Morgunblaðið - 17.04.2002, Page 27

Morgunblaðið - 17.04.2002, Page 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 27 FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF. Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www. gjtravel.is ELSTA STARFANDI FERÐASKRIFSTOFA LANDSINS – Almenn farseðlaútgáfa, hópferðir, einstaklingsferðir, viðskiptaferðir, ferðaráðgjöf, hótelbókanir. Ofangreind verð miðast við uppgefnar forsendur. ORÐSPORIÐ SEGIR SÍNA SÖGU Berlín, Prag, Búdapest og Vínarborg Vikuferð, 2. – 10. ágúst Eins og undanfarin ár, munum við bjóða vikuferð til Prag í ágúst á sérstaklega hagstæðu verði. Flogið verður með Flugleiðum og gist á Hótel Pyramida, sem er þægilegt og vel staðsett nýlega endurnýjað hótel með rúmgóðum og vel búnum herbergjum. Á hótelinu er sundlaug, líkamsræktaraðstaða o.fl. Í Prag, höfuðborg Tékklands, búa 1.2 milljónir manna. Borgin, forn og sögufræg var til skamms tíma höfuðborg sambanslýðveldisins Tékkóslóvakíu og áður konungsríki Bæheims, sem um aldir var hluti af veldi Habsborgarættarinnar. Innifalin er skoðunarferð um Prag og er sú ferð farin á fyrsta degi. Þá verður ekið um borgina auk þess sem gengið verður um Kastalahæðina, Gamla bæinn og Gyðingahverfið. Meðan á dvöl stendur verða einnig boðnar skoðunarferðir til Karlstejn-kastala, Terezín, Cesky Krumlov, Cesky Budejovice og til Kutna Hora, sem bókast og greiðast hjá fararstjóra. VERÐ 71.500 kr. á mann Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður, yfirgripsmikil skoðunarferð um Prag og íslensk fararstjórn. Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 14.400 krónur. Verð miðast við gengi 18. mars 2002 Vikuferð 10. ágúst, síðdegisflug Annað árið í röð bjóðum við Berlínarferðir í beinu síðdegisflugi með Flugleiðum. Gist verður á Hótel Crowne Plaza, sem er fjögurra stjörnu hótel rétt við Minngarkirkjuna, dýragarðinn og Kurfürstendamm. Boðnar verða ýmsar skoðunarferðir, m.a. til Dresden og Potsdam sem bókast og greiðast sérstaklega hjá fararstjóra. Verð frá 83.200 kr. á mann Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur milli flugvallar og hótels, gisting í 2ja manna herbergi með baði, morgunverður, skoðunarferð um Berlín og íslensk fararstjórn. Verð miðast við gengi 28. janúar 2002 Beint leiguflug til Prag í ágúst Vikuferð, brottför föstudaginn 10. maí Morgunflug með Flugleiðum til Frankfurt, ekið til Prag, höfuð- borgar Tékklands, og gist þar næstu 6 nætur. Á heimleiðinni er komið við í hinni sögufrægu borg Karlovy Vary (Karlsbad) og gist síðustu nóttina í Þýskalandi. Heimflug er frá Frankfurt. Ferðir okkar til Prag hafa hlotið mikið lof fyrir fararstjórn og skipulag, allt frá fyrstu ferðinni árið 1996. Litrík saga borgarinnar setur sterkan svip á menningu og þjóðlíf. Sagan, söfnin, byggingarnar, mannvirkin... Verð 79.900 kr. á mann Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur milli Frankfurt og Prag, gisting í 2ja manna herbergi, morgunverður, skoðunarferð um Prag og ísl. fararstjórn. Aðrar skoðunarferðir greiðast sérstaklega. Frábær vorferð til Prag þann 10. maí Vikuferðir 23. apríl og 1. október Flogið með Flugleiðum til Kaupmannahafnar og áfram með SAS til Búdapest og dvalið þar í 6 nætur á Hotel Novotel í göngufæri við sögustaði og verslanir. Til Vínarborgar er svo ekið á næst síðasta degi og gist þar eina nótt. Flogið heim á leið í gegnum Kaupmannahöfn daginn eftir. Í Búdapest mætir austrið vestrinu í einni elstu borg Evrópu sem geymir einar fegurstu mannlífsminjar í veröldinni. Vínarborg er háborg menningar í Evrópu, þar sem listir og menning tengjast í aldagömlum höllum og skrúðgörðum, kirkjum og söfnum. Verð 89.900 kr. á mann Innifalið í verði er flug til Búdapest og heim frá Vínarborg, flugvallaskattar, akstur milli Búdapest og Vínarborgar, gisting í 2ja manna herbergi, morgun- verður, skoðunarferðir um báðar borginar, og íslensk. fararstjórn. Aðrar skoðunarferðir greiðast sérstaklega. Búdapest og Vínarborg í einni ferð Beint til Berlínar í ágúst Sjöunda árið í röð bjóðum við vikuferð til Prag í beinu leiguflugi með flugvél Flugleiða 2. – 10. ágúst, 2002. Einstakt tækifæri á hagstæðu verði. UPPLÝSINGA- OG BÓKUNARSÍMI 511 1515 EFNT verður til fimm daga hátíðar í Mosfellssveit, heimasveit Halldórs Laxness, í tilefni af aldarafmæli skáldsins í næstu viku. Hátíðin, sem ber