Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 10

Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 10
JÓN Kristjánsson heil- brigðisráðherra upp- lýsti nýverið á Alþingi að hann hefði fengið höfund skýrslu til Al- þingis um ófrjósemisað- gerðir, Unni Birnu Karlsdóttur sagnfræð- ing, til að gera frekari úttekt á framkvæmd laga nr. 16/1938 sem heimiluðu ófrjósemisað- gerðir í vissum tilvikum til ársins 1975. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu kom m.a. fram í fyrr- nefndri skýrslu Unnar að 726 ófrjósemisaðgerðir hafi verið framkvæmdar hér á landi á þeim 38 árum sem fyrrnefnd lög voru í gildi. Skýrslan var lögð fram á Alþingi fyrr í vetur en hún var unnin að beiðni Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þing- manns Samfylkingarinnar. Að sögn heilbrigðisráðherra hefur Unnur m.a. fallist á að kanna frekar þann mikla mun sem er á ófrjósem- isaðgerðum kvenna og karla en í títt- nefndri skýrslu kemur fram að 98% þeirra 726 ófrjósemisaðgerða sem framkvæmdar voru hér á landi hefðu verið gerðar á konum. Auk þess hefur Unnur tekið að sér að bera saman með nákvæmari hætti framkvæmd laganna hér á landi og svipaðra laga í nálægum löndum. Þórunn Sveinbjarnardóttir þakk- aði ráðherra fyrir að fylgja skýrslunni um ófrjósemisaðgerðir úr hlaði og sagði skýrsluna um margt fróðlega. Þórunn benti hins vegar á að lögin nr. 16/1938 hafi fallið úr gildi árið 1975 nema að því er varðaði afkynjanir. „Ég vil nota tækifærið til að benda háttvirtum þingmönnum á að afkynj- anir eða geldingar, eins og þær heita á mannamáli, eru enn heimilar sam- kvæmt lögum á Íslandi. Án þess að hafa kannað það sérstaklega leyfi ég mér að efast um að slíkar aðgerðir séu enn löglegar í nágrannalöndum okk- ar,“ sagði Þórunn og spurði ráðherra hvort hann hygðist beita sér fyrir því að þetta „forna og villimanslega ákvæði verði fellt úr gildandi lögum“. Ráðherra svaraði því til að hann hygðist láta Unni Birnu kafa frekar ofan í tiltekna þætti umræddrar skýrslu þannig að hægt yrði að vinna áfram í málinu. Þórunn Sveinbjarnardóttir Jón Kristjánsson Frekari úttekt á framkvæmd laga um ófrjósemisaðgerðir Nordisk komite fundar í Reykjavík FORELDRAR skóla- barna á Íslandi eiga samkvæmt lögum að hafa með höndum eft- irlit með því að unnið sé eftir skólanáms- skrá. Þetta segir for- maður Heimilis og skóla en Nordisk kom- ite, sem eru norræn samtök systursam- taka foreldrasamtak- anna Heimilis og skóla, fundar í Reykja- vík um helgina. Jónína Bjartmarz, formaður Heimilis og skóla gegnir for- mennsku í Nordisk komite um þessar mundir. Að hennar sögn funda formenn norrænu systur- samtakanna tvisvar á ári og er mikið rætt á þessum fundum um mismunandi aðkomu foreldra og áhrif þeirra á skólastarf. „Þetta er heilmikið í umræðunni í sveitar- stjórnarpólítíkinni og Björn Bjarnason lýsti því oft yfir á meðan hann var menntamálaráðherra að hann vildi sjá foreldra stjórna grunnskólanum. Og nú eru sveit- arstjórnarmenn mikið spurðir að því hvernig þeir vilja tryggja áhrif foreldra.