Morgunblaðið - 27.04.2002, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 9
Ný sending
Dress, bolir, jakkar, skyrtur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Strets-gallajakkar
pils og buxur
Kakíjakkar - pils og buxur
Stærðir 36—56
Snyrtistofan Guerlain,
Óðinsgötu 1, sími 5623220.
Tilboð
á andlitsböðum
til 2. maíNý sending
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Anna Björnsdóttir
yfir 20 ára yogareynsla
innritun er hafin
yogakennari
flytjum 2. maí
í Héðinshúsinu
Seljavegi 2, 5 hæð
stofnuð 1994
VESTURBÆJAR
YOGASTÖÐ
í nýtt og glæsilegt húsnæði
í síma 511-2777
anna@yogawest.is
YOGA
þriðjud. og fimmtud. 10.30-11.30
þriðjud. og fimmtud. 12.00-13.00
mánud. og fimmtud. 17.25-18.25
þriðjudaga 17.30-19.00
fimmtudaga 18.35-20.05
mánud. og miðvikud. 19.00-21.00
GRUNNNÁMSKEIÐ HEFST 8. MAÍ:
STUNDASKRÁ:
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra og Sigurður Guðmundsson
landlæknir vilja á þessu stigi ekki
gera upp á milli þess hvort miðstöð
fyrir neytendur morfínskyldra
lyfja eigi að vera staðsett á Vogi
eða Landspítalanum – háskóla-
sjúkrahúsi.
Heilbrigðisráðherra átti í gær
fund með Sigurði landlækni og
Hauki Valdimarssyni aðstoðar-
landlækni þar sem þessi mál voru
rædd. Jón Kristjánsson sagði við
Morgunblaðið að þeim fundi lokn-
um að hann þyrfti að láta skoða
betur hugmyndir um þessa mið-
stöð, hvað þær væru mannfrekar
og kostnaðarsamar fyrir ríkissjóð.
Því gæti hann ekki tjáð sig frekar
á þessu stigi.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir sagði við Morgunblaðið að
tillaga um miðstöð fyrir neytendur
morfínskyldra lyfja hefði orðið til
hjá embættinu fyrir nokkrum vik-
um og viðræður m.a. átt sér stað
við Læknafélag Íslands um málið.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
á fimmtudag hefur Læknafélag Ís-
lands sent ráðherra bréf þar sem
farið er fram á að svona miðstöð
verði starfrækt.
Landlæknir sagðist á þessu stigi
ekki geta gert upp á milli hvort
miðstöð af þessu tagi ætti að vera
staðsett á Vogi eða Landspítalan-
um - háskólasjúkrahúsi, mest um
vert væri að hrinda hugmyndinni í
framkvæmd sem fyrst.
Landlæknir sagði að fjöldi
þeirra sem fá morfínskyld lyf til að
mæta fíkn og venjast henni, væri
því miður orðinn það mikill hér á
landi að miðstöð af þessu tagi væri
réttlætanleg. Um væri að ræða
tugi fólks ef ekki meira.
Á miðstöðinni myndu starfa
læknar, hjúkrunarfræðingar, fé-
lagsráðgjafi og sálfræðingur og
sagði landlæknir þörfina væntan-
lega ekki koma í ljós fyrr en mið-
stöðin yrði komin á fót. Hann sagði
miðstöðvar sem þessar algengar
erlendis og hann hefði t.d. kynnst
einni slíkri er hann var við nám í
Bandaríkjunum.
„Aðgerðir okkar til að stemma
stigu við misnotkun lyfjanna mega
ekki verða til þess að þeir sem
þurfa virkilega á lyfjunum að
halda, einkum krabbameinssjúk-
lingar, hafi gott aðgengi að þessari
nauðsynlegu þjónustu,“ sagði Sig-
urður en meðal tillagna hans og
Læknafélags Íslands er að styrkja
þá verkjameðferð sem er til staðar
hjá Landspítalanum. Hann sagði
mikilvægt að umræða um þessi
mál yrði ekki til þess að krabba-
meinssjúklingar færu að sjá sig í
neikvæðu ljósi.
