrann úr
röðum Sjálfstæðisflokksins. Nú eru
tímarnir beyttir.
Jóhanna í Árnesi minnti mig oft á
kjarnbestu lýsingar af miklum
atorkukonum í Íslendingasögunum.
Hún var fluggreind, orðheppin, fær
í allan sjó og ekkert mál var svo erf-
itt að hún teldi tormerki á að koma
því í höfn.
Jóhanna var stórhuga, heimili
hennar og búskapur báru þess
merki. Hún var fagurkeri sem hafði
yndi af því að safna listaverkum og
fallegum hlutum í kringum sig og
rækta sinn stóra og fjölskrúðuga
blómagarð.
Það var Jóhönnu mikið áfall þeg-
ar Hermóður féll frá fyrir um 25 ár-
um, en hún lét það ekki beygja sig.
Hilmar sonur hennar og Áslaug
kona hans voru þá komin inn í bú-
skapinn og í sameiningu héldu þau
honum áfram af miklum dugnaði. Á
erfiðum stundum sást glöggt hve
Jóhanna var sterk kona og viljaföst.
Við Hildur og börnin okkar áttum
ætíð athvarf á heimili Jóhönnu á
sumrum og okkar hús stóð henni
opið þegar hún vildi á vetrum. Þetta
voru ánægjulegar samverustundir,
Jóhanna var hafsjór af fróðleik og
gat endalaust þulið vísur og ljóð.
Sjálf var hún góður hagyrðingur
eins og hún átti kyn til og var snögg
að setja saman vísur. Skákmaður
var hún góður og marga baráttuna
háðum við á taflborðinu og mátti
ekki milli sjá hvoru líkaði verr að
bíða lægri hlut. Rúmri viku áður en
hún lést tókum við okkar síðustu
skákir.
Við vorum ekki alltaf á sama máli
í landsmálunum og það gátu orðið
nokkuð fjörug skoðanaskipti en Jó-
hanna var alltaf samkvæm sjálfri
sér. Hún vildi hag landsbyggðarinn-
ar sem mestan og fannst ótækt hve
allt sogaðist á mölina.
Við Hildur og börn okkar ferð-
uðumst töluvert með Jóhönnu, hún
var fróð um landið okkar og hafði
gaman af því að koma til framandi
landa. Einna minnisstæðust er ferð
sem við fórum 1981, þegar ekið var
suður alla Evrópu til gömlu Júgó-
slavíu, síðan til Ítalíu, Sviss, norður í
gegnum Þýskaland, Holland og alla
leið til Danmerkur. Í fyrravor fórum
við ásamt fleirum úr fjölskyldunni í
ógleymanlega ferð til Parísar. Enn
kom í ljós að Jóhanna var sannur
heimsborgari, víðlesin og skemmti-
legur ferðafélagi.
Jóhanna dvaldi á heimili okkar
Hildar síðustu vikurnar og vildi fá
að kveðja þar. Enn kom í ljós
hversu sterk kona hún var, hugur-
inn var skýr og viljinn staðfastur
fram til hinstu stundar. Hún æðr-
aðist aldrei og kvaddi með reisn.
Nú þegar leiðir skilur er efst í
huga þakklæti, þakklæti fyrir hjálp-
semina, þakklæti fyrir aðstoðina við
uppeldið á börnum okkar og þakk-
læti fyrir allar góðu samverustund-
irnar sem við munum geyma í minn-
ingunni um ókomna framtíð.
Megi góður Guð varðveita Jó-
hönnu í Árnesi.
Jafet S. Ólafsson.
