Morgunblaðið - 17.04.2002, Blaðsíða 5
HVATNINGARVER‹LAUN RANNÍS
afhent á ársfundi Rannsóknarráðs Íslands
Hvatningarverðlaun RANNÍS eru stærstu verðlaunin í íslenska vísindasamfélaginu.
Þau eru veitt vísindamönnum sem líklegir eru til að ryðja brautina í uppbyggingu
þekkingarþjóðfélagsins.
Á ársfundi Rannsóknarráðs Íslands 18. apríl á Hótel Loftleiðum verða
Hvatningarverðlaunin afhent fyrir árið 2002.
Tilvitnanir eru úr rökstuðningi dómnefndar Hvatningarverðlauna RANNÍS.
„...ötull brautryðjandi í því að innleiða
þekkingu á líftækni hér á landi og [...] nýta þá
þekkingu til hagsbóta fyrir íslensk atvinnulíf.“
Jakob K.
Kristjánsson
forstjóri Prokaria hf.
1987
„...valinn formaður tölfræðinefndar Alþjóða
hafrannsóknaráðsins, sem með öðru sýnir að
hann á unga aldri er orðinn einn af fremstu
vísindamönnum heims á sínu sviði.“
Gunnar
Stefánsson
tölfræðingur á Hafrannsókna-
stofnuninni og dósent í
stærðfræði við Háskóla Íslands.
1988
„...lagt mikilvægan skerf til landnýtingar og
landgræðslumála á Íslandi [rannsóknir hennar
bjóða] upp á gífurlega möguleika til að auka
árangur við uppgræðslu landsins.“
Áslaug
Helgadóttir
sviðsstjóri jarðrækarsviðs
Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins
1990 „...sýnt mikinn brautryðjendakraft og aflað
mikilvægrar þekkingar fyrir Ísland [...] aðal-
maðurinn á bakvið það að Marel hefur tekist
að þróa og markaðssetja [tölvusjón] í harðri
samkeppni við mörg stór alþjóðleg fyrirtæki.“
Hörður
Arnarson
forstjóri Marels hf.
1992
„...hefur á undanförnum 5 árum unnið braut-
ryðjendastarf í rannsóknum á algengu og oft
alvarlegu þungunarvandamáli, svokallaðri
meðgöngueitrun [...] myndað stóran, fjölþjóð-
legan rannsóknahóp, þar sem ástralskir,
skoskir, íslenskir og franskir vísindamenn hafa
lagt til efni og þekkingu.“
Reynir
Arngrímsson
læknir og dósent í erfðafræði við
Háskóla Íslands
1994 „...[starf hans er] lýsandi dæmi um þær öflugu
rannsóknir sem stundaðar eru á sviði lyfja-
fræði hér á landi í dag og sýna á áhrifamikinn
hátt hvernig grunnrannsóknir og hagnýtar
rannsóknir fara saman, vísindum til
framdráttar og landsmönnum til hagsbóta.“
Sveinbjörn
Gizurarson
prófessor í lyfjafræði við
Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri
Lyfjaþróunar hf.
1996
„...sýnir á áhrifamikinn hátt hvernig hægt
er að tengja saman alþjóðlegar stefnur og
strauma og íslenskan bókmenntaveruleika.“
Ástráður
Eysteinsson
prófessor í bókmenntum
við Háskóla Íslands
1996
„...afkastamikill fræðimaður og einstaklega
duglegur að birta verk sín bæði innanlands
og á alþjóðavettvangi.“
Kristján
Kristjánsson
prófessor í heimspeki við
Háskólann á Akureyri
1997
„...þegar aflað sér alþjóðlegrar viðurkenningar
sem frumkvöðull á sínu sviði [...] birt margar
vísindagreinar í virtustu tímaritum heims á
sínu fræðasviði.“
Jón Atli
Benediktsson
prófessor í rafmagns- og
tölvuverkfræði við Háskóla Íslands
1997
„...skrifað fjölmargar fræðigreinar í virt
vísindarit [...] Vísindaleg vinna hennar, þekking
og viðhorf til rannsókna og vísindalegra
vinnubragða er öðrum til eftirbreytni.“
Ingibjörg
Harðardóttir
dósent í lífefna- og sameindalíffræði
við Háskóla Íslands
1998
„...afkastamikill fræðimaður og er einnig
orðinn eftirsóttur fyrirlesari bæði innan lands
og utan [...]leiðandi í að endurlífga og
alþjóðavæða íslenska sagnfræði um þessar
mundir.“
Valur
Ingimundarson
lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands
1999 „...byggt upp eina öflugustu vöruþróunardeild áÍslandi sem byggir bæði á eigin rannsóknum og
samstarfi við rannsóknastofnanir og háskóla
víða um heim [...] einn af þeim ungu vísinda-
mönnum sem leitt hafa þá miklu þekkingar-
væðingu sem við sjáum nú allt í kringum okkur
að er að gjörbylta íslensku atvinnulífi.“
Hilmar B.
Janusson
þróunarstjóri Össurar hf.
1999
,,...rannsóknir þær sem hann hefur leitt hafa
vakið athygli á ráðstefnum og eflt almennt
rannsóknastarf læknadeildar á sviði
sameindalíffræði og erfðafræði."
Eiríkur
Steingrímsson
sagnfræðingur
2000
,,...býsna magnað dæmi um það hvernig
grunnvísindi og hagnýtar rannsóknir geta
orðið eitt og sama ferlið sem tengist jafnframt
þjóðarhag með afdrifaríkum hætti."
Anna K.
Daníelsdóttir
stofnerfðafræðingur
hjá Hafrannsóknastofnunni
2000
,,... hefur haslað sér völl á alþjóðavísu sem
virtur fræðimaður á sínu sviði og hefur setið í
skipulagsnefndum margra alþjóðlegra ráð-
stefna. Þá er það sérlega athyglisvert hvernig
hann hefur hagnýtt sér tölvutæknina til þess að
halda uppi árangursríku og þróttmiklu sam-
starfi við vísindamenn víða um heim."
Magnús
Már Halldórsson
prófessor við tölvunarfræðiskor
Háskóla Íslands
2001 ,,...[vann] ötullega að þeim verkefnum sem
leiddu til stofnunar Fornleifastofnunar Íslands
árið 1995. Í tengslum við vísindalegt starf
verður fyrirtækið að teljast gagnmerkt
frumkvöðulsverkefni sem lýsir miklu áræði
og stórhug."
Orri
Vésteinsson
forstöðumaður rannsókna- og
kennslusviðs Fornleifastofnar Íslands
2001
RANNÍS
LE
T
U
R
V
A
L
-
H
A
LL
D
Ó
R
B
.K
R
IS
T
JÁ
N
S
S
O
N