Sama hvaðan
gott kemur
Hvað varðar staðsetningu mið-
stöðvar fyrir neytendur morfín-
skyldra lyfja sagði landlæknir að
allt væri opið í þeim efnum. Rök
væru fyrir því að hafa hana annað
hvort á Vogi eða Landspítalanum.
Á Vogi væri reynsla fyrir hendi og
viss aðstaða í meðferðarúrræðum
og á Landspítalanum væri mikil
breidd til staðar og góð aðstaða.
„Mestu skiptir að byrja að vinna
að þessu og sjá þá hvar best sé að
koma miðstöðinni fyrir með tilliti
til sem flestra þátta. Sama er
hvaðan gott kemur,“ sagði Sigurð-
ur.
Heilbrigðisráðherra og landlæknir um miðstöð
fyrir neytendur morfínskyldra lyfja
Gera ekki upp á milli
Vogs og Landspítalans
HEIÐMERKURVEGUR sem var
orðinn mjög holóttur á köflum var
heflaður í vikunni en Vegagerðin
hyggst í bráð ekki leggja í viðamik-
ið viðhald á veginum þar sem
leggja á nýjan veg.
Bjarni Stefánsson, rekstrarstjóri
Vegagerðarinnar á Reykjanesi,
segir að til standi að leggja nýjan
veg frá Suðurlandsvegi og yfir
brúna yfir álinn milli Helluvatns og
Elliðavatns. Jafnframt eigi að
byggja nýja brú. Af þessum sökum
hafi Vegagerðin ekki viljað kosta
miklu til viðhalds.
„Mér finnst þetta ekki voðalega
sterk afsökun,“ segir Vignir Sig-
urðsson, umsjónarmaður Heið-
merkur. „Þetta er fjölsóttasta úti-
vistarsvæði landsins og ef vega-
kerfið er í ólagi á að halda því við
þótt til standi að gera þar eitthvað
eftir eitt eða tvö ár.“
Hann bendir á að um 200.000
manns fari um Heiðmörk á ári
hverju og helmingur þeirra komi
inn á svæðið við Rauðhóla. Vegur-
inn við Rauðhóla sé orðinn mjög lé-
legur og fólksbílar hafi rekið „kvið-
inn“ í þegar þeir fóru þar um.
Ástandið sé þolanlegt eftir að veg-
urinn var heflaður.
Vignir segir að vegakerfi Heið-
merkur sé að öðru leyti í ágætis
lagi en það er að mestu í umsjón
Gatnamálastjórans í Reykjavík.
Þeir eru þó holóttir eins og gengur
um malarvegi á vorin.
Morgunblaðið/Þorkell
Heflað í holurnar
á Heiðmerkurvegi
JEPPA var ekið út af Holtavörðu-
heiði sunnanverðri í gærmorgun,
skammt frá brúnni yfir Norðurá, og
hafnaði ökutækið í ánni.
Framkvæmdir standa yfir við
brúna þessa daga og segir lögreglan
í Borgarnesi að ökumaður jeppans
hafi ekki tekið eftir viðvörunum um
framkvæmdirnar með fyrrgreindum
afleiðingum. Tveir menn voru í jepp-
anum og sluppu þeir án meiðsla.
Bílvelta undir Akrafjalli
Lögreglan í Borgarnesi var kölluð
út í annað umferðaróhapp upp úr há-
degi í gær. Fólksbíll valt út af þjóð-
veginum undir Akrafjalli, til móts við
bæinn Bekansstaði, en ökumaður
slasaðist ekki alvarlega. Honum var
ekið til aðhlynningar á sjúkrahúsið á
Akranesi.
Jeppi í
Norðurá
♦ ♦ ♦
SEXTÁN ára gamall piltur braut
sautján rúður í fjölbýlishúsi á Höfn í
fyrrinótt. Pilturinn skemmdi einnig
bifreið sem lagt var á stæði við húsið.
Nágrannar vöknuðu við hávaðann
þegar pilturinn gekk berserksgang í
kring um húsið en hann býr sjálfur í
húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Höfn var pilturinn
undir áhrifum áfengis.
Braut sautján
rúður
Hornafirði. Morgunblaðið.