Vísir - 10.05.1980, Síða 20
VISIR Laugardagur 10. mal 1980
hœ kiakkar!
20
Umsjdn: Anna
Brynjúlfsdóttir
í
snjó
Einu sinni var stelpa,
sem hét Ása. Hún var 8
ára gömul.Það var
kominn vetur og henni
fannst mjög gaman að
leika sér í snjónum.Einn
daginn spurði hún
mömmu sína: „Má ég
fara að leika mér úti, mig
langar til að byggja snó-
hús og snjókarl".
Þegar hún var búin að
byggja, fékk hún út í
snjóhúsið kerti, kökur og
heitt kakó. Brátt var
komið kvöld og hún fór
inn að borða og sofa.
Daginn eftir, þegar hún
vaknaði, var komin hláka
og ekkert eftir af snjó-
húsinu nema lítill
haugur, þar sem það
hafði verið.
Laufey, 1. E.S.
Krummi
í afmæli
Einu sinni var litill fugl,
sem átti hreiður. Einn
góðan veðurdag átti fugl-
inn afmæli. Hann bauð
Krumma. Þau fengu
súkkulaðiköku. Um
kvöldið var af mælið búið.
Þá fór hann að sofa.
Hildur Björg,
6 ára J.
STEINAKAST
Lárus litli er góður
strákur. Hann fer oft í
sendiferðir f yrir mömmu
sína. Einu sinn þegar
hann var búinn að vaska
upp fyrir mömmu sína
ætlaði hann í búðina að
kaupa í matinn, en þá
var hringt á dyrabjöll-
unni og það var Pétur,
vinur Lárusar, sem var
kominn
Lárus sagði eins og var,
að hann væri að fara út í
búð. Pétur bauðst til að
fara með og Lárus sam-
þykkti það.
En þegar þeir voru
komnir hálfa leið upp í
búð, hittu þeir stóra
stráka, sem voru að
henda smásteinum í
bílana.Lárus kallaði í þá
og sagði, að þeir rispuðu
bílana á þessu.Þá voru
strákarnir reiðir og hentu
steinunum í Lárus. Þegar
Pétur sá þetta, hljóp hann
heim og sagði mömmu
hans frá þessu. Þá kom
mamma hans og skamm-
aði stóru strákana. Éftir
það held ég að þeir pafi
ekki hent steinum í1 bíl-
ana.
Borghildur 3.E.R.
Sex ára
b ö r n i
Kársnes-
s k ó I a i
Kópavogi.
Börn að
I e i k á
skólalóð
Kársnes-
skóla.
Krakkar í Kársnesskóla i Kópavogi gefa arlega út vandað skólablað með
aðstoð kennara. Blaðið heitir Kári og i þvi eru frásagnir, ljóð, skrýtlur og
gátur. Hér á siðunni birtast nokkur sýnishorn af frásögnum og ljóðum nem-
enda.
Þú ljósið,
sem kviknar og
slökknar á vixl.
Birtan frá þér
lýsir mér.
Ef ég hefði ekki
haftþig
og þú, hefðir ekki
haft mig.
Það er svo leitt að
þú ert að slökkna.
Þú vindur sem blæst.
Þú vindur sem feykir
rusli sem ligguf
hér og þar.
Þvi ferðu ekki
að hátta.
Ég er orðinn leiður
áþér.
ísleifur 6.H.G.
í sveitinni hjá afa og ömmu
Það er að koma sumar.
Hafdís og Jonni hlakka
mikið til að geta farið í
sveitina til afa og ömmu,
því að þar er mikið af
dýrum.
Þar eru 12 hestar, 100
kindur, 10 hænur og 20
beljur.
Svo eru líka Sturla og
Frekja, en það eru kind-
urnar okkar.
Mín kind heitir Sturla,
en Jonna kind heitir
Frekja, af því að hún er
svo frek.
Mamma og pabbi verða
bara 2 daga, en það er allt
í lagi, svo koma pabbi og
mamma að sækja okkur
eftir 2 vikur.
Sigríður Lilja,
3.J.C.
Sigurvegarar
í sveitakeppni
grunnskólanna i
Reykjavík í skák
Nýlega er lokið
sveitakeppni grunn-
skólanna i Reykjavik i
skák. Alítamýrarskól-
inn, A sveit, bar sigur
úr býtum. Þetta er i
þriðja skipti i röð, sem
sveit Álftamýrarskóla
sigrar i keppninni.
Á myndinni eru talið
frá vinstri: Þorfinnur
Ómarsson, Páll Þór-
hallsson, Haraldur
Snjólfsson, Lárus Jó-
hannesson, en hann
tefldi á 1. borði og vann
allar sinar skákir, og
Gunnar Rúnarsson.