Morgunblaðið - 17.04.2002, Síða 56
DAGBÓK
56 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 faðir, synir og sonasyn-
ir, 8 vélarhlutum, 9 grun-
ar, 10 þakskegg, 11 dauf
ljós, 13 glatar, 15 mergð
18 samfestingur, 21 ýlf-
ur, 22 skordýrið, 23 dysj-
ar, 24 hagkvæmt.
LÓÐRÉTT:
2 svað, 3 rödd, 4 báta-
skýli, 5 ilmur, 6 ljómi, 7
illgjarn, 12 reyfi, 14
vinnuvél, 15 bjáni, 16
ölæra, 17 dútla, 18 heila-
brot, 19 fim, 20 sjá eftir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 demba, 4 hjarn, 7 lýgur, 8 eitur, 9 set, 11 rönd,
13 fann, 14 ótrúr, 15 fant, 17 álft, 20 æða, 22 rógur, 23
netið, 24 armar, 25 tindi.
Lóðrétt: 1 dulur, 2 megin, 3 aurs, 4 hret, aftra, 6 nýrun,
10 eyrað, 12 dót, 13 frá, 15 ferja, 16 nógum, 18 lotan, 19
tíðni, 20 ærir, 21 annt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
AMMA Víkverja, sem komin erfast að níræðu, fékk undarlegt
símtal fyrir ekki alllöngu. Á hinum
enda línunnar var maður sem sagðist
endilega vilja heimsækja hana og
gefa henni mynd. „Af hverju langar
þig að gefa mér mynd?“ spurði gamla
konan undrandi, enda ekki vön því að
fá símtöl frá bláókunnugum mönnum
sem vilja gefa henni gjafir. „Hvað
hangir á spýtunni?“ hélt hún áfram.
Eftir dúk og disk fékk amma upp
úr manninum að hann væri nú bók-
sali og að hann hefði bók sem hann
langaði að sýna henni. Byði hún hon-
um að koma í heimsókn með bókina
fengi hún myndina að launum. „Ég
hef ekkert við fleiri myndir að gera,“
sagði amma enda myndir og málverk
upp um alla veggi hjá henni.
x x x
Á ENDANUM lét hún þó undanog stóð bóksalinn á tröppunum
hjá henni daginn eftir – með mynd-
ina undir annarri hendinni og bókina
undir hinni. Bókin fjallaði um ís-
lenska náttúru og var ábyggilega hin
ágætasta en gamla konan sagðist
ekki hafa mikið við hana að gera.
Hún ætti hillur fullar af bókum,
margar einmitt um náttúru landsins.
Hún væri frekar í því að gefa bækur
úr safninu en sanka að sér nýjum.
En sölumaðurinn ætlaði ekki að
gefa sig. „Getur þú ekki gefið ein-
hverjum þetta í fermingargjöf eða
afmælisgjöf? Kannski þekkir þú ein-
hvern sem er að fara að gifta sig,“
sagði bóksalinn ágengi. Gamla konan
hugsaði með sér að þetta væri
kannski ekki svo galin hugmynd og
spurði um verðið. Hún ætlaði ekki að
trúa eyrum sínum þegar bóksalinn
ropaði verðinu kæruleysislega upp
úr sér. „30 þúsund kall, kostakaup!“
Áfram gekk bóksalinn á ömmu
sem tókst á endanum að ýta honum
út, enn með bókina undir hendinni.
Myndina skildi hann eftir þó gamla
konan vildi helst að hann tæki hana
með sér, enda hafði hún engan áhuga
á myndinni sem var eftirprentun af
ljósmynd tekinni í baðstofunni í
Glaumbæ í Skagafirði.
x x x
VÍKVERJA finnst ófært ef far-andbóksölum finnst allt í lagi að
bjóða sér heim til gamals fólks með
gylliboðum af þessu tagi og falbjóða
bækur fyrir tugi þúsunda. Amma
Víkverja er sem betur fer eldklár og
hress, hefur bein í nefinu og munninn
fyrir neðan það.
