Morgunblaðið - 17.04.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 17.04.2002, Qupperneq 18
LANDIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FYRIR skömmu bættist nýr bátur í flota Húsvíkinga þegar Hraunút- gerðin ehf. keypti Eyvind KE 99 frá Keflavík. Báturinn sem er 40 brl. að stærð hlaut nafnið Sæborg og einkennisstafina ÞH 55. Hraunútgerðin sem er í eigu Karls Óskars Geirssonar og fjöl- skyldu hóf útgerð sl. haust með því að taka Keili SI 145 á leigu til eins árs. Keilir sem er 50 brl. var gerður út á dragnót í fyrstu en hefur verið á þorskanetum að undanförnu. Sæ- borgin verður gerð út á dragnót og hefur þegar hafið róðra. Segja má að báturinn sé kominn heim aftur því hann var smíðaður árið 1977 fyrir Húsvíkinga og hét upphaflega sama nafni, Sæborg ÞH 55. Það var afi Karls, Karl Að- alsteinsson og synir hans þeir Að- alsteinn og Óskar sem létu smíða hann hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri. Þeir gerðu bátinn út til ársins 1991 að hann var seldur til Keflavíkur. Karl Ósk- ar er ekki með öllu ókunnugur bátnum því hann var í áhöfn hans þegar hann var gerður út frá Húsa- vík. Svo skemmtilega vill til að Keilir var einnig smíðaður fyrir Húsvík- inga á sínum tíma. Það var Útgerð- arfélagið Korri hf. sem lét smíða bátinn hjá skipasmíðastöðinni Skipavík í Stykkishólmi árið 1975. Báturinn hlaut nafnið Kristbjörg og einkennis-stafina ÞH 44, Korri gerði hann út fram á mitt ár 1992 þegar hann var seldur Höfða hf. á Húsavík og hlaut nafnið Kristey og einkennisstafina ÞH 25. Höfði hf. sameinaðist síðan Fiskiðjusamlagi Húsavíkur hf. og var báturinn seld- ur frá Húsavík 1997. Þessir tveir bátar eru með þeim síðustu sem smíðaðir voru úr eik á Íslandi af stærðinni 20-50 brúttó- rúmlestir. Sæborgin var síðust í röðinni hjá þeim Gunnlaugi og Trausta, Kristbjörg næstsíðust í Skipavík en Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík var sá síðasti, henni var hleypt af stokkunum 1977. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Sæborg ÞH 55 er komin aftur í húsvíska flotann. Sæborgin komin aftur heim Nýr bátur bæt- ist í flotann Húsavík GRÁGÆSIN SLU er komin heim á Blönduós til sumardvalar. SLU var merkt ásamt 117 öðrum grá- gæsum á Blönduósi sumarið 2000. Fleiri merktar gæsir hafa sést þótt ekki hafi verið lesið á háls- merki þeirra. Vart varð við fyrstu grágæsirnar í byrjun mán- aðarins en um helgina fjölgaði verulega í hópnum og eins hefur sést til helsingja í túnum bænda í A-Húnavatnssýslu allra síðustu daga. Húnavatnssýslur og Skaga- fjörður munu víst vera einn helsti vordvalarstaður fyrir helsingjann en hann verpir mikið á Græn- landi. Víst er að grágæsin SLU og fé- lagar eiga eftir að setja mikinn svip á bæjarlífið í sumar þegar gæsirnar rölta með ungahópana yfir Norðurlandsveg, milli bithag- anna við Héraðshælið og lög- reglustöðina. SLU er komin heim Blönduós Morgunblaðið/Jón Sigurðsson AÐALFUNDUR Barra ehf. á Eg- ilsstöðum var haldinn fyrir skemmstu. Fyrirtækið er nú stærsti einstaki trjáplöntufram- leiðandi landsins og er nú framleidd ríflega ein og hálf milljón plantna á ári í