Morgunblaðið - 17.04.2002, Síða 1
88. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 17. APRÍL 2002
RÉTTARHÖLD yfir fimm ísl-
ömskum öfgamönnum hófust í gær
í Frankfurt í Þýskalandi. Eru þeir
sakaðir um að hafa ráðgert
sprengjutilræði í Strassborg og
talið er, að þeir hafi verið þjálfaðir
til hryðjuverka í búðum al-Qaeda í
Afganistan. Er lögreglan í borginni
með mikinn viðbúnað og öryggis-
gæslu vegna réttarhaldanna.
Réttarhöldin fóru af stað með
látum en draga þurfti einn sak-
borninga úr réttarsal eftir að hann
tók að hrópa ókvæðisorð að rétt-
arskipuðum lögmönnum sínum,
sem hann sakaði um að vera gyð-
inga.
Fjórir sakborninganna eru sak-
aðir um að hafa ætlað að koma
sprengju fyrir á fjölsóttum jóla-
markaði í Strassborg í Frakklandi
árið 2000. Eru þeir ákærðir fyrir
að hafa lagt á ráðin um morð og
fyrir að tilheyra hryðjuverkasam-
tökum. Fimmti maðurinn, sem var
handtekinn í apríl í fyrra, er
ákærður fyrir aðild að hryðju-
verkasamtökum en er ekki talinn
viðriðinn ráðgert sprengjutilræði.
Allir eru mennirnir frá Alsír.
Enginn mannanna er talinn hafa
átt aðild að hryðjuverkunum í
Bandaríkjunum 11. september en
þýskir saksóknarar halda því fram,
að þeir hafi allir fengið þjálfun í
búðum al-Qaeda, hryðjuverkasam-
taka Osama bin Ladens, í Afganist-
an á árunum 1998 til 2000.
Réttað yfir fimm íslömskum öfgamönnum í Þýskalandi
Ráðgerðu hryðju-
verk á jólamarkaði
Reuters
Meintur félagi í hryðjuverkasamtökum í lögreglubíl í Frankfurt eftir að
réttarhöld hófust þar í máli hans og annarra íslamskra öfgamanna.
Frankfurt. AFP.
ÞÚSUNDIR manna komu saman á Santa Croce-
torginu í miðborg Flórens í gær, en þá var efnt til
allsherjarverkfalls á Ítalíu, með þátttöku milljóna
launþega. Meðlimir í þrem stærstu launþegasam-
tökum landsins fóru í átta tíma verkfall til þess að
mótmæla fyrirætlunum ríkisstjórnar Silvios Berl-
usconis forsætisráðherra sem miða að því að gera
fyrirtækjum auðveldara um vik að segja upp starfs-
fólki. Stjórnvöld segja nauðsynlegt að gera þær um-
bætur sem fyrirhugaðar eru til þess að Ítalía verði
betur samkeppnisfær og laði að erlenda fjárfesta.
Þetta er fyrsta allsherjarverkfallið sem efnt er til
á Ítalíu í hátt í tvo áratugi. Verksmiðjur, bankar,
skólar og pósthús voru lokuð og almennings-
samgöngur lágu að mestu niðri. Á sjúkrahúsum var
aðeins veitt neyðarþjónusta.
Samningaviðræður milli ríkisstjórnarinnar og
launþegasamtakanna fóru út um þúfur í liðnum mán-
uði. Berlusconi sagðist hins vegar í gær reiðubúinn
til frekari viðræðna þó að hann ítrekaði jafnframt
nauðsyn þeirra breytinga sem stjórnvöld vilja stuðla
að.
Það eykur á spennuna á Ítalíu að einn helsti höf-
undur endurbótanna sem ríkisstjórnin hyggst gera
hefur verið myrtur, og hafa hermdarverkasamtökin
Rauðu herdeildirnar lýst ábyrgð á hendur sér.
Reuters
Allsherjarverkfall á Ítalíu
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sló í gær á vænting-
ar manna um vopnahlé í Mið-Aust-
urlöndum en sagði þó að miðað hefði
í rétta átt í viðræðum hans við leið-
toga Palestínumanna og Ísraela.
Fulltrúar Palestínumanna sögðu
þetta hins vegar af og frá og lögðu
áherslu á að ekkert þýddi að ræða
um vopnahlé fyrr en Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, kallaði her
sinn frá heimastjórnarsvæðum Pal-
estínumanna.
Powell ræddi við Sharon þriðja
sinni í gær en hann fer frá Ísrael í
dag, miðvikudag. Fyrst mun hann þó
eiga viðræður við Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna. Gert er
ráð fyrir að Powell komi við í
Egyptalandi á leið sinni heim til
Bandaríkjanna og mun hann ræða
við ráðamenn í Kaíró í heimsókninni.