Eldra fólk hefur margt hvert
smánarlega lítinn pening til ráðstöf-
unar og er svívirðilegt ef bóksölu-
menn eru farnir að notfæra sér að
sumt gamalt fólk á erfitt með að reka
ýtna sölumenn á dyr og velja eldra
fólk sérstaklega úr þjóðskrá sem
fórnarlömb.
x x x
SÍMSÖLUMENN eru reyndar aðverða sífellt meiri plága. Senni-
lega er það fyrir kaldhæðni örlag-
anna að meðan Víkverji sló inn þenn-
an stutta pistil fékk hann þrjár
upphringingar frá símsölufólki. Einu
sinni frá Alþjóða fjárfestingarmiðl-
uninni og í hin tvö skiptin frá Samlífi
þar sem sölumaðurinn vildi forvitn-
ast um tryggingamál, fyrst var beðið
um Víkverja og seinna skiptið betri
helming hans.
Svarið var að sjálfsögðu það sama í
öll skiptin: „Ég kaupi aldrei neitt í
gegnum síma!“
Byggingar geta verið
andlit þjóðar
ÉG ER ein þeirra, sem
hafa leitað til Velvakanda
með áhyggjur mínar af
opinberum málum. Þann-
ig var það í ágúst 2000 að
ég lýsti vanþóknun minni
á hugsanlegri sölu Val-
hallar á Þingvöllum. Ég
gat ekki með neinu móti
sætt mig við að eignar-
réttur Íslendinga á þess-
um stað yrði borinn fyrir
borð. Nú hefur málið
fengið góðan endi og vil
ég þakka fyrir það.
En nú vil ég vekja
Reykvíkinga af værum
blundi og minna á bygg-
ingu okkar margum-
rædda Tónlistarhúss. Það
er ótrúlegt hvað borg-
arbúar hafa sætt sig við
seinaganginn í þeim efn-
um. Nú er loksins komið
grænt ljós. En þá er það
staðsetning hússins. Fyr-
ir fáum dögum komu
tveir arkitektar fram í
Kastljósinu og ræddu
þeir um framkvæmdir
varðandi ytri umgjörð
svæðis í kringum húsið.
Þótt ég vilji styðja konur
til góðra verka þá verð ég
að segja, að ég var á bandi
Péturs Ármannssonar,
hvað varðar heildar-
myndina. Ég var mjög
undrandi þegar húsinu
var valinn staður þarna
við höfnina, vegna þess,
hve dýrt það hlýtur að
verða að hreinsa þarna
til. Ég vann á þessu svæði
í 13 ár og þekki því vel til.
Ef húsið á að fá fallega
umgjörð, verður að mínu
mati að fjarlægja allar
byggingar á stóru svæði,
hvort sem það eru íbúðir
eða vinnustarfsemi. Og
spurning um, hvað á að
gera með Örfirisey, allt
þetta gamla fiskvinnslu-
og útgerðarsvæði mun
blasa við frá gluggum
þessa nýja húss. Þetta
eru gamlar og lúnar
byggingar og geta ekki
fallið inn í þanna ramma
sem svona nýtískulegt
stórhýsi krefst, sem
teikning Tónlistarhússins
ber með sér. Ef menn sjá
fyrir sér mynd, sem líkist
umhverfi tónlistarhúss
þeirra í Sydney þá verður
að umbylta öllum gamla
vesturbænum og tengja
hið nýja inn til tjarnarinn-
ar. Það væri auðvitað
gaman að gera svona
byltingu ef borgin hefur
efni á því.
Þetta kostar einfald-
lega of mikla peninga. Ég
hefði kosið að velja þessu
húsi stað í Laugardaln-
um, þar sem svæðið er
nokkuð snyrtilegt fyrir,
til að hlífa skattborgurun-
um á þessum tímum
óstöðugleika í fjármálum.
Ég vil þakka borgar-
stjórn fyrir mikið og gott
átak við enduruppbygg-
ingu við Skúlagötu og
margt hefur verið lagfært
og snyrt á undangengn-
um árum. En nú er mikið
í húfi varðandi staðsetn-
ingu þessa nýja húss, sem
á jafnframt að verða ráð-
stefnu- og tónlistarhús,
svo og glæsilegt hótel.
Með þökk fyrir birt-
inguna.
María K. Einarsdóttir.
Einstök húðvörn
ÉG hef til margra ára
fengið kláðaköst í andlit
og því fylgt ónot og van-
líðan. Sem ég stend í einu
slíku kasti og klóra mér
hringir pósturinn dyra-
bjöllunni og afhendir mér
pakka sem reyndist vera
frá Guðrúnu Grétu Tóm-
asdóttur á snyrtistofunni
Safír. Í pakkanum var
húðvörn er hét Proderm,
sem ég prófaði tafarlaust
að bera á mig. Ég vil kalla
þetta kraftaverkalyf, því
árangurinn var slíkur.