yfirskriftina Laxnesshátíð í Mosfellsbæ, hefst á afmælisdegi skáldsins, hinn 23. apríl, með op- inni hátíðardagskrá í Hlégarði þar sem fram koma landskunnir lista- menn sem flytja verk eftir skáldið. Fram til laugardagsins 28. apríl verður síðan staðið fyrir uppá- komum víðs vegar um bæinn. Opn- uð verður sýning á persónulegum munum fjölskyldunnar á Gljúfra- steini í bókasafni Mosfellsbæjar, haldnir verða tónleikar, leiksýn- ingar og upplestrar tengdir verk- um skáldsins í kaffihúsum, skólum og Bæjarleikhúsinu við Þverholt, svo dæmi séu nefnd. Þá verður efnt til gönguferða um slóðir skáldsins og haldin vegleg Listahátíð barna og ungmenna í Mosfellsbæ. Hátíð- inni lýkur sunnudaginn 28. apríl með messu í Mosfellskirkju helg- aðri Halldóri Laxness. Samráð um Laxnesssetur og varðveislu Gljúfrasteins Fulltrúar bæjarráðs Mosfells- bæjar, fjölskyldu Halldórs Laxness og skipuleggjenda kynntu hátíðina á fundi í félagsmiðstöðinni Hlé- garði í gær. Við sama tækifæri greindi Jóhann Sigurjónsson bæj- arstjóri Mosfellsbæjar frá sam- þykkt bæjarstjórnar um að koma á fót Laxnesssetri í Mosfellsbæ. Benti hann á að í tengslum við sérstaka hátíðardagskrá sem hald- in verður hinn 21. apríl, muni fulltrúar ríkisstjórnar undirrita samning um kaup á Gljúfrasteini, í því skyni að varðveita húsið sem heimili og vinnustað skáldsins. Við sama tækifæri verður undirritaður samningur milli Mosfellsbæjar, ís- lenska ríkisins og fjölskyldu skáldsins um samráð við uppbygg- ingu í kringum Gljúfrastein og Laxnesssetur í Mosfellsbæ á næstu árum. Kynnti bæjarstjórinn jafn- framt skýrsluna „Halldór á heima- slóðum“ sem unnin hefur verið af sérstakri Laxnessnefnd sem skipuð var á vegum bæjarstjórnar Mos- fellsbæjar vorið 2001. Í samtali við Morgunblaðið sagði Jóhann það ánægjulegt að tekið verði þetta stóra skref í átt að upp- byggingu starfsemi tengdri minn- ingu skáldsins og verka hans í heimasveitinni á aldarafmælinu. „Ekki er langt síðan að óvissa ríkti um framtíð Gljúfrasteins og áform um uppbyggingu minjasafns um skáldið og verk hans í heimasveit- inni. Síðan Laxnessnefndinni var komið á fót til að vinna að mótun Laxnessseturs og hátíðarhalda tengdum aldarafmælinu hefur mik- ið vatn runnið til sjávar. Nú liggur fyrir að taka ákvarðanir um til- högun uppbyggingarinnar, og höf- um við lagt áherslu á góða sam- vinnu við fjölskyldu skáldsins og ríkisyfirvöld í því starfi,“ sagði Jó- hann. Í tilefni af kynningu Lax- nesshátíðar og áforma um Lax- nesssetur í Hlégarði í gær afhenti Pétur Már Ólafsson frá Eddu miðl- un og útgáfu, Laxnesssafni gjafir frá bókaforlaginu og Guðný Hall- dórsdóttir afhenti safninu persónu- lega muni tengda skáldinu fyrir hönd fjölskyldu þess og óheftan að- gang að kvikmyndum gerðum eftir verkum skáldsins fyrir hönd kvik- myndafélagsins Umba. Að lokum opnaði Auður Laxness, ekkja skáldsins, nýja heimasíðu sem ber yfirskriftina Skáldið og sveitin og fjallar um tengsl Halldórs við Mos- fellssveit og -bæ. Heimasíðuna er að finna á slóðinni www.mos.is/ laxness en Mosfellsbær stendur að gerð hennar. Umfangs- mikil hátíð í heimasveit skáldsins Morgunblaðið/Ásdís Kynnt voru áform bæjarráðs Mosfellsbæjar um hátíðarhöld tengd aldarafmæli Halldórs Laxness í Hlégarði. SÍÐUSTU sýningar á gaman- leikritinu Með vífið í lúkunum, eftir Ray Cooney, verða á föstudag og annan föstudag, 26. apríl. Leikritið hefur verið á Stóra sviði Borgarleikhússins frá því í maí á síðasta leikári. Með helstu hlutverkin fara Steinn Ármann Magnússon, Helga Braga Jónsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Eggert Þorleifsson. Leikstjóri er Þór Tulinius. KARLAKÓR Selfoss og Jóru- kórinn á Selfossi efna til sameig- inlegra tónleika í tónlistarhús- inu Ými á föstudagskvöld, kl. 20.30. Á tónleikunum má finna úrval þeirrar tónlistar sem er á efnis- skrá kóranna í vetur og vor, en einnig mun allt söngfólkið taka lagið saman og munu þá nær 100 manns standa saman á svið- inu. Jórukórinn fagnaði nýlega 5 ára afmæli sínu en í vetur hafa um 50 konur frá Selfossi og ná- grenni æft með Jórukórnum undir stjórn Helenu Káradóttir. Undirleikari er Þórlaug Bjarna- dóttir. Um 50 karlar syngja nú í Karlakór Selfoss, en stjórnandi hans er Loftur Erlingsson og undirleikari Helena Káradóttir. 100 radda kórar í Ými Vífið af sviðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.