“ Jónína segir þó Heimili og skóla aldrei hafa sett það á odd- inn að foreldrar stjórni grunnskól- anum þó þeir vilji hafa sín áhrif. Foreldrar stjórna skólunum í Danmörku Að sögn Jónínu er stjórnun skól- anna með öðrum hætti á hinum Norðurlöndunum. Í Danmörku eru foreldrar í meirihluta í stjórnum hvers grunnskóla þar sem er fjöl- skipuð stjórn og bera þar faglega og fjárhagslega ábyrgð. Í Noregi er starfandi 14 manna nefnd sem er skipuð af norska konungnum og hún stjórnar þeim samtökum þar í landi sem eru sambærileg Heimili og skóla. „Hver ein- asta króna til rekst- urs og starfsemi kem- ur af fjárlögum þar og ég veit að t.a.m. fyrir síðustualþingis- kosningar í Noregi gerðu þessi samtök sig mjög gildandi og voru með nokkrar mjög almennar kröf- ur um skólamál.“ Hún segir foreldra á Íslandi þó ekki óska eftir að stjórna skól- unum faglega og fjár- hagslega. „Þeir vilja fyrst og fremst fá öfl- ugt samstarf um einstaklinginn sjálfan en einnig um tiltekin hags- munamál skólans sem foreldrum á að vera tryggð aðkoma að í gegn- um foreldraráðin. Þannig að hjá okkur hafa þetta ekki verið átök um völd eins og þessu er gjarnan stillt upp í Noregi og Danmörku.“ Erum að fikra okkur áfram Jónína segir foreldra á Íslandi hafa rétt til að skila umsögn um skólanámsskrá. „Samkvæmt lög- unum ber þeim líka að fylgjast með því að eftir skólanámsskránni sé unnið en það er varla farið að reyna á það nokkurs staðar því við erum enn að fikra okkur áfram með þennan rétt að fá skólanámsskrána til umsagnar meðan þetta er á vinnslustigi.“ Á fundi Nordisk komite um helgina verður meðal annars rætt um að styrkja starfsemi samtak- anna. „Fyrst og fremst er fólk að skiptast á skoðunum og deila reynslu en síðan höfum við vilyrði fyrir því að nota allt útgefið efni frá hinum Norðurlöndunum. Við Ís- lendingar græðum óskaplega mik- ið á þessu samstarfi enda erum við komin heldur styttra á veg en hin- ir.“ Foreldrar vilja öflugt samstarf við skólana Jónína Bjartmarz FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐUR um frumvarp rík- isstjórnarinnar um ábyrgð skulda- bréfa vegna nýrrar starfsemi Ís- lenskrar erfðagreiningar einkenndu helst umræður á Alþingi þá viku sem nú er að líða, ef frá er talinn mánudagurinn, sem fór að mestu í umræður um frumvarp sjáv- arútvegsráðherra um auðlindagjald í sjávarútvegi. Frumvarpið um rík- isábyrgðina virðist ætla að verða það frumvarp á þessu þingi sem hefur vakið hvað mestar pólitískar deilur. Lögin um Kárahnjúka og fyrr- greint frumvarp sjávarútvegs- ráðherra um auðlindagjald eru vissulega dæmi um þingmál sem hafa valdið miklum deilum á þinginu en frumvarpið um ríkisábyrgðina virðist ekki ætla að standa þeim að baki í þessum efnum. Annarri um- ræðu um frumvarpið lauk í gær og má búast við að það verði að lögum eftir helgi; á mánudag eða þriðjudag eða eftir því hvernig samningar tak- ast á milli stjórnar og stjórnarand- stöðu um framhald þinghaldsins. Eins og fram hefur komið var við það miðað í starfsáætlun þingsins að þingfrestun yrði sl. miðvikudag. Nú standa hins vegar yfir viðræður milli stjórnar og stjórnarandstöðu, eins og áður var vikið að, um það hvaða málum eigi að koma í gegnum þingið áður en það fer í sumarfrí. Eftir því sem næst verður komist virðist hins vegar einhver kergja vera komin í þær viðræður og í gærmorgun lýsti Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, því