Morgunblaðið - 31.03.2002, Page 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Lilja KnudsenLárusdóttir
fæddist í Stykkis-
hólmi 27. júlí 1918.
Hún andaðist á
Sjúkrahúsi Akraness
hinn 22. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Lárus
Michael Knudsen, f.
30. júlí 1871, d. 19.
júní 1940, og Ragn-
heiður Einarsdóttir,
f. 11. ágúst 1883, d.
16. jan. 1966. Bróðir
Lilju var Knútur
Lárus Knudsen, f.
24. júlí 1915, d. 14. júní 1988. Lilja
átti einnig fjögur hálfsystkini.
Barn Lilju og Erlends Jónssonar
var Ásgeir B. Erlendsson, f. 17.
Börn þeira eru: a) Heiðar, f. 22.
sept. 1957, b) Guðjón Magni, f. 5.
apríl 1960, c) Brynjar, f. 23. ágúst
1968, d) Halla, f. 27. okt. 1971. 2)
Guðný, f. 2. feb. 1943, gift Halldóri
Kristjáni Kristjánssyni, f. 7. júlí
1936. Börn þeirra eru: a) Guðjón
Júlíus, f. 3. júlí 1963, b) Sigríður
Kristín, f. 21. sept. 1966, c) Krist-
jana, f. 14. sept. 1967, e) Sigurjón
Gunnar, f. 12. jan. 1970, f) Anna
Ágústa, f. 18. maí 1972, g) Vil-
mundur Rúnar, f. 3. okt. 1976, 3)
Ragnar, f. 6. apríl 1945, kvæntur
Maríu Antonsdóttir, f. 24. ágúst
1947, börn þeirra eru: a) Lilja, f. 5.
okt. 1963, b) Jóhann Anton, f. 19.
júlí 1970.
Lilja og Guðjón bjuggu allan
sinn búskap á Hofsvallagötu 17 í
Reykjavík. Lilja fluttist síðan á
Hellissand til Guðnýjar og Hall-
dórs. Síðustu æviárin bjó hún í
Borgarnesi hjá Guðnýju og Hall-
dóri.
Útför Lilju fór fram frá Borg-
arneskirkju 30. mars.
feb. 1937, d. 14. ágúst
1995. Börn hans eru:
a) Stefanía Ása, f. 24.
ágúst 1958. b) Kristín,
f. 28. apríl 1962. c)
Sigurpáll Daníel, f. 24.
september 1963. d)
Kristrún Sædís, f. 24.
apríl 1966. e) Svein-
björg, f. 27. ágúst
1968.
Hinn 3. október
1945 giftist Lilja Guð-
jóni Júlíusi Hinriki Jó-
hannessyni, f. 12. júlí
1902, d. 7. des. 1969,
frá Súlunesi í Mela-
sveit. Þau eignuðust saman þrjú
börn. Þau eru: 1) Hólmfríður Jó-
hanna, f. 4. september 1939, gift
Jón Guðlaugssyni, f. 8. feb. 1934.
Elsku mamma, ég kveð þig með
söknuði. Ég þakka þér fyrir þær
stundir sem við áttu saman í gegn-
um tíðina. Þær urðu fleiri með ár-
unum sem liðu. Ég veit að nú líður
þér vel hjá ömmu, pabba og Ásgeiri
bróður. Ég og Dóri höfðum gaman
af því að hafa þig hjá okkur, þú
varst svo glöð en hafðir samt þitt
skap, það gat neistað stundum á
milli okkar en þá kom Dóri og hann
stóð með þér. Við þökkum þér fyrir
hvað þú varst börnunum okkar góð.
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefur villst af leið.
Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt,
sem brosir öllum mót
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
Ó, faðir, gjör mig sigursálm,
eitt signað trúarlag,
sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt í dag.
(Þýð. M. Joch.)
Með þessum orðum vil ég kveðja
þig, elsku mamma mín. Dóri biður
að heilsa þér. Megi Guð og hans
englar vaka yfir þér.
