Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 51
Sumarlitirnir í eru komnir
Miðvikudag 17. apríl
Hagkaup, Smáralind.
Fimmtudag 18. apríl
Libia, göngugötu Mjódd.
Gallery Förðun, Keflavík.
Föstudag 19. apríl
Libia, göngugötu Mjódd.
Húsavíkurapótek.
Laugardag 20. apríl
Libia, göngugötu Mjódd.
Sérfræðingar frá
MARBERT veita
faglega ráðgjöf
um liti og notkun
þeirra.
Kaupauki
Við tökum á móti sumri með opnum hug og látum hugmyndaflugið
njóta sín með fallegum pastellitum fyrir augu, kinnar, varir og neglur.
ALÞJÓÐLEGA barna- og ung-
lingadanskeppnin í Blackpool var
haldin með pompi og prakt sl. páska.
Að venju fór dágóður hópur ís-
lenzkra dansara og aðstandenda til
Englands. Þessi keppni hefur verið
haldin í áraraðir og þykir ein sú allra
sterkasta sem haldin er í heiminum í
þessum aldursflokkum. Íslendingar
hafa fjölmennt á þessa keppni í
gegnum árin, þó svo hópurinn hafi
verið í fámennara lagi að þessu sinni.
Í flokki barna 11 ára og yngri voru 3
íslenzk pör, en í eldri hópnum, 12–15
ára, voru 9 pör.
Íslenzk danspör hafa í nokkur
skipti hampað verðlaunum í þessari
virtu keppni í gegnum árin, bæði í
flokki 11 ára og yngri og eins í flokki
12–15 ára.
Að sögn Jóns Péturs Úlfljótssonar
var keppnin nú sú allra sterkasta
sem hann hefur upplifað í Blakcpool.
„Keppnin var sterk í fyrra, en ennþá
sterkari í ár! Ég veit bara ekki hvar
þetta endar. Austantjaldsþjóðirnar
voru gríðarlega sterkar þó svo pörin
þaðan væru svolítið vélræn að sjá,
tæknilega hliðin var hinsvegar frá-
bærlega leyst. Það sem heillaði mig
þó mest voru ítölsku pörin, þau voru
ákaflega lifandi á gólfinu og voru
músíklega séð mun sterkari en pörin
austan að, hvort heldur í suður-am-
erísku dönsunum eða þeim sígildu.“
Þessi keppni tekur 6 daga og er
því með lengri keppnum sem haldn-
ar eru. Að vísu eru eins og tveggja
dansa keppnir suma dagana að
ógleymdum landakeppnum, sem
setja mjög skemmtilegan svip á
keppnina. Hér á eftir verður gengi
íslenzku dansaranna rakið í stuttu
máli.
Mánudagur: Hópur 11 ára og
yngri keppti í jive þennan dag og
voru 3 íslenzk pör skráð til leiks af
um 70 pörum. Tvö íslenzku pörin
komust í 48 para úrslit, en þar við
sat. Það voru Karl Bernburg og
Helga Soffía Guðjónsdóttir og Sig-
tryggur Hauksson og Eyrún Stef-
ánsdóttir og Magnús Kjartansson og
Ragna Bernburg. Það voru Bretarn-
ir Kyle Taylor og Lauren Boakley
sem fóru með sigur af hólmi í þess-
um flokki.
Hópur 12–15 ára dansaði vínar-
vals. Í heildina voru 170 pör skráð,
þar af 8 íslenzk. Það er skemmst frá
því að segja að einungis eitt íslenzkt
par komst í þriðju umferð eða 48
para undanúrslit, en það voru Frið-
rik Árnason og Sandra Júlía Bern-
burg.
Þriðjudagur: Hópur 11 ára og
yngri keppti í 4 sígildum samkvæm-
isdönsum.
Tvö af þremur íslenzku paranna
komust í aðra umferð og annað
þeirra í 27 para úrslit, þau Karl
Bernburg og Helga Soffía Guðjóns-
dóttir. Sigurvegararnir komu frá
Englandi, þau Kyle og Lauren. Að
sögn Jóns Péturs er þetta sterkasta
par í þessum hópi sem Bretar hafa
átt lengi. „Hvort menn eru svo sam-
mála úrslitunum er svo annað mál!“
Hópur 12–13 ára keppti í cha cha
og rúmbu. Um 60 pör voru skráð til
leiks, þar af 4 frá Íslandi og komust
Þorleifur Einarsson og Ásta Bjarna-
dóttir og Stefán Claessen og María
Carrasco áfram í 48 para úrslit og
síðan ekki söguna meir. Sigurveg-
ararnir voru Rússarnir Roma Shatr-
ov og Kesinia Rusaleeva.
Hópur 12–15 ára keppti í Samba.
Um 200 pör voru skráð til keppn-
innar, þar af 9 íslenzk. Í aðra umferð
komust 4 íslenzku paranna og eitt
þeirra komst í 42 para úrslit, þau
Sigurður Ragnar Arnarsson og
Sandra Espersen. Enn og aftur voru
það Rússar sem sigruðu, þau Andrei
Kisselev og Daria Zviaguina.
Einnig keppti lið Íslands í landa-
keppni 7 landa. Ítalska liðið fór með
sigur af hólmi, mjög verðskuldað að
sögn Jóns Péturs.
Miðvikudagur: Hópur 11 ára og
yngri keppti í cha cha cha. Tvö ís-
lenzk pör, Karl Bernburg og Helga
Soffía Guðjónsdóttir og Magnús
Kjartansson og Ragna Bernburg,
komust í aðra umferð eða 45 para
undanúrslit. Það voru svo Bretarnir
Kyle og Lauren sem sigruðu enn
einu sinni.
