Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 1
FYRRVERANDI nemandi réðst inn
í Gutenberg-framhaldsskólann í
borginni Erfurt í Þýskalandi í gær
og varð 17 manns að bana en fyrirfór
sér síðan. Ódæðismaðurinn var
vopnaður skammbyssu og hagla-
byssu og liðu um tvær stundir áður
en lögreglumönnum tókst að króa
hann af í einni skólastofunni en þá
skaut hann sig. 13 þeirra sem féllu
voru kennarar, einn var skólaritari,
tveir voru nemendur og einn var lög-
reglumaður.
Aðkoman var sögð skelfileg, líkin
lágu á víð og dreif um húsið, meðal
annars á salerni og við aðaldyrnar.
Ungi maðurinn, sem ekki var
nafngreindur í fréttaskeytum, var
rekinn úr skólanum fyrir nokkrum
vikum. Fyrrverandi skólafélagi
hans, Isabelle Hartung, sagðist vera
skelfingu lostin eftir atburðinn. Hún
skýrði frá því að maðurinn, sem var
nítján ára, hefði oft lent í deilum við
kennara fyrir að trufla kennsluna en
hann hefði þrátt fyrir það verið „kát-
ur, mjög greindur og í miklum met-
um hjá vinum sínum“. Eitt sinn hefði
hann sagt að sig langaði til að öðlast
frægð. Hún sagðist ekki vita til þess
að maðurinn hefði notað fíkniefni eða
verið þekktur fyrir byssueign.
Leitaði uppi kennarana
Maðurinn var svartklæddur, með
hanska og húfu er hann birtist í einni
stofunni, að sögn eins nemandans og
mun hafa laumast inn skólann, farið
síðan stofu úr stofu og einkum miðað
vopnum sínum á starfsmenn skólans.
Um 750 nemendur eru í skólanum,
flestir á aldrinum 12–16 ára og voru
þeir í stærðfræðiprófi er maðurinn
kom á staðinn. Flestir komust út en
um 180 nemendur munu hafa verið
innilokaðir í stofunum, sumir leituðu
skjóls undir borðunum. Sjónvarps-
stöðvar sýndu myndir af húsinu
meðan átökin við manninn stóðu yfir
og sást meðal annars spjald í einum
glugganum með ákalli um hjálp.
Fyrst í stað var talið að árásarmenn-
irnir hefðu verið tveir og leitaði lög-
reglan um hríð að öðrum manni en
um misskilning mun hafa verið að
ræða.
Otto Schily, innanríkisráðherra
Þýskalands, gaf skipun um að flagg-
að yrði í hálfa stöng um landið allt á
morgun, sunnudag, til að minnast
hinna látnu. Gerhard Schröder
kanslari sagðist „höggdofa og fullur
hryllings“ vegna atburðarins og
vottaði aðstandendum fórnarlamb-
anna og nemendunum samúð sína.
Neðri deild þýska þingsins sam-
þykkti í gær frumvarp um herta
skotvopnalöggjöf en svo vildi til að
tillaga þess efnis var á dagskrá í gær.
Fyrrverandi nemandi
framdi fjöldamorð
Reuters
Nemendur í skólanum hugga hver annan í gær. 13 kennarar, tveir nem-
endur, skólaritari og lögregluþjónn létu lífið auk morðingjans.
97. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. APRÍL 2002
!"#$#%&
Fjöldamorð/22
Erfurt, Berlín. AFP, AP.
GRÍSKUR dómstóll dæmdi í gær
átta breska og hollenska flugvéla-
áhugamenn í þriggja ára fangelsi
fyrir njósnir en mennirnir voru
handteknir á herflugvelli í Grikk-
landi á síðasta ári. Sex til viðbótar
voru dæmdir í eins árs skilorðs-
bundið fangelsi fyrir aðild að mál-
inu. Fólkinu var sleppt að lokinni
dómsuppkvaðningu en það hefur
áfrýjað dómnum.