yfir í upphafi þingfundar að stjórnarandstaðan á þingi myndi aldrei láta það ganga yf- ir sig að þeim málum sem biðu ann- arrar eða þriðju umræðu yrði hleypt í gegnum þingið „á einhvers konar færibandi, umræðulaust eða um- ræðulítið“, eins og hann orðaði það. Þingflokksformaður Sjálfstæð- isflokksins, Sigríður Anna Þórð- ardóttir, virtist þó gefa lítið fyrir þessi ummæli Ögmundar og tók fram að eðlilegt væri að menn væru bjartsýnir á að ljúka mætti þinginu á næstu dögum. Kristinn H. Gunn- arsson, þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins, tók hins vegar fram að stjórnarandstaðan hefði fengið þann ræðutíma sem hún hefði talið sig þurfa til að ræða þau þingmál sem til umræðu væru og næðist ekki samkomulag um þinglok gætu þing- menn bara haldið áfram að ræða fram í sumarið. „Við höfum nógan tíma.“ Almennt má þó segja að þögult samkomulag sé um að þingið taki sér hlé nokkrum vikum fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar til að gefa þeim kosningum svigrúm á leiksviði stjórnmálanna. En aftur að umræðum þingmanna um ríkisábyrgð til handa Íslenskri erfðagreiningu. Þær umræður hafa nefnilega verið um margt áhuga- verðar. Fyrsta umræðan um frum- varpið, sem fram fór í þarsíðustu viku, einkenndist að mati undirrit- aðrar af mikilli varfærni meðal þing- manna; yfirlýsingar gegn frumvarp- inu voru í lágmarki nema ef vera skyldi frá einum þingmanni Sjálf- stæðisflokksins, Pétri H. Blöndal, og Sverri Hermannssyni, formanni Frjálslynda flokksins. Þeir skýrðu strax frá því og hafa ítrekað þau um- mæli aftur og aftur í umræðunni að þeir væru eindregnir andstæðingar frumvarpsins. Formaður Samfylk- ingarinnar, Össur Skarphéðinsson, tók hins vegar fram að Samfylkingin myndi ekki „bregða fæti fyrir af- greiðslu frumvarpsins“. Í fyrstu umræðunni bentu margir þingmenn á, og þar á meðal þeir Pét- ur H. Blöndal og Einar Oddur Krist- jánsson, þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, að fyrir um tíu árum hefði því verið lýst yfir að tími svonefndra sértækra aðgerða væri liðinn, þ.e. aðgerða sem gengju út á að styðja einstök atvinnufyrirtæki. Töldu margir þingmenn að með frumvarp- inu um ríkisábyrgðina væri rík- isstjórnin að sveigja út frá þeirri stefnu. Athyglisvert er að þingmenn Vinstri grænna, flokks sem sam- kvæmt svokölluðum hægri og vinstri skala stjórnmálanna ætti að vera fylgjandi ríkisafskiptum, hafa síst af öllum verið sparir á þá gagnrýni sína að ríkisstjórnin og þar með Sjálf- stæðisflokkurinn væri með frum- varpinu að vinna gegn stefnu um minni ríkisábyrgðir. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, gagnrýndi þetta m.a. harkalega og sagði að með frumvarpinu væri ríkisstjórnin að fara út í ein „stórfelldustu ríkisaf- skipti sögunnar“. Að lokinni fyrstu umræðu fór um- rætt frumvarp fyrir efnahags- og viðskiptanefnd þingsins og hófst önnur umræða um það sl. þriðjudag. Þá var ljóst að meiri andstaða var við það innan þingsins en ætla mátti í fyrstu umræðunni. Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hafa lýst andstöðu við það og ljóst er að Samfylkingin mun ekki, að því er fram kemur í nefnd- aráliti Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar, þing- manna flokksins, styðja málið, þrátt fyrir yfirlýsingar Össurar í fyrstu umræðu um að Samfylkingin myndi ekki bregða fæti fyrir afgreiðslu þess. Hefur Össur reyndar gefið þá skýringu í Morgunblaðinu að það þýði að Samfylkingin muni ekki beita málþófi til að koma í veg fyrir frumvarpið. Hvað sem því líður hef- ur Jóhanna lýst því yfir að hún muni greiða atkvæði gegn frumvarpinu og ljóst má vera að fleiri þingmenn Samfylkingarinnar munu gera slíkt hið sama. Einhverjir þeirra munu þó sitja hjá, þar á meðal Össur. Víst er að flestir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins munu styðja frum- varpið þótt einhverjir þeirra kunni að hika. Að minnsta kosti lýsti Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, því yfir á heimasíðu sinni nýlega að sem talsmaður einka- framtaks og minni ríkisumsvifa hlyti hún að hika þegar ríkisábyrgð til einkafyrirtækis væri annars vegar. Hún tekur þó fram að í umræddu til- viki sé til mikils að vinna að hagn- aður af starfsemi lyfjaþróunarfyr- irtækis ÍE verði eftir í landinu. Það muni leiða til aukinnar hagsældar. Athygli hefur hins vegar vakið að enginn þingmaður Framsókn- arflokksins hefur kvatt sér hljóðs í umræðunni um ríkisábyrgðina nema Kristinn H. Gunnarsson, en það gerði hann síðla dags í gær í and- svari við ræðu Kolbrúnar Halldórs- dóttur, þingmanns VG. Í máli hans kom m.a. fram að vissulega fylgdi umræddu frumvarpi áhætta en það breytti því ekki að hann væri frum- varpinu fylgjandi.      Umræður um ríkisábyrgð áberandi í vikunni EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is arsson, Framsóknarflokki, og kváð- ust þeir fylgjandi frumvarpinu. Kristinn sagði m.a. að frumvarpinu fylgdi vissulega áhætta en hann væri því samt fylgjandi. Ríflega sextíu þingmál voru á dag- skrá þingfundar í upphafi fundarins á Alþingi í gær en ekki tókst að taka neitt þeirra mála á dagskrá sökum þess að umræður um frumvarpið um ríkisábyrgðina tóku allan daginn. Verða þau þingmál aftur á dagskrá þingfundar á Alþingi í dag. ANNARRI umræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um að heimilt verði að veita 20 milljarða ríkis- ábyrgð vegna fyrirhugaðrar upp- byggingar lyfjaþróunardeildar á vegum Íslenskrar erfðagreiningar lauk síðdegis í gær. Gert er ráð fyrir því að þriðja og síðasta umræða um frumvarpið fari fram eftir helgi. Umræður um frumvarpið stóðu yfir í allan gærdag. Tóku þar m.a. til máls þeir Gunnar I. Birgisson, Sjálf- stæðisflokki, og Kristinn H. Gunn- Yfir 60 mál á dagskrá – aðeins eitt var rætt ÞINGFUNDUR á Alþingi hefst kl. tíu í dag. Fimmtíu og átta þingmál eru á dagskrá fundarins og er fyrsta málið frumvarp sjávarútvegsráð- herra um fiskveiðar utan lögsögu Ís- lands. Má gera ráð fyrir því að þingfund- ur standi fram eftir degi og að síðan verði boðað til fundar á mánudag. Fimm frum- vörp að lögum FIMM frumvörp urðu að lögum frá Alþingi í gær. Má þar m.a. nefna frumvarp til tollalaga en samkvæmt þeim er tollstjórum nú heimilt að ljúka málum með sektarboði sem nemi allt að 300.000 kr. í stað 75.000 kr. áður. Ennfremur fellur niður með tollalögunum 10% tollur af barnabílstólum sem viðurkenndir eru samkvæmt tilteknum stöðlum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.