Morgunblaðið - 17.04.2002, Síða 50
FRÉTTIR
50 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HAGASKÓLI í Reykjavík sigr-
aði með yfirburðum á Íslandsmóti
grunnskólasveita sem fram fór um
síðustu helgi. Hagaskóli gjörsigr-
aði alla andstæðinga sína og fékk
hlaut 33 vinninga af 36 mögu-
legum. Í öðru sæti varð sveit
Ölduselsskóla með 22½ vinning,
10½ vinningi á eftir sigursveitinni.
Í þriðja sæti varð svo sveit Mela-
skóla með 21½ vinning. Lokastað-
an á Íslandsmóti grunnskóla varð
annars þessi:
1. Hagaskóli 33 v. af 36
2. Ölduselsskóli 22½ v.
3. Melaskóli 21½ v.
4. Landakotsskói 20½ v.
5. Hlíðaskóli 20½ v.
6. Rimaskóli 20½ v.
7. Varmárskóli 20 v.
8. Árbæjarskóli 20 v. o.s.fr.
Eins og sjá má var hart barist
um verðlaunasætin og vekur at-
hygli að Melaskóli nær þriðja
sæti, en hann er barnaskóli (nær
einungis upp í 12 ára bekk). Rétt
eins og í fyrra hlutu þeir Dagur
Arngrímsson (Hagaskóla) og Guð-
mundur Kjartansson (Árbæjar-
skóla) verðlaun fyrir bestan ár-
angur á fyrsta borði. Líkt og þá
fengu þeir 8½ vinning í 9 skákum.
Hilmar Þorsteinsson (Hagaskóla)
fékk verðlaun fyrir bestan árang-
ur á öðru borði en hann hlaut 7½
vinning.
Með sigrinum öðlast Hagaskóli
rétt til þess að tefla á Norður-
landamóti grunnskólasveita sem
fram fer í Finnlandi í haust. Haga-
skóli er núverandi Norðurlanda-
meistari grunnskóla, en Norður-
landamótið var einmitt haldið í
Hagaskóla í fyrra. Miðað við ár-
angur Melaskóla lítur út fyrir að
framtíð Hagaskóla í skákinni sé
björt, enda hefur uppistaðan úr
liði skólans verið skipuð nemend-
um sem fluttust í Melaskóla að af-
loknum barnaskólanum. Þjálfari
beggja skólanna er Arngrímur
Gunnhallsson. Eins og fram hefur
komið í skákþættinum er kvenna-
skákin einnig öflug í Melaskóla, en
stúlkurnar mörðu sigur á Íslands-
móti grunnskólasveita fyrr í mán-
uðinum eftir æsispennandi keppni.
Alls tóku 19 sveitir þátt í
mótinu frá 13 skólum. Skákstjórar
voru Haraldur Baldursson, Ólafur
H. Ólafsson og Sigurbjörn J.
Björnsson.
Íslandsmót stúlkna 2002
– einstaklingskeppni
Íslandsmót stúlkna (grunn-
skólamót) fyrir árið 2002 verður
haldið sunnudaginn 20. apríl nk. í
húsnæði Skáksambands Íslands,
Faxafeni 12, Reykjavík. Mótið
hefst kl. 13 og verða tefldar 10
mínútna skákir. Keppt verður í
tveimur aldursflokkum, 12 ára og
eldri og 11 ára og yngri. Veitt
verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin
í hvorum flokki.
Skráning fer fram hjá Skák-
sambandi Íslands í síma 568 9141
og með tölvupósti: siks@simnet.is.
Evrópumótið – undankeppni
heimsmeistaramótsins
Evrópska skáksambandið hefur
ákveðið að Evrópumótið í skák
verði haldið í Batumi í Georgíu
11.–27. júní. Mótið er opið öllum
evrópskum skákmönnum. Efstu 5
skákmennirnir fá rétt til þátttöku
í heimsmeistaramótinu í skák
2003/2004. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast fyrir 5. maí.
Sigurbjörn Björnsson og
Páll Agnar efstir í auka-
keppni áskorendaflokks
Sigurbjörn J. Björnsson og Páll
Agnar Þórarinsson standa best að
vígi í aukakeppni áskorendaflokks
um sæti í landsliðsflokki þegar 4
umferðum af 6 er lokið. Sigur-
björn er efstur í keppninni með 3
vinninga. Páll Agnar Þórarinsson
er annar með 2½ vinning. Snorri
Bergsson er þriðji með 1½ vinn-
ing, en Sævar Bjarnason er neðst-
ur með 1 vinning.