Guð blessi minninguna um þig.
Guðný.
Elsku amma, nú ertu farin frá
mér en við hittumst nú aftur.
Það var gaman að vera í návist
þinni, þú varst alltaf svo hress og
það sem datt upp úr þér kom manni
oft til að hlæja. Ég naut þeirra for-
réttinda að geta hitt þig á hverjum
degi frá því að þú fluttir með
mömmu og pabba í Borgarnes.
Fyrst um sinn áttum við heima í
sama húsi en síðan fluttuð þið ykkur
um set í Garðavíkina en þangað kom
ég á hverjum degi með Helenu Rós í
pössun og þá hittumst við. Ég á eft-
ir að sakna þín mjög og kveð þig
með tárum.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku amma, takk fyrir allt sem
þú kenndir mér. Ég veit að ég mun
alltaf fá hlýju í hjartað þegar ég
minnist elsku, elsku ömmu minnar.
Guð geymi þig.
Þín ömmustelpa,
Anna Ágústa.
Elsku Lilja amma mín. Nú ertu
farin frá mér, ég sakna þín svo mik-
ið, þú varst svo góð við mig og börn-
in mín. Við áttum góðar stundir
saman á Hellissandi og í Borgar-
nesi. Það var alltaf gott að koma
suður til þín. Þegar maður kom í
bæinn passaðir þú vel upp á að við
værum hrein. Ég kom til þín hrein
og fín en þú burstaðir betur yfir
skóna og pressaðir fötin því að þú
varst svo góð amma og vandvirk.
Svo fluttir þú til mömmu og pabba
vestur á Sand. Þá vorum við meira
saman. Svo flutti ég frá Sandi í
Borgarnes. Þú, mamma og pabbi
komuð í Nesið nokkrum árum
seinna og þar áttum við góðan tíma
saman. Þú varst oft hjá mér þegar
mamma og pabbi voru ekki heima,
það var gaman. Þú varst alltaf að
sauma í punthandklæði og ég sat
hjá þér með prjónana mína, þú
sagðist ekki kunna að prjóna og
vildir ekki læra það. Við áttum góð-
an tíma saman. Börnin mín voru
mjög heppin að fá að kynnast lang-
ömmu sinni. Þau hittu þig oft enda
með annan fótinn hjá afa og ömmu
og sakna þín nú og eru mikið að spá
í hvar þú sért. Ég sagði þeim að
Guð passaði þig fyrir okkur. Svo
hittumst við seinna. Það finnst þeim
skrítið. Ég veit að Guðjón afi tekur
á móti þér og passar þig þangað til
við hittumst, elsku amma mín.
Megi Guð styrkja mömmu, Ragga
og Hönnu og fjölskyldur þeirra í
þeirra miklu sorg. Elsku amma mín,
nú bið ég góðan guð að geyma þig
fyrir okkur öll. Pétur bangsinn þinn
er með þér, annað var ekki til um-
ræðu, elsku amma.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Þín ömmustelpa,
Sigríður Kristín Halldórsdóttir.
Elsku Lilja langamma. Ég sakna
þín mjög, þú varst mér svo sæt og
góð. Ég geymi þig í hjarta mínu og
hugsa vel til þín.
Ég langömmu á, sem létt er í lund,
hún leikur á gítar hverja einustu stund.
Í sorg og í gleði hún leikur sitt lag,
jafnt sumar sem vetur, jafnt nótt sem dag.
Dag einn er kviknað í húsinu var
og brunaliðsbíllinn kom æðandi að,
eldurinn logaði um glugga og göng,
sat sú gamla uppi á þaki og spilaði og söng.
Góða nótt, elsku langamma.
Þín langömmustelpa,
Helena Rós.
Elsku langamma mín. Nú er jarð-
vist þinni lokið og þú aftur komin til
afa eftir langan aðskilað.
Elsku langamma, eftir 14 árin
mín á ég svo margar minningar um
þig.
