Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 58

Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                                               ÁSKELL, SAKARI& STRAUSS NOKKUR SÆTI LAUS Richard Strauss: Dansar Salóme Áskell Másson: Hyr frumflutningur Richard Strauss: Alpasinfónían Þrjú glæsileg verk sem aldrei hafa heyrst áður í Háskólabíói. Enda krefst dagskráin yfir eitt hundrað manna hljómsveitar. Það er tónlist sem kveður að. Munið eftir tónleikunum í gulu röðinni 2. maí með einleik Erlings Blöndals Bengtssonar. Athugið breytta dagsetningu. Hljómsveitarstjóri: Peter Sakari AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN rauð áskriftaröð á morgun, fimmtudaginn 18. apríl kl. 19.30 í háskólabíói Sinfóníuhljómsveit Íslands Háskólabíó við Hagatorg Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is www.sinfonia.is        !     "   # $"  #  "   % #   & KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss. 3. sýn lau 20. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI 4. sýn mi 24. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI 5. sýn fi 25. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI Su 28. apr. kl. 20 - AUKASÝNING Lau 4. maí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson Su 21. apr kl 20 - UPPSELT Lau 27. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI Fö 3. maí kl 20 - NOKKUR SÆTI MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fö 19. apr kl 20 - AUKASÝNING Fö 26. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI ATH: Síðustu sýningar TÓNLEIKAR - DÚNDURFRÉTTIR Pink Floyd - The Wall Í kvöld kl 20 og kl 22:30 Fi 18. apr kl 22 - UPPSELT AND BJÖRK OF COURSE ... e. Þorvald Þorsteinsson Lau 20. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI Su 21. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI Lau 27. apr kl 20 - LAUS SÆTI FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon Fi 18. apr kl 20 - UPPSELT Fö 19. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI Su 28. apr kl 20 - LAUS SÆTI ATH: síðustu sýningar PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Su 21. apr kl 16 - Ath. breyttan sýn.tíma GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt Fö 19. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 20. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI Su 21. apr kl 20 - AUKASÝNING PÍKUSÖGUR Á AKUREYRI Kvos Menntaskólans á Akureyri Þri 23. apr kl 17 og kl 21 Miðapantanir í síma 4621797 þriðjud. - fimmtud. 17:00-19:00 Stóra svið Nýja sviðið Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Litla sviðið LEIKFERÐ        .     ;  " 0 " &$ . "& "  ;    (&  <#   = 3  0 " &$   8   0 " &$ . ** +//           ,"  ;    7 %  ;  "    #    ,   $   > +4   ?@  9   3 BBB   sýnir í Tjarnarbíói söngleikinn eftir Þórunni Guðmundsdóttur laugardaginn 20. apríl föstudaginn 26. apríl laugardaginn 27. apríl Síðustu sýningar Sýningar hefjast kl. 20.00. Miðapantanir allan sólarhringinn í síma 551 2525 eða með tölvup. á hugleik@mi.is Miðasala opin alla sýningardaga frá kl. 19.00.  ! Föstud. 19. apríl kl. 20.00 örfá sæti Mánud. 22. apríl kl. 19.00 örfá sæti Miðvikud. 24. apríl kl. 20.00 uppselt Fimmtud. 25. apríl kl. 20.00 uppselt Sýningum fer fækkandi                           „ÞEGAR unnið er að upptökum bíómynda eða sjónvarpsefnis á Ís- landi er það yfirleitt kuldinn sem háir manni; manni er alltaf kalt. Hér er ég aftur á móti alltaf sveittur og fötin blaut og klístruð. Og ég er kominn með þriðja stigs bruna á ennið.“ Svo mælir Jón Gnarr í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Jón er staddur í Hong Kong þar sem hann leikur í kvikmyndinni Maður eins og ég, en tökum myndarinnar lýkur einmitt þar ytra í dag, miðvikudag. Leikstjóri myndarinnar er Ro- bert Douglas, sá hinn sami og leikstýrði Íslenska draumnum en myndina framleiðir Júlíus Kemp í samstarfi við starfsbræður sína í Kína. Jón hefur dvalið ytra í tæplega hálfan mánuð og kemur heim á morgun, fimmtudag. „Þetta er rómantísk þroskasaga taugasjúk- lings, sem ég leik,“ segir Jón Gnarr. „Myndin gerist á Íslandi, í Hong Kong og Kína. Búið var að taka upp á Íslandi áður en við fór- um út, nú hefur mest verið tekið upp á Hong Kong-svæðinu, en við skutumst einn dag inní Kína. Þetta er ástarsaga; ég leik mann sem kynnist kínverskri konu á Ís- landi, hún þarf svo að fara til Kína og ég elti hana þangað.