Fólkið var handtekið á flugsýn-
ingu í Kalamata í suðurhluta Grikk-
lands í nóvember í fyrra og ákært
fyrir að taka myndir á hernaðar-
svæði. Það fullyrti að það væri á
sýningunni í boði grískra stjórn-
valda og hefði ekki aflað neinna
leynilegra upplýsinga. En saksókn-
arar sögðu við réttarhöldin að fólkið
hefði vitað að það hefði brotið lög og
athæfi þess gæti grafið undan ör-
yggi gríska ríkisins. Kröfðust þeir
þess að þeir úr hópnum, sem voru
með upplýsingar um herflugvélar í
fórum sínum, yrðu fundnir sekir um
njósnir.
Flugáhugamennirnir sátu í fimm
vikur í fangelsi í Grikklandi en voru
látnir lausir 14. desember sl. gegn
tryggingu. Flugáhugi er sagður
mikill í Bretlandi en í Grikklandi er
nánast óþekkt að menn taki myndir
af flugvélum og skrái flug- og teg-
undarnúmer þeirra. Þar er hefð fyr-
ir að mikil leynd ríki um hernaðar-
mál enda hafa Grikkir lengi átt í
illdeilum við nágranna sína, Tyrki.
Flugáhuga-
menn
dæmdir
fyrir njósnir
Kalamata. AFP, AP.
HAGVÖXTUR í Bandaríkjun-
um var 5,8% á fyrsta fjórðungi
ársins 2002, að því er sagði í
skýrslu viðskiptaráðuneytis
landsins í gær. Var sveiflan
meiri en hagfræðingar höfðu
gert ráð fyrir en þeir gerðu ráð
fyrir 5% vexti.
Efnahags- og framfarastofn-
unin (OECD), hefur varað við
því að hætta sé á ofþenslu í
bandarísku efnahagslífi. Stafar
ótti manna af þeirri hættu sem
getur skapast þegar hagkerfið
tekur stóra sveiflu upp á við svo
skömmu eftir samdráttarskeið
eins og það sem ríkt hefur í
Bandaríkjunum. Ignazio Visco,
aðalhagfræðingur OECD,
sagði að menn mættu þó ekki
oftúlka niðurstöðuna. Ekki
væri endilega víst að hér væri
um varanlega þróun að ræða,
sennilegra væri að hagkerfið
jafnaði sig og að stöðugleiki
kæmist á.
Bandaríkin
Mikill
hagvöxtur
Washington, París. AP, AFP.
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti hvatti í gær
enn á ný Ísraela til að hætta árásum á svæði Pal-
estínumanna en skömmu áður höfðu ísraelskar
hersveitir lagt til atlögu í borginni Qalqilya á Vest-
urbakkanum. „Ég hef tjáð mig skýrt og nokkuð
hefur þokast en nú er kominn tími til að binda al-
gerlega enda á [árásirnar],“ sagði hann. Er þetta í
annað sinn á tveim dögum sem Bush hvetur Ísr-
aela til að hörfa með herinn frá hernumdu svæð-
unum. Talsmaður utanríkisráðuneytisins í Wash-
ington sagði í gær að á fimmtudag í næstu viku
yrði haldinn fundur fulltrúa Bandaríkjamanna,
Rússlands, Evrópusambandsins og Sameinuðu
þjóðanna til að ræða málefni Mið-Austurlanda.
Frestað var í gær til sunnudags komu nefndar SÞ
sem á að rannsaka fullyrðingar um fjöldamorð
hersins í Jenin á Vesturbakkanum.
Fulltrúadeild bandaríska þingsins tók í gær af
dagskrá tillögu þar sem Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, var lýst sem hryðjuverkmanni.
Heimildarmenn í þingdeildinni sögðu það hafa
verið gert vegna þrýstings frá Bush sem hefði tal-
ið tillöguna geta hamlað gegn friðartilraunum sín-
um. Bush sagði í gær að hann furðaði sig ekki á því
að þingmenn vildu sýna Ísraelum stuðning. „Ég
vona einnig og tel að þingið horfist í augu við að við
eigum hagsmuna að gæta á svæðinu, ekki einvörð-
ungu gagnvart Ísrael, að við verðum að hafa góð
samskipti við Sádi-Araba, Jórdaníumenn og
Egypta og utanríkisstefna okkar hafi það að
markmiði,“ sagði forsetinn.
Bush hvetur Ísraela til að
yfirgefa hernumdu svæðin
Washington, Jerúsalem, Crawford í Texas. AP, AFP.
Powell/24