Með réttri notkun má
segja að ég sé laus við
kláðann og vanlíðanin
horfin. Þetta er húðvörn
sem ég get tvímælalaust
mælt með og þessa send-
ingu fæ ég seint fullþakk-
að.
Stella.
Tapað/fundið
Snjóbretti týndist
SNJÓBRETTI, fullorð-
ins, týndist af bíl á leið-
inni í Skálafell sl. sunnu-
dag, 14. apríl. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 897 6880.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Puente
Sabaris, Arnomendi
P-63 og Akraberg.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Ludvik Andersen
væntanlegt og Selfoss
kemur til Straumsvíkur.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa
s. 551 4349, opin alla
miðvikud. kl. 14–17, flóa-
markaður, fataútlutun
og fatamóttaka s.
552 5277 eru opin annan
og fjórða hvern mið. kl.
14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa og
postulínsmálun.
Árskógar 4. Kl. 9–12 op-
in handavinnustofan, kl.
13 spilað, kl. 13–16.30 op-
in smíðastofan. Allar
uppl. í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
16 handavinna, kl. 10
banki, kl. 13 spiladagur.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 13–16.30, spil
og föndur.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–16.45
handavinnustofur opnar,
kl. 10–10.45 leikfimi, kl.
14.30 banki.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára 9
opin í dag kl 16.30–18.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 13 föndur
og handavinna, kl. 13.30
enska, byrjendur.
Félag eldri borgara
Garðabæ. Félagsfundur
verður í Kirkjuhvoli
laugard. 20. apríl kl. 14.
Myndasýning. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Félagsvist í
Kirkjuhvoli 23. apríl kl.
19.30, uppskerudagar
sýningar á tómstunda-
starfi vetrarins 22.–24.
apríl kl. 14–18. Fjöl-
breyttar sýningar og
skemmtidagskrá. Kaffi-
veitingar. Garðaberg, ný
félagsmiðstöð á Garða-
torgi. Opið kl. 13–17.
Kaffiveitingar.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Línudans
kl. 11, myndlist og gler-
skurður kl. 13, pílukast
kl 13.30. Skoðunarferð
að Kleifarvatni í dag,
lagt af stað frá Hraunseli
kl. 13. Kaffi í Kænunni í
lok ferðar. Skráning í
Hraunseli s. 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in frá kl. 10–13. Kaffi –
blöðin og matur í hádegi.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9:45. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 17. Línu-
danskennla Sigvalda kl.
19.15. Söngvaka kl.
20.45, umsjón Sig-
urbjörg Hólmgríms-
dóttir. Farin verður
skoðunarferð um
Reykjavík á vegum
Fræðslunefndar FEB í
dag, brottför frá Ás-
garði, Glæsibæ kl. 13.30.
Skráning á skrifstofu
FEB. Baldvin Tryggva-
son verður til viðtals um
fjármál og leiðbeiningar
um þau mál á skrifstofu
FEB á morgun, fimmtu-
dag, kl. 10.30–12, panta
þarf tíma. Fimmtudag-
ur: Brids kl. 13 og brids
fyrir byrjendur kl. 19.30.
Ferðakynning á innan-
landsferðum félagsins
sumarið 2002 ásamt
myndasýningu úr eldri
ferðum verður haldin í
Ásgarði, Glæsibæ, föstu-
daginn 19. apríl kl. 16.
Kynnir Sigurður Krist-
insson, ásamt öðrum
leiðsögumönnum fyr-
irhugaðra ferða.
Söguslóðir á Snæfells-
nesi og þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull, 3 daga
ferð 6.–8. maí, gisting á
Snjófelli á Arnarstapa,
farið verður á Snæfells-
jökul, leiðsögn Valgarð
Runólfsson. Skráning
hafin á skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
f.h. í síma 588 2111.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Kl. 14
spiluð félagsvist alla
miðvikudaga í Selinu,
Vallarbraut 4, Njarðvík.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, postulín,
mósaík og gifsafsteypur.
Opið alla sunnudaga frá
kl. 14–16 blöðin og kaffi.