Enn barist í Betlehem
Sharon hafði á mánudag fyrirskip-
að að dregið skyldi nokkuð úr að-
gerðum hersins á svæðum Palestínu-
manna. Í gær gerði Ísraelsher hins
vegar atlögu að flóttamannabúðum í
borginni Nablus og lést tólf ára gam-
all palestínskur drengur í aðgerðun-
um. Þá réðust Ísraelar inn í bæinn
Tulkarem að nýju og í Gazaborg beið
einn Palestínumaður bana.
Harðir skotbardagar geisuðu jafn-
framt við Fæðingarkirkjuna í Betle-
hem en þar sitja ísraelskir hermenn
um 200 Palestínumenn sem hafast
við í kirkjunni, en þar er um að ræða
bæði eftirlýsta byssumenn og óvopn-
aða borgara.
Haft í hótunum við Sharon
Fréttaskýrendur segja ólíklegt að
Powell muni takast það ætlunarverk
að koma á vopnahléi og fá Ísraela til
að kalla her sinn frá herteknu svæð-
unum. Bandarískir stjórnarerind-
rekar voru að vísu sagðir vinna að yf-
irlýsingu sem deilendur myndu
senda sameiginlega frá sér þar sem
sjálfsmorðsárásir væru fordæmdar
og kveðið á um stofnun sjálfstæðs,
palestínsks ríkis.
Ekki yrði þó um eiginlega vopna-
hlésyfirlýsingu að ræða og sagði
Mahmud Abbas, háttsettur fulltrúi
Palestínumanna, að á meðan Ísr-
aelsher héldi uppteknum hætti á
svæðum Palestínumanna væri óhætt
að segja að för Powells hefði litlu
skilað. Lét annar ónafngreindur pal-
estínskur embættismaður hafa eftir
sér að Powell myndi í besta falli geta
lýst því yfir við brottför sína að
áfram yrði unnið að því að draga úr
ofbeldi í heimshlutanum.
Hamas-samtökin brugðust í gær
hart við þeim fréttum að Ísraelar
hefðu handtekið Marwan Barghuti,
náinn samstarfsmann Arafats og
forystumann Fatah-hreyfingar Ara-
fats. Hótuðu þeir að ráða Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, af dögum.
Powell segir
að miðað hafi
í rétta átt
Jerúsalem, Betlehem. AFP.
Eyðileggingin/22
RÍKISSTJÓRN Hollands sagði af
sér í heild sinni í gær vegna gagnrýni
sem sett er fram á hendur hol-
lenskum stjórn-
völdum í nýrri
skýrslu um fjölda-
morð Bosníu-
Serba á múslim-
um í bænum
Srebrenica í
Bosníu í júlí 1995.
Stjórnin mun þó
starfa áfram til
bráðabirgða fram
yfir kosningar sem þegar höfðu verið
boðaðar 15. maí nk.
Fimm ár eru liðin síðan hollensk
stjórnvöld ákváðu að láta fara fram
rannsókn á tildrögum þess að Bosn-
íu-Serbar komust upp með að myrða
um 7.500 íbúa Srebrenica þrátt fyrir
að svo ætti að heita að bærinn nyti
verndar hollenskra friðargæslu-
sveita Sameinuðu þjóðanna.
Niðurstaða rannsóknarnefndar-
innar, sem kunngjörð var í síðustu
viku, var sú að ekki væri hægt að
kenna friðargæsluliðunum um
hvernig fór. Hins vegar voru hol-
lensk stjórnvöld, yfirmenn hollenska
hersins og SÞ gagnrýnd fyrir að hafa
sent út af örkinni friðargæslusveitir
sem ljóst var að gætu ekki sinnt
verkefni sínu sem skyldi. Sagði í
skýrslunni að aðgerðin hefði verið
„illa ígrunduð og nánast vonlaus“.
Í kjölfar þess að skýrslan var gerð
opinber sögðust tveir ráðherrar rík-
isstjórnar Hollands hugsanlega ætla
að segja af sér. Að loknum neyðar-
fundi í gær tilkynnti Wim Kok for-
sætisráðherra hins vegar að stjórnin
myndi öll fara frá. „Alþjóðasam-
félagið hefur enga eina ásýnd og get-
ur því ekki tekið ábyrgð í nafni fórn-
arlambanna í Srebrenica. Ég get það
hins vegar og geri það hér með,“
sagði Kok er hann ávarpaði hol-
lenska þingið í gær.
Kok, sem var forsætisráðherra
þegar atburðirnir í Srebrenica áttu
sér stað, hafði þegar tilkynnt að
hann gæfi ekki kost á sér til endur-
kjörs í kosningunum í maí.
Ríkisstjórn Hol-
lands segir af sér
Haag. AFP, AP.
Wim Kok