Hópur 12–15 ára átti fyrir hönd-
um langan og strangan dag. Hóp-
urinn keppti í öllum sígildu sam-
kvæmisdönsunum fimm. Um 200 pör
voru skráð til leiks, þar af 7 íslenzk.
Þrjú íslenzk pör komust í aðra um-
ferð, 104 para úrslit. Að sögn Jóns
Péturs var þessi keppni skuggalega
sterk og unun á að horfa. Með sigur
af hólmi fóru Eistarnir Roger Niit-
mea og Kerttu Tanav. Í þessum úr-
slitum var margt sem kom á óvart,
t.d. var eitt parið með þrisvar sinn-
um 1. sæti og 4 sinnum 8. sætið. „Það
segir svolítið um styrkleikann í þess-
um flokki,“ sagði Jón Pétur.
Fimmtudagur: Hópur 11 ára og
yngri keppti í vínarvalsi. Til leiks
voru skráð um 60 pör, þar af 3 ís-
lenzk. Karl Bernburg og Helga
Soffía Guðjónsdóttir komust í 3. um-
ferð, 26 para úrslit. Kyle og Lauren
sáu um að sigra í þessum hópi, af
gömlum vana!
Hópur 12–15 ára keppti í suður-
amerísku dönsunum fimm. Um 220
pör voru skráð, þar af 9 íslenzk.
Megnið af pörunum var frá Austan-
tjaldslöndum, eða nálægt 40% og
mjög sterk að sögn Jóns Péturs. Tvö
íslenzk pör komust í aðra umferð eða
102 para úrslit. Marc Ballas og Jul-
anne Houge frá Englandi fóru með
sigur af hólmi. Að sögn Jóns Péturs
dönsuðu þau gríðarlega vel. „Ég hef
aldrei séð aðra eins framför hjá
nokkru pari á einu ári.“ Í öðru og
þriðja sæti voru pör frá Rússlandi,
einnig gríðarlega sterk og vel dans-
andi að sögn Jóns Péturs.
Landakeppni yngri paranna fór
fram á fimmtudeginum. Þar sem ís-
lenzku pörin voru einungis 3 í
Blackpool, fór stjórn keppninnar
þess á leit að Íslendingarnir fengju
lánað par til að geta tekið þátt. Leit-
að var hófanna hjá frændum vorum
Finnum sem tóku bón Íslending-
anna vel og fannst heiður að fá að
fylla skarð þeirra sem ekki komu.
Það er skemmst frá því að segja að
Rússneska sveitin sigraði með
„bravör“.
Föstudagur: Hópur 11 ára og
yngri stóra keppti í fjórum suður-
amerískum dönsum. Þrjú íslenzk
voru skráð af þeim 60 sem dönsuðu.
Karl Bernburg og Helga Soffía Guð-
jónsdóttir og Magnús Kjartansson
og Ragna Bernburg dönsuðu í 42
para úrslit. Enn og aftur voru það
Bretarnir Kyle og Lauren sem sigr-
uðu.
Hópur 12–15 ára keppti í jive. Til
leiks voru skráð 190 pör, þar af 9 ís-
lenzk. Fimm þeirra komust í aðra
umferð, 102 para úrslit. Sigurveg-
ararnir voru Anton Marchuk og
Elena Kalugina frá Rússlandi.
Laugardagur: Hópur 11 ára og
yngri keppti í enskum vals. Um 60
pör voru skráð. Öll íslenzku pörin 3
komust í aðra umferð, Magnús
Kjartansson og Ragna Bernburg,
Sigtryggur Hauksson og Eyrún
Stefánsdóttir, Karl og Helga Soffía
komust svo alla leið í 26 para úrslit.
Enn og aftur voru það Bretarnir
Kyle og Lauren sem sigruðu.
Hópur 12–13 dansaði foxtrot og
tangó. Um 60 pör voru skráð, þar af
3 íslenzk. Björn Einar Björnsson og
Herdís Helga Arnalds og Þorleifur
Einarsson og Ásta Bjarnadóttir
komust í 38 para úrslit eða aðra um-
ferð. Andrey Sirbu og Anna Mart-
senko frá Rússlandi fóru með sigur
af hólmi.
Hópur 12–15 ára keppti í quick-
step. Um 140 pör voru skráð, átta ís-
lenzk. Í aðra umferð fóru 5 pör, eitt
þeirra fór svo í 3. umferð eða 53 para
úrslit, en það voru þau Sigurður
Ragnar Arnarsson og Sandra
Espersen. Enn á ný voru það Rússar
sem hrepptu gullið.
Að fara á keppni sem þessa í
Blackpool skapar keppendum gríð-
arlega reynslu. Það er keppt á hverj-
um degi í 6 daga. Þó ekki gangi vel
einn daginn þá geturðu alltaf náð
þér upp daginn eftir. Eins skapar
svona keppni keppendum sjálfs-
traust og öryggi til að takast á við
stranga keppni.
Tólf íslensk pör
kepptu í Blackpool
DANS
Blackpool
ALÞJÓÐLEG BARNA- OG UNGLINGA-
DANSKEPPNI
Haldin 1.–6. apríl.
Sigurður Ragnar Arnarsson og Sandra Espersen komust einna
lengst íslenzku paranna í hópi tólf til fimmtán ára.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Karl Bernburg og Helga Soffía Guðjónsdóttir náðu bestum árangri
yngri paranna í hópi ellefu ára og yngri.
Jóhann Gunnar Arnarsson