Guðmundur Kjartansson og
Gylfi Davíðsson sigruðu á
skólaskákmóti Reykjavíkur
Guðmundur Kjartansson og
Gylfi Davíðsson sigruðu á skóla-
skákmóti Reykjavíkur sem fram
fór í síðustu viku. Guðmundur
sigraði í eldri flokki, Dagur Arn-
grímsson varð í öðru sæti og Aron
Ingi Óskarsson varð þriðji.
Gylfi Davíðsson sigraði í yngri
flokki, Ásgeir Mogensen varð ann-
ar og Hjörvar Steinn Grétarsson
þriðji.
Þessi sex ungu og efnilegu
skákmenn verða fulltrúar Reykja-
víkur á landsmótinu í skólaskák
sem haldið verður á Vestfjörðum
9.–12. maí. Úrslit í eldri flokki:
1. Guðmundur Kjartansson (Ár-
bæjarskóli) 5½ v. af 6
2. Dagur Arngrímsson (Haga-
skóli) 5 v.
3. Aron Ingi Óskarsson (Haga-
skóli) 3½ v.
4. Hjörtur Ingvi Jóhannsson
(Ölduselsskóla) 3 v.
Þátttakendur voru sjö. Í yngri
flokki urðu úrslit þessi:
1. Gylfi Davíðsson (Breiðagerðis-
skóla) 8½ v. af 9
2. Ásgeir Mogensen (Austurbæj-
arskóla) 7 v.
3. Hjörvar Steinn Grétarsson
(Rimaskóla) 6½ v.
4. Helgi Brynjarsson (Hlíðaskóla)
6 v.
5. Haraldur Franklín Magnús
(Melaskóla) 6 v.
6. Dofri Snorrason (Melaskóla) 6
v.
7.–9. Árni Freyr Snorrason (Mela-
skóla), Hallgerður Helga Þor-
steinsdóttir (Melaskóla) og Ingvar
Ásbjörnsson (Rimaskóla) 5½ v.
Þátttakendur voru 31. Skák-
stjóri var Ólafur H. Ólafsson.
VN-mótaröðin: Hrókurinn
leitar að snjallasta
hraðskákmanninum
Viðskiptanetið mun í samvinnu
við Skákfélagið Hrókinn efna til
skákhátíðar, sem hefst næsta
laugardag, með það fyrir augum
að finna snjallasta hraðskákmann
landsins. Þátttökurétt hafa allir
skákmenn og heildarverðlaun eru
mjög vegleg: 120 þúsund króna
inneign á Viðskiptanetsreikningi.
Fyrstu verðlaun eru 70 þúsund
skiptikrónur, en allir keppendur
eiga möguleika á verðlaunum.
Laugardagana 20. og 27. apríl,
klukkan 14 fara fram tvö úrtöku-
mót á Grandrokk, Smiðjustíg 6.
Keppendur eru hvattir til að skrá
sig sem fyrst hjá Róbert Harð-
arsyni í síma 696 9658 eða í net-
fanginu chesslion@hotmail.com.
Tefldar verða níu umferðir á úr-
tökumótunum og komast átta
efstu menn af hvoru móti áfram í
úrslitakeppni sem haldin verður
laugardaginn 4. maí. Þar keppa
sextán skákmenn með útsláttar-
fyrirkomulagi, fjórar skákir í
hverri umferð, uns einn stendur
uppi sem sigurvegari með nafn-
bótina VN-meistarinn 2002. Sá
sem lendir í öðru sæti hlýtur 20
þúsund króna inneign á Viðskipta-
netsreikningi en auk þess verður
dregið um hvaða tveir keppendur
til viðbótar úr 16 manna úrslit-
unum hljóta 15 þúsund króna inn-
eign hvor.
Fyrst var teflt um VN-meist-
aratitilinn á síðasta ári, og sigraði
Jón Viktor Gunnarsson eftir úr-
slitaeinvígi við Arnar Gunnarsson.
Í fréttatilkynningu frá Við-
skiptanetinu segir að með VN-
mótaröðinni vilji fyrirtækið leggja
sitt af mörkum til eflingar al-
menns skákáhuga í landinu og
framgangi þessarar göfugu íþrótt-
ar.
Voratskákmót
Hellis
Hið árlega voratskákmót Tafl-
félagsins Hellis hefst mánudaginn
22. apríl. Því verður svo fram
haldið mánudaginn 29. apríl. Um-
hugsunartími er 25 mínútur á
skák. Samkvæmt auglýstri dag-
skrá er gert ráð fyrir þremur
skákum hvort kvöld. Til greina
kemur þó að hafa fjórar skákir
seinna kvöldið þannig að alls verði
tefldar sjö umferðir, ef keppendur
hafa áhuga á því. Keppendur
ákveða hvor leiðin verður valin.