Hún var fædd í lágreistum torfbæ
í fallegasta dal á Íslandi. Frá Laxá
berst niðurinn heim að bæ og undan
norðanáhlaupi syngur í strengjum
árinnar. Hún er eina barn foreldra
sinna til níu ára aldurs að bróðir og
síðan tvíburasystur bættust í hóp-
inn. Foreldrarnir bæði skáldmælt í
betra lagi og bernskuheimilið ómaði
af kvæðum og lausavísum. Bernsku-
heimilið mótaði Jóhönnu og bar hún
það í hjarta sínu alla ævi. Bernsku-
árin liðu við leik og störf og Jóhanna
kölluð til aðstoðar við öll almenn
störf þeirra tíma, þar sem nýtni og
sparnaður var nauðsyn. Aðeins tíu
ára að aldri var hún að fikta með
stangarprik á bakka Laxár og setti
þar í 25 punda lax sem pabbi hennar
landaði. Jóhanna var alla tíð áræðin
og skjótráð. Hún vissi vel hvað hún
vildi, ástin réð lífsbreidd hennar og
ung varð hún heitbundin Hermóði
Guðmundssyni, ung gengu þau út í
lífið full af mikilli starfsorku sem
braust út í óvenjulegri fram-
kvæmdagleði. Þau stofnuðu nýbýlið
Árnes á hálfu Nesi sem þau byggðu
upp og gerðu að stórbýli. Bæði tóku
mikinn þátt í félagsmálum sveitar
sinnar og síðar héraðsins alls. Þang-
að áttu margir erindi og um langan
aldur stóð heimili þeirra um þjóð-
braut þvera. Í öllum störfum Her-
móðs stóð hún sem klettur að baki
manni sínum og voru þau mjög náin
og samhent í því sem öllu öðru alla
tíð. Jóhanna valdi sér þetta hlut-
skipti ung að árum sem hún lýsti
reyndar svo vel í kvæðinu Rímd-
raugur sem hún yrkir aðeins 25 ára
gömul. Þar lýsir hún löngun sinni til
að skrifa, en dagurinn endist aldrei.
Í fjórða erindi kvæðisins segir:
Veistu ekki að börnum brauð þarf að gefa,
bæta af þeim flíkur og grát þeirra sefa,
mjólkina gera, úr mjölinu baka,
mala þarf kaffi og þvottinn að taka,
en draugurinn glottandi í dyrnum segir:
Dragðu fram penna og blað.
Og í lokaerindinu:
Um lánættið þrái ég næðis að njóta,
á nóttunni stanslaust um huga minn þjóta
í draumi, eða vöku þau verk, sem að kalla,
valið er aðeins að standa …, eða falla …
Í draumi og vöku draugurinn segir:
Dragðu fram penna og blað.
Gott var að leita í smiðju Jóhönnu
þegar á þurfti að halda með ýmsan
fróðleik og skemmtiefni. Hún var
mjög ritfær, átti auðvelt með að
semja og setja fram skoðanir sínar í
rituðu máli. Í amstri dagsins framan
af ævi gafst ekki mikill tími til rit-
starfa en þegar fór að hægjast um
kom vel í ljós ritsnilld hennar og
frásagnargleði. Fyrst í gerð vin-
sælla útvarpsþátta, Á bökkum Lax-
ár, og síðan í ýmsum skáldskap, en
þekktust er hún fyrir barnabækur
sínar, þulur og kvæði. Fyrir Jó-
hönnu var hagur og velferð fjöl-
skyldunnar ævinlega í fyrirrúmi,
þess naut ég sem tengdasonur
hennar. Í fjörutíu ár stóðu kynni
okkar, fyrst sem heimilismaður, en
lengst af í nánu sambýli. Þegar ég
kom á heimilið stóð Jóhanna í blóma
lífsins, full starfsorku en mörkuð af
afleiðingum langvarandi veikinda,
hafði fengið lömunarveiki um þrí-
tugt og verið rúmföst í heilt ár.
Að leiðarlokum er ljúft að geta
sagt, gott var að eiga þig að sem vin
og ráðgjafa, far þú í friði Drottins,
haf þökk fyrir allt og allt.
Stefán V. Skaftason.
Hún amma er dáin hljómaði í sím-
anum eldsnemma á mánudagsmorg-
JÓHANNA Á. STEIN-
GRÍMSDÓTTIR
!"## #$ % $$
#$ % $$
&' (%#)"#*$$
+, &-. %
(%#)"#* &$
/
!"
!""
# $% &% ' & ' &(
) $% ( )* &+&%
& ) $% &% , -() . &(
- -. ()- - -. /
!"
#
$
%&&'
!"#!$ %#&&$%
'&(') %&*&
+! (! $%
* & , &
! " ! #"!$% &
"!''"
!
!''!
() " * "''
+'" , !! ''
"' " ! *!)' !
$'$)'
!"##
$
%&
!
!'##
! "
# $ % &'
( )
% ()
* )
+ , )