Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 8

Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Saman-hópurinn stillir strengina Styrkja og styðja foreldra SAMTÖK sem kallasig „Saman“ ætlaað láta til sín taka við lok samræmdu próf- anna á næstu dögum. Ragnheiður Jónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Áfeng- is- og vímuvarnaráði, er í forsvari fyrir hópinn. Hvenær var félagsskap- urinn stofnaður, hverjir eru í hópnum og um hvað snýst starfið? „Saman-hópurinn er samstarfsvettvangur ým- issa stofnana og samtaka sem eiga það sammerkt að vinna að velferð barna og ungmenna. Í hópnum eru fulltrúar frá Áfengis- og vímuvarnaráði, Lögregl- unni í Reykjavík, embætti ríkislögreglustjóra, Fé- lagsþjónustunni í Reykjavík, Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur, Félagsþjónustunni í Kópavogi, Heimili og skóla, SAMFOK, Fjölskylduráði, Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Götusmiðjunni, Rauðakrosshús- inu og Vímulausri æsku. Forsaga hópsins er sú að um áramótin 1999-2000 tók hópur fólks, sem starfar að forvörnum, sig saman og stóð að hvatningar- átaki undir yfirskriftinni „Fjöl- skyldan saman á tímamótum“. Átakið fólst meðal annars í því að póstkortum var dreift inn á heim- ili landsmanna, auglýsingar birt- ust í ýmsum fjölmiðlum og grein- ar voru ritaðar í dagblöð. Átakið var endurtekið ári síðar og í kjöl- far þess ákvað hópurinn að vinna saman að forvörnum í tengslum við atburði þar sem líklegt er að aukning verði á neyslu vímuefna meðal ungmenna. Dæmi um slík- an atburð eru samræmd próf, 17. júní, verslunarmannahelgar og áramót.“ Hver eru markmiðin með starf- seminni? „Meginmarkmið starfseminnar er að auka samráð fólks sem vinnur að forvarnarstarfi og sam- nýta kraftana. Starf hópsins mið- ar að því að styrkja og styðja for- eldra í uppeldishlutverki sínu. Foreldrar fái skýr skilaboð um mikilvægi þess að axla ábyrgð og verja tíma með börnum sínum. Þeir fá skýr skilaboð um að kaupa ekki eða veita ungmennum áfengi, virða reglur um útivistar- tíma og síðast en ekki síst er vak- in athygli á þeim hættum sem neysla áfengis og annarra vímu- efna setur börn þeirra í. Auk þess að beina sjónum að foreldrum leitumst við við að höfða til barna og ungmenna með fræðslu um skaðsemi áfengis og annarra vímuefna.“ Hverjar eru starfsaðferðirnar? „Saman-hópurinn hittist á mánaðarfresti til að bera saman bækur sínar og skipuleggja næstu verkefni. Stuðst er við ýmsar leiðir til að koma skila- boðum á framfæri. Athygli er vakin á verkefnum hópsins í fjölmiðlum, t.d. með auglýsingum sem fylgt er eftir með greinarskrifum. Einn- ig höfum við farið þá leið að senda póstkort inn á heim- ili landsmanna. Það hefur gefist vel og er í raun ágætis trygging fyrir því að hver og einn lesi þau skilaboð sem við viljum koma á framfæri. Undanfarin ár hefur hópurinn fengið styrk úr For- varnarsjóði sem gerir honum kleift að standa straum af kostn- aði verkefna, en hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði áfengis- og vímuvarna.“ Teljið þið að hópurinn hafi náð umtalsverðum árangri og hvernig metið þið þann árangur? „Foreldrar hafa verið mjög áhugasamir og þau skilaboð sem við sendum virðast hafa borið ár- angur. Undanfarin ár hefur nokk- uð dregið úr drykkju meðal ung- menna ef marka má kannanir. Forvarnarstarf í tengslum við samræmd próf hefur borið sýni- legan árangur. Dregið hefur úr því að ölvuð ungmenni safnist saman í því skyni að fagna próf- lokum. Þetta var þekkt vandamál fyrir ekki svo mörgum árum. Það hefur færst í aukana að foreldrar, félagsmiðstöðvar og skólar taki höndum saman og hvetji ung- menni til að halda upp á lok sam- ræmdra prófa með uppbyggileg- um hætti. Dæmi um þetta eru vímulausar ferðir sem farnar hafa verið strax að prófum lokn- um.“ Verður hópurinn með eitthvað á næstunni til að kynna verkefnin og félagsskapinn? „Já, það verður mikið að gerast hjá okkur á næstunni. Þessa dag- ana einbeitum við okkur að lokum samræmdra prófa. Við hyggj- umst beina skilaboðum til for- eldra með auglýsingum og annars konar umfjöllun í fjölmiðlum. Einnig fengum við leyfi hjá ÁTVR til að hengja upp vegg- spjöld í verslunum þeirra þar sem skilaboðin eru: „Gerðu ekki slæm kaup! Áfengiskaup fyrir unglinga eru lögbrot!“ Þessi spjöld voru hluti af starfi verkefnisins Ísland án eiturlyfja, sem lauk nú á þessu ári. Með þessum skilaboðum viljum við benda á ábyrgð þeirra sem eru að útvega ungmennum undir aldri áfengi. Meðal annarra verkefna sem eru á döfinni má nefna blaðamannafund sem hald- inn verður í byrjun júní þar sem athygli verður vakin á margvís- legum hættum sem börn og ung- lingar standa frammi fyrir yfir sumartímann. Af því tilefni ætl- um við að fara af stað með auglýs- ingaherferð sem ætti ekki að fara fram hjá neinum.