Guðmundur Kjartansson sigraði á
voratskákmótinu í fyrra.
Þátttökugjald er kr. 400 fyrir
félagsmenn og kr. 600 fyrir utan-
félagsmenn sextán ára og eldri.
Þeir yngri greiða kr. 200 ef þeir
eru í félaginu en annars kr. 400.
Verðlaunapeningar verða fyrir
þrjú efstu sætin.
Mótið er öllum opið. Teflt verð-
ur í Hellisheimilinu, Álfabakka
14a í Mjódd. Sami inngangur og
hjá SPRON og er gengið á efstu
hæð.
Yfirburðasigur Haga-
skóla á Íslandsmóti
grunnskólasveita
Gullsveit Hagaskóla, frá vinstri: Víkingur Fjalar Eiríksson, Arn-
ljótur Sigurðsson, Hilmar Þorsteinsson, Dagur Arngrímsson og
Aron Ingi Óskarsson.
SKÁK
Skákmiðstöðin Faxafeni
12.–14. apríl 2002
ÍSLANDSMÓT GRUNNSKÓLASVEITA
Daði Örn Jónsson
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn Félags
ungra lækna:
„Stjórn Félags ungra lækna mót-
mælir harðlega þeim aðförum að
kjörum heilsugæslulækna sem heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
stóð fyrir með reglugerð 19. desem-
ber 2001.
Viljum við þess vegna beina þeirri
spurningu til heilbriðgis- og trygg-
ingamálaráðherra hvort það sé stefna
hans að leggja niður heilsugæslu í
landinu í framtíðinni.
Ástæða þess að við leggjum fram
þessa spurningu er sú að nýmönnun í
heilsugæslulækningum hér á landi er
hlutfallslega miklu lægri en á hinum
Norðurlöndunum og að staðreynd er
að sífellt fleiri heilsugæslulæknar
færa sig yfir í aðrar sérgreinar.
Hér á landi er hlutum þannig hátt-
að í dag að heilsugæslulæknar sitji
ekki við sama borð og aðrir sérfræð-
ingar m.a. hvað varðar eigin rekstur.
Teljum við þá þannig þvingaða til
vinnu fyrir hið opinbera sem launar
þeim með viðlíka gerðum og að
skerða laun þeirra fyrirvaralaust eins
og ráðherra stóð fyrir hinn 19. desem-
ber sl. Vegna þessa sýnist okkur
framtíð heilsugæslunnar hér á landi
ekki björt. Starfsumhverfið er að
verða verra og verra. Sífellt færri
læknar verða til að sinna störfum og
þannig eykst álagið mikið. Í dag er
nokkuð um ósetnar stöður á heilsu-
gæslustöðvum og nær vonlaust að fá
aðra en læknanema í afleysingar
lækna. Þetta starfsumhverfi skilar
sér í því að ungir læknar hér á landi
sækja frekar í aðrar sérgreinar lækn-
isfræðinnar en heilsugæslulækningar
og er það okkur áhyggjuefni.“
Ungir læknar mótmæla
aðför að kjörum
ALÞJÓÐAHÚS, Hverfisgötu 18, fer
um þessar mundir af stað með
fræðslufundi um íslenskt samfélag
fyrir fólk af erlendum uppruna.
Fræðslan fer fram á íslensku og
túlkað verður á ensku, rússnesku og
pólsku.
Fyrsti fræðslufundurinn um ís-
lenskt samfélag þar sem starfsemi
Alþjóðahúss og áhrif nýrra kosning-
arlaga á rétt erlendra ríkisborgara
til kosningaþátttöku verða kynnt, í
dag, miðvikudag, 17. apríl kl. 20, í Al-
þjóðahúsi, Hverfisgötu 18.
Fræðslan fer fram á íslensku og
verður túlkuð á rússnesku. Þáttaka
er ókeypis, segir í fréttatilkynningu.
Fundur um ís-
lenskt samfélag
í Alþjóðahúsinu
Á FUNDI orlofsnefndar húsmæðra í
Kópavogi var tekin sú ákvörðun að
ekki yrðu neinar utanlandsferðir á
þessu ári og að ekki yrðu greiddar
niður slíkar ferðir kvenna úr Kópa-
vogi, þótt þær kysu að fara í ferðir
nefnda í öðrum sveitarfélögum. Held-
ur skuli nefndin einbeita sér að eigin
landi og leggja þá fjármuni sem henni
eru faldir að lögum, í innlenda ferða-
þjónustu.
