Morgunblaðið - 31.03.2002, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 51
DAGBÓK
snyrtivörur
Fylgstu með
• Gloss fyrir augu • Varaförðunarbox
• Húðgljái og nýjungar í húðmeðferð.
fæst í betri apótekum.
Handskorin húsgögn í miklu úrvali
Mikið úrval gjafavöru
Glæsilegir ekta pelsar
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Kæru Kanaríeyjafarar!
Við óskum ykkur gleðilegra páska. Þökkum viðskiptin í vetur.
Sjáumst hress næsta vetur í stærri og betri verslunum.
Kær kveðja,
Photo Harry og félagar,
Gran Canari
Söngnámskeið
fyrir unga sem aldna, laglausa sem lagvísa
Fjögurra vikna vornámskeið
hefst 7. apríl nk.
Upplýsingar og skráning í símum
699 2676 og 426 8306
Söngsetur Estherar Helgu,
Bolholti 4, Reykjavík.
Enskukennsla
hjá breskum kennurum með próf frá
Cambridge University
sími 588 7767 - tcosshall@hotmail.com
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Það er fátt sem getur komið
þér úr jafnvægi. Þú ert
því eftirsóttur til forystu-
starfa og allir vilja hafa
þig í sínu liði.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er engin ástæða að
draga sig í hlé þótt hug-
myndir þínar slái ekki í
gegn. Sýndu þolinmæði og
fylgdu þeim eftir í róleg-
heitunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Kipptu þér ekki upp við
það, þótt þú fáir óvenjuleg-
ar fréttir í dag. Haltu þínu
striki eins og ekkert hafi í
skorist.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur mikla þörf fyrir að
sýna öðrum vináttu í dag.
Fólk sækist eftir að vera í
návist þinni og þú eignast
nýjan vin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert upp á kant við allt og
alla þessa dagana og þarft
að forðast þær aðstæður
sem koma þér í ham. Taktu
því rólega þar til þetta
gengur yfir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hamingjan getur verið
hverful en hún lifir ekki af
sjálfu sér heldur þarf að
sinna henni á hverjum degi
og glæða hana nýju lífi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Skjótt skipast veður í lofti í
fjármálunum svo þú skalt
fara þér varlega og velta
fyrir þér öllum möguleikum
því þá er þér engin hætta
búin.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú færð góðar fréttir í dag.
Þær koma þér þægilega á
óvart og koma þegar þú
varst búinn að gefa upp alla
von.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert í betra formi en oft
áður og skalt því nota tæki-
færið og gera áætlanir fyrir
framtíðina. Þú ert góðum
gáfum gæddur og átt að
nota þær.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tækifærið bíður þín handan
hornsins. Undirbúðu þig vel
svo ekkert fari nú úrskeiðis,
þegar á hólminn er komið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er frábær dagur til að
lyft sér upp og hitta vinina.
Mundu að góð vinátta er
gulli betri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú geislar af hamingju og
hefur jákvæð áhrif á alla
sem þú umgengst. Allir hafa
gott af tilbreytingu svo
skelltu þér út á lífið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Komdu til dyranna eins og
þú ert klæddur, en reyndu
ekki að slá ryki í augu ann-
arra. Þú skalt hlusta á aðra
en halda áliti þínu fyrir þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 1. apríl, er sjötugur Arn-
ar Sigurðsson, Skipasundi
3, Reykjavík. Eiginkona
hans er Elsý Emilsdóttir.
Þau eru að heiman í dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 31.
mars, páskadag, verður
fimmtug Erla Sigtryggs-
dóttir, hjúkrunarfræðing-
ur, Baughúsum 42. Erla
verður á flakki á afmælis-
daginn með eiginmanni sín-
um, Gunnari Jónssyni, og
dætrum þeirra.
