Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 29

Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 29
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 29 Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm þann 8.maí í 2 vikur. Sumarið er komið, og hér getur þú notið veðurblíðu og einstakra aðstæðna á einstökum kjörum. Þú bókar núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvað þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verð kr. 49.863 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Flug, gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360. Verð kr. 59.950 M.v. 2 í íbúð, 8. maí, 2 vikur. Flug og gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 62.950. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Stökktu til Benidorm 8. maí í 2 vikur frá aðeins 49.863 HANN kom til þín núna um daginn og fékk hjá þér þessa venjulegu „hjálp“. Þú ert honum alltaf innan handar, tilbúinn þegar hann þarf „á þér að halda“. Það skiptir þig engu máli hversu oft hann kemur, þú tekur honum alltaf opnum örmum. Hann var sólargeisl- inn í lífi okkar, framtíð- in björt og fögur. Við sáum hann fyrir okkur ungan glaðan dreng; ungan glaðan mann fullan áhuga á lífinu að byggja upp framtíð sína og sinnar eigin fjölskyldu; fullorðinn ábyrgan mann með konu og börn; allt hlaut að ganga vel. Því miður bankaði sorgin snemma á dyr, hann kynntist vímuefnum af alls kyns tagi. Viljinn til að sleppa frá óhugnaðinum var fyrir hendi en kraftinn vantaði. Hann þreyttist fljótt á að afla sér efna, fann það út að hjá þér gæti hann fengið það sem hann þurfti til að halda frá sér raun- veruleikanum. Baráttan hefur verið löng, mörg ár, fjölskylda og vinir margoft lagst á eitt til að hjálpa honum, einstakling- ar, sjúkrahús, geðdeildir, meðferðar- stofnanir bæði hérlendis og utan lands, allir reynt að koma honum til hjálpar. Baráttan hefur verið hörð og erfið, oft upp á líf og dauða, en oft stytt upp og litið út fyrir að nú væri sigur unninn. Gleðin, vonin og bjart- sýnin hafa þó alltaf haldist í hendur við ósigurinn, sorgina og uppgjöfina, hingað til hefur árangurinn ekki var- að lengi. Vonleysi og skelfing eru daglegt brauð bæði hjá honum og ekki síður hjá aðstandendum hans. Vikulega má lesa í dagblöðum um ungt fólk sem komið er á leiðarenda í lífinu vegna neyslu vímugjafa sem það hefur fengið hjá þér – hvenær er röðin komin að honum? Óttinn fylgir hinu daglega lífi aðstandenda sem ráðþrota standa og horfa á líf þessa unga manns verða sífellt skelfilegra. Enn hafa ekki liðið margir dagar „edrú“ hjá honum áður en hann fer til þín. Hann segir þér hversu kvíðinn hann er og hræddur við að takast á við lífið án vímu, hversu miklar kvalir hans eru, hann finnur raunverulega til, honum finnst maginn vera að snú- ast við, höfuðið að springa. Bæði hann og þú vitið að fjölskyldan hans er öll reiðubúin að gera hvað sem er fyrir hann, hjálpa honum á hvaða veg sem er annan en að hjálpa honum að komast aftur í vímu. Þú veist að hann stendur ekki einn, þú veist að fjöl- skylda hans á enga ósk heitari en þá að nú gangi loksins vel hjá honum. Þú veist að skelfing aðstandenda hans er ógnvænleg og heilsa þeirra í hættu. Því skiljum við ekki almenni- lega afstöðu þína í þessu máli, þú ert ávallt tilbúinn að láta hann fá lyf, þú líklegast „skilur“ hann. Við fyllumst algerri skelfingu, aftur og aftur, eftir heimsóknir hans á