Áætlað er að fara í ferð að Kirkju-
bæjarklaustri 13.-15. júní og gista
tvær nætur að Hótel Eddu, 30 konur
komast í þá ferð. Hvíldar- og hress-
ingardvöl að Laugarvatni, 24.-30.
júní, gist á Hótel Eddu, 40 konur
munu komast í þá dvöl. Ferð í Skaga-
fjörð 22.-24. ágúst, gist að Hótel
Varmahlíð og komast 30 konur í þá
ferð.
Í landslögum segir að sérhver kona
sem veitir eða hefur veitt heimili for-
stöðu, án launa fyrir það starf, skuli
eiga rétt á orlofi. Þær konur sem ekki
hafa farið í orlof síðustu 2-3 ár hafa
forgang í ferðir og dvöl á vegum
nefndarinnar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Birna Árnadóttir og Ólöf Þorbergs-
dóttir veita allar upplýsingar og ann-
ast innritun frá 18. apríl til 10. maí.
Utanlands-
ferðir ekki
styrktar
MÁLÞING Íslandsdeildar Amnesty
International um talsmenn mann-
réttinda verður í Borgarleikhúsinu
fimmtudaginn 18. apríl kl.20. Yfir-
skrift málþingsins er: Gættu þín – þú
talar of mikið!
Fjallað verður um talsmenn
mannréttinda, störf þeirra, ofsóknir
gegn þeim og skyldur stjórnvalda
samkvæmt alþjóðalögum.
Talsmenn mannréttinda er fólk, er
hefur skuldbundið sig til að hrinda í
framkvæmd þeim markmiðum um
réttindi til handa öllum, sem tryggð
eru af Mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna. Talsmenn
mannréttinda eru í auknum mæli
reknir í útlegð eða neyddir til að lifa
við ómennskar og niðurlægjandi að-
stæður, segir í fréttatilkynningu.
Frummælendur á málþinginu eru
Delphine Roch lögfræðingur og
starfsmaður Amnesty International
í Frakklandi og Ragnar Aðalsteins-
son hæstaréttarlögmaður.
Málþingið er öllum opið.
Málþing Íslands-
deildar Amnesty
SVANHILDUR Árnadóttir bæjar-
fulltrúi skipar fyrsta sæti á lista
sjálfstæðismanna og óháðra fyrir
sveitarstjórnarkosningar í Dalvíkur-
byggð í vor.
Framboðslistinn var samþykktur
nú nýlega.
Jónas M. Pétursson er í öðru sæti,
en Kristján Snorrason, sem setið
hefur sem fulltrúi D-lista gaf ekki
kost á sér á listann.
Í þriðja sæti er Dórothea Jó-
hannsdóttir, Arngrímur Baldursson
í fjórða, Ásdís Jónasdóttir í því
fimmta og Dagmann Yngvason í
sjötta sæti. Yrsa Hrönn Helgadóttir
er í sjöunda sæti, Friðrik Vilhelms-
son í áttunda og Hólmfríður A. Gísla-
dóttir skipar níunda sætið.
Framboðslisti
sjálfstæðismanna
og óháðra í Dal-
víkurbyggð
AÐALFUNDUR Svæðisráðs IOGT
var haldinn nýlega og var eftirfar-
andi tillaga samþykkt á fundinum:
„Aðalfundur Svæðisráðs IOGT í
Reykjavík árið 2002 varar við þeim
sjónarmiðum sem felast í því að
ryðja burt takmörkunum á sölu
áfengis. Það muni, ef í framkvæmd
kemst, auka stórlega vandann sem
við er að glíma vegna afleiðinga
áfengisneyslu fólks á öllum aldri.
Fundurinn harmar að umboðs-
mönnum áfengis og áhangendum
þeirra hefur, því miður, tekist með
fagurgala svokallaðs frelsis að
blekkja marga til fylgis við stefnu
sem leiðir til mikils ófarnaðar. Það
hefur reynslan sýnt á liðnum árum.
Þau varnaðarorð bindindishreyfing-
ar og annarra um að tilslakanir á
sölu, t.d. áfengs öls, myndu leiða til
aukins vanda hafa öll ræst. Fund-
urinn skorar því á allan almenning
að vera vel á verði og hugleiða í hvert
óefni verður stefnt, ef fyrirætlun
umboðsmanna frjálsrar sölu á áfengi
nær fram að ganga.
Áhugi á umhverfisvernd; gróður-
vernd, skógrækt og annarri land-
græðslu fer vaxandi hér á landi. Það
skýtur því skökku við að á sama tíma
skuli stefnan tekin á eyðingu mann-
legra verðmæta sem leiðir af auknu
aðgengi fólks að áfengi og vaxandi
neyslu þess.“
Vilja viðhalda
takmörkunum
á sölu áfengis