stöðinni, einkum lerki. Tæplega einnar milljónar króna tap varð á rekstri Barra á síðasta ári, sem er ríf- lega fjórum milljónum króna betri afkoma en árið áður. Skýrist það einkum af sölu vöru- lagers Fossvogsstöðv- ar á rekstrarárinu. Rekstrartekjur voru 44,9 milljónir en 50 milljónir árið áður. Rekstrargjöld námu 42 milljónum, sem er 10 milljónum króna minna en á fyrra ári. Tap hefur verið á rekstri félagsins síðan árið 1997, en á yfirstandandi rekstr- arári verður líklega gert ráð fyrir 2–3 milljóna króna hagnaði. Jón Kr. Arnarson framkvæmda- stjóri Barra mun láta af störfum í haust og hefur Rúnar Ísleifsson, skógfræðingur hjá Héraðsskógum, verið ráðinn í hans stað. Aðrir um- sækjendur um starfið voru Katrín Ásgrímsdóttir og Loftur Jónsson. Hjá fyrirtækinu starfa nú auk framkvæmdastjóra 3 fastráðnir menn og 10 manns í hlutastörfum. Ekki er reiknað með sérstökum áherslubreytingum í rekstri, en þó verður bókhald og þess háttar nú unnið í stöðinni, en sú vinna var öll aðkeypt áður. Frestað verður byggingu 2000 fermetra gróður- húss um ótilgreindan tíma eða þar til séð verður fram á verkefni fyrir það. Talinn hafði verið grundvöllur fyrir byggingu þess vegna stórra verkefna sem talin voru líkleg á þessu ári, en þær von- ir brugðust. Rekstur Barra mun þannig verða nokkuð fyrirsjáanlegur næstu árin. Helstu kaupend- ur að plöntum Barra eru nú Héraðsskóga- verkefnið, einstak- lingar og stofnanir. Árleg plöntukaup Héraðsskóga velta þó alltaf á fjárlögum hvers árs til þess verkefnis. Ef fjárveiting ríkisins lækkar milli ára, eins og gerðist á þessu ári, hefur það mikil áhrif á alla samninga um plöntukaup og þannig keðjuverkandi áhrif á stöðu ræktenda. Stjórn Barra hf. skipa nú Helgi Hjálmar Bragason og Hlynur Hall- dórsson frá Félagi skógarbænda á Fljótsdalshéraði, Broddi Bjarna- son tilnefndur af landbúnaðarráðu- neyti, fulltrúi almennra hluthafa, og stjórnarformaður er Hilmar Gunnlaugsson og Ólafur Sigurðs- son situr í stjórn fyrir hönd Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur. Gert ráð fyrir hagnaði í fyrsta sinn í fimm ár Egilsstaðir Rúnar Ísleifsson, nýr framkvæmdastjóri Barra, Egilsstöðum. OPINN fundur verður haldinn á Hvanneyri föstudaginn 19. apríl kl. 13–18, í mötuneyti Landbúnað- arháskólans á Hvanneyri, um markaðsmál lífrænna afurða á Ís- landi. Markmiðið með fundinum er að fá fulltrúa sem flestra er koma að ferlinu frá moldu til matar til að kynna sín sjónarmið og skapa þannig umræðu er getur styrkt og eflt stöðu lífrænna matvæla á markaðnum í dag. Gert er ráð fyr- ir aðstöðu á staðnum til kynningar á tengdu efni. Framsöguerindi halda m.a.: Gunnar Gunnarsson framkvæmda- stjóri Vottunarstofunnar Túns, Þórður Halldórsson formaður VOR, Kristján Oddsson mjólkur- framleiðandi í Neðra-Hálsi í Kjós, Steinþór Skúlason og Auðunn Hermannsson ræða málið frá sjón- arhóli afurðastöðva, Rúnar Karl Sigurkarlsson og Erna Sif Arn- fjörð Smáradóttir verða fulltrúar Yggdrasils og Nýkaupa. Fyrir hönd neytenda tala þau Jóhannes Gunnarsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir. Það er Lífræn miðstöð á Hvann- eyri sem stendur fyrir fundinum og fundarstjóri er Hákon Sigur- grímsson frá landbúnaðarráðu- neytinu. Þátttöku þarf að tilkynna til Landbúnaðarháskólans og er þátttökugjald 500 kr. Allir vel- komnir. Lífræn miðstöð á Hvanneyri Fundur um markaðsmál lífrænna afurða Hvanneyri ÁRSÞING Héraðssambands Suð- ur-Þingeyinga var haldið í Barna- skóla Bárðdæla nýlega og voru þar heiðruð nokkur ungmenni sem unnu til afreka á árinu 2001. Þar var Hildigunnur Káradótt- ir valin íþróttamaður ársins auk þess sem hún fékk bikar fyrir góðan árangur í glímu, en hún hefur stundað þá íþrótt frá unga aldri og árangur hennar verið mjög góður. Hún var í fyrsta sæti kvenna á styrkleikalista Glímu- félags Íslands fyrir árið 2001 og vann þá Freyjumenið. Þá varð hún í 1. sæti í Landsglímunni og í 1. sæti í Bikarglímunni. Einnig varð hún í 1. sæti í 60 kg flokki á Meistaramóti Íslands og á Lands- móti UMFÍ varð hún í 1. sæti í 65 kg flokki. Hún vinnur mikið fyrir glímumenn HSÞ og hefur stundað þjálfun á yngri glímumönnum. Héraðssambandið heiðraði einnig Huldu Jónasdóttur sund- konu en hún varð stigahæst kvenna í sundi á héraðsmóti HSÞ 2001 og er í stöðugri framför. Þá var Birkir Sveinsson frjáls- íþróttamaður heiðraður en hann var m.a. Íslandsmeistari í kúlu- varpi í sínum flokki á Meist- aramóti Íslands innanhúss og í öðru sæti utanhúss. Hann bætti héraðsmet sitt í sínum flokki um heila þrjá metra og einnig er hann talinn einn af efnilegustu spretthlaupurum landsins. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hildigunnur Káradóttir, íþróttamaður ársins hjá HSÞ, með verðlauna- gripina, ásamt Huldu Jónasdóttur sundkonu og Birki Sveinssyni frjáls- íþróttamanni sem einnig voru heiðruð. HSÞ velur íþrótta- mann ársins Laxamýri AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar, fé- lags fatlaðra í A-Húnavatnssýslu, var haldinn fyrir skömmu í Hnit- björgum á Blönduósi. Sigurður H. Pétursson dýralækn- ir lét af störfum sem formaður og við tók Ingunn María Björnsdóttir sjúkraþjálfari. Guðfinna Einarsdótt- ir gerði grein fyrir reikningum fé- lagsins og kom fram að Sjálfsbjörg í A-Húnavatnssýslu hefur styrkt Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi um rúmlega eina milljón króna á síð- astliðnu ári og var sá stuðningur fyrst og fremst fólginn í stuðningi við endurhæfingu. Bolli Ólafsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Blöndu- ósi, veitti gjafbréfum fyrir þessum stuðningi viðtöku á aðalfundinum. Guðfinna Einarsdóttir gjaldkeri, sem hefur af mikilli elju unnið mikið starf fyrir félagið, greindi frá því að félögum í Sjálfsbjörgu A-Húna- vatnssýslu hefði fjölgað um 10 á milli ára og léti nærri að 12% íbúa A- Húnavatnssýslu væru félagar og er það án nokkurs vafa stærsta félag innan landssambandsins miðað við hina landsfrægu höfðatölu. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Sigurður H. Pétursson, fráfarandi formaður Sjálfsbjargar í A-Húna- vatnssýslu, afhendir Bolla Ólafssyni, framkvæmdastjóra Heilbrigðis- stofnunarinnar á Blönduósi, gjafabréf. Gjöf til endurhæfingar Blönduós
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.