“ Ragnheiður Jónsdóttir  Ragnheiður Jónsdóttir er fædd í Reykjavík 7. nóvember 1973. Stúdent frá MS 1993, nam frönsku fyrir útlendinga í Uni- versité de Paul Valéry 1994-95 og útskr. úr sálfræði við HÍ í febrúar sl. Hefur starfað sem táknmáls- túlkur hjá Hröðum höndum en er nú verkefnisstjóri hjá Áfengis- og vímuvarnaráði. Maki er Haraldur Guðni Eiðsson verkefnisstjóri hjá Teymi. Þau eiga eina þriggja ára dóttur, Eygló Helgu. Undanfarin ár hefur dregið úr drykkju Það kom sér að það var búið að leyfa hnefaleika að nýju. FLUGRÁÐ samþykkti á fundi sín- um í gær ályktun þar sem segir að sú ákvörðun borgaryfirvalda að leggja niður eina flugbraut á Reykjavíkur- flugvelli sé tekin án samráðs við samgönguyfirvöld. Muni það þýða skert flugöryggi sem samgönguyfir- völd geti ekki sætt sig við. Í ályktun Flugráðs segir meðal annars: „Í aðalskipulagi fyrir Reykjavík sem samþykkt var í borgarstjórn 18. apríl sl. kemur fram að Reykjavík- urborg hefur einhliða og án nokkurs samráðs við samgönguyfirvöld ákveðið að eftir árið 2016 verði flug- brautum á Reykjavíkurflugvelli fækkað úr tveimur í eina. Áður hafði verið tekin ákvörðun um fækkun úr þremur flugbrautum í tvær,“ og seg- ir að borgar- og skipulagsyfirvöldum hafi ítrekað verið kynntar niðurstöð- ur rannsókna á afleiðingum þess að fækka flugbrautum á Reykjavíkur- flugvelli. Sú niðurstaða sem fram komi í aðalskipulaginu sé því óskilj- anleg. „Alþjóðaflugmálastofnuninn gerir kröfu til þess að nýtingahlutfall flug- vallar með tilliti til hliðarvinds sé við- unandi ef völlurinn er nýtanlegur meira en 95% tímans fyrir þær flug- vélar sem hann á að þjóna. Í skýrslu sem unnin var af verk- fræðideild Háskóla Íslands (febrúar 2000) kemur fram að nýtingahlutfall Reykjavíkurflugvallar muni verða 82% þ.e. flugvöllurinn ónothæfur í 64 daga eða rúma tvo mánuði á ári verði austur/vestur flugbrautin eina flug- braut flugvallarins. Borgaryfirvöld- um er kunnugt um þessar niðurstöð- ur. Það hefur einnig verið sýnt fram á að áhætta vex með auknum hliðar- vindi. Það er því ekki að ástæðulausu sem Alþjóðaflugmálastofnunin gerir kröfu til 95% nýtingarhlutfalls flug- valla. Ákvörðun borgaryfirvalda sem tekin er án nokkurs samráðs við samgönguyfirvöld mun því þýða skert flugöryggi sem fram hefur komið að samgönguyfirvöld geta ekki sætt sig við. Það er skoðun flugráðs að standi sú ákvörðun sem kemur fram í að- alskipulagi muni Reykjavíkurflug- völlur ekki þjóna atvinnuflugi eftir árið 2016. Borgaryfirvöld eru því að vísa innanlandsflugi brott frá Reykjavíkurflugvelli með tilheyr- andi afleiðingum bæði fyrir Reykja- víkurborg og landsbyggðina. Flugráð telur að eðlilegt hefði ver- ið fyrir borgaryfirvöld að tilkynna lokun flugvallarins fremur en bjóða upp á lausn sem skerðir flugöryggi verulega.“ Flugráð ályktar um framtíð Reykjavíkurflugvallar Telja flugöryggi skert með fækkun brauta SÁ ER bauð 60 milljónir króna í víkingaskipið Íslending á netmarkaðnum ebay.com hefur ekki haft samband við eiganda skipsins, Gunnar Marel Eggertsson, og staðfest tilboðið. Gunnar Marel sagðist í samtali við Morgun- blaðið líta svo á að tilboðið væri runnið út í sandinn. Það hefði ekki verið bindandi þar sem það hefði verið undir þeim mörkum sem hann hefði sett sér að fá í skipið. Örlög víkingaskipsins eru því enn óráðin en það hef- ur staðið ónotað í geymslu skammt frá New York í Bandaríkjunum eftir siglinguna frá Íslandi sumarið 2000 í tilefni landafundahátíðarinnar. Gunnar Marel sagði sölu skipsins óháð þeim viðræðum sem hann hefði átt við íslensk stjórnvöld um að koma til móts við hann um greiðslu skulda vegna siglingarinnar. Gunnar Marel sagði skuldir sínar nema á bilinu 12–15 milljónir króna. „Það er misskilningur að ég hafi eingöngu verið að reyna að selja Íslending, ég hef fyrst og fremst verið að reyna að rétta skuldirnar af. Mér finnst það óréttlátt að ég skuli sem einstaklingur úti í bæ þurfa að greiða 12– 15 milljónir á móti ríkinu vegna siglingarinnar. Þetta er stórfé fyrir mig. Skuldunum hefur verið blandað við söluverð skipsins en það skiptir mig í raun engu máli hvort einstaklingar eða íslensk stjórnvöld hafi áhuga á því að kaupa Íslending til landsins. Skipið er alfarið mín eign og engum kemur við öðrum en mér hvort ég fer á hausinn með það eða ekki. Ég er ekki að þrýsta á stjórn- völd um að kaupa skipið heldur aðeins að koma til móts við mig vegna siglingarinnar,“ sagði Gunnar Marel. Ekki staðið við tilboðið á ebay.com Morgunblaðið/Einar Falur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.