“ Tveir aðrir íslenskir leikarar eru ytra, Þorsteinn Bachmann og Halldóra Geirharðsdóttir sem fara einnig með hlutverk í mynd- inni. Stephanie Chow fer með hlut- verk konunnar sem Íslending- urinn eltir út, en Jón segir hana stjörnu í kvikmyndaheiminum þar ytra. „Okkur hefur gengið mjög vel þrátt fyrir ofboðslegan hita og þetta hefur líka verið svakalega gaman,“ segir Jón og blaðamaður heyrir hann nánast brosa! „Við vorum til dæmis að taka upp á KFUM-hótelinu um daginn og skyndilega vöknuðu grunsemdir um að við værum að gera klám- mynd. Þeir lögðu saman 2 og 5 og fengu út 3 þegar ég sást spranga um á nærbuxunum og bönnuðu umsvifalaust tökur. Ég hafði að vísu bara verið að skipta um föt og málið leystist þegar við sögð- um þeim að þetta væri íslensk mynd. Þeir töluðu við mig og sáu þá auðvitað strax að ég væri eng- inn klámmyndaleikari!“ Jón kvaðst áhugasamur um frekara starf í Hong Kong. „Ég er búinn að hitta einn stærsta kvik- myndaframleiðandann í Hong Kong og er í samningaviðræðum við hann; ég sækist eftir hlut- verkum í Hong Kong-myndum. Mig langar að vera vondi karlinn í kung fu-myndum. En það gengur reyndar ekki vel; þeim finnst ég líklega of góðlegur. Ég æfði einu sinni júdó, þannig að ég gæti ver- ið júdó-illmenni en þeir eru ekki alveg að kaupa það. Ég gefst þó ekki upp; ætla að halda áfram að reyna.“ Stefnt er að frumsýningu kvik- myndarinnar Maður eins og ég á Íslandi í ágúst, en sýningar hefj- ast eitthvað síðar í Hong Kong. Meðal annarra íslenskra leikara í myndinni eru Þorsteinn Guð- mundsson, Katla Margrét Þor- geirsdóttir „og Siggi Sigurjóns sem leikur pabba minn, þó hann sé ekki nema um það bil 10 árum eldri en ég!“ Jón lýsti í upphafi samtalsins miklum hita og að hann hefði t.d. brunnið á enninu. En hann hefur lent í fleiri hremmingum: „Ég er búinn að drepa átta moskítóflugur en verra var að allir vinir þeirra stungu mig á meðan! Ég er lík- lega með kýlasótt; allur útstung- inn og bitinn. Ég held ég hljóti að hafa uppgötvað áður óþekktar pöddur. Þessi skordýr hafa að minnsta kosti aldrei verið neinum til ama áður, er mér sagt; hafa þá væntanlega legið í dvala þar til þau fréttu að ég væri í bænum!“ Jón Gnarr er í Hong Kong við upptökur á nýrri íslenskri kvikmynd Hefur uppgötvað áður óþekkt skordýr! Jón ásamt mótleikara sínum, Stephanie Chow. Borgarleikhúsið Dúndurfréttir leika í kvöld kl. 20 og 22.30 tónlistina af plötu Pink Floyd, The Wall, í heild sinni. Endurtekið annað kvöld kl. 22. Miðaverð er 2.300 kr. Vídalín Valgerður Guðnadóttir syngur söngvaskáldaballöður Joni Mitchell, Tori Amos, Nick Drake o.fl. við undirleik Péturs Hallgríms og Guðmundar Péturssonar. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Morgunblaðið/Billi Pétur og Matti, Dúndurfrétta- menn, í sveiflu. M O N S O O N M A K E U P litir sem lífga Eiginkona Bono kemur til greina sem forsetaefni Verkamannaflokksins EIGINKONA Bono, söngvara írsku hljómsveitarinnar U2, kemur til greina sem forsetaefni Írska verka- mannaflokksins, að því er segir í frétt BANG Showbiz. Flokksforyst- an mun vera að velta því fyrir sér að biðja Ali Hewson um að vera forseta- efni flokksins í kosningunum sem fram fara árið 2004. Hewson, sem er fjögurra barna móðir, vakti athygli flokksins með herferð sinni fyrir lok- un kjarnorkuendurvinnslustöðvar- innar í Sellafield en hún er þeirrar skoðunar að losun úrgangs frá stöðinni mengi sjóinn. Hewson hvatti Íra til að senda póstkort til Tonys Blairs, for- sætisráðherra Bret- lands, og Karls Bretaprins og mót- mæla Sellafield-stöð- inni. Heimildarmaður BANG í Verka- mannaflokknum seg- ir að mikið hafi verið rætt um Hewson. „Hún yrði frábær forseti og hefur ætíð verið afar pólitískt þenkjandi. Hún er þekkt fyrir að forðast sviðsljósið svo að það þyrfti að sannfæra hana.“ U2-arm- urinn fer víða Þessi skemmtilega mynd var tekin af hjónakorn- unum Bono (Paul Hewson) og Ali í kringum 1980.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.