læknastofu þína og þær heimsóknir hafa verið marg- ar. Við horfum varnarlaus og hjálp- arvana á. Þú skrifar fyrir hann ávísun á lyf (lyfseðlar gefa læknum pening í aðra hönd), sömu lyfin aftur og aftur, lyf sem koma honum í vímu en fjöl- skyldu hans í rúmið. Hversu oft höf- um við ekki fyllst al- geru vonleysi og skriðið undir sæng og grátið eftir „aðstoð“ þína við hann. Þú segir að noti hann lyfin rétt muni þau hjálpa honum – eft- ir margra ára tilraunir ættir þú að vita jafnvel og við að hann notar lyfin ekki þannig. Þú þekkir hann vel, hann hefur komið til þín svo oft, þú veist að hann ræður ekki við fíknina. Nú vitum við að það eru fleiri læknar en þú sem hann leitar til, þetta er ekki allt þín sök, en þið eruð ekki margir sem af- greiðið sjúklingana ykkar svona. Við vitum að þið eruð aðeins örfáir og að hann dreifir heimsóknum sínum á ykkur, hann hefur jafnvel farið út á land einstaka sinnum til að dreifa ábyrgðinni. En þú ert sá sem ættir að byrja, þú ert sá sem gætir haft áhrif ef þú hættir að ávísa á þessi lyf fyrir vímuefnaneytanda – kollegar þínir myndu kannski koma á eftir. Þín afstaða kann að vera sú, að með þessu móti komir þú í veg fyrir innbrot og glæpi, við höfum heyrt þá kenningu – okkur finnst þó eðlilegra að fækka glæpum með því að fækka þeim sem stunda þá – þ.e. fækka vímuefnaneytendum með því að hjálpa þeim til betra lífs. Við höfum alltaf álitið að tilgangurinn með læknanámi sé sá að lækna fólk, getur verið að þú hafir farið einhvers stað- ar út af sporinu? Áttar þú þig ekki á því að þú ert að drepa fólk en ekki lækna? Getur verið að þú hefðir kannski frekar átt að gerast lög- regluþjónn til að geta stöðvað glæpi? Eða getur verið að þú sjálfur sért glæpamaður – hefur þú nokkurn tím- an leitt hugann að því? Ert þú kannski sjálfur í skugga vímunnar og í þeirri aðstöðu að vilja ekki láta koma upp um þig? Vímuefnaheimur- inn veit jú allt um þig. Við reyndum að fá landlækni til að ræða við þig málin, stöðva þig og leiða þér fyrir sjónir hvað þú ert að gera en einhver heldur yfir þér hlífiskildi og kemur í veg fyrir að hægt sé að fara þá leið. Þú ert enn að störfum, þú ert enn að eyðileggja líf fjölda fólks. Oft hefur það komið fram í fréttum að læknar ávísa meira en eðlilegt er af lyfjum til sjúklinga sinna, nú síðast að læknir ávísar 920 morfíntöflum á u.þ.b. 3 mánuðum til sama einstak- lingsins. Landlæknir segir málið „af- greitt“. Á hvern veg eru slík mál af- greidd, er viðkomandi læknir enn að störfum? Svarið er því miður að öll- um líkindum já, af einhverjum ann- arlegum ástæðum virðist ekki vera hægt að stöðva ykkur í eyðilegging- arferli ykkar. Þú ert alla vega enn að starfa að „lækningum“. Ekki virðist vera hægt að stöðva þennan háska- lega feril þinn, því er okkur aðeins ein leið fær og hún er þessi: Við leggjumst á hnén fyrir framan þig og biðjum: Þú ert menntaður maður, hámenntaður, einmitt í þess- um fræðum. Reyndu að hugsa málið upp á nýtt, reyndu að sjá hlutina í ljósi aðstandenda fíkilsins. Þú ert í sjálfboðavinnu að hjálpa drengnum okkar að eyðileggja líf sitt. Enginn hefur farið fram á það við þig, þetta er þín ákvörðun og hún hlýtur að vera tekin án nægilegrar ígrundun- ar. Við lifum við þá skelfilegu stað- reynd að í gegnum þig borgum við vímuefnin sem hann er að nota. Skattarnir okkar greiða niður lyfin og við greiðum einnig örorkubæturn- ar sem hann fær. Þú skrifaðir upp á örorkuna