Ég man nú allra best eftir því
þegar þú varst að sauma í og saum-
aðir bara alveg óvart myndina í
náttkjólinn þinn. Þá var bara að
klippa eða rekja upp. En það kom
nú bara stundum gat á hann og þú
skildir ekki neitt í því. Það sem þér
datt stundum í hug að segja, það
var alltaf hægt að hlæja að því. Allt-
af gastu gefið manni góðan dag. Það
var alltaf svo gaman að hlusta á þig
skamma Dóra afa fyrir það að
hrekkja þig, en hann kannaðist ekki
við neitt.
Ég man hvað það var gaman að
koma til þín, Dóra afa og Guðnýjar
ömmu eftir að hafa setið í þrjá
klukkutíma í bíl. Þú varst eins og
engill þegar ég kom til þín á sjúkra-
húsið daginn áður en þú kvaddir.
Það er svo erfitt núna að labba
inn í eldhús og sjá stólinn þinn auð-
an og inn í herberginu er engin
langamma heldur. Ég fer oft inn í
herbergið þitt bara til að gá hvort
þú sért ekki þar, mér finnst þetta
svo skrítið og er enn að átta mig á
þessu. Ég veit að þú ert farin og
komin í annan heim.
Ég vona að þú hafir hitt langafa
og sért hamingjusöm með honum.
Ég sakna þín alveg óskaplega
mikið, elsku langamma.
Þín langömmustelpa,
Ingibjört.
Elsku langamma. Ég man hvað
það var gaman að koma til þín, þú
varst alltaf svo hress og kát og það
var gaman að gista hjá þér meðan
Guðný amma og Dóri afi þurftu að
fara í burtu. Þú varst alltaf svo glöð
þegar þau komu heim og færðu þér
gjöf, það þurfti ekki mikið til að
gleðja þig. En ég minnist líka þess
hvað þú sagðir margt fyndið og allt
var svo skemmtilegt sem þú gerðir.
Eins og þegar þú varst að sauma í
og saumaðir kannski í blússuna
þína, þá var það ekki mikið mál, þú
klipptir bara á spottann eða gat í
blússuna til að losa þetta. Það var
auðvelt að fyrirgefa þér er þú kall-
aðir mig Siggu því oft hélstu að ég
væri mamma. Þú komst oft heim til
mín meðan þú hafðir heilsu til og
gistir þá oft þótt ekki væri langt á
milli hér í Borgarnesi. Þér fannst
alltaf gott að vera hjá okkur. Þú og
mamma voruð oft að stríða hvor
annarri og svo fóruð þið að hlæja.
Það var gaman að hafa þig hjá okk-
ur því að þú varst alltaf svo glöð og
kát. Ég á eftir að sakna þín og finn-
ast það skrítið að koma til ömmu og
afa og þú ert ekki í eldhúsinu eða
herbergi en við eigum eftir að hitt-
ast aftur. Hafðu það gott á meðan,
elsku langamma mín.
Þín langömmustelpa,
Guðný Dóra Heiðarsdóttir.
Elsku langamma. Nú er Guð að
passa þig fyrir okkur. Við söknum
þín mikið, það er svo skrítið að
koma til ömmu og afa og þú ert ekki
þar. Við biðjum Guð að geyma þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson.)
Þín langömmubörn,
Gunnar Bjarni Högnason,
Agnes Rut Högnadóttir,
Dagný Hrönn Högnadóttir.
LILJA KNUDSEN
LÁRUSDÓTTIR
!! " #$% % &
!!
#'& $( )* "&' !!
+ +
! "
# $!
" %&'(&
! " ) "
*
+&& !"
,-./"
" & 0$ ,
)$/
& , 1 "
" 00$
!!
" # !! $%& ' #
#( ##$
!
&) *
##$ +#(
&#!
# !!
% ##$ %,$ !
&)# !!
, ,- (, , ,- ($ (##!
!
!!" # $
% &
!!" '! !&( )! %**
+ +, &"&+ + +, -
!
"
" "#
!"#$
%!&'#( )"!! *+
+"$
* *,$* * *,(