Morgunblaðið - 17.04.2002, Page 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 31
HUGSUM okkur útgerðarfyrir-
tæki sem á fjölveiðiskip. Á þessum
tímapunkti er hagstæðast að halda
skipinu út til togveiða, en það vill
svo óheppilega til að einhver bún-
aður sem nauðsynlegur er til þeirra
veiða bilar. Útgerðin stendur að
auki frammi fyrir þeim vanda að
ekki er hægt að fá viðgerð á bún-
aðinum fyrr en eftir átta mánuði.
Mér þykir ólíklegt að stjórnendum
útgerðarfyrirtækisins komi fyrst í
hug að leggja skipinu þangað til
hægt er að fá viðgerð á því. Lík-
legra er að skipið sé sent til þeirra
veiða sem hagstæðastar eru af þeim
sem mögulegar eru. Í versta falli er
líklegt að útgerðarfyrirtækið reyni
að lágmarka tapið sem hlýst af því
að ekki er unnt að fullnýta þá fjár-
festingu sem fólgin er í skipinu.
Í því að vera fatlaður felst það að
skorta einhverja eiginleika eða
hæfni sem fólk venjulega hefur. Það
er þó ekki þar með sagt að fatlaður
einstaklingur sé algerlega laus við
hæfni og hæfileika. Það sama gildir
um fatlaða og bilaða fjölveiðiskipið.
Það sem gildir er að nýta það sem
er fyrir hendi. Fatlaðir eru misvel
staddir hvað það varðar að skorta
hæfni og fólk lendir því miður í því
að vera með verulega skerta getu á
flestum sviðum. Eftir sem áður gild-
ir það að það er í flestum tilvikum
mjög einstaklingsbundið á hvaða
sviði takmarkanir fatlaðra liggja.
Þess vegna er ekki hægt að setja
fram eina einfalda reglu um hvaða
störf fatlaðir geta unnið með ár-
angri.
Ég held að það liggi mikill ónýtt-
ur mannauður í hæfileikum þeirra
sem teljast fatlaðir. Það þarf að
koma þessu fólki í þau störf sem
það getur unnið til jafns við aðra
þrátt fyrir fötlun sína; störf sem eru
raunverulega hagkvæm fyrir þjóð-
félagið þannig að það ætti að vera
hægt að greiða fötluðum starfs-
mönnum markaðslaun rétt eins og
öðrum. Samfélagið í heild þarf að
hafa opin augun fyrir möguleikum
og tækifærum sem bjóðast á al-
mennum vinnumarkaði fyrir fatlaða
í stað þess að skapa einhverjar sér-
lausnir, sem oft á tíðum þarf að
borga með.
Það er kominn tími til að við
hættum að einblína á þann mögu-
leika að hið opinbera leggi fram fé í
einhverjar sérlausnir í atvinnumál-
um fatlaðra. Ef við tökum okkur á
trúi ég því að hægt sé að finna störf
sem henta fötluðum á almenna
vinnumarkaðnum og það án þess að
það þurfi að borga með þeim. Að
vísu verða alltaf einhverjir svo illa
staddir að ekki er hægt að veita
þeim starf án sérlausna. Vandinn er
í raun sá að almennt er fötlun og al-
gert getuleysi lagt að jöfnu. Líkleg-
ast stafar þetta mest af hugsunar-
leysi. Heilastarfsemin í manni sem
er bundinn hjólastól getur t.d. verið
í mjög góðu lagi svo dæmi sé tekið.
Ég held að skortur á sjálfstrausti
sé oft stærsti þröskuldurinn í vegi
fyrir því að fatlaðir leiti eftir vinnu
á almennum markaði.
Þar hjálpa tæpast þær
viðtökur sem þeir, sem
reyna slíkt, fá oft. Þessi
hópur fær líka gjarnan
þau skilaboð frá þjóð-
félaginu í heild að hann
sé algerlega ósjálfbjarga
og þurfi í öllu að treysta
á aðra. Fagfólk á sviði
umönnunar fatlaðra er
oft ekki góð fyrirmynd
hvað þetta varðar.
Að ráða fatlaða í vinnu
þarf ekki að vera góð-
gerðarstarfsemi. Það
sem þarf er víðsýni og
opinn hugur vinnuveit-
enda. Spurningin er hvort sá starfs-
kraftur sem verið er að ráða þarfn-
ist raunverulega þeirra eiginda sem
tiltekinn fatlaðan
einstakling skortir.
Ég vil skora á at-
vinnuveitendur að
setja ekki atvinnu-
umsóknir beint í
pappírstætarann, að
óathuguðu máli, þótt
þær innihaldi orð
eins og fatlaður og
öryrki. Sömuleiðis
skora ég á fatlaða að
fylgjast með atvinnu-
auglýsingum og
sækja um þau störf
sem þeir telja sig
ráða við.
Vinnumarkað-
urinn og fatlaðir
Hilmar Harðarson
Atvinnutækifæri
Að ráða fatlaða í
vinnu þarf ekki að vera
góðgerðarstarfsemi,
segir Hilmar
Harðarson. Það sem
þarf er víðsýni og opinn
hugur vinnuveitenda.
Höfundur hefur óvirkan aðsóknar-
geðklofa og er félagi í Klúbbnum
Geysi. warrior@vortex.is.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PV
1
74
35
04
/2
00
2
Fr
áb
æ
r
st
að
se
tn
in
g
- B
et
ri
að
sta
ða -
Enn betri þjónusta fyrir heim
ili og
fy
rirtæ
k
i.
N
ýt
t
og
gl
æ
si
le
gt
Ár
bæ
jarút
ibú að Hraunbæ 119
Heitt á könnunni allan dag
inn
.
Opið hús í sparisjóðnum 19
. ap
ríl
kl
. 1
5.
- 1
9.
VEGNA FLUTNINGS
VERÐUR LOKAÐ
Í ROFABÆNUM
Á MORGUN
Afgreiðsla SPV í Rofabæ 39 verður lokuð á
morgun, fimmtudaginn 18. apríl.
OPNAÐ Í HRAUNBÆ 119 Á FÖSTUDAG
Nýtt útibú SPV opnar í nýjum og glæsilegum
húsakynnum að Hraunbæ 119 föstudaginn 19. apríl.
Viðskiptavinum SPV í Árbæ er vinsamlegast
bent á að nýta sér þjónustu Sparisjóðsins í
Borgartúni 18 eða Síðumúla 1 eða þjónustuver
SPV í síma 575 4100.
Verið velkomin í ný húsakynni.
Njótið betri þjónustu á betri stað.
Frá
Miðjarðarhafinu
í apótekið þitt
„Pharmaceutical - Grade“
ólífuolía í gelhylkjum með
vítamínum, jurtum og/eða
steinefnum.
Heilsuleikur
Þú gætir unnið ferð til
Spánar!
Aðeins í Plúsapótekunum
www.plusapotek.is