fyrir hann og hirðir svo hluta af bótunum í formi greiðslna fyrir lyfseðla í hverjum mánuði. Við grátbiðjum þig um að hugsa málið upp á nýtt og hjálpa okkur í þessu hræðilega böli. Með von í hjarta og fyrir hönd ann- arra aðstandanda vímuefnaneyt- anda. Bréf til þín, læknir Páll Halldórsson Lyfseðlar Við grátbiðjum þig um að hugsa málið upp á nýtt, segir Páll Halldórsson, og hjálpa okkur í þessu hræðilega böli. Höfundur er fv. yfirflugstjóri Landhelgisgæzlunnar. BANDALAG íslenzkra lista- manna efndi til málþings um Rík- isútvarpið sl. sunnudag. Fór vel á því að jafnfjölmenn samkoma og þarna fór fram skyldi haldin í Þjóð- menningarhúsinu. Stofnuð voru hollvinasamtök Ríkisútvarpsins og áréttað var í máli fjölmörgra ræðu- manna að Ríkisútvarp- ið væri útvörður þjóð- armenningar Íslendinga og ætti að vera það áfram. Menntamálaráðherra lýsti viðhorfum sínum, sem mjög eru í þessum anda. Forvígismenn í lista- og menningar- málum þjóðarinnar vilja veg Ríkisútvarps- ins mikinn og var gott að skynja eindreginn stuðning við stofn- unina, þó að fundið hafi verið að ýmsu og deilt á margt í dagskrá sjón- varps og útvarps Rík- isútvarpins eins og gert hefur verið frá fyrstu tíð og verður örugglega áfram. Heilbrigð gagnrýni, sem vitnar um metnaðar- fullar kröfur til þessa áhrifamesta fjölmiðils landsins, er ávallt af hinu góða og veitir starfsmönnum þess aðhald. Ríkisútvarpið á ekki einvörðungu erindi við forystufólk í listum og menningu. Áhorfs- og hlustenda- kannanir sýna glöggt og ítrekað hve sterklega Ríkisútvarpið höfðar til þjóðarheildarinnar. Um 96% þjóðar- innar horfðu eitthvað á sjónvarp þess í vikunni, sem nýjasta könnunin tók til. Það er hærra hlutfall en mælist nokkurs staðar hjá almanna- fjölmiðlum í Evrópu, þar sem staða þeirra er þó sterkust. Um 45% horfa að staðaldri á aðalfréttatíma Sjón- varpsins og um 40% sáu helztu inn- lendu þættina sem í boði voru. Hvort tveggja er einstaklega sterk nálgun við hinn almenna notanda, sem á þessa stofnun og greiðir fyrir þjón- ustu hennar. Þá er enn staðfest að Rás 2 og Rás 1 Ríkisútvarpsins hafa skýra yfirburði í útvarpshlustun í landinu, þó að samkeppnin hafi farið harðnandi og valkostum almennings fjölgi sífellt. Þessu til viðbótar er ástæða til að nefna, að fréttastofur Ríkisútvarpsins njóta meira trausts en aðrir fjölmiðlar í landinu. Þetta ætti að vera fagnaðarefni og því er tilefni til að vekja athygli á þessum geysilega jákvæðu niður- stöðum, sem eru þó ekkert nýmæli. Staðreyndin er sú að Ríkisútvarpið gerir lítið af því að hæla sjálfu sér í eigin dagskrá og fréttum. Og það fer fremur lítið fyrir hrósinu hjá flestum öðrum fjölmiðlum. Enda varla ann- ars að vænta af keppinautum í frétt- um, dagskrárframboði og öflun aug- lýsinga á markaðnum. Þess vegna er oft á tíðum dregin upp mynd af Rík- isútvarpinu, sem ekki er í neinu samræmi við raunveruleikann. Hin opinbera umræða snýst fyrst og fremst um tímabundinn rekstrar- vanda, sem er þó hlutfallslega ekk- ert meiri en verið hefur hjá öðrum menningarstofnunum ríkisins. Og hann má auðveldlega leysa, ef stjórnvöld horfast í augu við þá stað- reynd að nýjum þjónustukröfum og auknum fjárhagslegum skuldbind- ingum verður ekki velt yfir á Rík- isútvarpið nema auknar rekstrar- tekjur geri því fært að rísa undir þeim, eða þá á hinn bóginn, að starf- semin verði meðvitað dregin saman þegar hagræðing, sem stunduð hef- ur verið mörg