Félagsstarfið Furu-
gerði. Í dag kl. 9 aðstoð
við böðun, bókband og
alm. handavinna. Kl.
10.15 létt leikfimi. Kl. 14
sagan. Dansleikur verð-
ur í kvöld kl. 20. Hljóm-
sveitin Í góðum gír leik-
ur fyrir dansi. Veitingar.
Allir velkomnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar. Kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar. Frá há-
degi spilasalur opinn. Kl.
14 kóræfing. Veitingar í
Kaffibergi. Tónleikar
laugardaginn 20. apríl í
Fella- og Hólakirkju kl.
16. Fjölbreytt efnisskrá.
Allir velkomnir. Nánar
kynnt síðar. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10 handavinna, kl. 10.
boccia, kl. 11 hæg leik-
fimi, kl. 13 félagsvist
FEBK og glerlist, kl.
15.15. söngur, Guðrún
Lilja mætir með gít-
arinn, kl. 15–16 viðtals-
tími FEBK, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17 bobb.
Hraunbær 105. Kl. 9 op-
in vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Miðvikud. 24. apríl verð-
ur farin ferð um nýju
hverfin í Garðabæ og
Hafnarfirði. Lagt af stað
frá Hraunbæ 105
kl.13.30. Skráning fyrir
22. apríl á skrifstofu s.
587 2888.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55 ró-
leg stólaleikfimi, kl. 13
keramikmálun.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
föndur – klippimyndir,
kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 14
dans, kl. 15 frjáls dans,
kl. 15 teikning og málun.
Allir velkomnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun á Korp-
úlfsstöðum kl. 10. Kaffi-
stofan er opin. Allir vel-
komnir. Uppl. veitir
Þráinn Hafsteinsson S.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa, kl.
9–12 tréskurður, kl. 10
sögustund, kl. 13 banki,
kl. 14 félagsvist, kaffi,
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9.15–16 postu-
línsmálun og mynd-
mennt, kl. 13–14 spurt
og spjallað, kl. 13–16 tré-
skurður.
Vitatorg. Kl. 9 smíði, kl.
10 morgunstund, bók-
band og bútasaumur, kl.
12.30 verslunarferð, kl.
13 handmennt og kóræf-
ing, kl. 13.30 bókband,
kl. 15.30 kóræfing.
Bústaðakirkja, starf
aldraðra. Spilað, föndrað
helgistund og gáta. Gest-
ur: Þorvaldur Hall-
dórsson. Þið sem viljið
láta sækja ykkur látið
skrá ykkur hjá kirkju-
verði s. 553 8500 eða Sig-
rúnu í s. 864 1448
Barðstrendingafélagið.
Félagsvist í Konnakoti,
Hverfisgötu 105, kl.
20.30 í kvöld. Allir vel-
komnir.
Öldungaráð Hauka.
Fundur verður miðviku-
daginn 17. apríl kl. 20 á
Ásvöllum. Fjölmennum.
Hringurinn. Aðalfundur
verður haldinn í Ársölum
Hótel Sögu í kvöld kl. 19.
Kvöldverður.
Félag eldri borgara Sel-
fossi. Mörkinni 5. Hand-
verkssýning eldri borg-
ara á Selfossi í
austurenda Hótels Sel-
foss, 13.–21. apríl kl. 14–
18.
Ættfræðifélagið heldur
félagsfund í fundarsal
Þjóðskjalasafnsins á
morgun, fimmtudag, kl.
20.30. Steinunn Jóhann-
esdóttir rithöfundur flyt-
ur fyrirlestur um Guðríði
Símonardóttur, uppruna
hennar og líf, herleið-
ingu og hjónaband. Hús-
ið verður opnað kl. 19.30.
Hana-nú Kópavogi.
Fundur í Bókmennta-
klúbbi Hana-nú kl. 20 í
kvöld á Lesstofu Bóka-
safnsins. Soffía Jak-
obsdóttir mætir. Munið
námskeiðið í hlátri í
Hláturklúbbi í Gull-
smára kl. 20 á fimmtu-
dagskvöld. Skráning í s:
554 4000 og 564 5261.
Verð 500 kr., hressing
innifalin. Leiðb. Val-
gerður Snæland Jóns-
dóttir.
Í dag er miðvikudagur 17. apríl,
107. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Og hann tók þau sér í faðm, lagði
hendur yfir þau og blessaði þau.
(Mark. 10, 16.)