Morgunblaðið - 31.03.2002, Qupperneq 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 49
Tölvunámskeið
Word 1 5.4. - 6.4. 8:30 - 16:30 20
Windows 8.4. - 11.4. 8:30 - 12:00 20
Front Page 2 8.4. - 11.4. 13:00 - 16:30 20
AutoCad 2 12.4. - 13.4. 8:30 - 16:30 20
Word 2 12.4. - 13.4. 8:30 - 16:30 20
Excel 1 15.4. - 18.4. 8:30 - 12:00 20
Word 3 15.4. - 18.4. 13:00 - 16:30 20
Access 3 15.4. - 18.4. 17:30 - 21:00 20
Excel 2 22.4. - 24.4. 13:00 - 16:30 15
Power Point 2 22.4. - 24.4. 17:30 - 21:00 15
Internet 22.4. - 23.4. 8:30 - 12:00 10
Vélritun/fingrasetning Hringið til að fá nánari upplýsingar 20
Fagnámskeið
Skjámyndir 1 4.4. - 6.4. 8:30 - 18:00 40
Skynjaratækni 2 4.4. - 6.4. 8:30 - 18:00 40
ISDN samnet 11.4. - 13.4. 8:30 - 18:00 40
Rafeindastýringar 11.4. - 13.4. 8:30 - 18:00 40
Loftnetskerfi 2 18.4. - 20.4. 8:30 - 18:00 40
Raflagnatækni 1 18.4. - 20.4. 8:30 - 18:00 40
LÍR-ÖS/öryggisstj. rafverktaka 19.4. - 20.4. 15
Námsk. fyrir skoðunarmenn rafv. 20.4. - 20.4. 8:30 - 17:00 10
Gagnaflutningur 25.4. - 27.4. 8:30 - 18:00 40
Reglunartækni 25.4. - 27.4. 8:30 - 18:00 40
Reglugerð og rafdreifikerfi 3 26.4. - 28.4. 8:30 - 18:00 40
Dags. Tími Lengd
Námskeið í apríl
Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · Fax 581 2420
skoli@raf.is · www.raf.is
Nánari upplýsingar og skráning í síma 568 5010
Gæði, úrval og gott verð!
• Fást með loki eða öryggishlíf
• Fáanlegir með vatns- og loftnuddkerfum
• Margir litir, 10 gerðir sem rúma 4-12 manns
• Veitum ráðgjöf um niðursetningu og frágang
• Fáanlegur rafhitaður
Framleiðum einnig hornbaðker úr akrýli.
Komið og skoðið baðkerin og pottana uppsetta í sýningarsal
okkar, eða hringið og fáið sendan litprentaðan bækling og
verðlista. TREFJAR
Hjallahrauni 2, 220 Hafnarfjörður.
Sími: 555 1027 Fax: 565 2227
Netfang: pottar@trefjar.is
Heimasíða: www.trefjar.is
Verð frá aðeins kr. 94.860,-
Heitirpottar
Handavinna, viðtöl,
páskamaturinn o.fl.
Áskriftarsími 551 7044.
Taktu
Húsfreyjuna
með í páskafríið
ÖFLUGT menningarlíf er ein frum-
forsenda þess að landsbyggðin geti
haldið sínum hlut í þeirri óhjákvæmi-
legu samkeppni sem ríkir milli land-
svæða um fólk og fyrirtæki. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í menn-
ingarstefnu Dalvíkurbyggðar sem
bæjarstjórn samþykkti á dögunum.
Menningarstefnan er staðfesting
og viðurkenning bæjarstjórnar á mik-
ilvægi og gildi menningarlífs í sveitar-
félaginu, en bæjarstjórn vill stuðla að
öflugu og frjóu lista- og menningarlífi
í Dalvíkurbyggð í samstarfi við aðra
opinbera aðila, frjáls félagasamtök og
einstaklinga. Menning og listir auðgi
líf einstaklinga og hafi þýðingu fyrir
velferð þeirra og samfélagsins.
„Markmið menningarstefnu Dalvík-
urbyggðar er því að skapa sem best
skilyrði fyrir varðveislu, ræktun og
miðlun hins sameiginlega menningar-
lífs. Ennfremur að búa í haginn fyrir
skapandi, lifandi listastarfsemi og
stuðla að sem almennastri þátttöku
íbúanna á því sviði,“ segir í menning-
arstefnunni.
Þá er talið mikilvægt að menning-
arstofnanir í byggðarlaginu auki sam-
starf sín í milli og eins að stuðlað verði
að samstarfi við lista- og menningar-
stofnanir í nágrannabyggðalögum
Dalvíkurbyggðar. Loks vill bæjar-
stjórnin að þær lista- og menningar-
stofnanir sem hún rekur njóti eins
mikils sjálfstæðis í störfum sínum og
kostur er, innan starfsáætlana og
fjárhagsramma sem þeim er settur.
Menningarstefna sam-
þykkt í Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð. Morgunblaðið.
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Dalvík-
urbyggðar samþykkti á fundi sínum í
vikunni að mæla með því að Íris Ólöf
Sigurjónsdóttir, Reykjavík, verði
ráðinn starfsmaður Byggðastafnsins
að Hvoli frá og með 1. júní næstkom-
andi.
Íris var valin úr hópi 5 umsækj-
enda en þeir voru auk hennar; Dagur
Óskarsson, Dalvík, Friðrik Arnars-
son, Dalvík, Hulda Sigurdís Þráins-
dóttir, Reykjavík, og Örvar B.
Eiríksson, Reykjavík.
Byggðasafnið á Hvoli
Mælt með
Írisi Ólöfu
Dalvíkurbyggð. Morgunblaðið.
BÚSTÓLPI ehf. á Akureyri hefur
gert samstarfssamning við fyrir-
tækið Údda ehf. á Húsavík, sem að
standa fyrrum starfsmenn Bústólpa
á Húsavík, um sölu fóðurs, áburðar
og sáðvöru frá Bústólpa í Þingeyj-
arsýslum en með samningnum er
áfram tryggt að þingeyskir bændur
geta sótt þessa þjónustu til Húsa-
víkur.
Lengst af annaðist Kaupfélag
Þingeyinga sölu fóðurvara í Þing-
eyjarsýslum, en eftir að það hætti
rekstri færðist þjónustan yfir til
Bústólpa. Með samningi sem Bú-
stólpi gerði við starfsmenn sína á
Húsavík verður sú breyting frá og
með 1. apríl að fyrirtæki í þeirra
eigu annast sölu vara frá Bústólpa.
Í frétt frá Bústólpa er haft eftir
Ólafi Jónssyni framkvæmdastjóra
að samstarfssamningurinn sé mik-
ilvægur í því að viðhalda og efla þá
þjónstu sem félagið vilji veita
bændum í Þingeyjarsýslu.
Bústólpi framleiðir fóður fyrir
nautgripi, sauðfé, svín, hross, varp-
og alifugla auk þess sem á boð-
stólum er úrval af áburði, sáðvöru
og öðrum vörum tengdum fóðrun
og jarðrækt. Áhersla hefur verið
lögð á vöruþróun með það að mark-
miði að bæta gæði framleiðslunnar.
Einnig hefur aukinn áhersla verið
lögð á að fræða bændur um fram-
leiðsluvörur Bústólpa og fóðrun al-
mennt.
Ólafur Jónsson frá Bústólpa og Trausti Aðalsteinsson og Axel Reyn-
isson frá Údda sömdu um sölu fóðurs, áburðar og sáðvöru.
Bústólpi
semur við Údda
á Húsavík