undanfarin ár, dugar ekki til. Kallar það jafnan á hávær mótmæli stórra þjóðfélagshópa þeg- ar slík skref eru stigin, lítil eða stór. Lengra verður ekki haldið á þeirri braut „hrossalækninga“, en það orð notaði forsætisráðherra einmitt til varnaðar, þegar hann gerði grein fyrir afturköllun afnotagjaldshækk- unar Ríkisútvarpsins í febrúar og staðfesti að hún yrði bætt upp með öðrum hætti. Til glöggvunar skal þess getið að skv. orðabók Menning- arsjóðs er merking orðsins „hrossa- lækning“ í þessu sambandi: „harð- neskjuleg eða subbuleg (oft vafasöm) læknisaðferð eða -aðgerð.“ Væri það meðvituð stefna stjórn- valda að ætla Ríkisút- varpinu minna hlut- verk en það hefur nú myndu þau væntanlega segja það umbúðalaust. Það hefur ekki verið á dagskrá, heldur hafa fráfarandi og núver- andi ráðherrar menntamála þvert á móti lýst eindregið þeim vilja sínum að Ríkisútvarpið verði áfram rekið sem öflug- ur fjölmiðill í almanna- þágu og eigu þjóðar- innar, meðal annars til að tryggja mótvægi gegn greinilegri og að mörgu leyti ógnvæn- legri samþjöppun í fjölmiðlarekstri, sem er hættuleg lýðræðinu. Menn hafa gefið sér langan tíma til að ákvarða hin ytri skilyrði Rík- isútvarpsins, skipulag og tekju- stofna til frambúðar. Ýmsum verður tíðrætt um að allur vandi verði leyst- ur með því að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði, afnotagjöld verði lögð af og stofnunin fari á fjár- lög. Hvaða skötulíki stæði þá hugs- anlega eftir? Ríkisútvarpið hefur getað stundað sitt þróttmikla starf af því að það hefur alla tíð í 70 ár haft tekjur af auglýsingum. Þær nema um 800 milljónum á ári. For- ráðamenn annarra fjölmiðla fá vatn í munninn við tilhugsunina og sú kirtlastarfsemi fær útrás í umfjöllun þeirra. Sannast sagna er afskaplega ólík- legt að Ríkisútvarpinu yrðu tryggð- ar nýjar 800 milljónir ef því yrði vís- að út af auglýsingamarkaðnum. Allra sízt myndi Ríkisútvarpið þar með öðlast aukinn þrótt til meiri inn- lendrar dagskrárgerðar, sem gerð er skýlaus krafa um. Líklegra er að umsvifin myndu stórminnka og starfsorka dragast saman sem þessu næmi. Þá er hætt við að skírskot- unin til hins breiða hóps hlustenda og áhorfenda yrði ekki jafnsterk og fyrr. Keðjuverkunin getur hæglega orðið sú að almenningur, kjósend- urnir í landinu, finni ekki lengur til hins nána sambands við Ríkisút- varpið sem nú er fyrir hendi. Hvaða áhrif hefði það á afstöðu þingmanna við afgreiðslu fjárlaga? Ekki skal fjárlagaleiðin endanlega afskrifuð. En ég hef sagt og segi enn að þrátt fyrir annmarkana á afnotagjaldinu hefur það þó ekki lækkað í krónutölu milli ára en slík geta afdrif hinna margvíslegu fjárveitinga orðið á stóru heimili, þegar útgjöld hvers árs eru ákveðin á fjárlögum, eins og dæmin sanna. Ríkisútvarpið þarf að geta gert langtímáætlanir og þörf er skil- greiningar löggjafans á framtíðar- hlutverki þess til samræmis við hinn fjárhagslega ramma sem vilji er til að sníða því. Það er gamaldags að öflugur nútímafjölmiðill á sam- keppnismarkaði sé opinber stofnun að formi til. Sjálfstæði Ríkisútvarps- ins þarf að auka. Það á að vera þjóð- areign áfram en rekstrarforminu þarf að breyta. Eindreginn stuðningur Markús Örn Antonsson Höfundur er útvarpsstjóri. RÚV Sjálfstæði Ríkis- útvarpsins, segir Markús Örn Antonsson, þarf að auka. Bómullar-satín og silki-damask rúmföt Skólavörðustíg 21, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.