SVEIT undir merkjum
Mariu Teresu Lavazza vann
á Evrópumótinu í blönduð-
um flokki sem fram fór í
Belgíu um miðjan mánuð-
inn. Sveitin er að mestu
skipuð ítölskum stórstjörn-
um úr opna flokknum og
kvennaflokknum (Duboin,
Versace, Ferraro, Cuzzi,
Lavazza), ásamt austurrísku
landsliðskonunni Mariu Er-
hart. Lavazza-liðið vann lið
Stoppa frá Frakklandi í úr-
slitaleik með mikilum yfir-
burðum. Spilið að neðan
kom upp í þeirri viðureign:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ Á632
♥ 875
♦ D86
♣542
Vestur Austur
♠ D4 ♠ KG10987
♥ G1042 ♥ ÁK963
♦ G954 ♦ 3
♣873 ♣9
Suður
♠ 5
♥ D
♦ ÁK1072
♣ÁKDG106
Vestur Norður Austur Suður
Cuzzi Stetz Versace Serf
Pass Pass 1 spaði 2 grönd
Pass 3 tíglar 3 hjörtu 3 spaðar
4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 6 lauf
Pass Pass Pass
Slemman er gullfalleg og
ætti að vera auðveld við-
fangs fyrir reynda spilara.
En franski sagnhafinn tap-
aði spilinu; tók þrisvar
tromp og gaf slag á tígul til
hliðar við hjartaásinn. Þetta
er enn eitt „bókarspilið“ frá
Evrópumótinu. Vinnings-
leiðin er að taka aðeins
tromp tvisvar og kanna svo
tígulinn. Ef báðir fylgja
tvisvar er hægt að leggja
upp, en í þessu tilfelli sann-
ast að austur á einspil í báð-
um láglitum og þá má
trompa tígul í borði. Eftir
sagnir er nokkuð ljóst að
austur á a.m.k. tíu spil í
spaða og hjarta og því ætti
þessi spilamennska að liggja
nokkuð beint við.
Sigursveitin missti
slemmu á hinu borðinu, en
vann eigi að síður 10 IMPa á
spilinu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta
Þessar ungu stúlkur sem allar eru 12 ára söfnuðu sl. sumar
30.900 kr. og gáfu Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna. Þær heita, efri röð frá vinstri: Erla María Mark-
úsdóttir, Linda Ósk Hilmarsdóttir, Erla Rún Guðmunds-
dóttir og Margrét H. Jónsdóttir. Neðri röð frá vinstri, Anna
Birna Fossberg, Alexandra Sif Jónsdóttir og Sigríður
Dynja Guðlaugsdóttir. Á myndina vantar Höllu Þórey
Victorsdóttur og Þórunni Jónsdóttur.
LJÓÐABROT
HVAÐ MUNAR
Hvað munar mar um dropa?
Hvað munar sól um geisla?
Hvað munar grund um grasstrá
Og grænan skóg um laufblað?
Og sumar sjálft um blómknapp
Á sælum gróðrar tíma?
Hvað munar þig þá, meyja,
Þó miðla gerir kossum?
Því fjáðri muntu finnast
Þess fleiri sem þú gefur.
Steingrímur Thorsteinsson
1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. Bf4
c5 4. d5 Db6 5. Bc1 d6 6. f3
Da5+ 7. c3 Rf6 8. e4 g6 9.
Bd2 Bg7 10. c4 Dd8 11. Bc3
Ra6 12. Rd2 O-O 13. Re2
Hb8 14. Rg3 Rc7 15. Be2 b5
16. b3 h5 17. O-O b4 18. Bb2
Staðan kom upp á
Reykjavíkurmótinu sem
lauk fyrir skömmu í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Stefán
Kristjánsson (2.405) náði á
mótinu lokaáfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli og
var hársbreidd frá því að ná
fyrsta
áfanga sín-
um að stór-
meistara-
titli. Tafl-
mennska
hans var af-
ar vönduð
og laut hann
einungis
einu sinni í
lægra haldi.
Hér atti
hann kappi
við Guð-
mund Kjart-
ansson
(1.910).
18...Rfxd5!
19. Bxg7
Re3 20. Dc1
Rxf1 21. Rxh5!? Áhugaverð
tilraun hjá Guðmundi til að
hræra upp í taflinu. Svart-
ur reyndist þó vandanum
vaxinn. 21...Rxd2 22. Dxd2
gxh5 23. Dh6 f6 24. Dh8+
Kf7 25. Dh7 Re6 26. f4
Rxg7 27. Bxh5+ Ke6 28.
Bg4+ f5 29. exf5+ Kd7 30.
Dxg7 Hf6 og hvítur lagði
niður vopnin.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á netfang-
ið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík