Morgunblaðið - 17.04.2002, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍHLUTUN vegna samkeppnishaml-
andi hegðunar markaðsráðandi fyrir-
tækis er meðal vandmeðförnustu
verkefna sem við er að fást við fram-
kvæmd samkeppnisreglna. Því er
bæði þarft og tímabært að ræða þær
leiðir sem koma til greina við eftirlit
með þessari tegund samkeppnis-
hamlna. Þetta kom fram í máli Val-
gerðar Sverrisdóttur, viðskiptaráð-
herra, á ráðstefnu Samtaka verslun-
arinnar í gær undir yfirskriftinni „Er
uppskipting markaðsráðandi fyrir-
tækja lausnin?“
Valgerður fjallaði m.a. um svokall-
aða „kartela“, þ.e. skaðlegt samráð
fyrirtækja um verðlagningu, skipt-
ingu markaðar og gerð tilboða.
„Kartelar eru taldir uppspretta al-
varlegustu samkeppnishamlana og
því er fyrirsjáanlegt að starfsemi
samkeppnisyfirvalda muni í vaxandi
mæli miða að því að afhjúpa og upp-
ræta þá. Þar er Ísland ekki eitt á báti,
þar sem afhjúpun kartela er for-
gangsverkefni í Evrópu og Ameríku,
enda litið á starfsemi þeirra sem al-
varlegt samsæri gagnvart neytend-
um.
Það er ekki einfalt mál að afhjúpa
kartela og það er í raun ekki fyrr en
erlend samkeppnisyfirvöld hófu að
bjóða niðurfellingu sekta til handa
þeim fyrirtækjum innan kartela sem
greina yfirvöldum frá tilvist þeirra að
vaxandi árangur hefur náðst í afhjúp-
un þeirra. Reglur um niðurfellingu
eða afslátt á sektum eru nú í und-
irbúningi hér á landi og eru bundnar
vonir við að þær skili árangri með
sama hætti og þær sem tíðkaðar hafa
verið annars staðar.“
Ráðherra sagði að þrátt fyrir að
megináherslur samkeppnisyfirvalda
hafi undanfarið beinst að kartelum og
eftirliti með opinberum samkeppnis-
hömlum þá hafi þau einnig beint sjón-
um að mörkuðum þar sem hætt er við
að markaðsyfirráð séu misnotuð. Það
sé hins vegar vandasamt vegna erf-
iðrar sönnunarbyrði að beita sam-
keppnisreglum gegn misbeitingar á
markaðsráðandi stöðu.
Hegna þeim sem
stendur sig best
Ráðherra sagðist ekki hafa svar við
því hvort heimila eigi að skipta upp
markaðsráðandi fyrirtæki. Taldi hún
ljóst að markaðsráðandi fyrirtæki
sem eigi velgengni sína að þakka
heiðarlegri samkeppni verði ekki
refsað með þvi að skipta því upp. „Það
gengur ekki að hvetja til samkeppni
og hegna síðan þeim sem stendur sig
best. Enda er það ekki markmið sam-
keppnislöggjafar að skipta upp einka-
fyrirtæki einfaldlega vegna þess að
það er markaðsráðandi.
Það er síðan önnur spurning hvort í
samkeppnislögum eigi að vera úrræði
sem heimila að mælt sé fyrir um
uppskiptingu markaðsráðandi fyrir-
tækis sem annaðhvort hefur náð
markaðsyfirráðum með því að beita
samkeppnishamlandi viðskiptaað-
ferðum og/eða vinnur að því mark-
visst að viðhaldi markaðsráðandi
stöðu sinni með því að misnota hana.“
Valgerður sagði almennt ekki að
finna í samkeppnislögum í Evrópu
slík úrræði til að skipta upp markaðs-
ráðandi fyrirtæki. „Það er hægt að
beita fyrirtækið háum sektum en ekki
að mæla fyrir um að tilteknir hlutar
þess skuli seldir óháðum aðilum.“
Umdeildar lögskýringar
Davíð Þór Björgvinsson, lögfræð-
ingur hjá EFTA-dómstólnum í Lúx-
emborg, fjallaði í erindi sínu um evr-
ópskan samkeppnisrétt með tilliti til
heimilda til uppskiptingar fyrirtækja.
Að hans sögn er ekkert sem bannar í
EES-samningnum að fyrirtæki hafi
markaðsráðandi stöðu á svæðinu sem
samningurinn tekur til heldur er mis-
notkun eins eða fleiri fyrirtækja á yf-
irburðastöðu bönnuð að því leyti sem
hún kann að hafa áhrif á viðskipti
milli samningsaðila. Í máli Davíðs
Þórs kom fram að slík misnotkun geti
einkum falist í því að beint eða óbeint
sé krafist ósanngjarns kaup- eða sölu-
verðs eða aðrir ósanngjarnir við-
skiptaskilmálar settir. Settar séu tak-
markanir á framleiðslu, markaði eða
tækniþróun neytendum til tjóns. Öðr-
um viðskiptaaðilum sé mismunað með
ólíkum skilmálum í sams konar við-
skiptum og samkeppnisstaða þeirra
þannig veikt. Sett sé það skilyrði fyrir
samningagerð að hinir viðsemjend-
urnir taki á sig viðbótarskuldbinding-
ar sem tengjast ekki efni samning-
anna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt
viðskiptavenju.
Davíð Þór segir að meginkjarni ís-
lensku samkeppnislaganna sé svipað-
ur og í þeim evrópsku og í þeim sé
kveðið á um aðgerðir sem Samkeppn-
isráð getur beitt sé brotið sé gegn
þeim. Aftur á móti sé spurning um
hvort um nægjanlega lagastoð sé að
ræða til þess að skipta fyrirtækjum
upp.
Að sögn Davíðs Þórs telur Sam-
keppnisráð sig hafa heimild til þess ef
markmið samkeppnislaga náist ekki
fram öðruvísi. Vísaði hann þar til úr-
skurðar ráðsins í máli Landssíma Ís-
lands frá árinu 1998 vegna breið-
varpsins en þar var Landssímanum
gert að skilja breiðvarpið frá öðrum
rekstri fyrirtækisins. Sagðist Davíð
Þór ekki vera viss um að aðskilnaður
eins og Samkeppnisráð telur sig hafa
heimild fyrir að krefjast myndi halda
fyrir dómstólum að minnsta kosti yrði
um umdeildar lögskýringar að ræða.
Davíð Þór sagði í erindi sínu að
hann teldi að ef komist væri að því að
heimild til þess að skipta upp fyrir-
tæki væri ekki að finna í lögum þá
þyrfti ekki að breyta stjórnarskránni
til þess að hægt væri að lögfesta slík
úrræði. Sagði hann það skoðun sína
að ákvæði stjórnarskrár um eignarétt
og atvinnufrelsi komi ekki í veg fyrir
þá lagasetningu. Hins vegar þyrfti að
gera vissar kröfur til slíkrar löggjaf-
ar.
Yfir 8% markaðshlutdeild
óæskileg í Bretlandi
Á ráðstefnunni kynnti John Ward,
lögfræðingur hjá bresku samkeppn-
isstofnunni, breskar siðareglur um
samskipti stórmarkaða og birgja á
matvörumarkaði. Í erindi hans kom
m.a. fram að samkvæmt þeim hafi
stórmarkaðir með meira en 8% mark-
aðshlutdeild markaðsráðandi stöðu í
Bretlandi. Í siðareglunum er m.a.
kveðið á um að viðskipti við matvöru-
birgja skuli vera sanngjörn og
gagnsæ, þau skuli vera skrifleg, allar
greiðslur og verð skuli vera undir eft-
irliti og fyrirvara skuli hafa um verð-
breytingar frá birgjum. Markmiðið
með siðareglunum á að vera að við-
skiptin séu til hagsbóta fyrir neytend-
ur og þær gilda um alla birgja, hvar
sem er í heiminum, enda ekki settar
til að íþyngja breskum birgjum um-
fram aðra.
Ræða þarf íhlutun vegna sam-
keppnishamlandi aðgerða
Morgunblaðið/RAX
MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s In-
vestors Service tilkynnti í gær að
minnkandi þjóðhagslegt ójafnvægi
styddi óbreytt mat á horfum fyrir
lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. Í
nýrri ársskýrslu nefnir Moody’s
nokkrar ástæður fyrir óbreyttum
horfum á lánshæfiseinkunnum Ís-
lands, sem eru Aa3 á lánum í erlendri
mynt og Aaa á skuldabréfaútgáfu rík-
issjóðs í íslenskum krónum. Þar er
nefnt þróað hagkerfi, háar og jafnar
þjóðartekjur á mann og stöðugt
stjórnmálaástand. Skipulagsumbæt-
ur liðins áratugar juku fjölbreytni í
efnahagslífinu, leiddu til mikils hag-
vaxtar, verðstöðugleika og verulega
minni skulda hins opinbera, að því er
fram kemur í tilkynningu frá Seðla-
banka Íslands.
Áhyggjur Moody’s af þjóðhagslegu
ójafnvægi í kjölfar mikils hagvaxtar
sem varði í nokkur ár hafa sefast að
hluta vegna umtalsverðrar aðlögunar
á liðnu ári sem réttlætir óbreyttar
horfur (fyrir lánshæfismatið). Við-
skiptahallinn minnkaði um meira en
helming í kjölfar mikillar gengis-
lækkunar og vegna þess að stórum
fjármagnsfrekum verkefnum á veg-
um erlendra aðila er nú lokið. Þrátt
fyrir að erlend nettóstaða þjóðarbús-
ins hafi versnað verulega á árinu 2001
er búist við að minnkandi viðskipta-
halli og styrking krónunnar að und-
anförnu bæti erlend skuldahlutföll
þjóðarbúsins þegar á þessu ári.
Mjúk lending kemur á óvart
Matfyrirtækið greinir enn fremur
frá því í skýrslu sinni að komið hafi á
óvart hve lending efnahagslífsins hafi
verið mjúk fram að þessu. Hagvöxtur
hafi verið 3% þrátt fyrir hraðvaxandi
verðbólgu og fyrstu vísbendingar um
aukið atvinnuleysi. Verðbólgumark-
mið Seðlabankans var tekið upp við
erfiðar aðstæður og verðbólgan var
ítrekað vanmetin. Skuldir og
greiðslubyrði ríkissjóðs eru enn í
góðu horfi, þrátt fyrir að gengislækk-
unin hafi hækkað umtalsvert þann
hluta skuldanna sem eru í erlendri
mynt og að gert sé ráð fyrir að
rekstrarafgangur ríkissjóðs verði að
engu á þessu ári um leið og lands-
framleiðsla dregst saman.
Ýmsir óvissuþættir enn til staðar
Moody’s lagði áherslu á að ýmsir
óvissuþættir væru enn til staðar, sér-
staklega verðbólguhorfur, þar sem
kjarasamningar kynnu að verða laus-
ir í maí. Vegna hárra erlendra skulda
er sérstaklega mikilvægt að hæfilegt
jafnvægi ríki á milli stefnunnar í rík-
isfjármálum, peningamálum og
kjaramálum til að sjálfbær hagvöxtur
náist til lengri tíma litið. Fari t.d. svo
að krónan haldi áfram að styrkjast,
hagvöxtur verði meiri en áætlað er
eða hafist verði handa við fjárfrekar
framkvæmdir er óvíst að viðskipta-
hallinn minnki frekar. Það myndi
vekja upp áhyggjur um alvarlegri og
sársaukafyllri aðlögun síðar meir. Við
þetta bætast áhyggjur af bankakerf-
inu sem jók erlendar skuldir sínar
mjög á liðnum uppgangsárum. Af-
leiðingin er lakari gæði eigna sem
varð tilefni aukinna afskriftafram-
laga þótt helstu bankarnir sem njóta
lánhæfismats séu reknir með hagn-
aði.
Á heildina litið er Moody’s þeirrar
skoðunar að aðlögunarhæfni Íslands í
sögulegu tilliti dugi vel ef harðnar á
dalnum. Traust staða opinberra fjár-
mála og greiður aðgangur að erlendu
lánsfé veita nægilegt svigrúm til að
bregðast við erfiðleikum þrátt fyrir
nokkra óvissu, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Seðlabankanum.
Óbreytt lánshæfismat íslenska ríkisins hjá Moody’s
Minnkandi þjóð-
hagslegt ójafnvægi